Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 42
42 1.–3. júní 2012 Helgarblað Stórafmæli Áslaug Torfadóttir þrítug 2. júní 35 ára 2. júní Zachary er bandarískur leikari sem kom út úr skápnum fyrir stuttu. 62 ára 3. júní Suzi Quatro er bandarískur söngvari, lagahöfundur, bassaleikari og leikkona sem býr í Bretlandi. 38 ára 1. júní Alanis Morissette er kanadísk söngkona sem hefur selt yfir 60 milljón plötur um alla veröld. Ólétt á 50 tonna ferlíki É g er Strandastelpa, ætt- irnar mínar liggja þang- að og ég átti fyrstu tvö árin á Drangsnesi. En þá fluttum við að Kletti í Kollafirði á Barðaströnd. Það er einangraður bær en það var gaman að alast þar upp. Þetta er stórkostleg sveit. En veturn- ir þarna eru stundum erfiðir vegna snjóa,“ segir Áslaug. Hún sótti skóla á Reykhól- um þar sem um erfiða vegi var að fara. Börnunum var smalað í skólabílinn á mánudögum og svo ekið aftur heim á föstudög- um. „Það var oft ófært þannig að við komumst ekki heim um helgar. Betra var þegar við vor- um teppt heima og gátum leik- ið okkur þar. Stundum þurftum við að ganga á ís yfir Kollafjörð- inn til móts við skólabílinn því ekki var alltaf hægt að moka alla leið. Það voru oft svo mikil óveður og ævintýralega mikill snjór,“ segir hún þar sem hún hugar að einangruðum bæn- um uppi í hlíðinni. Þar sem Áslaug ólst upp í þessari fallegu sveit var hún þess fullviss að hún ætlaði að verða bóndi. „Ég ætlaði að verða bóndi með Huldu frænku. En eftir að fjölskyldan fluttist suður varð sá draum- ur að víkja. Við fluttum suður fermingarsumarið mitt. Það var mikil breyting að koma úr sveitinni í Breiðholtið. Það er samt ágætt að vera í bænum þó sveitin sé auðvitað miklu betri,“ segir hún og hlær. Við nýjar aðstæður urðu til nýir draumar um framtíð- arstörf. „Eftir að ég kom suð- ur langaði mig helst að verða bílstjóri á stórum bílum og þegar ég hafði aldur til fór ég og náði mér í réttindi á allar gerðir bíla. Eftir prófið fór ég að keyra rútur, meðal annars strætóáætlun á Keflavíkur- flugvelli, í Kanabyggðinni. Af því að ég er svo stutt í annan endann varð að breyta sætinu í bílnum hjá mér, ég var nærri búin að keyra niður ljósastaur af því að ég náði illa á brems- una. En þeir löguðu þetta strax fyrir mig karlarnir og höfðu gaman af. En skólakrakkarn- ir á Vellinum voru oft að spá í hvort ég hefði bílpróf, þeim fannst ég ekki geta verið meira en 16 ára af því að ég væri svo lítil,“ segir hún og hlær en seg- ist vön því að gert sé grín að því hversu smávaxin hún er. Eftir að hafa keyrt rútur vildi hún reyna eitthvað stærra og hóf að aka „trailer“-bílum og segir að mörgum hafi þótt skrítið að sjá svona litla konu koma út úr þessu nærri 50 tonna ferlíki. „Mér finnst gam- an að keyra stóru bílana og gekk það bara nokkuð vel. Það var mikið horft á mig þegar ég kom svona lítil út úr þessum stóru bílum, sér í lagi þegar ég var ólétt og komin með bumb- una langt út í loftið. Þá fannst fólki eitthvað ekki passa að ég væri að keyra þessi stóru tæki,“ segir hún og getur vel hugsað sér að snúa sér aftur að svona akstri. Hún þótti sérlega lag- in við að bakka þessum stóru bílum við erfiðar aðstæður og einstaklega lipur ökumaður. Áslaug er viss um að hana hlakki til þess að verða þrítug því að allt sé þetta skemmti- legt. „Auðvitað er þetta pínu furðulegt en gengur yfir og því er ekkert annað en að hlakka til þess að verða eldri og geta notið þess fullfrísk og hamingjusöm. Ég hlakka meira að segja til fimmtugs- afmælisins,“ segir hún skelli- hlæjandi. „Á afmælisdaginn verð ég með partí fyrir vinina. Það er svo langt síðan að ég hef hald- ið upp á afmælið mitt að nú verður veisla.“ Fjölskylda Áslaugar n Foreldrar: Torfi Guðmundur Jónsson bóndi f. 1963 Bjarney Elsebeth Sigvaldadóttir bóndi f. 1960 n Sambýlismaður: Jónas Ingi Jónasson bifvélavirki f. 1978 n Börn: Agnes Rut Kristjáns- dóttir f. 2000 Jónas Aron Jónasson f. 2002 Elísabet Marta Jónasdóttir f. 2008 n Systkin: Jóhanna Valdís Torfadóttir bankastarfsmaður f. 1983 Anna María Torfadóttir nemi f. 1987 Ólöf Birna Torfadóttir nemi f. 1990 Jón Halldór Torfason nemi f. 1992 Fékk sér réttindi á stóra bíla „Það var mikið horft á mig þegar ég kom svona lítil út úr þessum stóru bílum, sér í lagi þegar ég var ólétt og komin með bumbuna langt út í loftið.“ Muffins með súkkulaðibitum n Girnilegt matarblogg Unnar Karenar Á íslenska matarblogg- inu unnurkaren.com er mikið af girnilegum upp- skriftum. Unnur Karen er tölvunarfræðingur með mik- inn áhuga á mat og matargerð eins og sést á blogginu. Þar birtir hún til að mynda þessa einföldu uppskrift að muffins sem hún segir vera sitt upp- áhald. Blogg Unnar Karenar er vel þess virði að kíkja á þegar skortur er á góðum hugmynd- um þegar halda skal veislu. Ekki skemmir fyrir að upp- skriftunum fylgja góðar leið- beiningar og eru þær skreyttar stórum og flottum myndum af útkomunni. Muffins með súkkul- aðibitum n 5 dl hveiti n 4 dl sykur n 200 gr mjúkt smjör n 3 egg n 1/2 tsk. matarsódi n 1/2 tsk. salt n 1 tsk. vanilludropar n 100 gr súkkulaði n 1 lítil dós kaffi- eða kara- mellu- og hnetujógúrt Settu smjör og sykur í skál og þeyttu þar til áferðin verð- ur létt og ljós. Bættu einu eggi við og þeyttu áfram, svo næsta eggi og næsta þar til allt hefur blandast vel sam- an. Bættu við hveiti, matar- sóda, salti, jógúrt og van- illudropum og hrærðu var- lega með sleif. Bættu söxuðu súkkulaðinu saman við. Bakaðu í 20 mínútur við 175°C. Girnilegt Vel þess virði að kíkja á unnurkaren.com MYND/www.UNNUrKareN.coM 1. júní 1479 - Kaupmannahafnarháskóli var stofnaður. 1495 - Förumunkurinn John Cor skráði hjá sér fyrstu uppskriftina að skosku viskíi. 1815 - Napoleon Bonaparte sór eið að stjórnarskrá Frakklands. 1908 - Hafnarfjörður fékk kaup- staðarréttindi. 1910 - Robert Falcon Scott lagði af stað í ferð sína á suðurpólinn. 1968 - Nýja sundlaugin í Laugar- dal í Reykjavík tók til starfa og var þá gömlu sundlaugunum þar lokað. 1976 - Bretar viðurkenndu 200 mílna fiskveiðilögsögu við Ísland. 1983 - Verðbólgumet var slegið á Íslandi þegar framfærsluvísitalan hækkaði um 25,1% á þremur mánuðum og hækkun lánskjara- vísitölu á ársgrundvelli varð 158,9%. 1996 - Sex sveitarfélög á norðanverðum Vestfjörðum sameinuðust undir nafninu Ísafjarðarbær. 2007 - Reykingabann tók gildi á öllum veitinga- og skemmti- stöðum á Íslandi. 2. júní 1541 - Ögmundur Pálsson, síðasti kaþólski biskupinn í Skálholti, var handtekinn og fluttur nauðugur úr landi. Hann dó á leiðinni. 1625 - Friðrik af Óraníu varð landstjóri í Hollandi og Sjálandi. 1707 - Stóra bóla barst til Eyrarbakka með farskipi. Sóttin herjaði um allt Ísland og var mannskæðasta farsótt síðan í svarta dauða 1402. Hún varði til um 1709. 1875 - Alexander Graham Bell hringdi í fyrsta sinn úr síma. 1896 - Guglielmo Marconi fékk einkaleyfi fyrir nýjustu uppfinn- ingu sína: útvarpið. 1897 - Mark Twain svaraði orðrómi um dauða sinn á þennan hátt: „Sögusagnir um andlát mitt eru stórlega ýktar“. 1934 - Jarðskjálfti varð norðan- lands og olli miklum skemmdum á Dalvík og nágrenni. Stærð hans var um 6,2 stig á Richter. 1999 - Bútanska útvarps- félagið sjónvarpaði í fyrsta sinn í konungdæminu. 2004 - Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, synjaði fjölmiðla- frumvarpinu staðfestingar. 2008 - Jarðskjálfti skók Hveragerði. Skjálftinn mælist 5,5 stig á Richter. 3. júní 1746 - Húsagatilskipunin gefin út. Þar var kveðið á um réttindi og skyldur húsbænda og hjúa og einnig ákvæði um uppeldi barna. 1800 - John Adams, forseti Bandaríkjanna, tók sér lögheimili í Washington, D.C. Hvíta húsið var þó ekki tilbúið. 1844 - Síðustu tveir geirfuglarnir sem vitað er um veiddir í Eldey. 1937 - Flugfélag Akureyrar var stofnað, er síðar varð Flugfélag Íslands, hið þriðja með því nafni. Það sameinaðist síðar Loftleiðum og myndaði Flugleiðir. 1968 - Valerie Solanas reyndi að drepa Andy Warhol með því að skjóta hann þrisvar. 1983 - Víkingasveit lögreglunnar í Reykjavík var komið á fót með 12 sérþjálfuðum mönnum. 1989 - Jóhannes Páll II páfi kom til Íslands og söng meðal annars messu við Landakotskirkju. Þúsundir sóttu þá messu. Merkis- atburðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.