Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Qupperneq 35
„Hann lét elta mig“ Viðtal 35Helgarblað 1.–3. júní 2012 hef einfaldan smekk. Ég vil aðeins það besta.“ Hefur þú fundið ástina aftur? „Ég held að ástin hafi fundið mig í þetta skiptið því ég var alls ekki að leita – þvert á móti. Hann heitir Luca Ellis og er dásamlegur maður. Hann hefur verið mér mikil stoð og stytta undanfarna mánuði. Við erum mjög ástfangin.“ Kom Luca með þér til Íslands? „Nei, hann komst ekki með í þetta skiptið.“ Hvar kynntust þið? „Á staðnum sem ég hef verið að syngja á síðastliðin tvö ár, Vibrato. Hann byrjaði að syngja þar í mars.“ Á hann börn? „Já, hann á tvo stráka.“ Við hvað vinnur Luca? „Hann er frábær söngvari sem hljómar alveg eins og Frank Sinatra.“ Langar þig að eignast börn? Hefur aldrei komið upp í sam- bandi hjá þér að eignast fjöl- skyldu? „Já, mig langar til að eign- ast börn en það hefur bara verið svo margt annað í gangi að það hefur aldrei verið rétti tíminn.“ Værir þú sátt við að vera barn- laus til æviloka? „Nei.“ Þrjósk eins og staður hestur Hvernig myndirðu lýsa sjálfri þér? „Mér finnst gott að sjá fyndnu hliðarnar á lífinu. Það er nógu erfitt samt. Ég er félagslynd í hófi. Mér finnst gott að vera innan um fólk og svo finnst mér voða gott að vera ein. Ég held að ég hafi verið einfari þangað til ég hitti Luca. Núna viljum við eyða öllum stund- um saman. Þýðir það að ég sé núna tvífari? Mér þykir gaman að stúd- era fólk. Það eru allir svo sér- stakir. Allir voru börn einu sinni. Allir eiga sér sína sögu. Mér þykir hver einasta saga svo áhugaverð.“ Ertu þrjósk? „Ég er mjög þrjósk. Eins og staður hestur.“ Hverjir eru þínir helstu kostir og gallar? „Það góða við mig er að ég gefst aldrei upp. Það vonda við mig er að ég gefst aldrei upp.“ Hverju vildir þú helst breyta í eigin fari? „Ég vildi helst breyta því hvað ég er þrjósk.“ Hverjar eru fyrirmyndir þínar í lífinu? „Mínar aðalfyrirmyndir í tón- listinni hafa verið Ella Fitzger- ald, Billie Holiday, Carmen McRay, Sarah Vaughn, Keely Smith, Astrud Gilberto og fleiri.“ Er mikil pressa á að vera í góðu formi í bransanum? Er mikil útlits- og æskudýrkun í tónlistarbransanum í Los Angeles? „Ég held að það sé mikil pressa að líta vel út í öllum bransa. Ég veit ekki hvort það getur kallast pressa. Það geta allir litið betur út með því að sjá vel um sig og ég held að það sé bara gott andlega fyrri hvern og einn að vera eins góður og hann getur á alla enda og kanta. Ég veit ekki hvort það getur kallast útlits- eða æsku- dýrkun en það er smitandi að vilja líta eins vel út og maður getur miðað við hrá- efnið sem manni hefur verið gefið.“ Hvað gerir þú til að halda þér í formi? „Ég er með þjálfara tvisvar í viku sem heldur mér á tánum og lætur mig borða. Ég á það til að gleyma því stundum.“ Þið mæðgurnar eru allt- af svo unglegar og fallegar, hvaða leyndarmáli búið þið yfir? „Takk. Við böðum okkur í formalíni einu sinni í viku og sofum í súrefniskassa á hverri nóttu.“ Lifði sígaunalífi með Julio Iglesias Hefur þú ferðast mikið um heiminn? „Já, ég hef nú farið mjög víða – sérstaklega þegar ég ferðaðist um heiminn með Julio Iglesi- as í þrjú ár. Við vorum á stans- lausu ferðalagi tíu mánuði á ári og lifðum nokkurs konar sígaunalífi.“ Áttu þér uppáhaldsstað? „Já, mér finnst voða gott að vera heima.“ Hvað gerir þig hamingju- sama? „Að snerta tilfinningar fólks og gera það hamingjusamt með því að syngja fyrir það.“ Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt í sumar? „Ég ætla að vinna eins mikið og ég get. Það er það skemmtilegasta sem ég geri.“ n Á góðri stundu Anna Mjöll segir vellystingar hafa kennt sér hvað mestu máli skipti í lífinu. Í sviðsljósinu Anna Mjöll segir að henni þyki enn vænt um Cal, það breytist ekki. „Hann vildi helst að ég væri bara inni í eldhúsi að búa til matinn á milli þess sem ég sæti með honum og héldi í höndina á honum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.