Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Page 56
56 Afþreying 1.–3. júní 2012 Helgarblað
Sigmar, komdu aftur!
É
g á í ástarhaturssam-
bandi við það stórfurðu-
lega menningarfyrir-
bæri sem Eurovision er.
Verð alltaf jafn stóreyg
þegar ég hitti áhugafólk um
hana sem veit allt um kepp-
endur og atriði keppninnar
mörg ár aftur í tímann. Ég ber
samt mikla virðingu fyrir þess-
um Eurovision-gáfnaljósum
og það er þeirra vegna sem
ég sest við skjáinn, til í að gefa
þessu séns.
Hrafnhildur Halldórsdóttir
sem var valin til þess að kynna
keppnina fyrir Íslands hönd
er ekki ein þeirra. Hrafnhild-
ur gaf lítið fyrir hefðina um að
gera miskunnarlaust grín að
keppendum, grafa upp furðu-
legar staðreyndir um keppn-
isatriðin eða hugga spennta
áhorfendur með tali um aust-
antjaldssamsæri.
Þessi í stað spurði hún við
nærri því hverja stigagjöf: „Er
það Ísland sem fær stig?“ –
„Fær Ísland stigið?“
Meira að segja þegar fyrr-
verandi Júgóslavíuríkið Make-
dónía gaf 12 stig hélt Hrafn-
hildur glórulaust í vonina og
sagði í enn eitt skiptið: „Koma
svo, gefa nú Íslandi!“
Á meðan Hrafnhild-
ur kynnti stigagjöfina í for-
keppnum Eurovision fór
Sigmar hins vegar ham-
förum á Face book-síðunni
sinni þar sem hann hélt sína
eigin lýsingu sér til gam-
ans enda forfallinn áhuga-
maður um keppnina. „Er
þetta ekki soldið overkill
hjá Írum? Ofvirkir tvíburar
klæddir einsog erfðabreyttir
silungar. Þetta er algerlega
glatað stöff. Og einmitt þess-
vegna fara þeir áfram,“ sagði
Sigmar um írsku tvíburana
Jedward og með gaman-
seminni minnti uppátæki
hans mig á af hverju ég elska
stundum Eurovision. Sig-
mar! Komdu aftur.
Sjónvarpsdagskrá Föstudagur 1. júní
Stöð 2RÚV SkjárEinn Stöð 2 Sport
dv.is/gulapressan
Hilmir snýr heim
Vinsælast í sjónvarpinu
21.–27. maí
Dagskrárliður Dagur Áhorf í %
1. Söngvakeppni evr sjónvarpsst. Þriðjudagur 67,3 RÚV
2. Söngvakeppni evr sjónvarpsst. Laugardagur 67 RÚV
3. Söngvakeppni evr sjónvarpsst. Fimmtudagur 52,4 RÚV
4. Aðþrengdar eiginkonur Fimmtudagur 30,2 RÚV
5. Criminal Minds Fimmtudagur 26,1 RÚV
6. Tíufréttir Vikan 23,2 RÚV
7. Kastljós Vikan 22,7 RÚV
8. Lottó Laugardagur 22,2 Stöð 2
9. Veðurfréttir Vikan 21,7 RÚV
10. Landinn Sunnudagur 21,7 RÚV
11. Spurningabombann Föstudagur 15,5 Stöð 2
12. Fréttir Vikan 15,2 Stöð 2
13. Grey’s Anatomy Miðvikudaga 13,2 Stöð 2
14. New Girl Miðvikudagur 12,1 Stöð 2
15. 2 Broke Girls Miðvikudagur 11,6 Stöð 2
HeimilD: CapaCent Gallup
Nýr Íslandsmeistari
„YYYYYEEEESSS“ æpti hinn
nýbakaði Íslandsmeistari í
skák, Þröstur Þórhallsson,
þegar andstæðingur hans,
Bragi Þorfinnsson, hafði gefist
upp í bráðabanaskák einvígis
þeirra. Þeir félagar tefldu alls
tólf skákir; gerðu jafntefli í
sjálfum Landsliðsflokknum,
2–2 fóru leikar í fyrra úrslita-
einvígi þeirra og sjö skákir
þurfti til í seinni úrslitaein-
víginu. Fimm spennuþrungnir
klukkutímar af skák, fjölmargir
áhorfendur, eilífar sviptingar
á borðinu; það var boðið upp
á sýningu í Stúkunni í Kópa-
vogi þann merkisdag 30. maí
2012. Þann dag varð sumsé
stórmeistarinn Þröstur Þór-
hallsson Íslandsmeistari í skák í fyrsta sinn, og það á sínu 25. móti og 43.
aldursári. Aðeins Ingvar heitinn Ásmundsson var eldri þegar hann varð Ís-
landsmeistari í fyrsta sinn.
Miklar tilfinningar brutust út meðal keppenda eftir þessa fimm tíma
setu. Fyrir afreksskákmann er það einfaldlega lífið sjálft í allri sinni dýrð
að vinna skák eða sigra á móti, en tap getur leitt af sér bölvanlegt svart-
nætti, alveg bölvanlegt. Hvað sagði Fischer? „Chess is my life“ og svo,
„Chess is better“, þegar hann var spurður um samskipti sín við hitt kynið.
Nýi Íslandsmeistarinn er hokinn af reynslu við skákborðið. Hefur teflt
á fjölda móta fyrir Íslands hönd og ávallt tilbúinn til allra þeirra verka er
hann hefur sinnt fyrir íslenskt skáklíf. Tryggðin við þátttöku á Skákþingi
Íslands, 25 skipti og sennilega um 250–300 skákir, segir sína sögu.
Með sigrinum tryggði Þröstur sér sæti í Ólympíuliði Íslands í skák. Það
verður gaman að fylgjast með kappanum í Istanbúl. Þar mun þekkt bar-
átta hans og seigla fá að njóta sín, og vonandi að hann slípi byrjanir sínar
vel fyrir baráttuna, en sá þáttur taflsins hefur oft verið hans sísti.
Og svo er það sumarið, með skáksett út um allt.....
dv.is/blogg/skaklandid
Stefán Bergsson skrifar
Skáklandið
15.50 leiðarljós (Guiding Light) e
16.35 leiðarljós (Guiding Light) e
17.20 leó (32:52) (Leon)
17.23 Snillingarnir (47:54) (Little
Einsteins)
17.50 Galdrakrakkar (54:59)
(Wizard of Waverly Place)
18.15 táknmálsfréttir
18.25 Hið sæta sumarlíf (4:6) (Det
søde sommerliv) Dönsk mat-
reiðsluþáttaröð. Mette Blom-
sterberg reiðir fram kræsingar
sem henta vel á sumrin.
19.00 Fréttir
19.30 Veðurfréttir
19.35 Kastljós
20.10 með opin augu (Wide Awake)
Strákur fer að leita að guði eftir
að afi hans deyr. Hann lendir í
vandræðum í drengjaskólanum
sínum en nunna sem er mikið
fyrir íþróttir hjálpar honum.
Leikstjóri er M. Night Shyamalan
og meðal leikenda eru Joseph
Cross, Timothy Reifsnyder, Dana
Delany og Julia Stiles. Bandarísk
bíómynd frá 1998.
21.40 Vetrarmenn (Winter’s Bone)
Stúlka í Ozark-fjöllum í mið-
vesturríkjum Bandaríkjanna
leitar að pabba sínum til að
reyna að hindra að fjölskyldan
verði borin út en lendir í miklum
vef lyga og þöggunar. Leikstjóri
er Debra Granik og meðal
leikenda eru Jennifer Lawrence,
John Hawkes og Garret
Dillahunt. Bandarísk bíómynd
frá 2010. Myndin hefur unnið til
fjölda verðlauna og var tilnefnd
til fernra Óskarsverðlauna.
Atriði í myndinni eru ekki við
hæfi ungra barna.
23.25 Baader meinhof gengið (Der
Baader Meinhoff Komplex) Mynd
um þýska hryðjuverkahópinn
RAF sem skipulagði sprengju-
árásir, rán, mannrán og morð á 7.
og 8. áratug síðustu aldar. Leik-
stjóri er Uli Edel og meðal leik-
enda eru Martina Gedeck, Moritz
Bleibtreu, Johanna Wokalek og
Bruno Ganz. Þýsk bíómynd frá
2008. Atriði í myndinni eru ekki
við hæfi barna. e
01.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
07:00 Barnatími Stöðvar 2
08:30 Oprah
09:10 Bold and the Beautiful
(Glæstar vonir)
09:30 Doctors (148:175) (Heimilis-
læknar)
10:15 Sjálfstætt fólk (3:38)
11:00 Hell’s Kitchen (15:15) (Eldhús
helvítis)
11:45 the Glades (4:13) (Í djúpu feni)
12:35 nágrannar (Neighbours)
13:00 love Wrecked (Ástarstrand)
14:25 the Cleveland Show (4:21)
(Cleveland-fjölskyldan)
14:50 tricky tV (22:23) (Brelluþáttur)
15:15 Sorry i’ve Got no Head (Afsakið
mig, ég er hauslaus)
15:45 Barnatími Stöðvar 2
17:05 Bold and the Beautiful
(Glæstar vonir)
17:30 nágrannar (Neighbours)
17:55 the Simpsons (17:22) (Simpson-
fjölskyldan)
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:54 Ísland í dag
19:11 Veður
19:20 american Dad (17:18)
(Bandarískur pabbi)
19:45 the Simpsons (11:22) (Simpson-
fjölskyldan)
20:10 Spurningabomban (3:6) Logi
Bergmann Eiðsson stjórnar
þessum stórskemmtilega
spurningaþætti þar sem
hann egnir saman tveimur
liðum, skipuðum tveimur kepp-
endum hvort, sem allir eiga það
sameiginlegt að vera í senn
orðheppnir, fyndnir og fjörugir
og þurfa að svara laufléttum og
skemmtilegum spurningum um
allt milli himins og jarðar.
20:55 Scott pilgrim vs. the World
(Scott Pilgrim á móti öllum)
Frábær og geggjuð gamanmynd
um Scott Pilgrim (Michael Cera),
ungan og atvinnulausan bassa-
leikara í bílskúrsbandi sem hittir
draumadísina sína en til þess
að vinna hug hennar og hjarta
þarf hann að kljást við sjö fyrr-
verandi kærusta hennar sem eru
hver öðrum fjandsamlegri.
22:45 Hero Wanted (Hetja óskast)
Mögnuð spennumynd með
Cuba Gooding Jr og Ray Liotta
í aðalhlutverkum um glæpi og
hefnd.
00:20 Fighting (Slagsmálaheimurinn)
Fighting er hasarmynd með
Channing Tatum og Terrence
Howard í aðalhlutverkum, og
segir frá Shawn McArthur sem
er smáglæpamaður í New York.
Hann kynnist glæpastjóranum
Harvey Boarden sem rænir hann
lifibrauðinu og býður honum
leið til þessa að vinna sér inn
aftur það sem frá honum var
tekið. Harvey leiðir Shawn inn
í skuggalegan heim ólöglegra
bardaga. Skyndilega er Shawn
ekki einunigs að berjast fyrir
peningunum sínum, heldur lífi
sínu að auki.
02:05 Cutting edge 3: Chasing the
Dream (Á hálum ís 3)
03:35 love Wrecked (Ástarstrand)
05:00 Spurningabomban (3:6)
05:45 Fréttir og Ísland í dag
06:00 pepsi maX tónlist
08:00 Dr. phil e
08:45 pepsi maX tónlist
12:00 Solsidan (7:10) e
12:25 pepsi maX tónlist
16:30 Britain’s next top model
(12:14) e
17:20 Dr. phil
18:00 the Good Wife (18:22) e
18:50 america’s Funniest Home
Videos (10:48) e
19:15 Will & Grace (18:25) e
19:40 Got to Dance (14:17) Got to
Dance er breskur raunveruleika-
þáttur sem hefur farið sigurför
um heiminn. Hæfileikaríkustu
dansararnir keppa sín á milli þar
til aðeins einn stendur uppi sem
sigurvegari.
20:30 minute to Win it Einstakur
skemmtiþáttur undir stjórn
þúsundþjalasmiðsins Guy Fieri.
Þátttakendur fá tækifæri til að
vinna milljón dollara með því að
leysa þrautir sem í fyrstu virðast
einfaldar. Bestu vinkonur
frá Kansas komast að því að
þrautirnar eru erfiðari en þær
sýnast.
21:15 the Biggest loser (4:20)
Bandarísk raunveruleika-
þáttaröð um baráttu ólíkra
einstaklinga við mittismálið í
heimi skyndibita og ruslfæðis.
22:45 Ha? (5:27) (e)
23:35 prime Suspect (5:13) e
Bandarísk þáttaröð sem gerist
á strætum New York borgar.
Aðalhlutverk er í höndum
Mariu Bello. Kona finnst myrt í
Central Park og áður en varir er
hafin víðtæk leit að stjúpföður
fórnarlambsins.
00:20 Franklin & Bash (8:10) e
01:10 Saturday night live (21:22)
Stórskemmtilegur grínþáttur
sem hefur kitlað hláturtaugar
áhorfenda í meira en þrjá
áratugi. Í þáttunum er gert
grín að ólíkum einstaklingum
úr bandarískum samtíma,
með húmor sem hittir beint
í mark. Will Ferrell snýr aftur
sem gestastjórnandi í þessum
vinsælu þáttum.
02:00 Jimmy Kimmel e
02:45 Jimmy Kimmel e
03:30 pepsi maX tónlist
07:00 nBa úrslitakeppnin
(Oklahoma - San Antonio)
17:20 Þýski handboltinn
18:40 pepsi deild karla (KR - FH)
20:30 pepsi mörkin
21:40 nBa úrslitakeppnin
(Oklahoma - San Antonio)
23:30 Small potatoes - Who Killed
the uSFl .
00:30 nBa úrslitakeppnin
(Boston - Miami)
19:25 the Doctors (126:175)
20:10 Friends (20:24)
20:35 modern Family (20:24)
21:00 Fréttir Stöðvar 2
21:25 Ísland í dag
21:50 masterchef uSa 2 (2:20)
22:35 the Closer (4:21)
23:20 nCiS: los angeles (22:24)
00:05 Rescue me (15:22)
00:50 Friends (20:24) (Vinir)
01:15 modern Family (20:24)
01:40 the Doctors (126:175)
02:20 Fréttir Stöðvar 2
03:10 tónlistarmyndbönd frá nova
tV
Stöð 2 Extra
06:00 eSpn america
08:10 the memorial tournament
2012 (1:4)
11:10 Golfing World
12:00 the memorial tournament
2012 (1:4)
15:00 pGa tour - Highlights (20:45)
16:00 the memorial tournament
2012 (1:4)
19:00 the memorial tournament
2012 (2:4)
22:00 Golfing World SkjárGolf sýnir
daglegan fréttaþátt, alla virka
daga, þar sem fjallað er um allt
það nýjasta úr heimi golfsins.
22:50 pGa tour - Highlights (20:45)
23:45 eSpn america
SkjárGolf
14:00 Hrafnaþing
15:00 einar Kristinn og sjávarútvegur
15:30 perlur úr myndasafni
16:00 Hrafnaþing
17:00 einar Kristinn og sjávarútvegur
17:30 perlur úr myndasafni
18:00 Hrafnaþing
19:00 einar Kristinn og sjávarútvegur
19:30 perlur úr myndasafni
20:00 Hrafnaþing
21:00 motoring
21:30 eldað með Holta
22:00 Hrafnaþing
23:00 motoring
23:30 eldað með Holta
ÍNN
08:00 500 Days Of Summer
10:00 Stuck On You
12:00 Gosi
14:00 500 Days Of Summer
16:00 Stuck On You
18:00 Gosi
20:00 marmaduke
22:00 88 minutes
00:00 taken
02:00 Stoned
04:00 88 minutes
06:00 Coco Before Chanel
Stöð 2 Bíó
18:15 man. utd. - tottenham
20:00 ensku mörkin - neðri deildir
20:30 Destination Kiev 2012
21:00 Heimur úrvalsdeildarinnar
(Premier League World)
21:30 man. City - Stoke
23:15 Football legends (Ronaldinho)
23:40 pl Classic matches
Stöð 2 Sport 2
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Pressupistill
Eurovision
RÚV, föstudagskvöldið 25. maí