Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 62
62 Sport 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað
H
eitasti leikmaðurinn um
þessar mundir í NBA-deild-
inni í körfubolta heitir ekki
LeBron James, Derrick Rose
eða Kobe Bryant. Hann
heitir Jeremy Lin og er tvítugur strák-
ur, ættaður er frá Taívan og spilar
með New York Knicks. Það vissi eng-
inn hver þessi piltur var fyrr en ör-
lagaríkt kvöld fyrr í þessum mán-
uði, nánar til tekið 4. febrúar. Þá fékk
hann tækifærið hjá örvæntingar-
fullum þjálfara Knicks, Mike D’Ant-
oni, sem var búinn að tapa ellefu af
síðustu þrettán leikjum sínum með
Knicks. Tvær helstu stjörnur liðsins,
Amar’e Stoude mire og Carmelo Ant-
hony, voru meiddar og inn á kom
Jeremy nokkur Lin. Lin svaraði kall-
inu, skoraði 25 stig og gaf 7 stoðsend-
ingar í sigri á nágrönnunum úr New
Jersey Nets. Síðan þá hefur Lin verið
í byrjunarliðinu og gjörsamlega far-
ið hamförum. Í síðustu sex leikjum,
4.–14. febrúar, hefur Lin skorað að
meðaltali 26,8 stig og gefið 8,5 stoð-
sendingar í leik. Það sem meira er þá
hefur Knicks unnið alla leikina sex
og fór Lin langt með að bjarga starfi
þjálfara síns en sæti hans var orðið
ansi heitt.
Fór í toppháskóla
Foreldrar Lin fluttust til Kaliforníu
frá Taívan á miðjum áttunda áratug
síðustu aldar og ólst hann upp í bæn-
um Palo Alto. Þar spilaði hann körfu-
bolta með menntaskólaliði sínu og
gekk mjög vel. Á lokaárinu vann lið-
ið 32 leiki af 33 og hafði betur í úr-
slitaleik um annarrar deildar titilinn
í menntaskólaboltanum gegn liði
sem var talið miklu sterkara. Lin var
sagður af öllum langbesti leikmaður
deildarinnar.
Enginn skóli óskaði þó eftir starfs-
kröfum Lin þannig að hann sendi
DVD-disk með sér og ferilskrána til
allra bestu háskóla landsins. Mark-
mið hans var ekki bara að spila
körfubolta heldur fá bestu mennt-
un sem mögulegt væri að fá. Hann
vonaðist til að komast að hjá skólum
eins og Stanford eða UCLA. Eini gall-
inn við að ætla sér í bestu skóla eða
„Ivy-league“ eins og þeir eru kallaðir
er að þeir skólar veita engum íþrótta-
styrki. Þurfti hann því að fá hjálp frá
foreldrum sínum til að borga him-
inhá skólagjöldin.
Á endanum var það Harvard sem
tók Lin og spilaði hann vel í háskóla-
boltanum. Tvívegis var hann valinn
í úrvalslið bestu háskólanna en það
dugði þó ekki þegar kom að nýliða-
valinu árið 2010.
Byrjaði hjá Golden State
Þrátt fyrir fína spilamennsku í háskóla-
boltanum vildi ekkert lið fá Lin til sín
í nýliðavalinu. Hann komst þó að hjá
heimaliði sínu, Golden State Warriors,
en sat þar mestmegnis á bekknum á
síðasta tímabili. Hann var látinn fara
frá Golden State í desember og var tal-
ið að Houston Rock ets myndi fá hann
til sín. Svo fór ekki og endaði hann sem
fjórði maður í goggunarröðinni hjá
New York Knicks. Engan hefði órað
fyrir því að Lin fengi þetta tækifæri en
vegna meiðsla kom hann inn á gegn
Nets og sýndi heldur betur hvað í hon-
um býr. Golden State sem hefur ekk-
ert getað í mörg ár sér nú heldur bet-
ur eftir því að hafa ekki gefið Lin fleiri
tækifæri.
Lin er fyrsti leikmaðurinn af taí-
vönskum eða kínverskum uppruna
sem fæddur er í Bandaríkjunum til að
spila í NBA-deildinni. Þá er hann að-
eins sá fjórði af asískum uppruna til
að spila í deildinni. Hann verður ekki
lengi að slá risanum Yao Ming við í
vinsældum haldi hann þessari spila-
mennsku áfram enda liðsmaður New
York Knicks sem á milljónir aðdáenda
út um allan heim.
Það merkilega er að þrátt fyrir góða
spilamennsku í fyrstu þremur leikj-
um sínum með Knicks var hann ekki
enn kominn með fastan samning, svo
mikil óvissa var um framtíð Lin. Ráða-
menn Knicks eru þó engir bjánar og
voru fljótir að fá strákinn til að skrifa
undir og er þarna ofur stjarna í smíð-
um haldi hann áfram að spila jafn vel
og raun ber vitni.
Aðdáendurnir að bilast
Spilamennska Lin hefur líka verið bú-
bót fyrir Knicks því treyja Lin selst eins
og heitar lummur í borginni. Stuðn-
ingsmenn liðsins eru gjörsamlega að
missa sig og mæta með skilti á hvern
einasta leik með nýjum orðaleikjum
í kringum Lin-nafnið. „Lin long and
prosper,“ stóð á einu um daginn og vís-
aði þar í fræga setningu úr Star Strek.
„Everyday I am Hust-LIN,“ stóð á öðru
og vísað til vinsæls lags með hljóm-
sveitinni LMFAO. Á Valentínusardag-
inn var svo auðvitað mætt ein stúlka
með skilti sem á stóð: „Will you be my
vaLINtine?“
Bakvörðurinn skotglaði, Carmelo
Anthony, sem er meiddur segist fagna
árangri Lin og getur ekki beðið eftir því
að spila með honum. „Ég veit að marg-
ir eru að spá í hvort við getum spilað
saman en í raun er þetta bara draum-
ur fyrir mig. Það að hann sé að spila
svona vel tekur pressu af mér. Nú þarf
ég ekki að spila sem leikstjórnandi.
Ég þarf ekki að sjá til þess lengur að
Amar’e skori 20 stig í leik og ég sjálf-
ur 20–30. Þetta er hið besta mál,“ segir
Anthony um heitasta NBA-leikmann-
inn í dag, Jeremy Lin.
Stuðningsmenn að verða vitlausir Treyja Lin selst upp alls staðar í New York.
Stjarnan beið
á bekknum
n Jeremy Lin fékk tækifærið með Knicks og hefur ekki litið um öxl
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Körfubolti
„Ég þarf ekki að
sjá til þess lengur
að Amar’e skori 20 stig í
leik og ég sjálfur 20–30.
Þetta er hið besta mál.
Einstakur Jeremy Lin
hefur tekið NBA-deildina
með trompi.
Hefur stuðning
Abramovich
Sætið undir Andre Villas-Boas,
knattspyrnustjóra Chelsea, er
orðið býsna heitt ef marka má
bresku pressuna. Í viðtali við BBC
á fimmtudag sagði Villas-Boas
að þó að hann nyti ekki stuðn-
ings allra leikmanna sinna hefði
hann enn stuðning eigandans,
Romans Abramovich. Greint hefur
verið frá því að margir eldri leik-
manna Chelsea séu orðnir þreyttir
á stjórnunarháttum hans. Í við-
talinu við BBC sagði Villas-Boas
að það væri eðlilegt að leikmenn
væru ekki alltaf sammála honum.
Hann sagðist þó ætla að halda
áfram með liðið þó að gengi þess
hefði verið dapurt upp á síðkast-
ið. Villas-Boas getur væntanlega
tryggt sér frið um stundarsak-
ir um helgina en þá mætir liðið
Birmingham á heimavelli í ensku
bikarkeppninni. Það er leikur sem
Chelsea verður að vinna.
Vill ekki fara
frá Tottenham
Harry Redknapp, knattspyrnu-
stjóri Tottenham, segir að það
væri ósanngjarnt að yfirgefa fé-
lagið á þessum tímapunkti. Þrálát-
ur orðrómur hefur verið uppi um
að Redknapp taki við enska lands-
liðinu af Fabio Capello sem hætti
störfum á dögunum. Redknapp
segist hins vegar vera hæstánægð-
ur hjá Tottenham, enda er félagið
í góðri stöðu í deildinni og á raun-
hæfa möguleika á enska meistara-
titlinum. „Að fara á þessum tíma-
punkti þegar liðið er í svona góðri
stöðu væri ósanngjarnt. Ég þarf að
einbeita mér að Tottenham,“ segir
Redknapp sem hefur náð frábær-
um árangri með liðið.
„Ég þarf að
bæta mig“
Fernando Torres, leikmaður Chel-
sea, viðurkennir að hann þurfi
að bæta leik sinn verulega til að
þagga niður í gagnrýnisröddum.
Torres, sem var eitt sinn einn
besti framherji heims, er í miklum
öldudal um þessar mundir og
hefur ekki tekist að skora síðan
24. september síðastliðinn. Hann
gekk til liðs við Chelsea frá Liver-
pool í janúar í fyrra fyrir metverð.
„Ég verð að viðurkenna að ég hélt
að þetta myndi ganga betur. Ég
þarf klárlega að bæta mig. Þegar
ég var hjá Liverpool komu leikir
þar sem ég spilaði ekki vel, en
skoraði samt. Þetta er mjög skrýtin
tilfinning því ég hef aldrei verið í
betra formi.“