Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Qupperneq 28
28 Viðtal 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað heillanga ritgerð þar sem ég útlist- aði það og fjallaði um hvernig mig langaði að kynna það fyrir ungu fólki á nútímalegan hátt. Þegar ég var að útskrifast kallaði skólastjór- inn mig á sinn fund og spurði hvað ég ætlaði að gera þegar ég kæmi heim. Ég sagði honum að ég færi kannski í Veginn eða Fíladelfíu. Þá sagði hann að það væri ungt fólk frá Reykjavík sem væri að fara að stofna kirkju í miðbæ Reykjavíkur og lýsti hvernig starfið yrði. Þetta passaði allt svo vel við það sem ég hafði skrifað í ritgerðina og og mín- ar hugsanir á þessum tíma. Svo er svo skrýtið – að þessi hjón komu ekki í skólann fyrr en önnina á eft- ir mér, þannig að það var eins og það væri búið að ákveða þetta fyrir- fram.“ Sigga fór heim og beið þess að söfnuðurinn yrði settur á laggirnar. „Það kom svo að því og við vorum fimm sem vorum saman frá upp- hafi, þrjú með þeim hjónum.“ Siggu óraði ekki fyrir því út í hvað hún var að fara. „Maður var bara heilaþveginn og ég get sagt það í dag – algjörlega heilaþveginn á allan hátt. Ég veit hvernig það er að vera heila- þvegin. Það er kannski þess vegna sem ég varð svona „extreme“ þegar ég losnaði út úr þessu. Gaf kirkjunni allt Leiðtogarnir stjórnuðu söfnuðinum á allan hátt. „Stjórnunin var rosaleg. Ég sé það núna að þetta var í raun- inni bara andlegt ofbeldi. Það gekk allt út á það í hvernig skapi þau voru. Það snerist mjög mikið um peninga og þau misnotuðu peninga kirkjunn- ar. Ég var einstæð móðir í láglauna- vinnu og lét allan minn pening renna til kirkjunnar. Ég hafði stundum ekki efni á kókómjólk fyrir strákinn minn því að kirkjan gekk fyrir. Ég var í fullri vinnu og þar að auki var starfið í kirkj- unni full vinna. Maður var þarna öll- um stundum að gera eitthvað.“ Sigga stóð ekki vel fjárhagslega en samt sem áður lét hún alla sína peninga renna til kirkjunnar. „Það var kannski ekki kirkjunni að kenna að ég skuldaði peninga en trúin var svo sterk og óskynsemin svo mikil að ég gaf kirkjunni allt. Ég gaf þeim tíund af laununum, í byggingar- sjóði, græjusjóði og alls konar svona. Ég var bara einstæð móðir á skíta- launum og með allt niður um mig í fjárhagnum. Kirkjan kom fyrst. Borga tíund, gefa þetta og hitt, svo voru fórnir þrisvar í viku þar sem dreift var umslögum og maður átti að gefa frjáls framlög.“ Vanrækti soninn vegna kirkjunnar Sigga segist skammast sín fyrir að hafa fylgt með en hún hafi verið heila- þvegin. Eitt atvik er henni sérstaklega minnistætt. „Ég veit ekki hvort ég á að þora að segja frá því, ég skammast mín svo fyrir það,“ segir hún alvarleg. „Einu sinni var ég kölluð á fund hjá kennara stráksins míns, sem þá var í Vogaskóla. Kennarinn kallaði mig á fund því hún hélt ég væri alkóhólisti vegna þess að barnið mætti svo slitr- ótt í skólann, var svo oft veikt og allt- af þreytt,“ segir Sigga og augljóst er að það tekur á að rifja þetta upp. „Það var auðvitað vegna þess að ég var oftast uppi í kirkju langt fram á kvöld, nán- ast öll kvöld, með litla guttann með mér. Kirkjan kom fyrst. Ég skamm- ast mín svo hrikalega fyrir þetta,“ seg- ir hún og dæsir. „Ég gerði mér ekki grein fyrir þessu. Ég hélt bara ég væri að gefa guði allt. Guð færi aldrei fram á svona.“ Óreynd að hjálpa fólki í sjálfs- vígshugleiðingum Söfnuðurinn rak félagið Sókn gegn sjálfsvígum. „Það varð svona ein mesta peningamaskínan þeirra tel ég í dag,“ segir Sigga. Sókn gegn sjálfs- vígum rak neyðarsíma þar sem fólk í sjálfsmorðshugleiðingum gat hringt inn til þess að fá aðstoð. „Það var mjög óábyrgt allt saman. Þar var ungt fólk að svara símanum sem hafði enga menntun eða kunnáttu til þess að takast á við fólk í þessu ástandi. Einn skar sig á púls meðan ég var með hann á línunni. Sem betur fer vorum við komin í samstarf við 112 þarna þannig að ég gat sent hjálp til hans en þetta var mjög óábyrgt,“ segir hún. Söfnuðurinn fékk líka lán til þess að reka meðferðarheimili. „Þau fengu lán til þess að byggja meðferðarheim- ili. Fyrir lánið var keypt einbýlishús í Grafarvogi sem þau innréttuðu fyrir sig og fluttu inn í. Það var aldrei rekið neitt meðferðarheimili en ef einhver spurði þá stóð til að gera það í kjallar- anum á húsinu.“ Algjörlega í beisli Sigga bjó í raðhúsi með nokkrum öðrum ungum konum úr söfnuð- inum. Hún var í litlu sambandi við fjölskyldu sína á þessum tíma. „Ég var kannski ekki búin að slíta öll tengsl við fjölskylduna en sam- kvæmt þeim þá var fjölskyldan nán- ast óvinur. Ég man að mamma var alltaf að reyna að bjóða mér í mat en ég hafði aldrei tíma. Fjölskylda mín var að reyna að koma fyrir mig vitinu en þá var litið á fjölskylduna sem djöfla að hindra verk guðs,“ segir Sigga og andvarpar og heldur svo áfram. „Þetta var svo klikkað allt saman og í raun ótrúlegt að svona hafi gerst á litla Íslandi.“ Mikil stjórnun átti sér stað innan safnaðarins. „Það var alltaf einhver tekinn fyrir og lagður í hálfgert ein- elti. Ég man að einu sinni var sagt að ég væri með einhvern Jezebel- anda inni í mér og þá mátti enginn tala við mig og það áttu helst bara allir að forðast mig. Það gengu allir í gegnum eitthvað svona, þetta var náttúrulega bara viss aðferð til þess að halda manni niðri. Ég man að einu sinni átti ein stelpan sem bjó í raðhúsinu með mér að hafa daðr- að við forstöðumanninn og þá tal- aði enginn okkar við hana. Þessi ár þarna voru meira en að segja það. Maður var algjörlega í beisli.“ Völdu maka fyrir fólkið Leiðtogarnir þurftu að samþykkja makaval safnaðarmeðlima. „Ef þú hafðir tilfinningar til einhvers þá þurftir þú að fara til þeirra og fá sam- þykki. Ég var einu sinni skotin í strák í kirkjunni og fór til þeirra til þess að fá samþykki. Ég fékk það ekki og þurfti þá að kyngja þeim tilfinningum sem ég hafði. Maður var gjörsamlega heilaþveginn. Enda var okkur sagt að þjóna leiðtogum okkar eins og guði og það gerðum við. Tvær stelpur sem bjuggu með mér urðu svo heppnar að fá samþykkta maka og þá var allt und- ir þeirra umsjón. Þau skipulögðu öll deit, hvert ætti að fara, hvenær skyldi koma heim og allt það. Þær giftust báðar mönnunum og önnur þeirra kyssti í fyrsta skipti uppi við altarið. Heldur þú að það sé klikkun?“ segir Sigga. Skírlífi var talið mikilvægt innan safnaðarins og gerðu leiðtogar hans mikið út á það. „Við fórum einu sinni í trúboðsferð til Portúgal. Þegar við vorum á ströndinni þá áttum við að vera í bolum yfir sundfötunum til þess við myndum ekki freista fólks. Síðan var mælt með að við horfð- um ekki á ákveðnar myndir, á víd- eókvöldum var til dæmis spólað yfir kynlífsatriði. Við erum að tala um fullorðið fólk,“ segir Sigga. Sprakk vegna framhjáhalds Miðað við hversu mikla áherslu leiðtogarnir lögðu á siðprýði safn- aðarmeðlima þá var það töluvert áfall þegar söfnuðurinn sprakk vegna framhjáhalds annars leið- togans. „Hún hélt við 21 árs strák úr söfnuðinum. Það var allt mjög skrýtið við það hvernig þetta end- aði. Þessu var haldið leyndu fyrir safnaðarmeðlimum í svolítinn tíma. Síðan var haldin var samkoma þar sem forstöðumaðurinn sagði frá framhjáhaldi eiginkonu sinnar en hann ætlaði að halda áfram með söfnuðinn. Ég var ein af mörgum sem gekk úr kirkjunni þennan dag. Stuttu seinna lagði söfnuðurinn upp laupana.“ Mikið sofið hjá Við tók mikil uppbygging. Sigga þurfti að læra á lífið upp á nýtt. „Bara það að þurfa að taka ákvarð- anir sjálf var heilmikið mál. Því að að lifa svona lífi er svo ábyrgðarlaust. Þú lést alla aðra taka ákvörðun fyrir þig, biblíuna eða þau, leiðtoga safn- aðarins og maður bara hlýddi. Fyrst var bara erfitt að ákveða litla hluti, á ég að fara til hægri eða vinstri, get- ur ekki einhver sagt mér það … guð!“ segir hún hlæjandi. Sigga flutti út úr raðhúsinu og heim til mömmu með Elí Þór. „Það var nú bara þannig að maður hellti sér á djammið. Þetta var bara djamm, helst fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag. Þannig fékk maður útrás. Ég og vinkona mín sem var í kirkjunni líka öskruðum og grétum, og töluðum og urðum reið- ar, og fórum svo á dansgólfið í fimm tíma,“ segir hún og skellir upp úr. „Þetta var bara svona mín heilun. Ég var 30 að verða 31 árs þegar kirkjan splundraðist. Þá hafði ég sofið hjá tveimur mönnum um ævina. Og þú getur ímyndað þér, að maður fór nú aðeins að tékka á þessu,“ segir Sigga óhrædd á sinn einstaka hátt. „Ég svaf mikið hjá og bara gerði allt sem ég hafði ekki mátt gera í söfnuðinum.“ Saknar hlustendanna Eins og áður sagði lá leið hennar eftir þetta allt saman svo í útvarp- ið, þar sem hún undi hag sínum vel. Hún hafði áður öðlast útvarps- reynslu á trúarlegu útvarpsstöðinni Stjörnunni. Hún segist helst sakna tengslanna við hlustendur. „Ég er alveg viss um að ég á eftir að fara í útvarp aftur eða sjónvarp. Minn- ingarnar frá þessum árum eins og í Zúúber eru svo frábærar og ég geymi þær alltaf í hjarta mér. Þetta bara á svo vel við mig og mér þyk- ir svo vænt um þetta mikla sam- band sem ég náði við hlustendur. Ef, eða ég segi eiginlega bara þeg- ar, ég fer aftur í útvarp þá langar mig aftur í þessi tengsl við fólkið,“ segir hún með tárin í augunum. „Vá, ég fæ bara tár í augun við að tala um þetta!“ segir hún og skell- ir upp úr. „Svona er ég bara, ég er svo mikil tilfinningamanneskja. En ég er mjög spennt að þróa síðuna og held að þetta eigi eftir að vera mjög skemmtilegt. Og ég vona ég geti komið á þessu sambandi við lesendur þar sem ég hafði við hlust- endur í útvarpinu.“ Uppgötvaði lífið í beinni Sigga segist hafa umfaðmað frelsið eftir að hún hætti í sér- trúarsöfnuðinum. Hún segist hafa upplifað lífið í beinni útsendingu. „Þátturinn var eig- inlega dálítið minn sálfræðingur og þarna var ég bara að upplifa lífið dálítið í beinni útsendingu með hlustendum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.