Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Page 29
Fréttir 29Helgarblað 1.–3. júní 2012
Vildi ekki drepa
Lagarfljótsorminn
H
jörtur Kjerúlf á Hrafnkels-
stöðum í Fljótsdal er um-
talaður í sveitinni, ekki síst
eftir að hann kom sveitung-
um sínum í opna skjöldu
með myndbandi sem hann tók og
sagði að væri af Lagarfljótsormin-
um. Myndbandið vakti heimsathygli
og um fjórar milljónir manna horfðu
á það.
Trúir á orminn
Myndbandið af hinum meinta ormi
var fyrst birt í fréttum RÚV en fór svo
á Youtube þar sem það vakti heims-
athygli. Margir telja myndbandið
falsað en sveitungar Hjartar telja úti-
lokað að hann hafi undirbúið nokk-
uð slíkt, í raun sé ótrúlegt að honum
hafi tekist að kveikja á vélinni og ýta
á „play“. Að þeirra mati er öllu lík-
legra að þarna hafi girðingarefni rek-
ið niður eftir ánni með áföstum ís-
klökum, en slíkt er ekki óalgengt á
þessum slóðum.
Fleiri virðast standa í þeirri trú
því þegar Hjörtur er spurður að því
hvort hann hafi falsað myndband-
ið segir hann: „Nei, nei, þetta var í
ánni. Ég veit ekki hvað þetta var en
þeir komu hér frá Stöð 2 og spurðu
hvar gaddavírinn væri.“
Hjörtur heldur reyndar sjálfur að
þetta hafi ekki verið gaddavír. „Alls
ekki. Ég trúi á orminn,“ segir hann og
bætir því við að maður verði að trúa
því sem maður sér. „Þetta var eins og
stór krókódíll. Ég held að þetta hafi
verið kálfur. Ég bauð þeim á Stöð 2
að vera hér í fríu fæði og húsnæði ef
þeir hefðu hugarflug í það hvernig ég
hefði getað búið þetta til sjálfur.“
Illa innréttaður
Aðspurður hvort hann sé ekki mað-
ur sem láti góða sögu nokkuð líða
fyrir sannleikann segist hann hafa
reynt að mynda sér ekki skoðanir á
sjálfum sér. „Ég fór til læknis og hvað
sagði hann, að ég væri með þrjá sjúk-
dóma, ég væri ofvirkur, athyglissjúk-
ur og, það sem væri nú verst, að ég
væri framsóknarmaður. Það er orð-
ið sjúklegt,“ segir hann og hlær. „Svo
dugði þessi sjúkdómsgreining mér
ekki svo ég fór til sálfræðings sem
sagði að ég væri illa innréttaður. Þá
keypti ég þessa innréttingu hérna,“
segir hann og bendir á eldhúsinn-
réttinguna. „Þá var búið að redda
því,“ segir hann hlæjandi og bætir
því við að hann sé auðvitað að ljúga
þessu öllu saman, hann hafi aldrei
farið til sálfræðings og ætti ekki ann-
að eftir. „Ég er bara að búa þetta til til
að hneyksla fólk. Ég hef gaman af því
að ganga fram af fólki.“
Enda er hann oft aðalnúmerið á
þorrablótum sveitarinnar. Hann er
tekinn fyrir og stældur og það skal
enginn halda að það sé honum til
mikils ama. Þvert á móti hefur hann
þrælgaman að og semur brandarana
jafnvel sjálfur. Enda veit hann fátt
eins leiðinlegt og fólk sem tekur sig
of hátíðlega.
Óþarfi að drepa orminn
En nú vill hann meina að sagan um
orminn sé sönn eins og sólin, eða
svo segir hann. Í fyllstu alvöru við-
urkennir hann að hafa ekki tekið af
allan vafa um að þarna væri skrímsl-
ið á ferð, hann vildi ekki gera það
og eiga það á hættu að eyðileggja
góða sögu. „Þetta var eins og lifandi
skepna, hvað sem þetta var. Mynd-
bandið lýgur ekki. Ég vildi ekki ganga
úr skugga um hvað þetta væri, hvort
þetta væri ormurinn eða ekki, því
ég vildi ekki eyðileggja söguna um
orminn. Ég vil hafa orminn í fljótinu,
hvort sem hann er til eða ekki. Hvað
með Loch Ness-skrímslið, er ekki
alveg jafn sjálfsagt að halda okkar
skrímsli á lífi með því að telja sig hafa
sé það?“ spyr hann.
Sjálfur trúir hann á orminn. „Ég
trúi því,“ segir hann án þess að depla
augum. Kannski er það ekki skrýtið
miðað við uppeldið sem hann fékk.
„Sem barn var mér sagt að það væri
ormur í fljótinu, afi og amma sögðu
það. Pabbi sagðist oft hafa séð orm-
inn. Það má ekki drepa orminn með
því að segja að hann sé ekki til, þetta
er partur af okkar menningu og sögu.
Við verðum að halda sögunni um
orminn á lofti, að hann sé þarna. Ég
sagði við einhverja Ameríkana um
daginn að okkur væri kennt að trúa
á Guð án þess að hafa séð hann, er
ekki alveg eins hægt að trúa á orm-
inn þótt maður hafi ekki séð hann?“
Kunni ekki á vélina
Hann segist hafa vaknað og farið á
fætur, séð þetta í ánni án þess að gefa
því gaum en hitað sér kaffi. „Þá var
þetta þarna ennþá. Ég greindi frétta-
mönnum frá ABC í Bandaríkjun-
um frá því hvernig þetta æxlaðist og
þeir spurðu hvort ég hefði ekki feng-
ið mér eitthvað annað en kaffi. Ég
grínaðist náttúrulega með það að ég
hefði fengið mér LSD en hún lýgur
ekki vélin þótt ég hefði gert það. En
ég stóð þarna við gluggann þegar ég
sá orminn og tók mynd af honum,“
segir Hjörtur og bendir á gluggann
við vaskinn í eldhúsinu.
„Ég kunni ekki á vélina en frændi
minn er fréttamaður á RÚV, Rúnar
Snær. Hann útvegaði mér þessa vél
fyrir ári síðan því mig langaði til að
eiga minningar um búskapinn. Svo
sá ég þetta og hringdi í strákinn og
spurði hvort hann gæti kennt mér í
gegnum símann að taka myndir, það
var minnsta málið, ég þurfti að ýta á
einn takka og stilla á vídeóið og svo
tók ég þessa frægu mynd.“
Þar sem Hjörtur kann ekkert á
tölvu og má ekki vera að því að læra
á slík tæki brunaði hann upp á Eg-
ilsstaði til Rúnars Snæs með vélina.
„Hann setti þetta inn á tölvuna hjá
RÚV. Í kjölfarið setti einhver þetta á
Youtube, ég veit ekki hver. Eftir það
gátu allir stolið þessu en engu að síð-
ur keyptu nokkrar erlendar stöðvar
sýningarréttinn af sjónvarpinu og ég
fékk fáeinar krónur,“ segir Hjörtur en
peningurinn dugði allavega fyrir vél-
inni sem kostaði um fimmtíu þús-
und krónur.
Ameríkanarnir komu
Í kjölfarið ræddi hann við Láru Óm-
arsdóttur, fréttamann á RÚV. „Þetta
var orðið heimsþekkt myndband en
það var ekki búið að taka viðtal við
höfundinn. Ég sagði við Láru að ein-
hvern tímann hefði verið aukafrétta-
tími af minna tilefni en því að Lagar-
fljótsormurinn sæti fyrir á mynd. En
hún var bara undrandi á öllu þessu
írafári yfir þessu,“ segir hann og
glottir.
Fær sér síðan sopa af kaffinu
og heldur áfram: „Svo komu þeir
hingað Ameríkanarnir og ég dauð-
skammaðist mín því það var allt
á hvolfi hjá mér. En þeir sögðu að
það væri allt í lagi, það væri miklu
skemmtilegra að koma þangað þar
sem allt er öðruvísi en allt annað,“
segir hann og það á svo sannarlega
við hér á Hrafnkelsstöðum. „Þeir sáu
vinnandi mann,“ segir Hjörtur sem
var á fullu í sauðburðinum.
Ameríkanarnir höfðu hins vegar
mestan áhuga á orminum og komu
með tvo fjarstýrða orma auk þess
sem þeir settu saman orm úr drasli.
„Hvað heldur þú að hafi verið það
fyrsta sem þeir spurðu um – hvar
er heimilissorpið? Þeir ætluðu að
fá mjólkurfernur og eitthvað drasl,
hnýta það saman og gerðu það. Síð-
an smíðuðu þeir orm úr krossviði.
Það var einn fyrrverandi FBI-mað-
ur með í för og hann horfði í gegn-
um mig, lýgur hann eða lýgur hann
ekki?“ segir Hrafnkell og skellihlær.
Trúa ekki því sem þeir sjá
Það trúa honum ekki allir. „Sveit-
ungar mínir trúa þessu síst. Enda
sagði Þórbergur að þeir trúa því
ekki sem þeir sjá,“ segir Hjörtur og
á við Þórberg Þórðarson. „Hann
var skrímslasérfræðingur drottn-
ingar og þjóðarinnar um leið.
Hann var mikið að stúdera skrímsli
og einhvern tímann í kringum
1963 sá Sigurður Blöndal, skóg-
ræktarstjóri á Hallormsstað, orm-
inn ásamt fleira fólki. Úr varð mik-
ið fjölmiðlafár og ljósmyndari kom
úr Reykjavík og Þórbergur mætti á
vettvang.
Þegar hann var kominn aftur
heim skrifaði hann frænku sinni bréf
og sagðist hafa eytt fjórtán af þeim
fáu dögum sem hann ætti eftir ólif-
aða í tilraun til að sjá orminn en af
því hefði ekki orðið. Hins vegar hefði
hann haft tal af mörgum Fljótsdæl-
ingum og það sem einkennir þá alla
er að þeir trúa því ekki sem þeir sjá.
Hann taldi að miðað við sögurnar
sem þeir sögðu hefðu þeir séð orm-
inn en tryðu bara ekki á hann,“ segir
Hjörtur, sýpur á kaffinu og sýgur upp
í nefið. „Verður maður ekki að trúa
því að ormurinn sé til?“ spyr hann
svo og svarar því sjálfur: „Ég held
það.“
ingibjörg@dv.is
Ólst upp við sögur af orminum Hjörtur Kjerúlf segir að börnum sé kennt að trúa á
Guð sem þau hafa aldrei séð og spyr hví þau geti ekki alveg eins trúað á Lagarfljótsorminn.
n Fjölmargar frásagnir eru af skrímslum á Íslandi n Íslendingar voru logandi hræddir við sum þeirra n Jón Baldur Hlíðberg skrímslasérfræðingur segir að fjörulallinn sé skemmtilegastur
að dúkka upp á Facebook eitt-
hvert kjaftæði sem var búið að
skjóta niður fyrir þremur árum.
Fólk heldur samt áfram að deila
því. Þannig hefur þetta gengið í
gegnum árhundruðin, bara með
eldri aðferð.“
Aðrar sögur eru komnar til af
því að menn sáu hluti sem þeir
gátu ekki skýrt. Rauðkembingur
er til dæmis vel þekkt skrímsli og
rauðir kambar eru á mörgum sæ-
skrímslum. Það þarf kannski eng-
an að undra, þar sem það var ekki
fyrr en farið var að skoða lífrík-
ið sem það kom í ljós að það er til
fiskur sem verður allt að tólf metra
langur, er með rauðan bakugga og
syndir með síldinni en sést voða-
lega sjaldan, sést þó og einhverj-
ir hafa séð hann. „Hvað hugsar
maður sem situr í tvírónum bát al-
veg niður undir sjó sem sér þess-
ari skepnu bregða fyrir eitt augna-
blik og hverfa síðan? Hann segir af
þessu sögur og sögurnar eru sagðar
áratugum saman, stækka og blása
út.
Það er það sem er svo skemmti-
legt við þetta. Þó að við þekkjum
ekki þessar sögur öðruvísi en nið-
urskrifaðar þá voru þetta munn-
mæli sem gengu milli manna og
breyttust með kynslóðunum.“
Vildi halda dýrunum lifandi
Á einhverjum tímapunkti voru
sögurnar skrifaðar niður og um
leið urðu þær að einhverju öðru
en þær voru áður, segir Jón Bald-
ur. „Um leið og sögurnar lentu á
skinni eða pappír var lífið tek-
ið úr þeim, þær voru drepn-
ar og stoppaðar upp. Þær urðu
að fræðigrein. Síðan urðu ein-
hverjir skrímslasérfræðingar út
frá því sem voru skemmtisögur
aldanna, sögur sem fólkið átti
og tóku breytingum í hvert sinn
sem þær voru sagðar.
Hugmyndin á bak við bókina
var að halda þessum sögum lif-
andi, gera mér mat úr þeim og
leika mér með þær. Ég skoða
þetta með mínum augum, segi
söguna aftur með myndun-
um og túlka dýrin á minn hátt.
Þannig er okkar menningararfur
og þannig fannst mér ég ná ein-
hverju til baka sem ég átti.“
Áhuginn var mikill og fyrsta
prentun seldist upp. Í kjölfarið
hafa margir haft samband við
Jón Baldur og beðið hann um
leyfi til að nota teikningar hans
af furðuverunum og leyfa börn-
um að vinna með þær. Það gleð-
ur hann að fólk sé farið að vinna
aftur með þessi dýr. „Það er búið
að blása lífi í þau aftur,“ segir Jón
Baldur.
„Víða um heim eru furðuver-
urnar uppspretta fantasíu og
skemmtunar og það er þannig
sem ég vil nálgast þær. Ég vil eiga
þær og halda þeim lifandi því
þetta er skemmtilegt, gefur um-
hverfinu og sögunni lit og er flott
efni til þess að stytta sér stundir
með.“
ÍSLENDINGAR ÓTTUÐUST SKOFFÍN
„Hér eru sæ-
skrímsli því sjór-
inn var ógnin, það var
sjórinn sem var að taka
öll lífin og hann var full-
ur af skrímslum.