Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Page 72
Heil
Hugleikur!
Þorbjörg eignaðist
dóttur á Spáni
n Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, eignað-
ist dóttur á fimmtudagsmorgun.
Litla stúlkan, sem var þrjú kíló, kom
í heiminn á Spáni en Þorbjörg hefur
dvalið í stórborginni Barcelona
síðan í haust ásamt fjölskyldu sinni.
Þetta er fjórða barn hennar og eig-
inmanns hennar, verkfræðingsins
Hallbjörns Karlssonar. Þorbjörg hafði
verið áberandi í borgarpólitíkinni
áður en hún flutti til Spánar en hún
fór í leyfi frá borgar-
málunum í haust.
Þorbjörg og Hall-
björn þekkja það
vel að búa annars
staðar en á Íslandi
því þau hafa áður
búið í Banda-
ríkjunum
og í Frakk-
landi.
Bauð Jakobi knús
n Jakob Bjarnar Grétarsson, fyrrver-
andi blaðamaður á Fréttablaðinu,
liggur sjaldan á skoðunum sínum
um menn og málefni. Jakob hefur
sterkar skoðanir á femínistum
og myndast gjarnan líflegar um
ræður á Facebook-síðu hans þegar
þau mál eru rædd. Nú síðast tjáði
Jakob sig um nýjasta pistil Maríu
Lilju Þrastar dóttur þar sem hún líkir
saman dvergakasti og vændi. Segir
Jakob meðal annars að hann standi
með litla manninum en María
Lilja ekki. María Lilja
svarar Jakobi
fullum hálsi og
segir honum að
hætta að „tagga“
sig í fúlum Face-
book-statusum.
„Hittu mig frek-
ar á happy hour
og segðu mér
hvað þér ligg-
ur á hjarta.
Ég gæti jafn-
vel gefið þér
knúz.“
Lilja ánægð
með Móa
n Lilja Pálmadóttir, athafnakona og
ábúandi á Hofi í Skagafirði, vann
í fjórgangi á Skagfirsku mótaröð-
inni á miðvikudaginn þar sem hún
keppti í meistaraflokki á hestinum
Móa frá Hjaltastöðum. Lilja var að
vonum ánægð með árangurinn,
það má sjá á stöðuuppfærslu henn-
ar á Facebook frá miðvikudags-
kvöldi en þar segir: „Fyrirgefiði,
montstatus: Vann í kvöld fjórgang
meistara á nýja kærastanum mín-
um honum Móa frá Hjaltastöðum!!
Fengum 7,47 sem er hæsta einkunn
sem ég hef landað í íþróttakeppni :)
Þvílíkur eðalklár, jibbíjei og liggalig-
galá :) :) !!!“
Lilja er eiginkona Baltasars
Kormáks sem hefur verið að gera
það gott sem leikstjóri en eins og
kunnugt er sló nýjasta mynd hans,
Contraband, í gegn í Bandaríkj-
unum.
Þ
etta er alltaf sama umræð-
an,“ segir teiknarinn og rithöf-
undurinn Hugleikur Dagsson
sem tók sig til og útbjó mynd-
band með Adolf Hitler þar sem Hitler
snögg reiðist þegar honum er tilkynnt
að 217 einstaklingar eða hópar fái
listamannalaun á Íslandi í ár. Mynd-
bandið er fengið úr þýsku kvikmynd-
inni Der Untergang þar sem Hitler er
leikinn af Bruno Ganz.
Á myndbandavefnum YouTube
má finna þetta sama myndband með
mismunandi þýðingum. Þar er Hitler
látinn snöggreiðast vegna einhvers
málefnis sem er hvað umræddast þá
stundina.
Hugleikur segir umræðuna um
listamannalaunin vera þá sömu ár
eftir ár. „Það er alltaf verið að kasta
sömu staðreyndunum upp,“ segir
Hugleikur en hann segir þá einstak-
linga, sem eru með hvað sterkustu
skoðanirnar gegn listamannalaunun-
um, ekki hlusta á staðreyndir máls-
ins. Hugleikur lætur því Hitler krist-
alla umræðu þeirra sem eru á móti
laununum.
„Ég ákvað að taka ekki þátt í þess-
ari umræðu í ár. Síðan datt ég niður
á þessa pælingu að gera þetta mynd-
band sem hefur verið textað svo
margoft á netinu. Það var eina leiðin
sem ég fann til að tjá mig um þetta,“
segir Hugleikur sem hefur fengið góð
viðbrögð við myndbandinu. Hug-
leikur lætur Hitler til dæmis skjóta
föstum skotum á sig sjálfan. Seg-
ir Hitler í myndbandinu Hug-
leik ekki kunna að teikna.
„ Hitler þolir mig ekki, það
er kannski vegna þess
að ég lít út eins og gyð-
ingur,“ segir Hugleikur
að lokum. birgir@dv.is
„Hitler þolir mig ekki“
n Hugleikur Dagsson gerir myndband um listamannalaunin
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 17.–19. feBrúar 2012 20. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Sama umræðan Hugleikur
segir umræðuna um listamanna-
launin vera þá sömu ár eftir ár.