Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Page 27
Viðtal 27Helgarblað 17.–19. febrúar 2012
vængi með uppsögninni. Hún er að
leggja lokahönd á vefsíðuna sigga-
lund.is, lífsstílssíðu ætlaða konum.
„Ég hef lengi gengið með þessa hug-
mynd í maganum. Alveg frá því ég var
í Zúúber. Það er fullt af svona síðum
en það sem mér finnst vanta er eitt-
hvað sem höfðar til eldri kvenna,
svona 35 ára plús. Það eru allir í þess-
ari æskudýrkun. Hvernig á að fara að
deita eftir fertugt og allt þetta, það tal-
ar enginn um það. Ég ætla að leika
mér aðeins á síðunni. Vera með net-
sjónvarp og prófa mig áfram. Ég hvet
fólk til þess að fylgjast með á sigga-
lund.is en við ætlum að opna síðuna
1. apríl.“
Sigga stendur ekki ein að síðunni
en sonur hennar Elí og kærastinn, Að-
alsteinn Sigurðarson, eru með henni í
þessu. Þau fluttu nýlega saman í rað-
hús í Leirvogstungunni til þess að
geta sett alla sína krafta í undirbún-
ing síðunnar. „Við ákváðum að sam-
eina þetta allt hérna. Strákurinn minn
var að leigja annars staðar, hann er
klippari og upptökumaður og hefur
sitt pláss hér. Svo breyttum við bíl-
skúrnum í ljósmyndastúdíó því kær-
astinn minn er ljósmyndari, ofsalega
klár, þannig að við erum bara í þessu
saman,“ segir hún brosandi.
Kynntist kærastanum í erótísku
nuddi
Aðalsteinn kærasti Siggu er sveita-
strákur frá bænum Vaðbrekku, sem er
rétt fyrir utan Egilsstaði. Þau kynnt-
ust við frekar skondnar aðstæður
þegar hún var á ferðalagi um landið
með morgunþættinum Zúúber. „Við
vorum að skemmta á Egilsstöðum og
partur af sýningunni var að ég kenndi
erótískt nudd,“ segir Sigga og skellir
upp úr. „Andskotans vitleysa, jæja,“
segir hún hlæjandi og heldur áfram.
„Zúúber gekk svolítið út á þetta kyn-
lífstal allt saman. Það varð úr að ég
fór í korselett og nuddaði fórnarlamb
úr salnum. Hann var fórnarlambið
þetta kvöldið og hreifst svona svaka-
lega, eitthvað gerði ég rétt,“ segir hún
hlæjandi. Sigga var ekki á þeim bux-
unum að taka saman við nuddfórn-
arlambið frá Egilsstöðum. „Ég ætlaði
mér aldrei neitt með þennan strák.
Hann er þrettán árum yngri en ég fyr-
ir það fyrsta. Þegar við erum komnar
á þennan aldur, þá vill maður vera
svo skynsamur og svona og það kom
aldrei til greina að vera með yngri
manni og allt þetta.
Síðan tók ég bara þann pólinn í
hæðina, ég ætla bara að vera í þessu
meðan þetta virkar, meðan okkur líð-
ur vel. Meðan þetta er að gefa mér
eitthvað og er að gefa honum eitt-
hvað. Ef þetta eru tvö ár frábært, sex
mánuðir frábært og ef þetta er „for-
ever“ þá er það líka frábært. Og þann-
ig hef ég tæklað þetta og það hefur
gengið rosalega vel. Sveitastrákar eru
náttúrulega bara öðlingspiltar upp
til hópa. Maður veit það ekki fyrr en
maður kynnist þeim, þvílíkir öðlingar.
Það er alveg ótrúlegt,“ segir hún bros-
andi. „Hann þurfti nú að ganga pínu-
lítið á eftir mér og úr varð að hann
heimsótti mig og ég heimsótti hann.
Og þetta var svolítinn tíma að mallast.
Svo gerðist þetta bara. Hann heillaði
mig.“
Nú hafa þau verið saman í rúm-
lega tvö ár og Sigga segir aldursmun-
inn ekki hafa skipt máli. „Ég hef ekki
orðið vör við neina aldursfordóma,
held ég hafi bara verið ein að ströggla
við það. Hann og strákurinn minn ná
rosalega vel saman og eru miklir fé-
lagar og það skiptir miklu máli.“
Tilheyrði sértrúarsöfnuði
Sigga hefur vakið mikla athygli í út-
varpinu og þá kannski hvað helst
fyrir framlag sitt í þættinum Zúúber
á FM957 sem hún stjórnaði ásamt
þeim Sigvalda (Svala) Kaldalóns og
Garðari (Gassa) Ólafssyni. Þátturinn
var afar vinsæll og þríeykið vakti at-
hygli fyrir oft og tíðum opinskáar um-
ræður um hin ýmsu málefni, þar á
meðal kynlíf. Sigga var með eindæm-
um opin um líf sitt og var í góðu sam-
bandi við hlustendur. Það er merki-
legt í ljósi þess að aðeins nokkrum
árum fyrr lifði Sigga allt öðru lífi. Þá
tilheyrði hún sértrúarsöfnuði þar sem
hún fylgdi í einu og öllu því sem leið-
togar safnaðarins sögðu. Þar til hún
var rúmlega þrítug lifði hún hinu full-
komna kristna lífi. Þegar hún byrjaði
í morgunþættinum Zúúber þá hafði
tilvera hennar fyrrum hrunið og hún
var að uppgötva lífið á nýjan hátt – og
gerði það oft og tíðum í hreinni ein-
lægni, í beinni útsendingu.
Uppgötvaði lífið í beinni
útsendingu
„Komandi úr þessari kirkju og því öllu
þá hafði ég nýlega öðlast svo mikið
frelsi. Frelsi til að tjá mig, frelsi til að
hafa skoðun, frelsi til að velja. Ég hafði
það ekkert innan veggja kirkjunnar.
Ég bara hlýddi og gerði það sem Biblí-
an sagði mér að gera eða það sem þau
sögðu mér að gera,“ segir hún og á við
leiðtoga Frelsisins, íslensk hjón sem
stjórnuðu söfnuðinum.
„Ég umfaðmaði þetta frelsi svo
mikið og ég fór oft og tíðum alveg yfir
mörkin en svo fann ég mitt jafnvægi.
Þarna er maður bara að finna sér tak-
mörk. Og í þættinum þá var það eig-
inlega dálítið þannig. Þátturinn var
eiginlega dálítið minn sálfræðingur
og þarna var ég bara að upplifa líf-
ið dálítið í beinni útsendingu með
hlustendum. Og ég ræddi þetta rosa-
lega mikið við þá. Ég held að það hafi
verið minn sálfræðingur í gegnum
þetta allt saman. Að geta sagt frá, tal-
að og fengið viðbrögð.“
Staðráðin í að þjóna guði
Saga Siggu er hreint ótrúleg. Þegar
hún var sex ára hófust kynni henn-
ar af guði almáttugum. Honum vildi
hún þjóna og gera hvað hún gæti til
að boða fagnaðarerindið og bæta
heiminn. „Ég var sex ára þegar ég
byrjaði að fara í sunnudagaskólann
í Betel í Vestmannaeyjum. Ég varð
strax staðráðin í því að þjóna guði
allt mitt líf og segja öllum hvað Jes-
ús væri frábær og gæti gert lífið svo
miklu betra. Fyrir fermingu tók ég
svo niðurdýfingarskírn og þá fann
ég bara að hjarta mitt tilheyrði hon-
um,“ segir hún og á við guð. Foreldrar
hennar höfðu ekki hvatt hana áfram í
trúnni heldur var þetta eitthvað sem
hún sótti sjálf í. „Ég var ekki samferða
þeim í þessu og ég gerði þetta á mín-
um forsendum. Ég hef einhvern veg-
inn alltaf synt öðruvísi, alltaf á móti
straumnum. Mamma og pabbi voru
ekki hrifin af því að ég tæki þessa nið-
urdýfingarskírn þannig að ég fór og
settist inn í skessustyttuna á Stakka-
gerðistúni í Vestmannaeyjum, ég
man þessa stund alltaf, og bað svo
innilega til guðs, að hann myndi leyfa
mömmu og pabba að leyfa mér að
gera það sem mig langaði. Mig lang-
aði svo að þjóna guði og bæta líf mitt
og annarra.“
Sigga segist hafa verið öðruvísi en
hinir krakkarnir. „Ég og Systa, æsku-
vinkona mín, vorum þær einu í okkar
árgangi sem fermdumst ekki. Við vor-
um alltaf voða prúðar og góðar, lékum
okkur í Barbie til 14 ára aldurs þegar
sumir jafnaldrar okkar voru farnir að
sofa hjá og mála sig, við vorum voða
seinar til,“ segir hún og skellir upp úr.
Gifti sig 18 ára
17 ára gömul flutti hún í höfuðborg-
ina. Þar hélt hún áfram að rækta trú
sína og gekk til liðs við Fíladelfíu-
söfnuðinn. „Þar kynntist ég strák og
stuttu seinna vorum við trúlofuð.
Við giftum okkur svo nokkrum mán-
uðum seinna því það mátti ekki sofa
hjá fyrir giftingu. Brúðkaupið var á 18
ára afmælisdaginn minn, 16. júlí 1988
arkaði ég inn kirkjugólfið,“ segir hún
hlæjandi að minningunni. Stuttu
eftir brúðkaupið varð Sigga ófrísk að
syni sínum, Elí Þór. Hjónabandið ent-
ist í sex ár en þá skildu þau.
Full iðrunar eftir einnar nætur
gaman
„Eftir skilnaðinn fór ég að vinna á
Hard Rock og kynntist ljúfa lífinu,
maður,“ segir Sigga og skellir upp úr.
Þarna var hún 24 ára fráskilin móð-
ir og hafði aldrei smakkað áfengi.
Lífið hafði snúist um trúna sem var
henni svo mikilvæg. „Þarna átti ég
nokkra mánuði sem voru alveg rosa-
lega skemmtilegir. Ég fór í ríkið í
fyrsta skipti og keypti rússneskan
vodka og fór á fyllerí með stelpun-
um í vinnunni. Ég var svo saklaus og í
fyrsta sinn á ævinni fór ég að taka eft-
ir athygli karlmanna. Það er ekki mik-
ið um það í kirkjunni, þar er bannað
að vera að daðra. Þó svo þú eignað-
ist kærasta og svona þá var það ekki
þannig. Þetta var ótrúleg upplifun,
bara „vá, er ég kannski sæt?“ Ég var
að vinna nokkra mánuði á Hard Rock
og ég held ég hafi farið tvisvar á fyll-
erí. Á seinna fylleríinu þá var ég alveg
á skallanum og svaf hjá einhverjum
strák. Ég kom heim þann morgun full
iðrunar vegna trúar minnar, svona
nokkuð gerir maður ekki í trúnni,
maður sefur ekki bara hjá einhverj-
um. Full iðrunar fór ég á hnén og bað
guð um að fyrirgefa mér, ég vildi bara
þjóna honum. Mér leið alveg rosa-
lega illa yfir að hafa gert þetta. Stuttu
seinna var ég komin í biblíuskóla
í Bandaríkjunum. Það leiddi mig
svo stuttu seinna inn í Frelsið,“ segir
Sigga. Á þeim tíma vissi hún ekki að
söfnuðurinn ætti eftir að stjórna lífi
hennar næstu árin.
Var algjörlega heilaþvegin
„Í biblíuskólanum áttum við með-
al annars að skrifa ritgerð um það
hvernig við vildum ná til fólks með
fagnaðarerindið. Ég skrifaði
Uppgötvaði lífið í
beinni útsendingu
Þrettán árum yngri Aðalsteinn,
kærasti Siggu, er þrettán árum yngri en
hún. Fyrst kom það ekki til greina að vera
með yngri manni en svo ákvað hún að
láta á það reyna. myndir aðalSTeinn SiGUrðarSon
Gaf kirkjunni allt Sigga segist hafa
verið gjörsamlega heilaþvegin þegar hún
var í söfnuðinum og allir hennar peningar
runnu til kirkjunnar.
„Maður var bara
heilaþveginn og ég
get sagt það í dag – al-
gjörlega heilaþveginn á
allan hátt. Ég veit hvernig
það er að vera heilaþvegin.
„Kennarinn kall-
aði mig á fund því
hún hélt ég væri alkóhól-
isti vegna þess að barnið
mætti svo slitrótt í skól-
ann, var svo oft veikt og
alltaf þreytt.