Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Blaðsíða 29
Erlent | 29Helgarblað 2.–4. september 2011
Finnska Harpan
tektasamkeppnir um hönnun húss-
ins en árið 2002 samþykkti borgarráð
Helsinki að reisa húsið.
Byrjuðu í upphafi kreppunnar
Jyrki Katainen, þáverandi fjármála-
ráðherra og núverandi forsætisráð-
herra Finnlands, lagði hornstein að
húsinu í október 2008 þegar fjár-
málakerfi heimsins lék á reiðiskjálfi.
Óhætt er þó að segja að Harpa hafi
verið talsvert þyngri biti að kyngja
fyrir Íslendinga en Musiikkitalo er
fyrir Finna. Verg landsframleiðsla
Íslands er um 1.392 milljarðar króna
á ári í samanburði 21 þúsund millj-
arða króna í Finnlandi. Musiikki-
talo kostaði hvern Finna því miklu
minna en Harpa kostaði hvern Ís-
lending.
Líkt og með Hörpu þá var
Musiikkitalo opnað í nokkrum áföng-
um. Í lok apríl á þessu ári var bygg-
ingin kláruð og afhent eigendum sín-
um formlega. Opnunartónleikarnir
fóru hins vegar ekki fram fyrr en mið-
vikudagskvöldið 31. ágúst. Í millitíð-
inni hafði sinfóníuhljómsveitin að-
lagað sig að nýjum heimkynnum og
byggingaverktakar kláruðu síðustu
smáatriðin í frágangi við húsið.
Á opnunartónleikunum komu
bæði fílharmóníu- og sinfóníu-
hljómsveitin fram ásamt nemendum
í klassískri tónlist. Áhorfendur voru
yfir sig hrifnir af hljómburðinum í
húsinu sem Japaninn Yasuhisa To-
yota á mestan heiður af. Uppselt er
á flesta tónleika í húsinu næstu vik-
urnar.
Eyðilögðu minnisvarða
S
kemmdarvargar krotuðu á
minnisvarða í Póllandi sem
stendur þar sem um 400 gyð-
ingar brunnu inni í hlöðu í
seinni heimstyrjöldinni. Meðal þess
sem skemmdarvargarnir krotuðu á
minnisvarðann var: „Þau voru eld-
fim.“ Lögreglan fékk tilkynningu
um skemmdarverkin á miðvikudag
en hún leitar skemmdarvarganna
enn. Meðal annars sem skrifað var
á minnisvarðann voru stafirnir „SS“
og „ég biðst ekki fyrirgefningar á Jed-
wabne.“ Voðaverkin áttu sér stað í
júlí árið 1941 en þá smöluðu um 40
Pólverjar gyðingum inn í hlöðuna og
kveiktu í henni. Harmleikurinn átti
sér stað í bænum Jedwabne.
n Lögregla leitar skemmdarvarganna
„Þau voru eldfim“
Lögreglan leitar mannanna.
n George Clooney ætlar ekki í hefðbundin stjórnmál
Finnur til með Obama
L
eikarinn George Clooney hef-
ur margsinnis verið hvattur af
aðdáendum sínum og öðrum
til að hefja afskipti af stjórn-
málum vestanhafs. Hann hefur látið
sig ýmis umdeild málefni varða og
lýst yfir skoðunum sínum á mörgum
hlutum er varða ríkisstjórn Banda-
ríkjanna og annarra landa. Nú hef-
ur hann þó endanlega lýst því yfir
að hann ætli sér ekki að taka þátt í
hefðbundnum stjórnmálum. „Sjáið
þið til, það er maður í embætti sem
er klárari en nokkur sem ég þekki,
og almennilegri, og hann er í ömur-
legri stöðu til að stjórna. Af hverju
ætti einhver að bjóða sig fram í
það starf?,“ sagði leikarinn á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum sem
fram fór nýverið. „Ég er í rosagóðu
starfi þannig að ég hef engan áhuga
á þessu.“
Brattur Clooney segist þegar vera í
rosagóðu starfi.