Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Side 33
Spurningin
Svo hefur maður
bara þroskast
Það vorum bara við feðgarnir
sem allt var hirt af í hvelli
Ólafur Geir Jónsson athafnamaður. – DVJóhannes Jónsson, kenndur við Bónus. – Mannlíf
Hið falska bros flokksins
„Ég mun velja manneskjuna
sem telur þetta hlutverk vera
ópólitískt.“
Anna Gyða Sigurgísladóttir
22 ára háskólanemi
„Ég mun velja þann sem er ábyrg-
ari, en reynslan skiptir reyndar
alveg máli. Það er annaðhvort
Ólafur eða Þóra.“
Jón Sigurður Gunnarsson
19 ára nemandi
„Ég er enn óákveðin.“
Geirþrúður Einarsdóttir
22 ára vinnur hjá Gyllta kettinum
„Sósíal medía strategían þeirra.“
Ragnar Freyr
32 ára sósíal medía strategisti
„Hef ekki myndað mér skoðun á
málinu.“
Unnar Helgi Daníelsson
22 ára eigandi Reykjavík Rocks
Eftir hverju velur
þú forseta?
Mannréttindabrjótar
A
fstaða Jónsa og Grétu til mann-
réttindamála vegna Eurovision-
keppninnar í Aserbaídsjan er
langt frá því að vera einsdæmi.
Fyrir að ákveða að nota Eurovision
bara til að syngja Eurovision-lag,
fengu þau hraustlega á baukinn í um-
ræðunni.
Með sömu aðferðum er leikur einn
að hjóla í hljómsveitina Of Monsters
and Men sem hefur notað hvert tæki-
færið á fætur öðru til þess að stein-
gþegja um hin ýmsu mikilvægu mál
þegar hún hefur komið fram á tón-
leikum og í sjónvarpsþáttum í Banda-
ríkjunum.
Hljómsveitin hefur ekki svo mikið
sem lyft litla fingri vegna rótgróins hat-
urs í garð samkynhneigðra í mörgum
ríkjum Bandaríkjanna. Það eina sem
hún hefur gert er að mæta upp á svið
og syngja ballöður sínar fyrir homma-
hatandi og byssuelskandi Bandaríkja-
menn, eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Nú styttist óðum í að þessar hækjur
kúgunar og þöggunar komi fram hjá
Jay Leno, vinsælasta þáttarstjórnanda
Bandaríkjanna. Ef krakkarnir nota ekki
tækifærið til þess að taka skýra afstöðu
gegn mannréttindabrotum Bandaríkja-
stjórnar í Guantanamo-fangelsinu og
gegn miskunnarlausum stríðsrekstri
hennar undanfarna áratugi, þá eru þeir
sjálfir orðnir hluti af vandamálinu.
Hið sama á við um strákana í Sigur
Rós sem hafa henst út um allan heim
á undanförnum árum og verið ekkert
nema almennilegheitin. Sigur Rós hef-
ur til að mynda haldið nokkra tónleika
í alræðisríkinu Rússlandi, hvar pólitísk
réttarhöld og gróf mannréttindabrot
eru raunveruleiki. Í Bretlandi hefur
hljómsveitin margsinnis spilað án
þess að vekja athygli á þeim þjáning-
um sem breskir hermenn hafa valdið í
Afganistan.
Þegar söngkonan Selma Björns-
dóttir söng All out of luck í Eurovision
í Ísrael árið 1999 var Palestínu-klútur-
inn hennar hvergi sjáanlegur. Íslenskir
tónlistarmenn í útlöndum eru upp til
hópa heiglar.
Svarthöfði
H
afið þið velt því fyrir ykkur,
yndislegu lesendur, að ríkis-
stjórnin sem hefur setið hér við
völd síðustu þrjú árin, er fyrsta
ríkisstjórn sögunnar sem hvorki hefur
framsóknarmenn né sjálfstæðismenn
innanborðs?
Á Íslandi er okkur sagt að nauðsyn-
legt sé að vinna fyrir flokkinn. Okkur
er sagt að bestu leiðirnar í lífinu liggi
í gegnum það að leggjast á kné og
skríða fyrir flokkselítu; að stunda þann
sleikjuhátt og það smjaður sem eyðir
allri mannlegri reisn. Og þeim mun
brúnna sem nefið er þess meira bera
menn úr býtum. Hvöt þessa lyddu-
háttar er ekki sú að menn ætli sjálfum
sér að eignast sem mest. Nei, kæru
lesendur, ef einungis væri um græðgi
að ræða, væri þetta ekki svo slæmt.
Þetta snýst allt um það að elítan er
alltaf að gæta þess að þeir sem utan
við flokkskjarnann standa, fái sem
allra, allra minnst. Heimskan segir
þeim nefnilega: –Þess minna sem hin-
ir fá, þeim mun meira verður eftir fyrir
mig. En þessi aumkunarverða hugsun
birtist þegar fyrirmælin hjá hinu al-
ræmda helmingaskiptaveldi hljóma:
–Ríkisstjórn Jóhönnu má ekki verða
vinsæl, því þá fáum við ekki að komast
að kjötkötlunum okkar!
Þetta er nokkuð skemmtileg pæl-
ing, einkum vegna þess að engin ríkis-
stjórn á Íslandi hefur tekið við svo
slæmu búi sem þessi og engin ríkis-
stjórn hefur orðið fyrir svo miklum
óhróðri, illmælgi og aðkasti sem þessi
stjórn. Veldi helmingaskipta; sem
núna er í stjórnarandstöðu hefur gert
allt til þess að leggja sem flesta steina í
götu stjórnarinnar. Og þá kem ég mér
að kjarna málsins: íslensk pólitík snýst
ekki um það að finna bestu leiðirnar
fyrir fjöldann, hún snýst um það að
finna bestu bitana fyrir flokkinn.
Helmingaskiptaveldið hefur í ár-
anna rás fagnað atkvæðaáskrift, sem
er reyndar áskrift að sýndarveruleika,
þar sem list hinna fölsku brosa er
lengri en nefið á Gosa. Þar hafa vell-
auðugir flokksgæðingar völdin; inn-
múraðir og ósnertanlegir.
Maður þarf ekki nema opna
annað augað í örskotsstund og þá
sér maður í gegnum blekkingarvef-
inn. Hið falska bros eðalbubbanna
sem á gullklósettunum sitja, er ekki
til vegna þess að þeir vilji fjöldanum
vel. Nei, þetta er rembingur, andlegt
harðlífi og ótti við það að fjöldinn
finni gleði. Stór-braskararnir Bjarni
Ben og Sigmundur Davíð Oddsson
væla ef ríkisstjórnin gerir eitthvað
og þeir væla ef hún gerir ekkert. Þeir
grenja vegna þess að ríkisstjórnin er,
af veikum mætti, að reyna að bæta
hag allra landsmanna – ekki bara
fárra eðalbubba. Í stað þess að rétta
hjálparhönd, reynir stjórnarand-
staðan allt til að erfiða róðurinn.
Mér þykir eðlilegt að gera þá kröfu
að Árni Johnsen og Finnur Ingólfs-
son taki við formennsku, hvor í sínum
flokki.
Á þingi magnast þrautirnar
og þar er máttur brostinn
því flokksgæðingar forðast þar
að finna besta kostinn.
Ber við Bessastaði Veðurblíðan hefur leikið við landsmenn í flestum landshornum undanfarna daga. Helgin verður líka góð, ef spár rætast. Þessi vaski garðhirðir sá þann kost
vænstan að fækka fötum sér til kælingar í blíðviðrinu á fimmtudag. Hann var að snyrta garð forsetans. MYND SIGTRYGGUR ARIMyndin
Umræða 33Helgarblað 1.–3. júní 2012
1 Laus eftir 12 ár í fangelsi Rúnar Bjarki var dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir
nauðganir og hrottalegt morð.
2 Neitar að segja hvað varð um mál Gillzeneggers Engar upp-
lýsingar fást um mál Egils Einarssonar
og unnustu hans hjá ríkissaksóknara.
3 Þýsk stúlka neydd til að lifa eins og skepna í átta ár
Lögreglan í Bosníu segist hafa bjargað
nítján ára gamalli þýskri stúlku sem var
haldið nauðugri í átta ár.
4 Gísli Örn: „Hélt sambandinu leyndu“ Hjónin Nína Dögg
Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson
sóttu um inngöngu í sama leiklistar-
skólann á sama tíma. Þau komust bæði
inn.
5 „Og svo heyrðirðu þau syngja“ Blaðamaðurinn Michael
Deacon hjá The Telegraph í Bretlandi
var ekki ánægður með framlag Íslands
í Eurovision.
6 Justin Bieber eftirlýstur Lögregla leitaði kanadíska poppgoðsins
Justins Bieber í tengslum við árás á
ljósmyndara.
7 Tryggvi: „Ég gerði einfaldlega mistök“Tryggvi Guðmundsson
knattspyrnumaður er kominn á beinu
brautina eftir að hafa misnotað áfengi.
Mest lesið á DV.is
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
„Maður þarf ekki
nema opna annað
augað í örskotsstund og
þá sér maður í gegnum
blekkingarvefinn.
Jörðin hvarf
undan okkur
Hollenskir ferðamenn sem hröpuðu í Lágey. – RÚV