Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 1.–3. júní 2012 Helgarblað
Glæsihús Kára
3 DV sagði frá byggingu húss Kára Stefánssonar í Kópa
vogi sem er eitt af
íburðarmestu hús
um landsins. Sam
kvæmt fasteigna
skrá er húsið 629
fermetrar að stærð
og er það á eftir
sóttum stað í bæn
um, með útsýni
yfir allt Elliðavatn. Kári hefur þegar
borgað 60 milljónir króna fyrir bygg
ingu hússins en verktakafyrirtækið
Fonsi ehf., sem stefnt hefur honum
fyrir dóm, telur sig eiga á annan tug
milljóna til viðbótar inni hjá honum.
Þetta er þó aðeins kostnaðurinn við
að reisa húsið og má gera ráð fyrir
milljónakostnaði til viðbótar við
ýmsan frágang á húsinu og lóðinni
í kring.
Kraftaverk
2 Hjálparsveitarmenn, sem komu að björgun tveggja ferða
manna sem fallið
höfðu 40 metra
niður í Kirkjufjöru
úr Lágey Dyrhóla
eyjar, segja ekkert
annað en krafta
verk að fólkið hafi
lifað fallið af. Mað
urinn reyndist fót
brotinn en konan hryggbrotnaði.
Kallað var eftir þyrlu Landhelgis
gæslunnar til að flytja fólkið á Land
spítalann í Fossvogi til aðhlynningar.
Meiðsl þeirra voru ekki talin lífs
hættuleg og í raun ótrúlegt hversu
vel þau sluppu frá slysinu. „Þau voru
fyrst og fremst ótrúlega heppin því
þau fljóta einhvern veginn ofan á
þessu þegar þetta fer niður,“ sagði
einn björgunarmannanna.
Laus eftir 12 ár
1 DV sagði frá því að Rúnar Bjarki Ríkharðsson sem dæmdur var
fyrir tvær nauðg
anir og morð
árið 2000 gengur
núna laus. Rúnar
Bjarki afplánaði
12 ár af 18 ára
dómi sem hann
fékk fyrir ódæðis
verkin. Fáir hafa
fengið jafn þung
an dóm hér á landi. Rúnar hefur
undanfarin ár afplánað í opnu fang
elsi en það gera fangar sem fljótlega
eiga kost á reynslulausn. Reynslu
lausnin hefur verið samþykkt. Rúnar
Bjarki réðst inn á heimili vinkonu
fyrrverandi sambýliskonu sinnar
með því að sparka upp hurð. Hann
réðst þegar að stúlkunni og banaði
henni með hnífsstungum.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
E
iríkur Stefánsson, pistlahöf
undur á Útvarpi Sögu, hefur
undanfarna mánuði reynt að
vekja athygli á því sem hann
telur vera slæm loftgæði á
Súlunesinu vegna svifryks frá Reykja
víkurvegi. „Ég er búinn að vera með
þetta í nokkur ár en þríf það reglu
lega, en þetta er það sem hefur safn
ast saman eftir rúma tvo mánuði,“
segir Eiríkur og bendir á sótsvarta og
grútskítuga tusku en rykið á henni
kom úr lofthreinsitæki, sem á að
draga til sín hluta af svifryksmengun.
Lifir við mengun á heimilinu
„Þeir sem ekki hafa þetta tæki eru þá
með alla mengunina í andrúmsloft
inu og ég líka að hluta til, þó meng
unin í mínu húsi minnki við þetta.
Mér finnst algjörlega ófært að búa í
dýrasta hverfi bæjarins og þurfa að
lifa við það að það sé kolsvört svif
ryksmengun úr bílum inni í húsun
um, í svo ósýnilegu magni en þó jafn
mikið og sést hér.“
Maður frá Heilbrigðiseftirlitinu
í Garðabæ kom heim til hans fyrir
rúmu hálfu ári og tók sýni. Ekki hef
ur neitt gerst í kjölfar þeirrar heim
sóknar. „Það er enginn búnaður á
Reykjavíkurvegi til að mæla svifryks
mengun,“ segir Eiríkur. „Það er lág
markskrafa að þeir láti mæla þessa
mengun þarna. Það getur varla verið
gott að anda þessu að sér.“
Ekki tilefni til aðgerða
Í svari Heilbrigðiseftirlitsins við fyr
irspurn DV kemur þetta fram: „Að
stæður í Garðabæ hafa ekki gefið
tilefni til staðbundinna aðgerða en
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð
inu hafa hvert um sig og í samvinnu
unnið að verkefnum til að draga úr
umferð ökutækja sem brenna jarð
efnaeldsneyti.“ Jafnframt segir þar
að Umhverfisstofnun skipuleggi loft
gæðarannsóknir á ákveðnum stöð
um til að stofnunin fái raunhæft
stöðumat.
Guðmundur H. Einarsson, fram
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins,
sagði í samtali við DV að ástandið á
heimili Eiríks hafi ekki verið óvenju
legt. „Svifryk er úti um allt. Það versn
ar við umferðargötur en stöðugar
fréttir um loftgæði í Reykjavík eru frá
svifryksmælingum á horni Miklu
brautar og Grensásvegs. Það ákvað
Umhverfisstofnun að væri mæli
punktur fyrir versta hugsanlega stað
inn í þéttbýli og svo dregur maður
ályktanir út frá honum,“ segir hann.
Ræðst af stærð agnanna
Samkvæmt upplýsingum frá Um
hverfisstofnun eru áhrif svifryks á
heilsu fólks að miklu leyti háð stærð
agnanna. Agnir minni en um það
bil 10 µm eiga auðveldara með að
ná djúpt niður í lungu og geta safn
ast þar fyrir. Þegar svo langt er kom
ið fara áhrifin alfarið eftir því hversu
lengi eða hversu oft persónan andar
að sér menguðu lofti og hvort hættu
leg efni eru í rykinu, til dæmis þung
málmar.
Svifryk aldrei hollt
Samkvæmt loftgæðamælingum 14.
maí síðastliðinn er styrkur svifryks
vel undir heilsuverndarmörkum
í Reykjavík. Á vefsíðu Heilbrigðis
eftirlitsins kemur fram að loftgæði
á Hafnarfjarðar og Kópavogssvæði
séu „viðunandi“ eða um 15 µg/m3
undir heilsuverndarmörkum.
„Svifryk er aldrei hollt. Við feng
um illþyrmilega að kynnast því eft
ir gosið í Eyjafjallajökli og á Gríms
vötnum, svifryk var þá það versta
sem maður gat hugsað sér, þegar
ekki varð séð út úr augunum í ösku
foki,“ segir Guðmundur og bætir við
að svifryk sé hluti af lífinu eins og
öskugosið sýndi. „Á umferðargöt
um í þéttbýli er ástandið þó auðvit
að verra en úti í náttúrunni. Þetta er
bara raunveruleikinn í lífinu.“
n Íbúi nálægt umferðaræð í Garðabæ er ósáttur við svifryksmengun
Kvartar yfir mengun
inni á heimili sínu
Svifryk í tusku
Eiríkur notar lofthreinsitæki
til að draga úr svifryks-
mengun á heimili sínu.
6 Fréttir
25.–27. maí 2012 Helgarblað
Þjóðin verður spurð
n Bjarni Benediktsson varar við sovéskri auðlindaspurningu
M
eirihluti Alþingis samþykkti
á fimmtudag að leggja sex
spurningar
fyrir almenning
í allsherjar atkvæðagreiðslu
í október. Valgerður Bjarnadóttir, for-
maður
stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar, sagði að með samþykkt at-
kvæðagreiðslunnar væri enn eitt
skrefið stigið í átt að nýrri stjórnarskrá.
„Stjórnarskráin er okkar allra en ekki
bara stjórnmálaflokkanna og okkar al-
þingismanna,“ sagði Valgerður. Þjóð-
aratkvæðagreiðslan um spurning-
arnar sex var samþykkt með atkvæði
35 þingmanna gegn 15 atkvæðum. 13
voru fjarverandi eða greiddu ekki at-
kvæði.
Atkvæðagreiðslan er afar umdeild
en þingsályktunartillagan um ráðgef-
andi þjóðaratkvæðagreiðslu um til-
lögur stjórnlagaráðs hefur verið rædd
í um 50 klukkustundir á Alþingi. Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, er meðal þeirra þingmanna
sem lýstu sig andvíga þjóðaratkvæða-
greiðslunni. Hann varaði við spurn-
ingu vegna ákvæðis stjórnlagaráðs
um að náttúruauðlindir sem ekki eru í
einkaeign verði lýstar þjóðareign.
„Það getur beinlínis verið andlýð-
ræðislegt að fara fram með spurningu
sem menn geta togað og teygt niður-
stöðuna til þess að styrkja sinn málstað
eftir á,“ sagði Bjarni á Alþingi. Hann
sagði tillöguna minna á ákvæði stjórn-
arskrár Sovétríkjanna fyrrverandi. „Þar
sem enginn mátti fara með einkaeign-
arhald á neinum auðlindum í Sovét-
ríkjunum – enginn. Það mátti einungis
nýta allar auðlindir í þágu þjóðarinnar
allar og enginn mátti hafa fjárhagsleg-
an ávinning af nýtingu þeirra. Menn
vita hvernig það gekk, það fyrirkomu-
lag sem Sovétríkin komu sér upp í
þessum efnum. Allt bundið í stjórnar-
skrá – ofsalega lýðræðislegt.“
R
únar Bjarki Ríkharðsson,
sem dæmdur var fyrir tvær
nauðganir og fyrir morð árið
2000, gengur núna laus. Rúnar
Bjarki afplánaði aðeins 12 ár
af 18 ára dómi sem hann fékk fyrir
ódæðisverkin. Fáir einstaklingar hafa
fengið jafn þungan dóm hér á landi.
Rúnar hefur undanfarin ár afplánað
í opnu fangelsi en það gera fangar
sem fljótlega eiga kost á reynslulausn.
Samkvæmt heimildum DV hefur
reynslulausnin verið samþykkt.
Hrottaleg afbrot
og engin eftirsjá
Ekki er hægt að segja annað en að
Rúnar Bjarki hafi brotið af sér með
hrottafengnum hætti. Hann framdi
tvær nauðganir í Keflavík og myrti
síðan 19 ára stúlku með hníf. Rúnar
Bjarki réðst inn á heimili vinkonu
fyrrverandi sambýliskonu sinnar með
því að sparka upp hurð. Hann réðst
þegar að stúlkunni sem var 19 ára og
banaði henni með hnífstungum. Alls
fundust 35 áverkar á stúlkunni, þar af
28 stungusár sem voru á síðu, brjósti,
höfði og víðar á líkamanum. Stúlkan
sem hann myrti, sem hét Áslaug
Óladóttir, hafði gefið skýrslu hjá
lögreglunni vegna fyrra kynferðisbrots
hans gegn sambýliskonu sinni.
Í umfjöllun DV árið 2007 um afbrot
Rúnars Bjarka var rætt við fjölda
einstaklinga, sem ekki vildu koma
fram undir nafni af ótta við hann, sem
sögðu að hann sæi ekki eftir brotum
sínum. Þá sögðu viðmælendur
blaðsins að hann hafi talað um lítið
annað en nauðganir, dráp, klám,
ofbeldi og fíkniefni þannig að flestum
þótti nóg um og gátu vart hlustað á
lýsingar á þeim aðferðum sem hann
hafi hugsað um til þess að fremja
glæpi.
Sakhæfur en með
persónuleikaröskun
Geðlæknir sem mat sakhæfi
Rúnars árið 2000 komst að þeirri
niðurstöðu að þrátt fyrir að Rúnar
hafi verið metinn með ýmis einkenni
persónuleikaröskunar, sérstaklega
andfélagslegrar, þá hafi ekki komið
neitt fram sem benti til þess að
Rúnar væri haldinn alvarlegum
geðsjúkdómi, alvarlegu þunglyndi
eða kvíðaröskun sem hafi getað haft
áhrif á dómgreind hans þegar hann
framdi nauðganirnar og morðið.
„Hann virðist ekki geta iðrast gjörða
sinna og hefur tilhneigingu til að
kenna öðrum um hvernig komið er
fyrir sér,“ sagði í dómnum.
Dómurinn taldi Rúnar ekki eiga
neinar málsbætur; árásin hafi verið
tilefnislaus, hrottaleg og heiftúðleg.
Hróp Áslaugar og köll hafi einungis
orðið til að efla Rúnar Bjarka við
ódæðisverk sitt. Litið var þó til þess
við ákvörðun refsingarinnar að Rúnar
hafði ekki áður hlotið dóm og að hann
væri ungur.
Ekki náðist í Pál Winkel
fangelsismálastjóra vegna málsins.
n Var dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir nauðganir og hrottalegt morð
eftir
laus
12 ár
í fangelsi
Reynslulausn
Rúnar Bjarki gengur laus
til reynslu en hann hefur
undanfarin ár setið í opnu
fangelsi sem er liður í að
undirbúa fanga undir frelsi.
SkjáSkot af faceBook.com
rúnar Bjarki ríkharðsson
Vakta geimbrak
Franska rannsóknarskipið Monge
liggur nú við bryggju í Sundahöfn
í Reykjavík og verður þar næstu
sex daga. Skipið er 230 metra langt
og um borð er 220 manna áhöfn.
Ástæðan fyrir viðkomu skipsins
í Reykjavík er sex daga frí sem
áhöfnin fær en hún hefur nýtt það
í að skoða svæðið og brá sér til að
mynda í Bláa lónið.
Aðalverkefni skipsins er að
fylgjast með flugskeytum sem
og gervihnöttum en það er búið
gífurlega öflugum tækjum sem
nýtast við eftirlitið. Til að mynda
er búnaður skipsins þess megn-
ugur að finna mynt í 800 kílómetra
fjarlægð. Skipið er búið það öfl-
ugum sjónaukum að það getur séð
stjörnur yfir hábjartan daginn.
Á blaðamannfundi með
hæstráðendum á skipinu kom
fram að um 36 þúsund hlutir séu
nú á sveimi í geimnum en allt er
þetta brak sem tengist geimbrölti
mannfólksins. Aðeins eitt prósent
af því er í notkun og er því geim-
brak orðið verulegt vandamál. Er
skipið notað til að fylgjast með
slíku braki og beðið um að kanna
hvort það stefni á gervihnetti eða
hvar það lendir á jörðu.
Dómari á
Hraunið
Ekki var þorandi að flytja Börk
Birgisson í Héraðsdóm Suður-
lands þar sem kveða átti upp
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir hon-
um klukkan ellefu á fimmtudags-
morgun. Var ákveðið að dómari
færi á Litla-Hraun til að kveða upp
úrskurðinn. Börkur og Annþór
Kristján Karlsson voru úrskurðaðir
í gæsluvarðhald til 13. júní næst-
komandi. Þeir eru grunaðir um að
hafa veitt Sigurði Hólm Sigurðs-
syni áverka sem síðar leiddu til
þess að hann lést.
Stjórnlagaráð Spurningarnar fjalla um
tillögur þess að breyttri stjórnarskrá.
10 Fréttir
25.–27. maí 2012 Helgarblað
Þ
etta er fáránlegt, að menn
skuli ekki fara á kaf þarna og
sjást ekki meira. Þetta er ekk-
ert annað en kraftaverk,“ seg-
ir Grétar Einarsson, úr björg-
unarsveitinni Víkverja í Vík, sem kom
að björgun ferðafólks sem fór niður
með skriðu úr Lágey Dyrhólaeyjar á
fimmtudag. Fólkið féll heila fjörutíu
metra niður í Kirkjufjöru með hundrað
metra breiðri skriðu eftir að brún gaf
sig. Grétar segir fólkið hafa verið kom-
ið úr skriðunni þegar hann kom að því
og búið að koma sér niður í fjöru.
Fóru í aðgerð
Upp úr skriðurústunum komu karl og
kona. Maðurinn reyndist fótbrotinn
og var kallað eftir þyrlu Landhelgis-
gæslunnar til að flytja fólkið á Land-
spítalann í Fossvogi til aðhlynningar
og til að gæta fyllsta öryggis. Meiðsl
þeirra voru ekki talin lífshættuleg og
í raun ótrúlegt hversu vel þau sluppu
frá slysinu – þegar myndirnar hér
eru skoðaðar. Samkvæmt upplýsing-
um sem DV fékk á Landspítalanum
gekkst fólkið undir aðgerð sem átti
að vera lokið á fimmtudagskvöld. „Ég
held að þeim eigi eftir að bregða þeg-
ar þau sjá myndirnar frá þessu,“ segir
Grétar. Fyrstu fréttir af slysinu gáfu til
kynna að fjórir ferðamenn hefðu far-
ið niður með skriðunni en þeir reynd-
ust vera tveir. Gríðarmikill viðbúnaður
var vegna tilkynningarinnar um slysið
enda hljómaði hún ekki vel. Björgun-
arsveitir af Suðurlandi, björgunarskip
frá Vestmannaeyjum, fjallbjörgunar-
fólk af höfuðborgarsvæðinu og þyrla
Landhelgisgæslunnar voru kölluð til.
Á röngum stað á röngum tíma
„Það er ósköp einfalt, Dyrhólaey er
úr móbergi, sjórinn grefur undan
þessu auk þess sem
bjargbrúnirnar
eru sprungnar svo þetta gefur sig
hreinlega,“ segir Halldór G. Pétursson
jarðfræðingur um það sem gerðist á
fimmtudag. Og svo virðist sem þau
hafi bara verið sérlega óheppin til að
byrja með.
„Ég á frekar von á því að þau hafi
bara verið svo óheppin að vera stödd
þarna á þeim tímapunkti sem þetta
gaf sig. En það getur vel verið að þetta
hafi verið orðið laust, verið sprungur
þarna, og þetta farið af stað með þau.
Það hafi verið kornið sem fyllti mæl-
inn. Þó þú hoppir og skoppir á heilu
bergi þá fer það ekkert af stað. Þetta
hefur bara verið tilbúið til að fara,“ seg-
ir Halldór og bætir við að svona hrun
úr móbergsklettum sé algengt á þess-
um árstíma. „Þau voru fyrst og fremst
ótrúlega heppin því þau fljóta ein-
hvern veginn ofan á þessu þegar þetta
fer niður.“
„EkkErt annað
En kraftavErk“
„Ég held að
þeim eigi eftir
að bregða þegar
þau sjá myndirnar
frá þessu
Mýrdalsjökull
Stórgrýti Hér má sjá björgunarsveitarmenn úr Víkverja í rústunum. Sumir hnullung-
arnir eru ógnarstórir.
Flutt á sjúkrahús Maðurinn og konan sluppu lifandi úr slysinu en voru flutt með þyrlu LHG á Landspítalann.
Kraftaverk Eins og sjá má hér er skriðan
sem féll engin smásmíði og sluppu
ferðamennirnir með ólíkindum vel.
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
n Ferðamenn fóru 40 metra niður með gríðarstórri skriðu
w
w
w
. d
v
. i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
30.–31. maí 2012 miðvikudagur/fimmtudagur
6
1.
t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
Kári byggir
sérstætt
glæsihús
Forstjóri DeCoDe liFir eKKi eins og aðrir
n Bíó, bókasafn og 60 fermetra svefnherbergi
n Kári getur valið um fjögur salerni
9
Fáðu flug
á slikk
Til London fyrir 320 krónur 18
Vann Eurovision undir áhrifum af Björk
Samherji
kominn til
Namibíu
Veiðir 30 þúsund tonn
báKnið
baK Við
hÖrPU
Aftur og aftur
skemmt fyrir
fötluðum 8
2–3
12
PÖDDUr
DreiFa
„nÝrri
eyðni“
n 8 milljónir smitaðar
n Líffærin bólgna út 14
15
19 ára
orðin
400 Kíló
loreen
á eKKi
22
n Vill frelsa fólk
undan efnishyggju
sjónVarP
sPennan magnast
í stríðinU Um orKUna
n 20
ára ferli
klárast
10–11
Mótmælir ákæru
Átján ára piltur, sem ákærður hefur
verið fyrir manndráp af gáleysi eftir
að hafa orðið Eyþóri Darra Róberts
syni að bana með ofsaakstri á gatna
mótum Geirsgötu og Tryggvagötu í
Reykjavík í ágúst í fyrra, mótmælti
ákærunni fyrir dómi á fimmtudag.
Frá málinu var greint í kvöldfréttum
Stöðvar 2 en fram kom að í ákær
unni gegn piltinum segi að hann
hafi einnig stofnað vegfarendum í
hættu á ófyrirleitinn hátt.
Ákærði er sagður hafa verið
góður vinur Eyþórs Darra en hann
er sakaður um að hafa ekið bifreið
langt yfir hámarkshraða auk þess
að hafa ekið án réttinda. Pilturinn
mómælti því að hafa ekið á 119
kílómetra hraða á klukkustund eins
og áætlað er. Báðir foreldrar Eyþórs
Darra fara fram á þrjár milljónir
króna í skaðabætur.
Jónína Ben og Gunnar:
Bæði hætt í
Krossinum
„Ég hef sagt mig úr Krossinum en
óska því fólki sem valið hefur að
iðka trú sína, í því andrúmi sem
þar er í boði, góðs gengis,“ skrifaði
athafnakonan Jónína Benedikts
dóttir í yfirlýsingu á Facebooksíðu
á fimmtudag. Af henni verður ekki
betur séð en að Gunnar Þorsteins
son, eiginmaður Jónínu og stofn
andi Krossins, sé einnig hættur.
„Gunnar minn hefur endan
lega verið sigraður í þeirri kirkju
sem hann byggði upp og það af
sömu öflum og reyndu að knésetja
hann þegar við giftum okkur. Ég
varð fyrir þvílíkri persónulegri
árás inn í hjarta mitt af fyrrum
konu Gunnars og hann líka fyrir
framan söfnuðinn að við erum
sem lömuð. Mest af sorg því við
lögðum mikið á okkur til þess að
elska fólkið sem þar sótti sam
komur,“ skrifar Jónína og vísar þar
væntanlega til ásakana á hendur
Gunnari um að hann hafi brotið
gegn konum kynferðislega á árum
áður, þegar þær voru ungar stúlk
ur. Það mál komst í hámæli undir
lok árs 2010 og steig Gunnar til
hliðar sem forstöðumaður Kross
ins í kjölfarið.
Þórður Ingi Jónsson
Blaðamaður skrifar @dv.is