Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 46
Þ
orgrímur fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp við
Unnarstíginn auk þess sem
hann var í sveit á sumr-
in í Mjóanesi í Þingvalla-
sveit og á Reykjahvoli í Mosfells-
sveit. Hann var í Landakotsskóla til
tíu ára aldurs og síðan í Miðbæjar-
skólanum, brautskráðist úr Versl-
unarskóla Íslands 1942 og stundaði
framhaldsnám í verslunarfræðum,
spænsku, ensku og blaðamennsku
við Rider College í Trenton í New
Jersey í Bandaríkjunum.
Þorgrímur var sem strákur við
saltfiskbreiðslu á Baldursstöð við
Skerjafjörð, var fisksendill hjá
Kristni Magnússyni og bar út póst í
aukavinnu. Hann var hjálparkokkur
á togaranum Baldri á síldveiðum
og síðar háseti á sama skipi, en það
sigldi til Englands á stríðsárunum.
Þorgrímur starfaði á skrifstofu
síldarverksmiðjunnar á Djúpavík
sumarið 1940, hjá heildversluninni
Columbus í Reykjavík 1942, starfaði
hjá Fiskimálanefnd 1945, skipulagði
afgreiðslustöð ms Laxfoss í Reykja-
vík 1945 og starfrækti hana fyrsta
árið fyrir skipafélagið Skallagrím hf.
í Borgarnesi og starfaði hjá fyrirtæk-
inu Gísla Halldórssyni hf. 1947.
Þorgrímur starfrækti eigið fyrir-
tæki, heildverslunina Þ. Þorgríms-
son & Co, frá 1942 með tveggja ára
hléi og um langt árabil. Fyrirtækið,
sem selur byggingavörur, er sjötíu
ára í ár og er nú rekið af syni hans.
Þá starfrækti Þorgeir í þrjátíu og þrjú
ár verksmiðjuna Varmaplast, sem
framleiddi plasteinangrun húsa.
Þorgrímur sat í stjórn Sálarrann-
sóknarfélags Íslands um árabil frá
1977, sat í stjórn Alliance Française
1990, er einn af stofnendum Club
Romania, félags áhugamanna um
rómönsk tungumál, og var ræðis-
maður Chile 1977–92.
Fjölskylda
Þorgrímur kvæntist 30.8. 1951 Jó-
hönnu Kjartansdóttur Örvar, f. 26.7.
1927, frístundamálara og frístunda-
ljósmyndara. Hún er dóttir Kjartans
Guðjóns Tómassonar Örvar, f. 23.1.
1892, d. 26.9. 1970, yfirvélstjóra
við rafstöðina við Elliðaár, og k.h.,
Clöru Birgette Örvar, f. Hyrup 12.8.
1896, d. 21.3. 1980, húsmóður.
Börn Þorgríms og Jóhönnu eru
Hanna Þóra, f. 7.6. 1952; Hrafnhild-
ur, f. 1.5. 1954; Þorgrímur Þór, f. 2.7.
1956, kvæntur Elisabet Saguar, f.
1956, og eru börn þeirra Astrid El-
isabet, taugasálfræðinemi í Banda-
ríkjunum, og Daníel Þór, nemi í
líffræði við Háskóla Íslands.
Systkini Þorgríms eru Margrét, f.
8.12. 1913, d. 18.8. 2004, var gift Þór-
oddi Oddssyni menntaskólakenn-
ara sem lést 1986; Guðrún, f. 13.11.
1915, d. 1.9. 1936; Ólafía, f. 10.12.
1916, d. 1998, var gift Kjartani Ragn-
ars stjórnarráðsfulltrúa; Ólöf Jóna, f.
27.10. 1919, d. 13.12. 1941; Sigurður,
f. 11.6. 1911, nú látinn, yfirhafsögu-
maður, kvæntur Þóru Steingríms-
dóttur; Hjalti Jón Þorgrímsson, f.
30.7. 1926, fyrrv. stýrimaður, kvænt-
ur Eyrúnu Eiríksdóttur.
Foreldrar Þorgríms voru Þor-
grímur Sigurðsson, f. 3.10. 1890, d.
31.8. 1955, togaraskipstjóri, lengst af
á Baldri, og Guðrún Jónsdóttir Mýr-
dal, f. 17.1. 1890, d. 21.3. 1970, hús-
móðir.
Ætt
Þorgrímur skipstjóri var sonur Sig-
urðar, sjómanns í Vík og að Minna-
Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd,
bróður Gísla að Minna-Knarrarnesi,
föður Sigurðar loftskeytamanns og
Ingibjargar, móður Sigurðar loft-
skeytamanns, Eiríks, loftskeyta-
manns og rafvirkja og Sigurborgar,
magisters í frönsku, þýsku og mál-
vísindum, Jónsbarna. Sigurður í
Vík var sonur Sigurðar Gíslasonar.
Móðir Þorgríms skipstjóra var Mar-
grét Magnúsdóttir frá Auðnum á
Vatnsleysuströnd.
Guðrún var hálfsystir Sigurjóns
Mýrdal, skipstjóra í Hafnarfirði, föð-
ur Jóns Mýrdal, deildarstjóra hjá
ríkistollstjóra, föður Garðars Mýr-
dal, forstöðumanns geislaeðlis-
fræðideildar Landspítala Háskóla-
sjúkrahúss. Guðrún var dóttir Jóns
Mýrdal, bróður Eldeyjar-Hjalta, afa
Hjalta Geirs Kristjánssonar, fyrrv.
forstjóra, föður Ragnhildar, ráðu-
neytisstjóra í samgönguráðuneyt-
inu og Vigdísar fréttamanns hjá rík-
issjónvarpinu. Jón var sonur Jóns,
b. á Fossi í Mýrdal, bróður Gísla í
Norður-Götu, langafa Erlends Ein-
arssonar forstjóra SÍS, og dr. Jóns
Þórs Þórhallssonar, fyrrv. forstjóra
SKÝRR. Jón var sonur Einars, b. í
Þórisholti í Mýrdal Jóhannssonar.
Móðir Jóns sjómanns var Guðný
Jónsdóttir, pr. á Stóru-Heiði sem
talinn er sonur Jóns, pr. og skálds á
Bægisá. Móðir Guðnýjar var Guðný,
systir Þórunnar, ömmu Jóhannes-
ar Kjarval. Önnur systir Guðnýjar
var Guðríður, langamma Sveins á
Fossi, afa Sveins Runólfssonar land-
græðslustjóra og Brynju Benedikts-
dóttur leikstjóra, móður Benedikts,
leikara og leikstjóra.
Útför Þorgríms fór fram í kyrrþey
frá Fossvogskapellu 8.2. sl.
46 Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað
S
norri fæddist á Flateyri við
Önundarfjörð. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1947,
stundaði nám við Flug-
skólann Cumulus og Flugskólann
Pegasus 1946–50, lauk atvinnuflug-
mannsprófi árið 1950 og blindflugs-
prófi 1952, fyrstur til að ljúka slíku
prófi hér á landi.
Snorri var lausráðinn flugmaður
hjá Flugfélagi Íslands hf. 1950–51,
var flugmaður og flugstjóri hjá Flug-
félagi Íslands og síðar Flugleiðum hf.
1952–81 á DC-3, Katalína-flugbát-
um, DC-4, Vickers Viscount, DC-6B
og Boeing 727.
Snorri stofnaði Sólarfilmu, ásamt
Birgi Þórhallssyni, árið 1961, en seldi
sinn hlut í fyrirtækinu árið 1980.
Hann hafði alla tíð mikinn áhuga á
ljósmyndun, átti mikið safn íslenskra
báta- og skipaljósmynda og var mjög
fær náttúruljósmyndari eins og víða
hefur sést, m.a. í blöðum, bókum og
á almanökum. Á síðustu árum vann
Snorri að varðveislu íslenskrar flug-
sögu í myndum og máli, sem lauk
með útgáfu bókarinnar Íslenskar
flugvélar í 90 ár, útg. 2010.
Fjölskylda
Snorri kvæntist 30.4. 1950, eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Nönnu Nagt-
glas Snorrason, f. 9.3. 1930. Foreldr-
ar Nönnu voru Helga Gísladóttir
Ólafsson, f. 25.7. 1910, d. 1.4. 1985,
húsfreyja, og Henri Lucien Nagt-
glas, f. 21.3. 1906, d. 15. 4. 1966, sjó-
liðsforingi í hollenska sjóhernum.
Börn Snorra og Nönnu eru Jón Karl,
f. 26.3. 1950 en kona hans er Þórey
Jónsdóttir, f. 13.4. 1970, börn Jóns
Karls og fyrrv. eiginkonu, Ingibjarg-
ar Marteinsdóttur, f. 30.11. 1952, eru
Sigríður Nanna, f. 1971, gift Ingvari
Mar Jónssyni og eiga þau þrjú börn,
en Sigríður Nanna á eina dóttur fyr-
ir; Snorri Bjarnvin, f. 1979, í sam-
búð með Erlu Kristinsdóttur og eiga
þau eina dóttur; Þórhildur Marta
Ósk, f. 1982, í sambúð með Þorsteini
Pálssyni og eiga þau tvær dætur, en
börn Jóns Karls og Þóreyjar eru Sóley
Hrefna, f. 2001; Heiður Helga, f. 2004.
Snorri, f. 24.3. 1954 en kona hans
er Guðrún Magnea Rannversdóttir, f.
20.10. 1960 og eru börn þeirra Gunn-
hildur Hlín, f. 1984, í sambúð með
Karli Sæmundi Sigurðssyni og eiga
þau tvo syni; Nanna Bryndís, f. 1988,
í sambúð með Grétari Erni Sigurðs-
syni; Rannveig Eva, f. 1998.
Helga Guðrún, f. 28.4. 1959, í
sambúð með Gísla Tryggvasyni, f.
6.6. 1967 en sonur Helgu og Þórðar
Ragnarssonar, f. 25.3. 1964, er Snorri
Páll Þórðarson, f. 1.9. 1986, í sambúð
með Hlín Gunnlaugsdóttur.
Haukur, f. 28.6. 1968, í sambúð
með Höddu Björk Gísladóttur, f.
22.8. 1962 og er sonur þeirra Sigurð-
ur Snorri, f. 18.5. 2004.
Systkini Snorra voru: Örn, f. 1912,
d. 1985. Hildur, f. 1914, d. 1915.
Haukur, f. 1916, d. 1958. Jóhannes
Reykjalín, f. 1917, d. 2006. Anna Sig-
rún, f. 1920, d. 2009 og Gunnhildur, f.
1922, d. 2011.
Foreldrar Snorra voru hjón-
in Snorri Sigfússon, f. 31.8. 1884 á
Brekku í Svarfaðardal, d. 13.4. 1978,
skólastjóri á Flateyri og á Akureyri og
síðar námsstjóri Norðurlands á Ak-
ureyri, og Guðrún Jóhannesdóttir, f.
24.10. 1885 á Þönglabakka í Grýtu-
bakkahreppi, Suður-Þingeyjarsýslu,
d. 17.1. 1947, húsfreyja.
Ætt
Snorri Sigfússon var bróðir Björns, b.
í Tjarnargarðshorni í Svarfaðardal afa
Leifs Hannessonar verkfræðings og
Helgu Hannesdóttur, barna- og ung-
lingageðlæknis. Systir Snorra náms-
stjóra var Ingigerður, amma Snorra
skipstjóra og Júlíusar framkvæmda-
stjóra Snorrasona. Snorri námsstjóri
var sonur Sigfúsar, skipstjóra og b.
á Brekku og á Grund í Svarfaðar-
dal Jónssonar, b. í Syðra-Garðshorni
Jónssonar, b. í Syðra-Garðshorni
Sigfússonar, b. á Melum Jónssonar.
Móðir Jóns Sigfússonar var Sigríður
Halldórsdóttir. Móðir Jóns Jónssonar
var Solveig Ólafsdóttir, b. á Hærings-
stöðum Sigurðssonar, og Helgu Jóns-
dóttur. Móðir Sigfúsar var Guðlaug
Gunnlaugsdóttir frá Hellu.
Móðir Snorra námsstjóra var
Anna Sigríður Björnsdóttir, b. á
Grund, bróður Guðrúnar, ömmu
Tryggva Sveinbjörnssonar skálds,
Péturs Zóphóníassonar ættfræðings,
og Páls Zóphóníassonar, alþm. og
búnaðarmálastjóra, föður Hannes-
ar bankastjóra, Páls Agnars yfirdýra-
læknis, Hjalta, framkvæmdastjóra
hjá Sambandi íslenskra samvinnu-
félaga, Zóphóníasar, verkfræð-
ings og skipulagsstjóra ríkisins og
Vigdísar, móður Páls bókmennta-
gagnrýnanda og Ingu Láru safn-
varðar Baldvinsbarna. Önnur syst-
ir Björns var Guðný, amma Pálínu
ljósmóður, móður Hermanns Jónas-
sonar forsætisráðherra, föður Stein-
gríms forsætisráðherra, föður Guð-
mundar, alþm., en systir Pálínu var
Anna, amma Sigurðar Björnssonar,
fyrrv. bæjarverkfræðings Kópavogs,
og langamma Héðins Steingríms-
sonar, stórmeistara í skák og núver-
andi Íslandsmeistara. Þá var Guðný
amma Þorkels Þorkelssonar veður-
stofustjóra og langamma Sigurjóns
Rist vatnamælingarmanns, föður
Rannveigar Rist, forstjóra Alcan á
Íslandi. Þriðja systir Björns var Mar-
grét, langamma Zóphóníasar, yfir-
tollvarðar á Akureyri, föður Lárus-
ar, fyrrv. amtbókavarðar á Akureyri.
Björn á Grund var sonur Björns, b.
í Ytra-Garðshorni Arngrímssonar,
b. í Ytra-Garðshorni Sigurðssonar.
Móðir Björns á Grund var Margrét
Oddsdóttir. Móðir Önnu Sigríðar var
Ingigerður Jónsdóttir, b. á Jarðbrú
Ólafssonar, og Ingigerðar Jónsdóttur.
Guðrún var dóttir Jóhannesar, b.
á Kussungsstöðum í Fjörðum Jóns-
sonar Reykjalín, pr. á Þönglabakka
Jónssonar Reykjalín, pr. á Rípum
Jónssonar, pr. á Breiðabólstað í Vest-
urhópi Þorvarðssonar, föður Frið-
riks, langafa Ólafs, afa Ólafs Ragn-
ars Grímssonar forseta. Móðir Jóns
á Þönglabakka var Sigríður Snorra-
dóttir, pr. á Hofsstöðum Björns-
sonar, bróður Jóns, langafa Pálínu,
móður Hermanns Jónassonar for-
sætisráðherra, föður Steingríms for-
sætisráðherra, föður Guðmundar
alþm. Móðir Sigríðar var Steinunn
Sigurðardóttir, bróður Ingibjargar,
konu Gísla Magnússonar, biskups á
Hólum, og Sigríðar, móður Sigurðar
Stefánssonar, biskups á Hólum. Sig-
urður var sonur Sigurðar, lögsagnara
á Geitaskarði Einarssonar, biskups
á Hólum Þorsteinssonar. Móðir Sig-
urðar Sigurðssonar var Kristín Mark-
úsdóttir, systir Magnúsar, föður Gísla
biskups á Hólum. Móðir Jóhannesar
var Sigríður Jónsdóttir, b. á Kimba-
stöðum í Skagafirði Rögnvaldssonar,
og Ragnhildar Þorfinnsdóttur, lrm.
á Brenniborg Jónssonar. Móðir Þor-
finns var Sesselja Sigurðardóttir, b.
á Hofsstöðum Gíslasonar, og Stein-
unnar Steingrímsdóttur, b. á Hofi
Guðmundssonar, ættföður Stein-
grímsættar yngri.
Móðir Guðrúnar var Guðrún
Hallgrímsdóttir, b. á Hóli í Fjörðum
Ólafssonar, og Ingveldar Árnadótt-
ur, b. á Sveinsströnd við Mývatn Ara-
sonar, b. á Skútustöðum Ólafssonar.
Móðir Árna var Þuríður Árnadóttir, b.
á Halldórsstöðum í Laxárdal Gísla-
sonar, og Sigríðar Sörensdóttur, b. á
Ljósavatni Jensen. Móðir Sigríðar var
Guðrún Þorvaldsdóttir, pr. og skálds
á Hofi í Vopnafirði Stefánssonar, pró-
fasts og skálds í Vallanesi Ólafssonar,
prófasts og skálds á Kirkjubæ Einars-
sonar, prófasts og skálds í Heydölum
Sigurðssonar. Móðir Guðrúnar var
Kristín Björnsdóttir, sýslumanns á
Munkaþverá Magnússonar, og Helgu
Guðmundsdóttur, sýslumanns á
Þingeyrum Hákonarsonar. Móðir
Helgu var Halldóra Aradóttir, sýslu-
manns í Ögri Magnússonar, og Krist-
ínar Guðbrandsdóttur, biskups á
Hólum Þorlákssonar.
Útför Snorra fór fram frá Vídalíns-
kirkju í Garðabæ 13.2. sl.
Snorri Snorrason
Flugstjóri og áhugaljósmyndari f. 2.5. 1930 – d. 21.1. 2012
Andlát
Andlát
Þorgrímur
Þorgrímsson
Stórkaupmaður f. 4.2. 1924 – d. 29.1. 2012