Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 30
G eir Hilmar Haarde er síðasti ráðherrann úr ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Sjálf- stæðisflokksins sem sat við stjórnvölinn þegar hrunið varð árið 2008 sem fær vinnu. Sjö af tólf ráðherrum úr ríkisstjórninni sitja enn á þingi, þar af tveir í núverandi ríkisstjórn. Tilkynnt var um það í síðustu viku að Geir Hilmar hafi gengið til liðs við Opus lögmannsstofu, sem er í eigu stjúpsonar hans. Samkvæmt tilkynn- ingu frá lögmannsstofunni mun Geir starfa sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum og á heimasíðu stofunn- ar stendur að hann hafi umsjón með alþjóðasviði hennar. Geir er sjálf- ur ekki menntaður lögfræðingur en hann er með MA-gráðu í bæði hag- fræði og alþjóðastjórnmálum. Þetta er fyrsta starf hans eftir að hann lauk háskólanámi sem ekki er á vegum hins opinbera. „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ sagði Geir H. Haarde í samtali við  Morgunblaðið stuttu eftir að tilkynnt var um um nýjan starfsvettvang. Lögmenn gegn ríkinu Á vef stofunnar segir að starfsfólk Opus hafi reynslu af störfum í banka- rétti, verðbréfamarkaðs- og kaup- hallarrétti og almennum félagarétti. Stofan veiti þannig lögfræðiráð- gjöf varðandi löggjöf um fjárhags- lega endurskipulagningu fyrirtækja, verðbréfaviðskipti, lánasamninga og bankastarfsemi, kauphallar- og félagarétt og gjaldeyrismál. Meðal eigenda er Borgar Þór Ein- arsson, stjúpsonur Geirs og fyrr- verandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Árið 2009 lögsótti Borgar íslenska ríkið í tilraun til að koma í veg fyrir að álagningarskrár skattstjóra mættu vera gerðar opin- berar. Málinu var vísað frá. Árið 2008 vann Opus að stjórn- sýsluákæru ellefu fanga gegn Mar- gréti Frímannsdóttur, forstöðukonu Litla-Hrauns. Fangarnir voru ef marka má umfjöllun af málinu bál- reiðir yfir framkomu í sinn garð eftir að hafa verið ræstir um miðja nótt og síðan hreinsað út úr klefum þeirra. Sama ár starfaði stofan fyrir fanga sem glímdi við veikindi í hjarta og kvartaði yfir lélegri loftræstingu og aðbúnaði á hrauninu. Þá hefur Opus starfað fyrir með- limi Vítisengla til að mynda í máli norsku vítisenglanna sem handtekn- ir voru við komu til Íslands árið 2007. Nokkur hópur vítisengla ætlaði þá að sækja veisluhöld hjá Fáfni, stuðn- ingsklúbbi englanna. Aðilarnir fóru í skaðabótamál við íslenska ríkið og fólu Oddgeiri Einarssyni, lögmanni Opus, að höfða málið en Flosi Hrafn Sigurðsson, lögmaður stofunnar rak málið fyrir hönd vítisenglanna. Hér- aðsdómur sýknaði íslenska ríkið. Störf hjá alþjóðlegum stofnunum Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjár- málaráðherra, fékk fljótlega eftir hrun stöðu aðstoðarframkvæmda- stjóra hjá Matvælastofnun Sam- einuðu þjóðanna í Róm. Árni er menntaður dýralæknir og starfaði sem slíkur þegar hann lét af þing- mennsku í kosningunum vorið 2009. Hann vann einnig að bókarskrifum eftir að hann hætti á þingi og kom bókin Árni Matt: Frá bankahruni til byltingar út árið 2010. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrr- verandi utanríkisráðherra og for- maður Samfylkingarinnar, starf- ar einnig fyrir alþjóðlega stofnun, sem yfirmaður UNWomen í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Starfið fékk hún á síðasta ári en hún lét af þing- mennsku á sama tíma og Árni. Í millitíðinni sótti hún um starf hjá Öryggis- og eftirlitsstofnun ESA sem mansalsfulltrúi. Hún komst í loka- hóp umsækjenda um starfið án þess þó að fá starfið. Fleiri skrifuðu bækur Árni var ekki eini ráðherrann úr hrunstjórninni sem settist niður við skriftir í kjölfar bankahruns- ins og stjórnarslitanna. Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskipta- ráðherra, skrifaði einnig bók sem kom út sama ár og bók Árna. Bókin hét Stormurinn – reynslusaga ráð- herra. Hvorug bókin seldist sér- staklega vel. Björgvin er einn þeirra sem héldu áfram á þingi og leiddi hann Sam- fylkinguna í Suðurkjördæmi í kosn- ingunum vorið 2009. Hann flaug inn á þing og tók við hlutverki þing- flokksformanns Samfylkingarinnar eftir að hann fékk ekki ráðherrastól í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi samráðherra hans í rík- isstjórn Geirs Haarde. Þegar rann- sóknarskýrsla Alþingis vegna bankahrunsins kom út árið 2010 tók Björgvin sér tímabundið frí frá þingstörfum á meðan þingið ákvað hvort draga ætti einstaka ráðherra til ábyrgðar fyrir þátt sinn í hruninu eða aðgerðir og aðgerðaleysi þeirra. Hann settist svo aftur á þing þegar ljóst var að meirihluti þingmanna hafnaði því að hann yrði ákærður og dreginn fyrir landsdóm, þrátt fyrir að hann hefði verið ráðherra banka- mála. 30 Fréttir 1.–3. júní 2012 Helgarblað Þórunn Sveinbjarnardóttir S Var: Umhverfisráðherra Er: Siðfræðinemi í Háskóla Íslands. Kristján L. Möller S Var: Samgönguráðherra Er: Þingmaður og formaður í atvinnu- veganefnd Alþingis. Situr þar að auki í þremur öðrum þingnefndum. Guðlaugur Þór Þórðarson D Var: Heilbrigðisráðherra Er: Þingmaður, einn þriggja fyrrverandi ráðherra flokksins sem fóru aftur á þing í kosningunum eftir hrun. Björn Bjarnason D Var: Dómsmálaráðherra Er: Bloggari og ritstjóri Evrópuvakt- arinnar, sem berst gegn inngöngu í ESB með styrkveitingu frá Alþingi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir S Var: Utanríkisráðherra Er: Framkvæmdastjóri hjálparsam- takanna UNWOMEN í hinu stríðs- hrjáða Afganistan, eftir að hafa dregið sig í hlé frá stjórnmálum. Einar Kristinn Guðfinnsson D Var: Sjávarútvegsráðherra Er: Einn ötulasti þingmaður stjórnarandstöðunnar á Alþingi og varaformaður þingflokks Sjálfstæðis- flokksins, auk þess að vera fulltrúi minnihlutans í atvinnuveganefnd. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir D Var: Menntamálaráðherra Er: Þingmaður á síðasta kjör- tímabili sínu á Alþingi, eins og hún hefur sjálf gefið til kynna, eftir að hafa gefið eftir varaformanns- embættið í Sjálfstæðisflokknum. Geir Hilmar Haarde D Var: Forsætisráðherra Er: Ráðgjafi og yfirmaður alþjóðasviðs lögmannsstofunnar Opus, sem er meðal annars í eigu stjúpsonar hans. Starf hans felst í því að finna alþjóðlega viðskiptavini. Árni Mathiesen D Var: Fjármálaráðherra Er: Aðstoðarframkvæmdastjóri Matvælastofnunar SÞ, búsettur í Róm á Ítalíu, eftir stutta viðkomu í dýralækningum. Stjórn Geirs í góðum málum eftir hrun n Geir Haarde í einkageirann eftir 35 ár hjá hinu opinbera n Árni og Ingibjörg hjá Sameinuðu þjóðunum n Björn er ríkisstyrktur bloggari „Þetta leggst bara mjög vel í mig. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is Sagnaritun Nokkuð hátt hlutfall hrunstjórnarráð- herra og lykilmanna eru öflugt þegar kemur að skrifum og útgáfustarfsemi eftir efnahagshrunið. Áhugafólk um söguskýringar, heimssýn og skoðanir leikmanna hrunstjórnar- innar hafa því úr nógu að velja. Hér eru rakin nokkur dæmi um það úrval sem stendur til boða. Listinn er engan veginn tæmandi en hann gefur nokkuð glöggva mynd af ótrúlgum dugnaði hrunstjórnarmanna þegar kemur að ritstörfum. Stormurinn Björgvin G. Sigurðsson Í bókinni fer Björg- vin G. yfir atburði áranna fyrir hrun allt til þess tíma er Alþingi greiddi atkvæði um hvort ákæra skyldi fjóra ráðherra ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Bókin seldist í lægra upplagi en vonir stóðu til. Það var fyrirtækið N1 sem liðsinnti Björgvin með útgáfuna. Skilaréttur var enginn en heppnir eigendur gátu unnið vinninga í happdrætti. Líkurnar jukust með hverju eintaki sem ekki mátti skila. Morgunblaðið Öflugastur þegar kemur að útgáfu- starfsemi er án vafa Davíð Odds- son, fyrrverandi seðlabankastjóri. Þótt bók hafi ekki komið út frá hruni má daglega lesa glefsur úr heims- mynd Davíðs á síðum Morgunblaðsins. Þess utan geta áhugasamir lesið fréttir af áhugasviðum eigenda útgáfunnar; Icesave, Evrópusambandinu og sjávarútvegi, eins og nýlega kom fram í viðtali Viðskiptablaðsins við útgefanda og eiganda blaðsins. Evrópuvaktin Björn Bjarnason Markmið Evrópu- vaktarinnar er umfjöllun um málefni Evrópusam- bandsins, til að mynda IPA-styrki sambandsins en greina má á leiðurum að styrkirnir séu ritstjórn vefjarins ekki að skapi. Það á þó væntanlega ekki við styrki frá Alþingi vegna aðildarumsóknar Íslands að ESB en vefurinn veitti 4,5 milljónum króna af fé almennings viðtöku til að standa strauma af skrifum, ferðalögum og vöruflutningum í yfirvigt. Frá bankahruni til byltingar Árni Mathiesen og Þórhallur Jósepsson „Fáir íslenskir stjórnmálamenn hafa lent í við- líka pólitískum sviptivindum og Árni Mathiesen,“ segir í lýsingu á baki bókarinnar Frá bankahruni til byltingar, sem kom út árið 2010. Höfundar lofa lesendum einstakri innsýn í atburðarás sem gjör- breytti stöðu þjóðarinnar. Bókaskrifin gjörbreyttu stöðu annars höfunda en Þórhallur var látinn taka pokann sinn á RÚV þegar upp komst um bókaskrifin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.