Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 54
É
g held að það sé ekki spurning
að byrjunin hefur verið ágæt.
Við höfum verið að spila gegn
sterkum andstæðingum á
erfiðum útivöllum. En sé litið
á leikina þá höfum við kannski verið
að fá of mikið af mörkum á okkur. Það
er eitthvað sem þarf að vinna í,“ segir
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH,
aðspurður um fyrstu leiki íslenska
landsliðsins undir stjórn Svíans Lars
Lagerbäck. Ísland hefur tapað öllum
fjórum fyrstu leikjunum undir stjórn
Lagerbäck og fengið á sig ellefu mörk
í þessum fjórum leikjum. Margir hafa
þó haft á orði að greina megi mikla
framför í leik liðsins og skipulagi,
þá einna helst í sóknarleiknum,
enda hefur landsliðið skorað 8 mörk
í þessum sömu fjórum leikjum.
Það eru jafn mörg mörk og Ísland
skoraði í tíu síðustu leikjum Ólafs
Jóhannessonar við stjórnvölinn, en
þar af mistókst Íslandi að skora í
fimm þessara leikja.
Vörnin í tómu tjóni
„Það er auðvitað ekki líklegt til
árangurs að vera að fá á sig hátt í
þrjú mörk í leikjunum,“ segir Heimir.
Undir þetta tekur sparkspekingurinn
og sjónvarpsmaðurinn Hjörvar
Hafliðason í samtali við DV.
„Varnarleikurinn er bara sama brasið
og hann var undir stjórn Óla Jó, ég hef
eiginlega ekki séð neina breytingu
þar á. Við höfum ekki heldur enn
fengið fengið viðunandi markvörslu
í leikjunum,“ segir Hjörvar sem veltir
upp þeim athyglisverða punkti að
hugsanlega liggi sökin á slökum
varnarleik íslenska landsliðsins ekki
hjá þjálfaranum, heldur fremur í
þeim efnivið sem þeir hafi úr að velja
í öftustu víglínu.
„Það skiptir engu máli hver er
þjálfari því við virðumst ekki eiga
nógu öfluga miðverði og bakverði.
Að fá á sig ellefu mörk er ofboðslega
mikið. Það er stóra vesenið.“
Sóknin sér um sig
„Þær jákvæðu breytingar sem
greina má hafa verið á sóknarleik
liðsins,“ bætir Hjörvar við um þessa
hveitibrauðsdaga Lars Lagerbäck
við stjórnvölinn. Heimir tekur
undir þetta og segir lítið hægt að
kvarta yfir sóknarleiknum. Ísland
eigi góða sóknarmenn. „Ef við
tökum þessa fjóra fremstu sem hafa
verið að spila undanfarið þá ertu
54 Sport 1.–3. júní 2012 Helgarblað
n Ísland hefur tapað fjórum fyrstu leikjunum undir stjórn Lars Lagerbäck
„Varnar-
leikurinn er
bara sama brasið
og hann var undir
stjórn Óla Jó
Vörnin hriplek en
sóknin sjaldan betri
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Alvöru framherji
Kolbeinn Sigþórsson
mun leiða sóknarlínu
Íslands um ókomin ár.
Hér skorar hann mark
sitt gegn Svíum.
mynd reuterS
Þarf að laga vörnina Menn eru sam
mála um að sóknin hafi litið vel út í fyrstu
leikjunum en vörnina þarf að þétta. Að fá
ellefu mörk á sig í fjórum leikjum er of mikið.
með Gylfa [Sigurðsson], Kolbein
[Sigþórsson], Birki Bjarnason, Rúrik
[Gíslason], þetta eru allt mjög góðir
sóknarmenn. Kolbeinn til að mynda
sýnir það að hann þarf ekki að spila
mikið til að skora mörk,“ segir Heimir,
en Kolbeinn missti af stórum hluta
síðasta tímabils vegna alvarlegra
meiðsla. Hann hafði verið funheitur í
markaskorun áður en hann meiddist
og virðist ætla að halda áfram á sömu
sigurbraut nú þegar hann er kominn
aftur á ról. Með Kolbein í fremstu
víglínu er ljóst að framtíðin er björt
hvað markaskorun varðar. „Við
eigum núna alvöru „Níu“ uppi á topp
sem er Kolbeinn og það er allt annað
að vinna með svoleiðis framherjum,“
segir Hjörvar.
„Ég tel að sóknarleikurinn verði
ekki mikið vandamál með þessa góðu
sóknarmenn. En mér sýnist á öllu
eftir þessa leiki að varnarleikurinn
sé eitthvað sem þarf að laga,“ segir
Heimir og sama segir Hjörvar.
Ísland þarf að halda boltanum
Heimir segir aðspurður að helsta
breytingin í fljótu bragði á leik
íslenska landsliðsins undir stjórn
Lagerbäck sé önnur leikaðferð.
Ólafur hafi verið að spila afbrigði af
4-3-3 meðan Lars haldi sig við 4-4-
2. „Báðir hafa þeir lagt upp með að
halda boltanum innan liðsins enda
met ég það þannig að ef þú ætlar
að ná árangri með landslið eins og
okkar þá þurfum við að geta haldið
boltanum innan liðsins,“ segir
Heimir. „Og það sem ég sá af leiknum
gegn Svíþjóð þá gekk það ágætlega á
köflum.“
Hjörvar segir líklega stærstu
breytinguna á liðina vera þann
stóraukna áhuga sem fólk virðist
hafa á landsliðinu núna. „En ég
hef ekki enn séð nein töfrabrögð
frá Svíanum. Það verður að líta á
það að hann er að fá þennan sterka
hóp ungra leikmanna sem fóru á
lokakeppni EM [undir 21 árs] sem
Óli hafði aldrei – þennan hóp af
hæfileikaríkum fótboltamönnum.“
Einhver bið gæti orðið enn eftir
fyrsta sigurleik Íslands undir stjórn
hins þaulreynda Svía. Næsti leikur
liðsins er vináttuleikur á Laugardals-
velli gegn Færeyjum 15. ágúst. Síð-
an hefst alvaran í undankeppni HM
2014 með heimaleik gegn frændum
okkar í Noregi 7. september.
Undir stjórn
Lars Lagerbäck
Leikir: 4
Mörk skoruð: 8
Mörk fengin á sig: 11
24. febrúar á Nagai Stadium
Japan - Ísland 3–1
mark Íslands: Arnór Smárason
29.febrúar á Pod Goricom
Svartfjallaland - Ísland 2–1
mark Íslands: Alfreð Finnbogason
27. maí á Stefe du Hainaut
Frakkland - Ísland 3–2
mörk Íslands: Birkir Bjarnason,
Kolbeinn Sigþórsson
30. maí á Gamla Ullevi
Svíþjóð - Ísland 3–2
mörk Íslands: Kolbeinn Sigþórsson,
Hallgrímur Jónasson
Næstu leikir
15. ágúst | Vináttuleikur
Ísland - Færeyjar
7. september | Undankeppni HM
Ísland - Noregur
11. september | Undankeppni HM
Kýpur - Ísland
12. október | Undankeppni HM
Albanía - Ísland
16. október | Undankeppni HM
Ísland - Sviss
Úrslit
Pepsí-deildin
ÍBV - Stjarnan 4–1
Brynjar Gauti Guðjónsson, Christian Steen Olsen,
Tryggvi Guðmundsson, Ian David Jeffs Alexander
Scholz.
Selfoss - Breiðablik 0–2
Árni Vilhjálmsson, Petar Rnkovic.
Valur - Keflavík 4–0
Kolbeinn Kárason 2, Matthías Guðmundsson,
Kristinn Freyr Sigurðsson.
Næstu leikir:
02.06
14.00 FH Fylkir
16.00 Grindavík ÍA
16.00 Fram KR
Staðan
1 ÍA 5 4 1 0 9:5 13
2 KR 5 3 1 1 10:7 10
3 FH 5 3 1 1 6:3 10
4 Valur 6 3 0 3 9:6 9
5 Stjarnan 6 2 3 1 11:10 9
6 Keflavík 6 2 1 3 8:9 7
7 Selfoss 6 2 1 3 8:10 7
8 Breiðablik 6 2 1 3 3:6 7
9 Fylkir 5 1 3 1 7:6 6
10 Fram 5 2 0 3 6:7 6
11 ÍBV 6 1 2 3 8:8 5
12 Grindavík 5 0 2 3 8:16 2
Eiður á förum
frá AEK?
Knattspyrnumaðurinn Eiður
Smári Guðjohnsen gæti yfirgefið
herbúðir AEK Aþenu í sumar, að
því er Arnar Grétarsson, yfirmað-
ur knattspyrnumála hjá félaginu,
segir í samtali við Fótbolta.net.
„Ég held að líkurnar séu meiri en
minni,“ er haft eftir honum.
Í fréttinni segir að AEK glími
við mikla fjárhagsörðugleika og
Arnar gefur í skyn að leikmenn
hafi ekki fengið greitt eins og vera
ber. Við slíkt vilji enginn knatt-
spyrnumaður búa. „Ég veit að
hann hefur ekki áhuga á að vera
áfram við þessar aðstæður,“ segir
Arnar.
Eiður Smári fótbrotnaði í októ-
ber í fyrra og missti af stærstum
hluta keppnistímabilsins. Hann
skoraði eitt mark í þeim níu leikj-
um sem hann lék. Annar Íslend-
ingur, Elfar Freyr Helgason, er
einnig á mála hjá liðinu en Arnar
segir að meiri möguleikar gætu
opnast fyrir Elfar ef lykilmenn yfir-
gefa liðið í sumar.
Enn einn
sigurinn
Lærisveinar Alfreð Gíslasonar í
þýska handknattleiksliðinu THW
Kiel slá ekki slöku við þó liðið hafi
unnið alla titla sem í boði eru á
tímabilinu. Liðið vann enn einn
stórsigurinn í deildarkeppninni
á fimmtudag þegar sigur vannst
á Eintracht Hildesheim, 35–24.
Íslendingurinn Aron Pálmars-
son skoraði þrjú mörk fyrir Kiel.
Um var að ræða næstsíðasta leik
liðsins á tímabilinu. Vinni Kiel
einnig síðasta leikinn brýtur það
blað í sögu þýska handboltans því
þá hefur liðið náð þeim árangri
að vinna alla 34 deildarleikina á
keppnistímabilinu. Gummers-
bach er eina liðið sem getur kom-
ið í veg fyrir það. Liðin eigast við á
laugardag.