Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Síða 20
20 Fréttir 1.–3. júní 2012 Helgarblað
Áróður gegn ESB
n Heimssýn selur bændum límmiða til að setja á heyrúllur
H
eimssýn, hreyfing sjálfstæð-
issinna í Evrópumálum, býð-
ur nú upp á límmiða á hey-
rúllur. Þannig geta bændur
og landeigendur merkt rúllurnar og
sett þær við vegi eða á aðra áberandi
staði til þess að vekja athygli á mál-
staðnum. Ásmundur Einar Daða-
son, formaður Heimssýnar, segir að
þetta sé fyrsta skrefið í að láta bera
á þessum málstað og að fleiri slík-
ar auglýsingar muni koma á næst-
unni. „Við erum að reyna að vekja
athygli á þeirri þéttu andstöðu sem
er gegn Evrópusambandinu meðal
Íslendinga, án þess að eyða miklum
fjármunum. Við höfum ekki sömu
fjármunum úr að spila eins og til
að mynda ESB sem er að eyða hér
hundruðum milljóna og milljörðum
í áróðursstarfsemi með dýrum aug-
lýsingum.“ Ásmundur segir að reynt
sé að huga að því að hafa auglýsing-
arnar frumlegar en um leið kostnað-
arlitlar. „Þetta er búið að fá gríðar-
lega góðar undirtektir, þetta var sett
af stað strax í morgun og við erum
þegar farnir að fá pantanir alls stað-
ar af landinu. Við náttúrulega fögn-
um því enda hefur andstaða við ESB
sjaldan verið jafn mikil meðal þjóð-
arinnar og nú.“
Þvermál límmiðanna er 120
sentimetrar og eru þeir seldir á
5.000 krónur. Límmiðunum verð-
ur komið á svæði þess sem pantar,
honum að kostnaðarlausu ef pantað
er fyrir 15. júní.
S&S Smáralind 588-0550
S&S Glerártorgi 461-2828
facebook.com/snudar
Fjölbreytt úrval af 100%
melamín vörum frá RICE
Barnaskór fyrir 1-4 ára sem má nota
inni og úti. Verð 3.990 kr.
Þjóðlegir kinda óróar
Verð: 3.390 kr.
Uglubolur frá Minymo.
Verð 2.990 kr.
Glæsilegar svuntur
fyrir fullorðna
Snúðar & Snældur bjóða upp á vönduð
dönsk barnaföt á góðu verði og
skemmtilega hönnunarvöru.
Prófarkalesari
óskast
DV ehf. leitar að áhugasömum og metnaðar-
gjörnum prófarkalesara. Viðkomandi þarf
að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist á
dv.is/atvinna/profork
fyrir 8. júní næstkomandi.
Á móti ESB Ásmundur segir límmiðana
hafa fengið gríðarlega góðar undirtektir.
Hjálmurinn
bjargaði lífinu
É
g flýg af hjólinu, enda á höfðinu
og öxlinni og hjálmurinn endar
í þessum molum. Eini skaðinn
sem varð á höfðinu eftir að hafa
lent á því eru tólf spor sem sauma
þurfti,“ segir Kjartan Sverrisson sem
varð fyrir vélhjóli við Víkurvegsbrú
á Vesturlandsvegi á sjöunda tím-
anum á miðvikudagskvöld. Kjartan
var á reiðhjóli og var höggið töluvert.
Hann var hins vegar með hjálm sem
hann segir að hafi bjargað honum.
Hvetur alla til að nota hjálma
„Ég er lemstraður, marinn, blár og
hruflaður út um allan líkama en við
værum ekki að tala saman í dag hefði
ég ekki verið með hjálm,“ segir Kjart-
an þegar blaðamaður DV hafði sam-
band við hann á fimmtudag. Kjart-
an birti mynd af blóðugum tætlum
hjálmsins á Facebook-síðu sinni og
hefur sú óhugnanlega mynd farið
víða í netheimum. Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu notar hana meira
að segja í forvarnartilgangi og hvetur
alla til að nota hjálma.
Og Kjartan tekur svo sannarlega
undir þau varnaðarorð.
„Ég er þakklátur fyrir að ganga
svona þokkalega heill til skógar. Ég
hvet eindregið til þess að fólk noti
hjálma þegar það er að hjóla.“
Verður hjálmanotkun leidd í
lög?
Notkun reiðhjólahjálma er aðeins
lögbundin þegar börn eiga í hlut
en þeim sem eru eldri en 12 ára ber
ekki, lögum samkvæmt, að bera
hjálm. Þess má geta að á Alþingi
liggur fyrir frumvarp innanríkisráð-
herra um heildarendurskoðun um-
ferðarlaga. Þar er meðal annars opn-
að fyrir heimild ráðherra til að setja
reglugerð sem kveður á um skyldu
á notkun öryggisbúnaðar. Ráðherra
gæti þannig, ef frumvarpið nær
óbreytt fram að ganga, skyldað þá
sem hjóla til að nota hjálm. Afar ólík-
legt verður að teljast að frumvarpið
nái fram að ganga á yfirstandandi
þingi.
n Var á reiðhjóli og lenti í árekstri við bifhjól
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Í rúst Hjálmurinn er algjörlega í henglum eftir atvikið.