Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 2.–4. september 2011 Helgarblað Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Stærðir 40-60. Flott föt fyrir flottar konur, Nýjar og flottar vörur í hverri viku Vertu þú sjálf vertu belladonna Með gíslinn í klippingu til Kalla DV greindi frá réttar- höldum yfir Black Pistons-mönn- unum, Ríkharð Júlíusi Ríkharðs- syni og Davíð Frey Rúnarssyni. Þar var greint frá hrottalegur ofbeldi þeirra gagnvart fórnarlambi þeirra. Þá vakti einnig athygli vitnis- burðir Karls Berndsen sem og Hildar Lífar Hreinsdóttur. Sérstaklega vakti Hildur Líf athygli en greint var frá því að hún hefði mætt of seint í réttarsal og að hún hefði bent dómaranum á að hún „væri ekki þroskaheft“. Flokksmönnum tryggð okurleiga Á mánudag greindi DV frá því að nokkrir af leigutökunum í rúmlega 5.400 fermetra hús- næði í Borgum við Norðurslóð á Akureyri væru ósáttir við háa leigu samkvæmt leigusamningum til 25 ára við fasteignafélagið Reiti II, sem er meðal annars í eigu Arion banka og Landsbankans. Húsið var áður í eigu Landsafls sem var í eigu Íslenskra aðalverktaka og Landsbankans. Meðal þeirra sem leigja aðstöðu í húsinu eru Háskólinn á Akureyri, Náttúrufræði- stofnun Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Matís og Jafnréttisstofa. Sveppi á gráu svæði Sverrir Þór Sverrisson fjölmiðlamaður brýtur að öllum líkindum nýju fjölmiðlalögin í útvarpsauglýs- ingum fyrir nýju kvikmyndina sína Algjör Sveppi og töfraskápurinn. Í auglýsingunni, sem spiluð er í út- varpi, ávarpar hann börn með bein- um hætti. Í fjölmiðlalögunum segir meðal annars að bannað sé að hvetja börn til þess að kaupa vöru eða þjón- ustu með því að notfæra sér reynslu- leysi þeirra eða trúgirni og að bannað sé að hvetja börn til þess að telja for- eldra sína eða aðra á að kaupa vöru eða þjónustu sem auglýst er. Fréttir vikunnar í DV 1 2 3 F yrst og fremst þá þarf fólk á þessu að halda,“ segir Björn Snorrason, annar af eigendum Dalpay á Dalvík. Annað árið í röð hefur fyrirtækið keypt öll skólagögn fyrir nemendur sem eru að hefja skólagöngu sína á Dalvík. Skól- arnir eru tveir, á Dalvík og á Árskógs- strönd. Alls fengu um 22 nemendur þessa gjöf í ár en tæplega fimmtíu börn hafa í allt fengið þessar gjafir. „Staðan er þannig víða að fólk þarf á þessu að halda og það hefur ekki efni á að kaupa það sem þarf. Þá er að sjálfsögðu hægt að níðast á börn- um þeirra sem hafa ekki efni á því, því þau eru öðruvísi,“ segir Björn sem er aðaleigandi fyrirtækisins ásamt tví- burabróður sínum Baldri. Með því að kaupa skólavörurnar fyrir börnin verða þau öll með eins skólabúnað og um leið áhyggjulaus, að sögn Björns. Góð minning á fyrsta degi „Við erum sjálfir bræðurnir með börn í skóla og þau voru mjög taugaveikl- uð yfir því að hefja skólagönguna. Þau voru að hugsa um hvernig töskur hinir og þessir voru með. Við rædd- um þetta þegar okkar börn byrjuðu í skóla að koma þessu á, að öll börn- in yrðu með eins töskur, þá eru þau minna stressuð. Dagurinn breytist þá um leið, því þau verða mjög glöð yfir því að fá einhverjar gjafir. Þau eiga strax góða minningu frá því að byrja í skóla, í stað þess að vera stressuð og taugaveikluð. Þetta er klárlega einn af stóru kostunum, að allir séu eins,“ segir Björn. Framtakið frábært „Okkur finnst framtakið frábært,“ seg- ir Gerður Olafsson, formaður stjórnar foreldrafélags Dalvíkurskóla, um gjöf Dalpay. „Við teljum að bæjarfélagið allt sé mjög jákvætt fyrir þessari gjöf. Hún spurðist vel fyrir í fyrra og for- eldrar og börn voru sátt og fannst þetta vera vel gert, og gjöfin er mjög rausnarleg. Það er verið að sporna gegn ákveðinni mismunun og verið að koma í veg fyrir þennan meting. Þá er tekjuminna fólki auðveldað að hefja skólagöngu barna sinna. Þannig að okkur fannst þetta frábært,“ segir Gerður. Það sem börnin fengu voru skóla- töskur, pennaveski og allt sem var á innkaupalista skólans. Með þessu framtaki vonast forsvarsmenn fyrir- tækisins til að önnur fyrirtæki taki upp á þessu fyrirkomulagi og gefi börnum sem eru að hefja grunn- skólagöngu allar þær skólavörur sem þau þurfa. Dalpay er greiðslumiðlun á internetinu. Fyrirtækið er með við- skiptavini í sjötíu löndum og fara við- skipti fyrirtækisins mestmegnis fram erlendis. Skrifstofa fyrir tækisins er á Dalvík og þar starfa sjö manns. Góð minning á fyrsta degi n Dalpay með rausnarlega gjöf til barna sem hefja skólagöngu á Dalvík n Annað árið í röð sem þessi gjöf er veitt n Gert til að sporna gegn mismunun og metingi Birgir Olgeirsson blaðamaður skrifar birgir@dv.is Arna Sif fundin Arna Sif Þórsdóttir fannst heil á húfi samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudagskvöld. Lögreglan hafði lýst eftir Örnu Sif á miðvikudag og fimmtudag eftir að ekkert hafði til hennar spurst síðan um miðjan fimmtudag í síðustu viku. Lögreglu bárust ótal tilkynningar um ferðir Örnu Sifjar, en flestar vörðuðu síð- asta mánudag og voru flestar fremur óljósar. Lögreglan þakkar almenn- ingi fyrir aðstoðina. Ljúka þingári Fyrsti fundur Alþingis þetta haustið verður settur í dag, föstudag. Þing kemur þá saman til fundar að loknu sumarleyfi. Það mun starfa næstu tvær vikurnar og ljúka þar með þingi sem var frestað í júní. Þetta mun vera svokallaður septemberstubbur. Formlega hefst fyrsti þingfundur nýs þingárs svo laugardaginn 1. október. Fundur þingsins mun hefjast með munnlegri skýrslu Jóhönnu Sigurðar- dóttur forsætisráðherra sem fjallar um stöðuna í efnahags- og atvinnu- málum. Að því loknu mun fara fram umræða um skýrsluna og svo verða nokkur önnur mál rædd á þinginu. Fáir styðja stjórnina Um þriðjungur íslenskra kjósenda styður ríkisstjórnina samkvæmt nýj- um þjóðarpúlsi Gallup. Stuðningur við ríkisstjórnina hefur lítið breyst undanfarna mánuði og fylgi flokka er fremur stöðugt. Sem stendur styðja tæp 36 prósent þjóðarinnar Sjálfstæðisflokkinn, 22 prósent þjóð- arinnar styðja Samfylkinguna og 17 prósent styðja Framsóknarflokkinn. Þá eru aðeins fjórtán prósent sem styðja Vinstri græna og hefur Hreyf- ingin um þriggja prósenta stuðning. Níu prósent aðspurðra sögðust vera tilbúin til að kjósa önnur fram- boð, en þegar sömu spurningar var spurt í júlí voru það sex prósent sem sögðust vilja það. „Okkur finnst framtakið frábært Ánægð börn Okkur finnst framtakið frá- bært,“ segir Gerður Olafsson, formaður stjórnar foreldrafélags Dalvíkurskóla, um gjöf Dalpay.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.