Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Síða 25
Dómstóll götunnar
Takk fyrir að sýna fram
á pólitísk áhrif fjölmiðla
Mér kemur við líf og
hegðun samborgaranna
Jónína Benediktsdóttir þakkaði Bjarna Benediktssyni – FacebookSnorri í Betel var á Beinni línu DV á miðvikudag – Bein lína DV
Að gagnrýna gagnrýni
„Já, hann kom og fór þannig að
ég er bara mjög sáttur.“
Ragnar Guðmundsson
26 ára arkitektanemi
„Það er alltaf gott að sjá snjóinn.
Mér líst mjög vel á þetta.“
Vífill Rútur Eiríksson
22 ára arkitektanemi
„Smá snjór, það er bara menning-
arstemning í því. En maður nennir
samt ekki að fá allt slabbið.“
Sigurður Baldursson (Siggi B.)
19 ára spilar með Breakbeat.is.
„Bara fínt. Ég er hrifinn af snjónum,
sérstaklega því ég á ekki bíl.“
Kári Sigurðsson
20 ára vinnur á Faktorý.
„Æðislegt!“
Hafdís Ársælsdóttir
26 ára verkefnastjóri.
Hvernig finnst
þér að fá
snjóinn aftur?
Skjaldborgin hrundi
Þ
að er hreint út sagt dásam-
legt að sjá hversu samhentur
þingheimur hefur verið við að
reisa skjaldborg um skuldir.
Rétt eins og Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra hefur marglof-
að var mikið lagt í umrædda vörn.
Vandinn er kannski sá að varnirnar
voru reistar í þágu hrægammanna
sem eignuðust bankana. Skuldar-
ar úr hópi almennings lentu utan
við skjaldborgina en innan hennar
kumrar í söddum hrægömmum sem
náðarsamlegast fengu hvers kyns lán
Íslendinga á slikk og innheimtu af
fullum þunga.
Og þegar svo virtist sem þjakaðir
skuldarar landsins væru að fá af-
slætti frá gömmum bankanna greip
Alþingi til þess að setja verndarlög
svo hrægammarnir hefðu nóg að bíta
og brenna. Alþingi Íslendinga sam-
þykkti lögin með miklum meirihluta
að frumkvæði Jóhönnu og Steingríms
J. Sigfússonar. Sett var undir þann
leka sem hefði getað gert hrægamm-
ana svanga og máttfarna. Aðeins
þingmenn Hreyfingarinnar voru á
móti lagasetningunni en aðrir sátu
hjá. Þess ber þó að geta að Þór Saari
og félagar eru alltaf á móti.
Nú hefur Hæstiréttur úrskurðað
að hrægammalögin hafi verið brot á
stjórnarskrá. Þetta er auðvitað hrika-
leg árás Hæstaréttar á ríkisstjórn og
Alþingi. Það má auðvitað ekki létta á
skuldaklafa Alþingis. Það kostar þá
sem keyptu lán landsmanna á slikk
stórfellt fjártjón. Í stað þess að fá tí-
faldan gróða af braskinu gæti ávinn-
ingurinn farið niður úr öllu valdi.
Árás Hæstaréttar á banka vog-
unarsjóðanna er þess eðlis að nauð-
synlegt er að Alþingi finni upp nýja
brellu til að endurreisa skjaldborg
um hrægammana. Nú þurfa allir
góðir menn og konur að koma til
hjálpar. Það verður þegar í stað að
þagga niður þær raddir sem krefj-
ast þess að þing verði rofið og efnt til
kosninga. Góða fólkið sem reyndi að
bjarga gömmunum verður að fá ann-
að tækifæri til að klekkja á skuldug-
um og spilltum almenningi. Nú gildir
það eitt að standa saman í nauðum
þeirra sem í sakleysi sínu keyptu
skuldir á slikk en virðast ætla að sæta
skerðingum. Áfram Jóhanna. Þetta er
bara hálfleikur.
Svarthöfði
H
allur (stundum kenndur við
Keikó) Hallsson, ritaði um dag-
inn grein í Moggann og segir
þar að RÚV sé málpípa valdhaf-
anna. Þegar hann heldur því fram að
maðkur sé í mysunni og að fámenn
klíka stjórni stofnuninni með hroka
og hlutdrægni, þá er einsog hann sé
að opinbera okkur leifar þess stalín-
íska tíma þegar, hinn núverandi blað-
burðardrengur, Dabbi litli, hrækti að
mönnum hótunum og stjórnaði öllum
hrunadansinum af sannri siðblindu.
Hallur virðist ekki hafa áttað sig á
því að stjórnarskipti fóru fram fyrir
nokkrum misserum. Hann er núna
að gagnrýna það sem hann hefði átt
að hafa rænu á að gagnrýna þegar hér
var virkilega um óeðlilegan frétta-
flutning að ræða. Ég er að tala um
þá gömlu góðæristíma þegar blaða-
mannastéttin minnti á hlýðna hunda
sem fóru í einu og öllu að fyrirmæl-
um þeirra sem tóku góðærið að láni,
með góðfúslegu leyfi helmingaskipta-
klíku Sjálftökuflokksins og þjófafélags
Framsóknar.
Hallur hefði bæði mátt hlusta og
rýna í þingfréttaflutning þann sem
RÚV býður okkur, og hefði þá vænt-
anlega skilið að þar fer fremst í flokki
sjálfstæðiskona sem veitir núverandi
stjórnarandstöðu allan þann styrk
sem hugsanlega má veita. Sú ágæta
kona fjallar yfirleitt um öll mál útfrá
þeim forsendum sem sjálfstæðis-
mönnum eru í hag. Ef Jóhanna Vigdís
fjallar um mál á þingi þá opinberar
hún skoðanir flokkssystkina sinna og
gætir þess vandlega að halla á hlut
Jóhönnu og Steingríms. Hún hefur
meira að segja náð að setja kúlulánap-
arið Bjarna Ben og Ólöfu Nordal á
stall. En það er stórkostlegt afrek, útaf
fyrir sig.
Þegar Hallur Hallsson spyr einsog
fréttamaður frá kaldastríðsárum sið-
blindunnar hefði átt að gera, hvort
RÚV sé ógnun við lýðræðið, get ég
svarað og sagt: -Já, Hallur, RÚV er
ógnun við lýðræðið á meðan þing-
fréttaritari stofnunarinnar er gjör-
sneiddur allri gagnrýninni hugsun. En
Hallur heldur áfram: „Ríkisútvarpið
hefur ríkar skyldur, ber að gæta sann-
girni og óhlutdrægni í fréttum og
fréttatengdu efni og kynna sjónarmið
jafnt, eins og segir í reglum.“
Vissulega er þetta allt gott og bless-
að og verðugt umhugsunarefni fyrir
menn einsog Hall, menn sem geta les-
ið um það í skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis um aðdraganda banka-
hrunsins, hvernig fjölmiðlar brugðust
skyldum sínum. Og þar má einnig lesa
um það hvernig ástand þeirra mála
hefur batnað eftir hrun.
Í heita pottinn kom, nokkuð reglu-
lega hér á árum áður, ágætur eldri
herra, sem sagði: -Íslendingar eru yfir-
leitt blábjánar; 33% eru þó nokkuð
ágætir einstaklingar, 33% eru afætur,
33% eru siðblindir eiginhagsmuna-
seggir og 1% er fólk einsog hundurinn
Hannes – þeir sem flæmdir eru upp
úr pottinum. En um þann Hannes var
eitt sinn ort eftirfarandi vísa:
Hann fáa góða frasa á
sem fýsir menn að heyra
en vitnað getur vel í þá
sem vitið hafa meira.
Birtir til að lokum Það var heldur drungalegt um að litast í Njarðvíkurhöfn þegar ljósmyndara DV bar þar að garði einn morguninn í vikunni. Það birti þó fljótlega til enda fer
sólin hækkandi með hverjum degi sem líður. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
„Nei, en þingmenn mættu koma betur fram
hver við annan,“ segir Vigdís Hauksdóttir. Gunnar Bragi
Sveinsson lagði til á Alþingi að Steingrímur J. Sigfússon yrði
rassskelltur fyrir að segja Sigmundi Davíð að þegja.
Skortir aga á Alþingi?
Umræða 25Helgarblað 17.–19. febrúar 2012
1 Kominn út úr skápnumBandaríski leikarinn Matt Bomber er
samkynhneigður.
2 Fegurðardrottning stefnir lýtalækni
Fanney Lára Guðmundsdóttir hefur
stefnt Ólafi Pétri Jakobssyni lýtalækni.
3 „Ég bara réð ekki við þetta“Hafsteini Númasyni stefnt af Avant
vegna bílaláns sem hann gat ekki
staðið í skilum með.
4 „Það er bara til svona fólk“Eiríkur Ingi, sem lifði af þegar Hall-
grímur SI sökk, heyrði af póstum þar
sem honum var kennt um slysið.
5 Steinunn Ólína flutt heim og undirbýr forsetaframboð
Komin heim frá Bandaríkjunum og býr
sig undir baráttuna um Bessastaði.
6 Coco í klandri: Nakin með litla frænda sinn
Glamúrfyrirsætan Coco blæs á gagn-
rýnisraddir vegna vafasamrar myndar.
7 „Formaður Sjálfstæðis-flokksins er kjáni“
Mörður Árnason fer hörðum orðum
um Bjarna Benediktsson og Vafnings-
málið.
Mest lesið á DV.is
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson