Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Blaðsíða 26
26 | Fréttir 2.–4. september 2011 Helgarblað
Minningar- og styrktartónleikar
Hönnu Lilju Valsdóttur og barna
Fram koma: Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari, Monika
Abendroth hörpuleikari, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú)
söngvari, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari,
Sigurður I. Snorrason klarinettleikari, Davíð Ólafsson
söngvari, Stefán Helgi Stefánsson söngvari, Helgi Már
Hannesson píanóleikari, Friðrik Ómar Hjörleifsson
söngvari, Jögvan Hansen söngvari, Jón Jónsson söng-
vari, Gospeltónar, Jóhann Friðgeir Valdimarsson
söngvari og Gréta Salóme Stefánsdóttir fiðluleikari.
Öll vinna við tónleikana er án endurgjalds og mun allur
aðgangseyrir renna beint í styrktarsjóð fyrir eiginmann
og börn Hönnu Lilju. Einnig verður tekið á móti
frjálsum framlögum.
www.facebook.com/styrktartonleikar.honnu.lilju
GUÐRÍÐARKIRKJU
GRAFARHOLTI
MÁNUDAGINN
5. SEPTEMBER
KL. 20.30.
MIÐAVERÐ KR. 3.000.
MIÐASALA FER
FRAM Á MIDI.IS OG
VIÐ INNGANG
GUÐRÍÐARKIRKJU.
STYRKTARSJÓÐUR:
0322-13-700345
KT. 080171-5529
S
koðanir íslenskra ráða-
manna á mögulegum kaup-
um kínverska fjárfestisins
Huangs Nubo á Grímsstöð-
um á Fjöllum eru vægast sagt
mjög skiptar. Samfylkingarmenn
virðast vera mun jákvæðari gagnvart
fjárfestingu Nubos en Vinstri grænir
og segir forsætisráðherra að erlend
fjárfesting sé einmitt það sem Ísland
þarfnist til þess að auka hagvöxt. Ög-
mundur Jónasson innanríkisráð-
herra virðist vera minna hrifinn af
fjárfestingunni og segir Kínverja vera
að kaupa upp heiminn.
Efast um réttmæti
Ögmundur hefur efast um réttmæti
þessa ráðahags, hann sagðist þó ekki
ætla að gefa sér neitt í þeim málum.
„Ég veit ekki hvað það er sem vakir
fyrir þessum kínverska einstaklingi
og ég ætla ekkert að gefa mér í þeim
efnum. Ég vil almennt halda utan um
hagsmuni Íslendinga og passa upp
á okkar land og ekki kyngja neinu
ómeltu,“ sagði Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra í samtali við Rík-
isútvarpið.
Ögmundur segir að Kínverjar
hugsi langt fram í tímann samhliða
því sem hann segir að þeir kaupi
upp heiminn. Hann segir þá virð-
ast hugsa í langtímafjárfestingum og
langtímaáhrifum eða -yfirráðum.
Ögmundur segir að sér beri laga-
leg og siðferðisleg skylda til að standa
vörð um hagsmuni Íslendinga og að
hann ætli sér að gera það. Ráðuneyti
Ögmundar verður að veita Nubo
undanþágu til þess að kaupa landið.
Nauðsynleg erlend fjárfesting
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra segir að ekki megi hræð-
ast erlenda fjárfesta sem vilji fara í
uppbyggingu hér á landi. Hún telur
að regluverk sé nægilega traust til
að taka á móti þeim og því sé engin
hætta á ferðum.
Hún fagnar aukinni erlendri fjár-
festingu og sagði í samtali við Ríkis-
útvarpið „Það er þetta sem við þurf-
um á að halda. Við þurfum að auka
hér hagvöxt. Við þurfum á erlendri
fjárfestingu að halda.“
Jóhanna segir að eðlilegra sé að
Íslendingar vinni með útlendingum
til að auka hagvöxt heldur en að þeir
óttist þá. Engin ástæða sé til þess að
óttast útlendinga að hennar sögn.
Óþarfi að óttast
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
telur að það sé óþarft að óttast upp-
kaup erlendra fjárfesta á landi hér-
lendis. Hún segir að íslenska laga-
umhverfið styðji það að eigendur
jarða geti ekki gert hvað sem þeir
vilja við land sitt. Í samtali við frétta-
stofu RÚV sagði Katrín:
„Ég er hins vegar þeirrar skoðun-
ar að íslenskt lagaumhverfi sé nægi-
lega sterkt til að menn geti ekki bara
keypt upp jörð og farið svo að moka
upp þeim auðlindum sem á henni
eru. Þú þarft leyfi til stórtækra fram-
kvæmda á þínum jörðum. Bæði er
skipulagsvaldið hjá sveitarfélög-
unum og þú þarft líka leyfi til stærri
nýtingar, til einhvers annars en bús-
þarfa. Þetta er ekki svo einfalt að taka
megi spilduna og girða hana af og
gera allt sem menn vilja. Það er ekki
þannig og því er ekki ástæða til að
óttast það.“
Sameign ríkisins og Nubos
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytið fer með endanlegt umboð í
málinu og endanlegt forræði á eign-
arhlut ríkisins er á borði Jóns Bjarna-
sonar og því verða allar tillögur um
uppbyggingu að fara í gegnum ráðu-
neyti hans.
„Það auðvitað setur ráðstöfunar-
rétti hans mjög miklar skorður. Með-
an þetta fyrirkomulag er fyrir hendi
þá er hann mjög háður sameiganda
sínum um það sem hann ætlar að
taka sér fyrir hendur. Það er algjör-
lega klárt mál,“ sagði Karl Axelsson,
hæstaréttarlögmaður og dósent við
Háskóla Íslands í samtali við Morg-
unblaðið.
Nubo mun eiga jörðina á móti ís-
lenska ríkinu og gæti því ekki ráðist í
neinar grundvallarbreytingar á jörð-
inni eða uppbyggingu hennar nema
með samþykki frá íslenska ríkinu að
sögn Karls.
Því verða allar breytingar á nýt-
ingu jarðarinnar algjörlega háðar
samþykki ríkisins, svo fremi sem það
haldi eftir sínum 25 prósenta eignar-
hlut.
Umdeilt í ríkisstjórn
Kínverjar að kaupa upp heiminn
Ögmundur segir á heimasíðu sinni að
Kínverjar séu að kaupa upp heiminn.
Þurfum erlenda fjárfestingu Jóhanna
Sigurðardóttir segir mikla þörf á erlendri
fjárfestingu í landinu til að auka hagvöxt.
Ráðstöfunarrétti
settar skorður
Karl Axelsson segir
að ríkið fari með sinn
25 prósenta eignar-
hlut áfram verði
af sölunni og því
yrði Nubo þröngur
stakkur sniðinn.
Enginn arðræningi
Aðspurður hvernig umfjöllun-
in hafi lagst í Nubo segir Halldór
að honum sé töluvert brugðið því
hann sé ekki vanur að vera í þess-
ari stöðu.
Halldór bendir á að Nubo hafi
að fyrra bragði boðið íslenska rík-
inu samstarfssamning þar sem
hann er tilbúinn að afsala sér
vatnsréttindum og hafi jafnframt
boðist til að friðlýsa hluta svæðis-
ins. Það sé því af og frá að hér sé
einhver arðræningi á ferðinni.
Þegar Halldór hitti Nubo fyrst
var hann efins um hvort hann gæti
staðið undir fyrirætluðum fram-
kvæmdum, en eftir að hafa kynnst
honum betur segist hann þó vera
fullviss um að hann geti það og er
tilbúinn til að aðstoða hann eftir
fremsta megni við verkefnið.
„Hvort sem fólk trúir því eða
ekki þá eru þær spurningar sem
hann spyr, bæði bæjarstjórann á
Húsavík og fleiri: Hvernig á að fara
með sorpmál? Er nógu gott að gera
þetta svona? Hvernig á að fara með
fráveitumál?“ segir Halldór þegar
hann lýsir vinnubrögðum Nubos
og bendir á að hann sé mikill um-
hverfisverndarsinni.
Styrkir hugsanlega stöðu Kína
Erlendir fjölmiðlar hafa sýnt fyrir-
ætluðum framkvæmdum Nubos
hér á landi mikinn áhuga og velta
vöngum yfir þeim ástæðum sem
kunna að liggja þar að baki.
Financial Times fjallaði til
að mynda um málið síðastlið-
inn mánudag. Þar kemur fram að
gagnrýnendur hafi velt því upp að
með fjárfestingunni séu Kínverj-
ar hugsanlega að reyna að styrkja
landfræðilega stöðu sína á milli
Evrópu og Ameríku, en slíkt gæti
komið sér vel þegar siglingaleiðir
um Norðurheimskautið opnast.
Í viðtali við Financial Times
virtist Ögmundur Jónasson innan-
ríkisráðherra hafa af þessu áhygg-
ur. „Kínverjar hafa verið að kaupa
mikið landsvæði víðs vegar um
heiminn svo við verðum að gera
okkur grein fyrir alþjóðlegum af-
leiðingum þess,“ sagði Ögmundur.
Bæði Nubo og Xu Hong, vara-
forseti Zhongkun Group, hafa
blásið á þessar vangaveltur. Hong
benti á það í samtali við China
Daily í vikunni að landsvæðið væri
eingöngu beitiland inni á hálend-
inu sem kæmi hvergi að sjó.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
n Ráðherrar ekki á einu máli um kaupin á Grímsstöðum á Fjöllum
„Maður getur auð-
vitað sagt að ef
það hefði ekki verið þá
hefði hann sjálfsagt
aldrei heyrt um Ísland
eða tekið sérstaklega
eftir því.