Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 46
É
g held að „ljótan“ sé eitthvað
sem langflestir tengja við,“
segir listamaðurinn Oddvar
Örn Hjartarson sem viður-
kennir að vera sjálfur af og
til haldinn „ljótunni“. „Mér finnst
það ekkert meira áberandi þegar
ég vakna en á öðrum tímum. Það
er meira bara þegar ég geng fram
hjá speglinum og rek augun í hvað
hárið á mér er ljótt. Þá spyr ég sjálf-
an mig hvað hafi gerst? Ég sem var
svo sætur í gær,“ segir Oddvar sem
segist ekki ennþá hafa fundið út-
skýringuna á því af hverju „ljótan“
poppi af og til upp.
„Ég held samt að þetta teng-
ist ekki beint útlitinu heldur frekar
hugarástandinu. Kannski er ég bú-
inn að borða of mikinn sykur, sofa
of lítið eða á eftir að borða. Ég held
að leyndarmálið liggi í jafnvæginu,“
segir hann og bætir við að hann
hafi oft upplifað viðskiptavini sína
skammast yfir eigin útliti. „Sérstak-
lega þegar ég var að vinna á hár-
greiðslustofu. Þá komu oft svaka-
lega sætar pæjur til mín í kasti yfir
þriggja millimetra rót. Helst lang-
aði mig að segja þeim að fara til
sálfræðings og að ég tæki ekki þátt
í þessari fullkomnunaráráttu. Mér
finnst fólk alltaf jafn frítt en hins
vegar er fólk misjafnt í skapinu.
Þegar við erum ekki með neina
orku þá erum við ekki með neina
útgeislun. Það er bara staðreynd.“
Oddvar hefur skrifað mikið um
þetta hugtak „ljótuna“ á Facebook-
síðu sína. „Ég er náttúrulega í þess-
um geira – er hárgreiðslumenntað-
ur, förðunarfræðingur, með BA frá
Listaháskóla Íslands, með sveins-
próf í ljósmyndun – er sprenglærður
á alls konar hluti. Vinnan mín er oft á
mörkum hégómans. Í þessum bransa
eiga karlmenn að vera eins og ópal-
pakkar en stelpur eins og hjartalaga
jarðarber. Sannleikurinn er hins veg-
ar sá að við erum öll misjöfn en reyn-
um þá að skyggja og laga svo að sem
flestir falli inn í þennan ramma sem
við erum búin að lofsama svo mik-
ið – þetta staðlaða form Hollywood-
fegurðar. Auðvitað hefur þetta áhrif á
mig en ég reyni að vera sáttur við mig.
Ég veit að ég er ekki jarðarber og ekki
heldur ópalpakki. Ég er þarna ein-
hvers staðar á milli.“
Oddvar segist löngu búinn að átta
sig á því að „ljótan“ sé eitthvað sem
hann verði að sætta sig við. „Hún
kemur alltaf annað slagið. Ég get ekki
losað mig við hana og verð frekar
að reyna að láta mér þykja vænt um
hana. Stundum þegar ég skoða sex
ára gamlar myndir þá sé ég hvað ég
var sætur. Líka þegar ég skoða fjög-
urra ára gamlar myndir, mánaðar
gamlar og jafnvel tveggja vikna. Ef
ég leit vel út á þessum myndum þá
hlýt ég að líta vel út í dag líka. Ég fékk
nefnilega líka ljótuna fyrir sex árum,
fjórum árum og tveimur vikum,“ seg-
ir Oddvar sem elskar að taka mynd-
ir af sjálfum sér. „Kannski er ég bara
tilraunamaður í eðli mínu en ég tek
myndir af mér þegar ég er með „ljót-
una“ jafnt sem „sætuna“. Ég vil ná
fjölbreytninni og tek því myndir af
mér þegar ég er lasinn, úttútnaður í
flugvél, ógeðslega sólbrunninn, ný-
kominn með krullur og þegar ég er
á leið í jarðarför. Hins vegar held ég
að það sé alveg sama hversu mikið
maður rembist þá mun maður aldrei
sjá sjálfan sig eins og aðrir upplifa
mann.“
Hráfæði úti í sveit
n Kristín missti heilsuna og tók til eigin ráða
É
g hef alltaf haft áhuga á mat og
matargerð og eftir að hafa skipt
sjálf yfir í grænmetis- og hráfæði
vegna veikinda fór ég að ein-
beita mér að þess konar mat,“ segir
Kristín Kolbeinsdóttir sem opnaði
nýlega grænmetis- og hráfæðisveit-
ingastaðinn Silvu en veitingastaður-
inn er staðsettur inn í Eyjafirði.
Silva opnaði 19. maí og sam-
kvæmt Kristínu hafa viðbrögðin ver-
ið góð. „Ég veit ekki til þess að það sé
annar svona staður utan höfuðborg-
arsvæðisins.
Fólk að sunnan er mjög ánægt
að komast loksins á grænmetisstað
hér fyrir norðan og Akureyringar og
nærsveitungar eru líka þakklátir fyrir
svona stað.
Það virðist hafa verið þörf á þessu.“
Heilsu Kristínar hafði hrakað mik-
ið áður en hún tók til í mataræði
sínu. „Ég var komin niður í 50 pró-
sent vinnu og stóð frammi fyrir því að
verða öryrki. Þá ákvað ég að skipta um
lífsstíl og fór að borða hollari mat. Ég
er að klára heilsumeistaraskólann en
þar vinnur maður fyrst og fremst með
eigin heilsu áður en maður fer að að-
stoða aðra. Það kom mér af stað.“
Kristín óttast ekki að það verði
erfitt að reka svo sérhæfðan veitinga-
stað úti í sveit. „Alls ekki. Við erum
bara í tíu mínútna akstursfjarlægð
frá Akureyri. Það er styttra fyrir fólk
að kíkja hingað frá Akureyri í kaffi
og kökur heldur en fyrir mig þegar
ég gisti í Reykjavík að komast niður
á Gló. Ég finn klárlega fyrir auknum
áhuga á svona mat og meira að segja
hörðustu kjötætur koma hingað og
fara saddar út.“
46 Lífsstíll 1.–3. júní 2012 Helgarblað
Ert þú með lélega sjálfsmynd?
Skref til
að styrkja
sjálfsmyndina
Sátt við sjálfa(n) þig
Það er enginn fullkominn og því
skaltu ekki reyna að vera það. Gerðu
frekar eins vel og þú telur þig geta og
vertu sátt(ur) við það.
Lærðu af mistökum þínum.
Viðurkenndu að þú hafir gert
mistök því allir gera mistök á lífsleiðinni.
Þau eru hluti af þroska þínum.
Æðruleysi
Hugsaðu um hverju þú getur
breytt og hverju ekki. Ef þú vilt breyta
einhverju, byrjaðu þá strax. En ef það er
eitthvað sem þú getur ekki breytt (t.d.
hæð þín), sættu þig þá við það og lærðu
að meta það.
Jákvæð hugsun
Hugsaðu jákvætt um sjálfa(n) þig.
Ef þú finnur fyrir neikvæðum hugsunum
um sjálfa(n) þig reyndu þá meðvitað að
stoppa það til dæmis með því að segja
eitthvað jákvætt upphátt. Einnig er gott
ráð að skrifa niður þrjú jákvæð atriði um
þig á hverjum degi.
Ánægja með lífið
Prófaðu nýja hluti, þú gætir
fundið dulda hæfileika.
Láttu ljós þitt skína.
Hafðu trú á þér og skoðunum
þínum.
Skemmtu þér.
Njóttu þess að vera með vinum
þínum og fjölskyldu. Ekki bíða eftir að
hlutirnir gerist, hafðu frumkvæði að
samskiptum.
Láttu vita ef þér líður illa
Leitaðu til þeirra sem þér þykir
vænt um, það er oft gott að tala við ein-
hvern.
Hjálpaðu
Vertu hjálpsamur við vini og
fjölskyldu. Vinsemd og hjálpsemi í garð
annarra styrkir sjálfsmynd þína.
Finndu styrkleika þína og
þekktu veikleika þína
Allir hafa einhverja styrkleika. Þú þarft
að finna þína og mundu að hæfileikarnir
styrkjast og þróast með þér.
Hugsaðu um styrkleika þína og láttu
drauma þína rætast.
Settu þér markmið
Og finndu leiðina að þeim. Reyndu
að halda þeim markmiðum sem þú setur
þér.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
Stundum með „ljótuna“,
stundum með „sætuna“
n Oddvar reynir að láta sér þykja vænt um „ljótuna“
Nærsveitungar þakklátir „Það virðist
hafa verið þörf á þessu,“segir Silvía.
Fer eftir skapi Oddvar elskar að taka sem
fjölbreyttastar
myndir af sér.