Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 25
H
lauparinn Fauja Singh er
sagður vera elsti hlaupari í
heimi. Singh er 101 árs en
lætur það ekki á sig fá og
hleypur daglega. Hann á
að baki nokkur maraþon en ákvað í
apríl síðastliðnum að hlaupa sitt síð-
asta maraþon; London maraþon-
ið. Hann er þó langt í frá hættur að
hlaupa þar sem hann segist ætla að
halda áfram að hlaupa styttri vega-
lengdir og muni halda áfram að
hlaupa þar til hann deyr.
Einhverjir hafa þó efasemdir um
það að Singh sé í raun 101 árs gamall
en fæðingarvottorð hans er ekki til.
Hann tekur þátt í Edinborgarmara-
þoninu sem fram fer um helgina en
mun þó ekki hlaupa heilt maraþon.
Skoraði á eldri borgara í
kapphlaup
Singh er sagður hafa fæðst 1. apríl
1911 í Pinjab í Indlandi. Ekki er mikið
vitað um fyrri hluta ævi hans. Hann
bjó með eiginkonu sinni í þorpi í
borginni Jalandhar en flutti til sonar
sínar í London árið 1992 þegar eigin-
kona hans dó. Hann talar bara ind-
versku (panjabi) og kann hvorki að
lesa né skrifa.
Í Indlandi hafði hann gaman af
því að hlaupa en byrjaði ekki á því
fyrir alvöru fyrr en hann var orðinn
áttræður og flutti til London. Þar
byrjaði hann hlaup á því að skora á
aðra eldri borgara í kapphlaup. Með
tímanum fór hann svo að hlaupa
lengri vegalengdir.
Hljóp fyrsta maraþonið 89 ára
Áhuginn þróaðist áfram hjá Singh
og þegar hann var 89 ára hljóp hann
fyrsta maraþonið. Það var árið 2000
og frumraunin átti sér stað í Lond-
on maraþoninu. Þá var hann kom-
inn með þjálfara sér við hlið sem
kenndi honum réttu hlaupabrögðin.
Áður en hann tók þátt í fyrsta mara-
þoninu hljóp hann auðveldlega 20
kílómetra. Hann sagði þjálfara sín-
um að hann vildi hlaupa maraþon.
Hann hélt reyndar að maraþon væri
26 kílómetrar í stað 42 kílómetra.
Ástæðan fyrir misskilningnum er sú
að það er 26 mílur að lengd. Þegar
hann áttaði sig á því þá byrjaði hann
að æfa fyrir alvöru. Fyrsta maraþon-
ið hljóp hann á 6 klukkutímum og 54
mínútum. Það var 58 mínútum betri
tími en fyrra met í hans aldurshópi.
„Fyrstu 20 mílurnar eru ekki erfiðar
en síðustu sex mílurnar tala ég við
guð meðan ég hleyp,“ var haft eftir
honum einu sinni í viðtali.
Hugsar um heilsuna
Fjölmargir hafa dáðst að afrekum
hans en Singh hefur unnið til fjölda
verðlauna og slegið mörg hlaupamet
í sínum aldursflokki.
Singh segist lifa einföldu lífi, hann
passi vel upp á mataræðið og hugsi
um heilsuna. Hann er 172 sentimetr-
ar að hæð og vegur aðeins 50 kíló.
Hann hvorki drekkur áfengi né reyk-
ir og mataræði hans samanstendur
af „phulka“, sem er indverskt brauð,
grænmeti, jógúrt og mjólk meðal
annars, auk þess sem hann drekkur
mikið vatn og engiferte. Hann forð-
ast allan steiktan mat og vill alls ekki
hrísgrjón. „Ég fer snemma að sofa
og leyfi ekki neikvæðum hugsun-
um að koma upp í huga mér,“ sagði
hann eitt sinn í viðtali þegar hann var
spurður út í galdurinn við það að ná
svo háum aldri.
Á ekki fæðingarvottorð
Einhverjir efast um að Singh sé í raun
101 árs en hann á ekki fæðingarvott-
orð sitt og getur því ekki sannað ald-
ur sinn. Það hefur þó verið bent á
að á þeim tíma þegar hann fædd-
ist þá hafi fæðingarvottorð ekki ver-
ið gefið út á Indlandi. Hann er hins
vegar með breskt vegabréf sem segir
hann vera 101 árs og breska drottn-
ingin sendi honum afmæliskveðju
á 100 ára afmælisdaginn. Margir
vanir maraþonhlauparar hafa hins
vegar bent á að með þessari aldurs-
gagnrýni væri fólk að gleyma aðalat-
riðinu; það sé alltaf erfitt að hlaupa
maraþon sama hvaða aldri fólk er á.
Eins og áður sagði er Singh hvergi
nærri hættur að hlaupa og mun
ásamt 27.000 öðrum hlaupurum
hlaupa í Edinborgarmaraþoninu
sem haldið er í tíunda sinn í ár. Singh
lifir fyrir að hlaupa og segist munu
hlaupa þar til hann deyr.
Erlent 25Helgarblað 1.–3. júní 2012
Vildi verða Hulk
n Málaði sig óvart með skipamálningu
B
rasilíski plötusnúðurinn og
sundlaugarvörðurinn Paulo
Henrique Dos Santos komst
heldur betur í hann krappan
eftir að hafa brugðið á leik í heimabæ
sínum. Hann keypti málningu og
málaði sig grænan áður en hann tók
þátt í skemmtihlaupi. Með því upp-
átæki vildi hann verða eins og teikni-
myndaofurhetjan Hulk.
Þegar hlaupinu lauk komst Dos
Santos, sér til mikillar armæðu, að
því að málningin fór ekki af hvern-
ig sem hann reyndi að skrúbba sig.
Honum fannst þetta undarlegt þar
sem hann hafði einu sinni áður mál-
að sig grænan án þess að lenda í
vandræðum með málninguna.
Þegar hann fór að hugsa málið
mundi hann að málningin sem hann
hafði notað síðast hafði verið búin.
Hann hafði því keypt aðra máln-
ingu. Þegar hann fór að lesa á dósina
komst hann að raun um að um var að
ræða málningu sem notuð er á eld-
flaugar og kafbáta – einhvers konar
skipamálningu. Þannig málning er
gerð til að standast ýmis áhlaup.
Hann fór í sturtu, um það bil 20
sinnum, en allt kom fyrir ekki. Hann
varð að breiða svarta ruslapoka yfir
rúmið sitt til að skemma ekki rúm-
fötin og rúmið sjálft. Hann óttaðist á
tímabili að fá eitrun af völdum máln-
ingarinnar, en enn hefur ekki borið
á því. Hann náði litnum af á endan-
um með því að fá móður sína og hóp
vina til að skrúbba sig hátt og lágt.
Eftir heilan sólarhring var málningin
næstum öll farin af.
Húðlitur Dos Santos vakti verð-
skuldaða athygli í bænum enda ekki
á hverjum degi sem bæjarbúar sjá
Hulk á götum úti. Gamanið kárnaði
þó þegar bæjarblaðið hélt því fram
að kona á mynd sem fylgdi frásögn
af vandræðaganginum væri kærasta
hans, þegar raunin er sú að um móð-
ur hans er að ræða. Það fannst hon-
um verst. baldur@dv.is
Segist 101 árs og
hleypur maraþon
n Fauja Singh ætlar að hlaupa þar til hann deyr n Hljóp fyrsta maraþonið 89 ára
„Fyrstu 20 mílurn-
ar eru ekki erfiðar
en síðustu sex mílurnar
tala ég við guð meðan ég
hleyp.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Á hlaupum Hér sést Singh á hlaupum.
Í fínu formi Fauja Singh lifir fyrir að
hlaupa. Hann hljóp sitt síðasta maraþon í
apríl, 101 árs að aldri.
Elsku mamma Don Santos kunni ekki að meta að staðarblaðið titlaði móður hans sem
kærustu.
Óttast hatursglæpi
á Evrópumótinu
Evrópumótið í knattspyrnu er
handan við hornið en mótið verð-
ur haldið í Póllandi og Úkraínu.
Sum þátttökulandanna hafa varað
landa sína við því að ferðast á
mótið og það ekki að ástæðulausu
miðað við umfjöllun Panorama á
BBC-sjónvarpsstöðinni. Frétta-
maður BBC eyddi mánuði í lönd-
unum til þess að skoða fótbolta-
menninguna. Það sem hann
komst að er sláandi. Gyðinga hatur,
kynþáttaníð, ofbeldi og annað
í þeim dúr viðgengst á knatt-
spyrnuvöllum landanna án þess
að knattspyrnusambönd landanna
né UEFA taki alvarlega á málum.
Margir hafa gagnrýnt UEFA fyrir
að halda mótið í þessum löndum
á meðan ástandið í þeim er ekki
betra en raun ber vitni.
Vill banna sykraða
drykki í yfirstærð
Borgarstjórinn í New York, Micha-
el Bloomberg, vill banna sölu
á sykruðum gosdrykkjum í of-
urstærð til að tækla offituvanda-
mál. Hann vill að veitingastaðir,
íþróttaleikvangar og bíóhús í borg-
inni hætti að selja sykraða gos-
drykki í ofurstærðum. Rannsóknir
sýna fram á að um 58 prósent full-
orðinna í New York eru yfir meðal-
þyngd eða eiga við offituvandamál
að stríða. Bloomberg telur gos-
drykkina vera eitt helsta vanda-
málið í baráttunni gegn offitu. Á
þeim tíma sem Bloomberg hefur
verið í embætti hefur hann bann-
að reykingar á almenningsstöðum
í borginni, bannað transfitusýrur
í mat á veitingastöðum og neytt
veitingastaðakeðjur til að setja
upplýsingar um kaloríufjölda rétta
sinna á matseðilinn hjá sér.
Skotinn
til bana
Nepalskur hæstaréttardómari var
skotinn til bana í höfuðborginni,
Kathmandu. Verið var að rann-
saka dómarann, sem hét Rama
Bahadur Bam, fyrir spillingu.
Talið er að hann hafi þegið mútur
frá glæpamönnum og í staðinn
tekið vægar á þeim. Dómarinn
var á gangi ásamt lífverði sínum
þegar maður á mótorhjóli keyrði
framhjá og skaut hann til bana.
Bam var fluttur á spítala þar sem
hann lést af sárum sínum, lífvörð-
ur hans var líka skotinn og liggur
illa særður á spítala.