Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 1.–3. júní 2012 Helgarblað
500 milljóna gjaldþrot
n Eitt stærsta gjaldþrot einstaklings á Íslandi
F
asteignasalinn Þorlákur Ómar
Einarsson hefur verið gerður
gjaldþrota. Gjaldþrotið nem-
ur rúmum 479 milljónum
króna en fram kemur í Lögbirtinga-
blaðinu að engar eignir hafi fund-
ist í búinu.
Birgir Tjörvi Pétursson, skipta-
stjóri búsins, vildi engar upplýsingar
um það veita hvaða aðilar eða hversu
margir gerðu kröfur í búið. Ekki ligg-
ur því fyrir í hvað peningarnir voru
notaðir eða hvers vegna engar eignir
fengust upp í kröfurnar. Óhætt er að
fullyrða að um sé að ræða eitt stærsta
persónulega gjaldþrot Íslandssög-
unnar.
Þorlákur Ómar, sem er fyrst og
fremst þekktur sem fasteignasali, hef-
ur komist í fréttirnar fyrir fjármála-
gjörninga en árið 2005 tók hann þátt
í að kaupa upp stofnfjárbréf í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar – í hallarbylt-
ingunni svokölluðu – ásamt Magn-
úsi Ægi Magnússyni og Jóni Auðuni
Jónssyni. Lögmenn Laugardal önn-
uðust kaupin á bréfunum en þau
voru keypt fyrir hönd eignarhalds-
félagsins A-Holding, sem var í eigu
Baugs. Stefán Hilmar Hilmarsson, þá
fjármálastjóri Baugs, stýrði félaginu.
DV hafði kvittanir fyrir millifærslum
að andvirði nokkur hundruð millj-
óna króna inn á reikninga þeirra í
Sviss og London, til kaupa í bréfun-
um, en þrátt fyrir það vildu þeir ekki
kannast við umræddar greiðslur. Svo
fór að A-Holding seldi bréfin áfram
innan Baugs-samstæðunnar á næst-
um helmingi hærra verði og hagn-
aðist félagið þannig um 1,4 milljarða
króna.
Engar eignir Ekkert fékkst upp í kröfur á
hendur þrotabúinu.
Segir að þeir hefðu
getað borgað allt
J
óhannes Jónsson, oftast kennd-
ur við Bónus, segir í viðtali í
nýjasta tölublaði Mannlífs að
hann og Jón Ásgeir sonur hans
hafi ekki fengið sömu meðferð
og aðrir skuldarar eftir hrun. Það var
Einar Kárason rithöfundur sem tók
viðtalið við Jóhannes fyrir Mannlíf.
„Icesave-klúður“
Í viðtalinu kemur fram að Jóhannes
sé ekki af baki dottinn hvað verslun-
arrekstur varðar og muni bráðlega
opna tvær nýjar Iceland-verslanir
hér á landi í samstarfi við Malcom
Walker sem nýlega keypti verslun-
arkeðjuna. Fyrir hrun átti Jóhann-
es hlut í verslunarkeðjunni ásamt
syni sínum og bendir hann á að um
þessar mundir sé verið að selja Ice-
land á rúma 300 milljarða. Sá pen-
ingur hefði getað bjargað Baugi og
greitt upp „allt þetta Icesave-klúður
Landsbankans,“ eins og hann orðar
það. Ekki hafi orðið af því þar sem
þeir hafi ekki haldið Baugi. „Það var
ákveðið í hruninu að selja allar eig-
ur Baugs í hvelli og við það töpuðust
óhemju peningar. Hefðum við feng-
ið að halda okkar eignum í Bretlandi
hefðum við getað borgað allar okkar
skuldir hérna heima. Heildarskuld-
irnar hér voru ríflega 300 milljarðar,
en bara hluturinn í Iceland var þess
virði, auk þess sem fleiri góðar eign-
ir voru inni í Baugi. Núna eru Hag-
ar orðnir að nokkurskonar kaup-
félagi lífeyrissjóðanna. En þeir ná
ekki inn hagnaði í dagvöruverslun
nema af kúnnunum, sem eru jafn-
framt sjóðsfélagar. Ég sé ekki hvern-
ig það gengur upp,“ segir Jóhannes
í Mannlífi.
Ferðast með einkaþotu í stað
þessa að senda skeyti
Í aðdraganda hrunsins voru margar
freistingar segir Jóhannes. Í viðtalinu
viðurkennir hann að menn hafi farið
offari í aðdraganda hrunsins en seg-
ir að bankar hafi boðið gull og græna
skóga. Í sumum tilfellum hafi vissu-
lega verið hægt að senda skeyti í stað
þess að ferðast með einkaþotu til að
koma skilaboðum á milli. Það sé þó
of mikil einföldun að kenna útrásar-
víkingum um hvernig fór. Jóhannes
veltir því upp að ef til vill hafi stjórn-
málamenn og aðrir embættismenn
vilja draga athyglina frá sínum mis-
tökum og þannig látið útrásarvík-
inga taka skellinn. Reglurnar hefðu
átt að vera skýrari og strangari en
engan hafi órað fyrir að á einni nóttu
myndu skuldir tvöfaldast og á sama
tíma myndi verðgildi eigna falla um
helming.
Laus við krabbameinið
Þegar veldi Baugs stóð sem hæst
átti fyrirtækið Debenhams, um tíu
tískuvöruverslanir og að auki fjöl-
miðlafyrirtækið 365 með sjón-
varps- og útvarpsstöðvar og dag-
blöð. Jóhannes segir fyrirtækið ekki
hafa verið stórt á alþjóðlegan mæli-
kvarða en hafi þótt gríðarlegt veldi
hér á landi. Kannski hafi þeir komið
of víða við.
Jóhannes greindist með krabba-
mein árið 2009 en þá fór hann að-
gerð til að láta fjárlægja gallsteina.
Kom þá í ljós eitlastækkun sem
fylgst var með en síðan tók við ströng
lyfjameðferð. Í viðtalinu í Mannlífi
segir Jóhannes að hann sé laus við
krabbameinið, hann sé „stálsleg-
inn“. Hann muni þó byrja fyrirhug-
aðan fyrirtækjarekstur rólega.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
n Jóhannes segir þá feðga ekki hafa setið við sama borð og aðrir„Hefðum við feng-
ið að halda okkar
eignum í Bretlandi hefð-
um við getað borgað
allar okkar skuldir hérna
heima.
Mannlíf Jóhannes Jónsson, kaupmaðir
er framan á nýjasta tölublaði Mannlífs.
(mynd Kristinn Magnússon)
Ósáttur Jóhannes Jónsson
segir í viðtali við Mannlíf að
miklir peningar hafi tapast
þegar ákveðið var að selja
allar eigur Baugs.
Óánægðir við-
skiptavinir
Mikil og megn óánægja hefur ríkt
á Eskifirði og Fáskrúðsfirði, vegna
ákvörðunar stjórnar Landsbank-
ans um að loka útibúum þar.
Um 150 manns komu á
fimmtudag saman fyrir utan
útibúið á Fáskrúðsfirði til að
mótmæla lokuninni. Samkvæmt
heimildum DV voru öryggisverðir
í útibúinu sem bönnuðu mynda-
tökur. Þeim sem vildu taka út
peninga var sagt að þeir gætu ekki
fengið fjárhæðina í peningaseðl-
um, heldur ávísun. Það vildu við-
skiptavinirnir ekki.
Þá greindi fréttastofa Ríkisút-
varpsins frá því að roskinn maður
hefði neitað að yfirgefa útibú
Landsbankans á Króksfjarðarnesi
þrátt fyrir að komið hefði verið
fram yfir lokunartíma. Gat hann
ekki tekið út peninga sökum þess
að peningarnir í útibúinu voru á
þrotum. Greindi RÚV frá því að
leyst hefði verið úr máli mannsins
og hann yfirgaf loks bankann, en
ekki kom fram hvort hann hefði
fengið peninga í bankanum.
Íbúar á Fáskrúðsfirði sendu
á fimmtudag út tilkynningu þar
sem þeir lýsa furðu sinni á því að
stjórnvöld loki útibúi Landsbank-
ans á staðnum. Nýta þeir tæki-
færið og bjóða öðrum bankastofn-
unum í byggðarlagið; þeir muni
taka fagnandi á móti þeim.
Naktir menn
í Grafarvogi
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu greinir frá því að fjórir ungir
karlar í Grafarvogi hafi hlaupið
naktir um Strandveg á móts við
Gufunesbæ.
Í tilkynningu frá lögreglu
segir að einhver ónáttúra hafi
hlaupið í piltana. Vegfarendum
hafi blöskrað þessi hegðun og
ekki sparað bílflautuna.
Lögregla fór á vettvang eftir
að tilkynning barst um mál-
ið en þá höfðu strípalingarnir
klætt sig aftur í fötin og haft sig
á brott. Ekki er vitað hvað þeim
gekk til með þessu uppátæki. Að
sögn sjónarvotts veifuðu menn-
irnir ýmist höndunum meðan
á þessu stóð eða héldu fyrir sitt
allra heilagasta.
„Mögulega finnst einhverjum
svona fíflaskapur fyndinn en það
hefði orðið heldur neyðarlegt,
svo ekki sé nú talað um hættuna,
að verða fyrir bíl við þessar að-
stæður.“