Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Síða 10
10 Fréttir 1.–3. júní 2012 Helgarblað
Ber að af-
henda nöfnin
Sögu Ýrr Jónsdóttur ber að af-
henda Skattrannsóknarstjóra nöfn
kvenna og kennitölur þeirra sem
eru skjólstæðingar hennar og sóttu
þjónustu til Jens Kjartanssonar
lýtalæknis á árunum 2006 til 2011.
Þetta er niðurstaða Hæstaréttar
sem staðfesti úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur á miðvikudag.
Saga Ýrr hefur hingað til neitað
að afhenda téð gögn á grundvelli
þagnarskyldu. Hún áfrýjaði úr-
skurði héraðsdóms frá því um
miðjan mánuðinn en skattrann-
sóknarstjóri kannar nú meint skatt-
svik sem einkareknar skurðstofur
eru taldar hafa stundað, þar á með-
al Jens Kjartansson.
Líkt og DV hefur greint frá, sam-
kvæmt heimildum, leikur grunur á
að einhverjar konur hafi greitt Jens
Kjartanssyni lýtalækni undir borð-
ið fyrir silíkonaðgerðir, jafnvel án
þess að gera sér grein fyrir því. Jens
sjálfur hefur þó neitað því. Vegna
orðrómsins og frétta af máli hans
hafði velferðarráðuneytið sent fjár-
málaráðuneytinu erindi til að meta
hvort málið verði rannsakað.
Ísfirðingar fá
nýtt hjúkrunar-
heimili
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra tók fyrstu skóflustung-
una að hjúkrunarheimilinu Eyri
á Ísafirði á miðvikudag. Á fjórða
tug leikskólabarna aðstoðuðu við
skóflustunguna. Í tilkynningu frá
Ísafjarðarbæ kemur fram að bygg-
ingin hafi verið á dagskrá allt frá
því að dvalarheimilið Hlíf var tekið
í notkun um 1990, en þjónustu-
deild Hlífar var alla tíð ætluð til
bráðabirgða.
Hjúkrunarheimilið verður 30
rýma með stækkunarmöguleika
um 10 rými þeim til viðbótar ef
þörf krefur í framtíðinni. Hús-
næðið verður um 2.300 fermetrar
að stærð og kostnaður við bygg-
inguna er áætlaður um 850 millj-
ónir króna. Lóðaframkvæmdir
hefjast um leið og fyrsta skóflu-
stungan hefur verið tekin, en gert
er ráð fyrir því að bygging hússins
verði boðin út á haustmánuðum.
Ú
tgerðarfélagið Bárður SH 81,
sem gerir út Bárð SH, fékk
rúmlega 762 milljónir af
skuldum sínum niðurfelldar
vegna gengistryggingar á lán-
um félagsins. Þetta kemur fram í árs-
reikningi félagsins vegna ársins 2010.
Aðaleign félagsins er ríflega 800
milljóna króna kvóti. Niðurfærsla
skuldanna virðist vera grundvallar-
forsenda þess að fyrirtækið sé enn í
rekstri. Félagið er gert út frá Ólafsvík
og er eini skráði hlutahafi þess Pétur
Pétursson.
Allt í erlendri mynt
Í ársreikningi félagsins voru skuldir
þess vegna gengistryggðra lána
lækkaðar um 762 milljónir króna.
Þessi niðurfærsla á stærstan þátt
í 665 milljóna króna hagnaði árs-
ins 2010 en hagnaður af reglulegri
starfsemi nam rúmum 48 milljónum
króna. Skuldir félagsins fóru úr 1.591
milljón króna í tæpar 726 milljónir
króna á milli áranna 2009 og 2010.
Skuldir félagsins eru í erlendri mynt
og snarhækkaði kostnaður vegna
gengismunar á langtímalánum á
árinu 2008 og 2009. Hækkunin nam
tæpum milljarði króna. Auk þess
lagði Pétur 80 milljónir króna inn í
félagið árið 2010, sem til viðbótar við
niðurfærslu erlendra skulda félags-
ins tryggði að handbært fé frá rekstri
félagsins væri jákvætt.
„Ætli þetta sé ekki bara út af þess-
um ólöglegu lánum,“ segir Pétur við
DV aðspurður um hvernig afskrift-
irnar eru tilkomnar. „Ég veit ekki bet-
ur.“ Pétur segir það eigi eftir að koma
í ljós að hvort niðurfærslan tryggi
áframhaldandi rekstur öryggis. „Það
á bara eftir að koma í ljós. Ég er ekk-
ert að fara að tjá mig um þetta.“
Verðmætur kvóti inni í félaginu
Stærstu eignir félagsins samkvæmt
ársreikningi eru aflaheimildir upp
á 818 milljónir króna. Þar á eftir er
smábátur félagsins, sem samkvæmt
ársreikningnum er um 12 milljóna
virði.
Allt virðist hafa gengið vel allt að
hruninu en samkvæmt ársreikningi
vegna ársins 2009 kemur fram að árið
áður, hrunárið 2008, hafi félagið keypt
aflaheimildir upp á tæpar 440 millj-
ónir króna. Á sama tíma seldi félagið
hlutabréf upp á samsvarandi upp-
hæð.
Enginn arður hefur verið greidd-
ur út úr félaginu síðan 2007 en þá
fékk Pétur, sem er eini skráði hluthafi
félagsins, 50 milljónir króna í arð. Ekki
er útséð með rekstur fyrirtækisins
þrátt fyrir skuldaniðurfærsluna því
enn eru skuldir upp á hundruð millj-
óna enn inni í félaginu. Mikil aflaverð-
mæti eru hins vegar í félaginu.
Hlutabréfin farin
Ljóst er að vel gengur hjá Pétri á
sjónum þrátt fyrir að þurft hafi mikl-
ar niðurfærslur og innspýtingu á
hlutafé inn í félagið. Í samtali við
Morgunblaðið í byrjun febrúar á
þessu ári sagði hann að vaxandi fisk-
irí hafi verið hjá sér. „Síðustu 2–3 ár
hefur verið mikið og vaxandi fiskirí
hérna á Breiðafirðinum og ég held
að þessi vetur ætli að toppa það,“
sagði Pétur og bætti við að aldrei hafi
gengið jafn vel að fiska. „Ég er búinn
að gera þennan bát út síðan 2001 og
man ekki eftir öðru eins og hefur það
þó oft verið gott.“
Líklegt verður að telja að sjó-
mennska verði stærri hluti af rekstri
félagsins næstu árin en var fyrir
hrunið. Hundruð milljóna fengust
vegna sölu hlutabréfa í eigu félags-
ins árið 2008 og virðist vera að lang-
stærstur hluti þeirra hafi verið seld
þá en verðmæti hlutabréfa sem enn
eru skráð í eigu félagsins er ekki
nema rúmar 7 milljónir króna.
Pétur vill í samtali við DV heldur
ekki tjá sig um hlutabréfaviðskipti
sín fyrir hrun en segist ekki standa í
slíkum viðskiptum í dag. „Ég er ekki
í neinum hlutabréfaviðskiptum, ég
ætla nú ekkert að vera að spá í þetta
við þig.“
„Ætli þetta sé ekki bara út af þess-
um ólöglegu lánum,“ segir Pétur að-
spurður um hvernig afskriftirnar eru
tilkomnar. „Ég veit ekki betur.“ Pétur
segir það eigi eftir að koma í ljós að
hvort niðurfærslan tryggi áframhald-
andi rekstur öryggis. „Það á bara eftir
að koma í ljós. Ég er ekkert að fara að
tjá mig um þetta.“
Pétur vill heldur ekki tjá sig um
hlutabréfaviðskipti sín fyrir hrun en
segist ekki standa í slíkum viðskipt-
um í dag. „Ég er ekki í neinum hluta-
bréfaviðskiptum, ég ætla nú ekkert
að vera að spá í þetta við þig.“
n Bárður SH fékk erlend lán niðurfærð um hundruð milljóna
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Trillukarl sleppur
við 762 milljónir
Bárður SH Ljóst er að nær einu verðmætin í félaginu eru aflaheimildir sem metnar eru á
tæpar 820 milljónir króna. Báturinn er hins vegar metinn á 12 milljónir. Myndin er fengin úr
Skipaskrá 2011.
„Ég er búinn að
gera þennan bát
út síðan 2001 og man
ekki eftir öðru eins og
hefur það þó oft verið
gott.
Verðmætur afli Pétur,
eigandi félagsins, segir að
sjaldan hafi fiskast betur en
undanfarin ár. Mynd Stefán KArlSSon