Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Page 4
H araldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orku- veitu Reykjavíkur, hefur tekið sæti í stjórn Portusar sem rekur tónlistarhúsið Hörpu. Haraldur tók sæti í stjórn- inni fyrir um mánuði. Aðspurður hvernig það hafi komið til að hann kæmi inn í stjórn Hörpu, svarar Har- aldur: „Það var nú bara borgarstjór- inn sem bað mig um það.“ Reykja- víkurborg á mikla hagsmuni undir því að rekstur Hörpu gangi smurt. Samkvæmt fjárhagsáætlun borgar- innar nema framlög borgarinnar á þessu ári til Hörpu um 390 milljón- um króna. Haraldur Flosi er meðstjórnandi í stjórninni og situr fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Hann segir hlut- verk sitt sem stjórnarmanns vera að gæta hagsmuna borgarinnar. „Stjórnarmaður hefur fyrst og fremst þá skyldu að gæta hagsmuna þess fyrirtækis sem hann er í stjórn fyrir. Í þessu samhengi er ég fulltrúi borgarinnar,“ segir Haraldur Flosi. Tók til í Orkuveitunni Mörg eignarhaldsfélög koma að rekstri Hörpu. Þeirra á meðal er Citus sem sér um bílastæðin og Tortus sem á húsið. Portus á síðan bæði Citus og Tortus. Auk þeirra er félagið Ago sem rekur daglega starfsemi hússins, en Haraldur kemur ekki að rekstri þess félags. Ráðning Haraldar Flosa inn í Orkuveitu Reykjavíkur sumarið 2010, skömmu eftir að nýr meiri- hluti tók við í borginni, vakti mikla athygli. Hann hafði áður starfað sem einn af framkvæmdastjórum lánafyrirtækisins Lýsingar, sem gekk mjög hart fram gegn þeim sem tóku gengistryggð lán og svipti fjölda lán- takenda eignum sínum. Ráðningin var umdeild enda voru fjármögn- unarfyrirtækin mikið í umræðunni vegna deilna um lögmæti slíkra lána. Á þeim tíma sem Haraldur Flosi var ráðinn var rekstur Orkuveitunn- ar komin í mikið óefni og var hann fenginn til að vera starfandi stjórn- arformaður. Strax eftir að hann tók við starfinu var ráðist í miklar niður- skurðar- og aðhaldsaðgerðir til þess að koma böndum á allt of há útgjöld Orkuveitunnar. Þeim aðgerðum er reyndar ekki lokið enn. Spurður hvort hann sé ráðinn inn í Hörpu á grundvelli reynslu í að taka til í fjármálum og gæta aðhalds í rekstri, svarar Haraldur: „Já, ég vona það, almennt hefur maður safnað að sér þekkingu á rekstri sem kemur til góða þarna. Það er hins vegar blæ- brigðamunur á Hörpu og á Orku- veitunni en það er þörf á öllum víg- stöðvum.“ Verkefni sem margan hefur sundlað yfir Aðspurður hvort hann hafi sérstakar áherslur í stjórninni, segir Harald- ur Flosi að hann sé rétt að koma sér inn í nýja starfið. „Ég er rétt búinn að stinga tánni þarna inn og er búinn að mæta á einn fund eða svo. Ég er bú- inn að vera að lesa gögn til þess að skilja þetta allt saman. Þetta er gríð- arlega flókið og yfirgripsmikið verk- efni sem margan hefur sundlað yfir. Auðvitað er það verkefni í sjálfu sér að láta þetta ganga upp til framtíðar. Það er ekkert sjálfgefið.“ Hann svar- ar þó varlega þegar hann er spurður hvort hann sé bjartsýnn á að rekst- urinn muni ganga. „Ég segi kannski minnst um það núna en þetta kostar allt peninga.“ 4 | Fréttir 2.–4. september 2011 Helgarblað Einn í peningastefnunefnd greiddi atkvæði gegn stýrivaxtahækkun: Klofningur í nefndinni Peningastefnunefnd Seðlabank- ans klofnaði í afstöðu sinni til 0,25 prósentu stýrivaxtahækkunar sem bankinn tilkynnti um í síðustu viku. Þetta kemur fram í fundargerð pen- ingastefnunefndarinnar sem birt er á vef bankans. Greining Íslandsbanka gerir þetta að umfjöllunarefni í Morg- unkorni sínu. Nokkuð djúpstæður skoðanamunur var á milli meirihluta nefndarinnar og eins nefndarmanns um heppilegt aðhaldsstig peninga- stefnunnar. Ekki náðist samstaða um vaxtahækkunina í síðasta mán- uði þar sem einn nefndarmaður sem sat vaxtaákvörðunarfundinn greiddi atvæði gegn tillögu Más Guðmunds- sonar, seðlabankastjóra og formanns nefndarinnar. Auk Más eiga sæti í nefndinni þeir Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Þórar- inn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, og Gylfi Zoëga, pró- fessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Ekki kemur fram í fundargerðinni hvaða nefndarmaður lagðist gegn tillögu Más. Sá taldi að heppilegra hefði verið að fresta ákvörðuninni til næsta vaxtaákvörðunardags, sem er 20. september. Ágreiningurinn felst meðal annars í mati á áhrifum af lægri áhættuleiðréttum vaxta mun, áhættu af verri verðbólguhorf- um, nauðsyn þess að draga úr örv- andi áhrifum peningastefnunnar og hættu á því að stýrivaxtahækkun myndi stöðva efnahagsbatann hér á landi. Nefndarmaðurinn nafnlausi taldi að aukin verðbólga væri fram- undan og varaði við því að reyna að knýja fram minni verðbólgu í gegn- um áhrif hærri vaxta til hækkunar á gengi krónunnar. Slík þróun gæti dregið úr útflutningi. valgeir@dv.is Már Guðmundsson Einn nefndarmanna greiddi atkvæði gegn tillögu um 0,25% stýrivaxtahækkun. „Þörf á öllum vígstöðvum“ n Stjórnarformaður Orkuveitunnar kemur inn í stjórn Hörpu n „Var nú bara borgarstjórinn sem bað mig um það“ n Tók til í rekstri Orkuveitunnar Umdeild Reykjavíkurborg leggur um 390 milljónir króna í framlög til Hörpu á þessu ári samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar. Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Kominn í stjórn Hörpu Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnar- formaður Orkuveitu Reykjavíkur, er kominn í verkefni sem „margan hefur sundlað yfir.“ með „öllu inniföldu“ Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í herbergi með „öllu inniföldu” í 10 nætur. Verð m.v. gistingu í tvíbýli með „öllu inniföldu” kr. 129.900. Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Skógarhlíð 18, sími 595 1000 | Akureyri, sími 461 1099 | www.heimsferdir.is Hotel Griego Mar Costa del Sol Allra síðustu sætin 10. september í 10 nætur 109.000 kr. Heimsferðir bjóða frábæra 10 nátta ferð til Costa del Sol þann 10. september. Í boði er einstakt sértilboð á Griego Mar hótelinu. Gríptu þetta tækifæri og skelltu þér í frábæra ferð til Costa del Sol og njóttu lífsins á hreint ótrúlegum kjörum. Ath. mjög takmarkaður fjöldi íbúða / herbergja í boði - verð getur hækkað án fyrirvara. með allt innifalið!109.000 kr. frá aðeins Met í reykingum Íslensk ungmenni eiga Norður- landamet þegar kemur að neyslu á marijúana. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Stöðvar 2 á fimmtu- dagskvöldið. Í könnuninni sögðust tuttugu og þrjú prósent framhalds- skólanema hafa prófað efnið. Er það mun hærra hlutfall en á hinum Norðurlöndunum. Árni Einarsson, framkvæmdastjóri Fræðslu og for- varna, sagði í samtali við Stöð 2 að neysla væri að aukast til muna hjá framhaldsskólanemum. Með of víðtækar heimildir Fyrir þremur árum benti umboðs- maður Alþingis á að tollalög kynnu að brjóta gegn stjórnarskrá. Á frétta- vef Ríkisútvarpsins var greint frá því að ekki hafi verið gerðar fullnægj- andi útbætur. Umboðsmaður sendi frá sé álit í júlí á þessu ári um tolla- lög sem hann taldi að brytu í bága við stjórnarskrá. Taldi hann lögin veita sjávarútvegs- og landbúnað- arráðherra of víðtækar heimildir til að leggja á tolla. Það vald ætti að vera í höndum Alþingis, samkvæmt stjórnarskrá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.