Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 24
H
run á gengi hlutabréfa í
Face book hefur orðið þess
valdandi að Mark Zucker-
berg, stofnandi og forstjóri
fyrirtækisins, er ekki lengur
á topp 40 lista yfir ríkasta fólk heims.
Facebook var skráð á hlutabréfa-
markað í síðasta mánuði en nú er
orðið ljóst að bréfin voru allt of hátt
skráð í upphafi. Þegar Facebook fór
á markað var hver hlutur í félaginu
metinn á 38 dollara en er nú kom-
inn niður fyrir 29 dollara. Skráning
Face book á markað er því ein sú mis-
heppnaðasta í Bandaríkjunum und-
anfarinn áratug enda hefur gengið
fallið um 24 prósent á örfáum vikum.
Tapar 1,6 milljarði á klukkustund
Zuckerberg og bankinn sem stóðu
að skráningu félagsins á hluta-
bréfamarkað eiga nú yfir höfði sér
málssóknir frá fjárfestum vegna
þess að félagið var allt of hátt
skráð. Hvað sem kemur út úr því,
þá er ljóst að hrunið hefur líka
áhrif á forstjórann unga. Eign-
ir hins 28 ára netfrumkvöðuls eru
nú metnar á 14,7 milljarða doll-
ara en voru á mánudaginn metnar
á 16,2 milljarða dollara. Það þýð-
ir að eignir Zuckerberg hafa rýrn-
að um 196 milljarða króna á einni
vinnuviku. Ef það er reiknað að-
eins lengra kemur í ljós að eignir
Zucker berg hafa rýrnað um rúm-
lega 1,6 milljarða króna á klukku-
stund – allan sólarhringinn und-
anfarna fimm daga.
„Þetta virðist sýna okkur að það
var einfaldlega of mikið af hluta-
bréfum í boði í hlutafjárútboðinu.
Menn voru of djarfir þegar þeir
mátu fyrirtækið og greinilegt er að
þeir sem keyptu í upphafi ætluðu
sér greinilega aldrei að eiga það
til langtíma,“ segir Jack Albin, sér-
fræðingur á fjármálamörkuðum
hjá Harris Private Bank við Bloom-
berg-sjónvarpsstöðina.
Þriðjungur af landsframleiðslu
Íslands
Þessi gífurlega eignarýrnun
Zucker berg er auðvitað að mestu
leyti leikur að tölum. Hann náði
aldrei að sjá þessar upphæðir inni
á bankareikningi sínum.
Þegar viðskiptum lauk í kaup-
höllinni vestanhafs með bréf í
Facebook þann 18. maí voru eignir
hans metnar á 19,4 milljarða doll-
ara. Það hljómar því mjög óraun-
verulegt að á tveimur vikum geti
einn maður tapað upphæð sem
nemur um þriðjungi allrar lands-
framleiðslu Íslands, sem er um 14
milljarðar dollara á ári.
Ætli Zuckerberg að komast
aftur inn á listann yfir 40 ríkustu
menn heims, þá þarf verðmæti
eigna hans að aukast sem nem-
ur um 800 milljónum dollara, til
þess að hann nái Luis Carlos Sari-
mento, ríkasta manni Kólumbíu.
Miðað við hvað Zuckerberg var
fljótur að tapa margfaldri þeirri
upphæð, þá skyldi ekki útiloka
að bréfin hækki nægilega mikið á
næstu dögum til að hann skjótist
aftur inn á listann.
24 Erlent 1.–3. júní 2012 Helgarblað
Ætluðu að sprengja höllina
n Lögreglan segist hafa handtekið 40 ódæðismenn í Bakú
Þ
jóðaröryggisráðuneytið í
Aserbaídsjan segist hafa
ákveðið að leyna almenningi
upplýsingum um að hópur
manna væri að undirbúa hryðjuver-
kaárás á Kristalshöllina í Bakú, þar
sem Eurovision-keppnin fór fram.
Hermt er að lögreglan í Aserbaídsjan
hafi handtekið 40 manns í kringum
keppnina sem taldir eru hafa verið
að undirbúa að sprengja höllina í loft
upp. Hópurinn hafi auk þess ætlað
að sprengja upp moskur og bíla auk
Hilton- og Marriot-hótelanna í borg-
inni, þar sem keppendur gistu með-
al annarra. Fram kemur að þeirra á
meðal þeirra sem gistu á stöðum sem
til stóð að sprengja í loft upp hafi ver-
ið Engelbert Humperdinck, söngvari
Bretlands, og Anggun, söngkonan
sem flutti lag Frakka í keppninni.
Kamil Salimov, öryggissérfræð-
ingur í Aserbaídsjan, fagnar því að
tekist hafi að koma í veg fyrir árásirn-
ar og að lögreglan hafi staðið sig með
miklum sóma. Hann segir að tveir
menn hafi látið lífið í átökum þegar
handtökurnar fóru fram, enda hafi
margir sýnt mikla mótspyrnu. Hann
segir að lagt hafi verið hald á mikið
magn sprengiefna í aðgerðunum.
Ástæðan sem þjóðaröryggis-
ráðuneytið gefur fyrir því að hafa
ekki greint frá áformunum meðan á
keppninni stóð var að þeir hafi ekki
viljað skapa ringulreið og skelfingu á
meðal almennings og erlendra gesta.
Ekki orðinn blankur
Mark Zuckerberg skaust
upp listann yfir ríkustu
menn heims þegar
Facebook fór á markað.
Hann hefur nú hrunið
niður þann lista.„Menn
voru of
djarfir þegar
þeir veðmátu
fyrirtækið
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Íslensku keppendurnir Lögreglunni
í Aserbaídsjan tókst að koma í veg fyrir
hryðjuverk, að eigin sögn.
n Hefur tapað sem nemur þriðjungi af landsframleiðslu Íslands á tveimur vikum
Zuckerberg ekki
lengur á topp 40
Barði mann
sinn í 40 ár
Í rúma fjóra áratugi beitti norsk
kona eiginmann sinn miklu and-
legu og líkamlegu ofbeldi. Fyrir
það hefur hún nú verið dæmd í
þriggja ára fangelsi. Konan er í dag
72 ára gömul en eiginmaðurinn
lést árið 2010. Norskir fjölmiðlar
greindu frá þessu á miðvikudag.
Fram kemur í dómnum að of-
beldið hafi margsinnis átt sér stað
að börnum þeirra viðstöddum.
Hún barði hann með járnröri og
ýmis konar innanstokksmunum,
neitaði honum um aðgang að eld-
húsi og baðherbergi. Hún eyði-
lagði fötin hans, henti póstinum
og tók af honum lyf sem hann
þurfti að taka inn. Þá neitaði hún
honum um afnot af síma þeirra
hjóna. Það var maðurinn sem
upphaflega kærði konuna fyrir
áreiti en fljótlega beindist rann-
sóknin að konunni. Börnin þeirra
báru vitni gegn móður sinni fyrir
dómi.
Breivik var
einn að verki
Lögregluyfirvöld í Noregi hafa
tekið af allan vafa um að fjölda-
morðinginn Anders Behring Brei-
vik hafi átt sér vitorðsmenn þegar
hann framdi ódæðisverkin í Osló
og á eyjunni Útey. „Við teljum
okkur viss um þessa niðurstöðu,“
sagði Kenneth Wilberg, lögreglu-
stjóri Oslóarborgar, á vefmiðlinum
Thelocal.no.
Breivik hefur sagt við yfir-
heyrslur og réttarhöld að til staðar
sé hreyfing sem sé undir það búin
að láta til skarar skríða. Hann
hefur sagst tilheyra evrópskri
hreyfingu sem kallar sig Musteris-
riddararnir. Þau hafi verið stofnuð
í London árið 2002 og hlutverk
þeirra sé að vernda Evrópu fyrir
innrás múslima.
Dæmdur fyrir
stríðsglæpi
Fyrrverandi forseti Líberíu,
Charles Taylor, var á miðviku-
dag dæmdur í 50 ára fangelsi fyrir
sinn þátt í borgarastríðinu í Sierra
Leone, þar sem talið er að meira
en 50 þúsund manns hafi látið
lífið. Hann var sakfelldur fyrir að
hafa hvatt til stríðsins á árunum
1991 til 2002 og fyrir að hafa hjálp-
að uppreisnarmönnum. Hann var
líka dæmdur fyrir sína ábyrgð á
mannúðarglæpum; nauðgunum,
morðum, aflimunum á fólki og
fyrir að vera ábyrgur fyrir því að
börn voru neydd til herþjónustu.
Taylor hefur alla tíð sagst vera
saklaus af öllu því sem hann hefur
verið sakaður um. Gera má ráð
fyrir að dómnum verði áfrýjað.
Þetta mun vera í fyrsta sinn frá
árinu 1946 sem fyrrverandi þjóð-
arleiðtogi er dæmdur fyrir stríðs-
glæpi. Taylor er 64 ára gamall og
afplánar dóm sinn í Bretlandi.