Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Side 13
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
Innifalið: Flug aðra leiðina og flugvallar skattar. Þessi ferð gefur frá 1.500 til 4.500 Vildarpunkta aðra leiðina.
Fréttir | 13Helgarblað 2.–4. september 2011
Fengu 25 ára
leigusamning
frá Framsókn
Skrifaði undir Jón Kristjánsson, þáverandi
heilbrigðisráðherra, skrifaði undir leigu-
samninginn við Íslenska aðalvertaka. Jón
sést hér á flokksþingi Framsóknarflokksins
í fyrra ásamt Ísólfi Gylfa Pálmasyni, fyrr-
verandi þingmanni flokksins.
sem hið opinbera gerði við einkaaðila
í ríkisstjórnartíð Framsóknarflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins á fyrri hluta
síðasta áratugar. Í öllum tilfellunum
þremur voru flokkspólitísk tengsl á
milli annars hvors ríkisstjórnarflokks-
ins og leigusalans og í öllum tilfellum
er um að ræða 25 ára leigusamninga
þar sem leigan er í hærra lagi. Heim-
ildir DV herma að tilfellin þrjú hafi
verið á vitorði einhverra starfsmanna
stjórnkerfisins um nokkurt skeið.
Gert á árunum 2002–2004
Málaflokkurinn komst í hámæli eftir
að greint var frá því að Landlæknis-
embættið væri að flytja úr skrifstofum
sínum á Austurströnd á Seltjarnarnesi
þar sem stofnunin greiddi 2 milljónir
króna í leigu á mánuði. Leigusamn-
ingurinn, sem er óuppsegjanlegur,
var gerður árið 2002 og gildir til ársins
2027, í 25 ár.
Eigandi hússins er Pétur Kjartans-
son en hann hefur gegnt trúnaðar-
störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
gegnum tíðina og sat í stjórn Heim-
dallar, félags ungra sjálfstæðismanna
í Reykjavík, á sínum tíma.
Ríkissjóður mun þurfa að halda
áfram að greiða leiguna, 24 milljónir
króna á mánuði, út samningstímann
ef enginn annar opinber aðili flytur
inn í húsnæðið.
Hitt dæmið snerist um
leigusamninga sem gerðir voru um
5.400 fermetra húsnæði í Borgum
við Norðurslóð á Akureyri árið 2004.
Stjórnendur nokkurra þeirra opin-
beru stofnana sem voru látnar flytja
inn í húsið eru ósáttir við of háa leigu í
25 ára leigusamningnum sem þeir eru
fastir í við fasteignafélagið Reiti II, sem
er meðal annars í eigu Arion banka
og Landsbankans. Húsið var reist árið
2004. Borgir voru á þeim tíma í eigu
fasteignafélagsins Landsafls sem var
í eigu Íslenskra aðalverktaka, sama
verktakafyrirtækis og leigusamning-
urinn í Glæsibæ var gerður við, og
Landsbankans. Fasteignafélag í eigu
Arion banka og Landsbankans er eig-
andi Landsafls ehf. í dag en félagið
heitir nú Reitir II ehf. Heimildir DV
herma að ráðherrar í þáverandi ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins hafi beitt sér fyrir því
að Landsafl fengi að byggja Borgir og
að leigusamningurinn yrði gerður við
það.
Tæplega 1.500 krónur á fermetr-
ann
Í leigusamningnum á milli Heilsu-
gæslunnar í Reykjavík og Íslenskra að-
alverktaka kemur fram að samningur-
inn sé til 25 ára og óuppsegjanlegur.
„Samningur þessi er tímabundinn
til 25 ára og óuppsegjanlegur nema
aðilar verði sammála um annað.“
Leiguverð á fermetra eru tæpar
1.500 krónur á mánuði samkvæmt
samningnum. Heildarleiguverð á
mánuði er því um 1.400 þúsund krón-
ur fyrir þetta tæplega 950 fermetra
húsnæði.
Arion banki er nú eigandi húsnæð-
isins í Glæsibæ þar sem heilsugæslu-
stöðin er í dag. Ástæðan er sú að bank-
inn yfirtók Íslenska aðalverktaka og
dótturfélög þess eftir efnahagshrun-
ið 2008 vegna skulda félagsins. Fyrir-
tækið skuldaði þá um 20 milljarða
króna umfram eignir. Í stjórn eignar-
haldsfélagsins Þrengsla, sem heldur
utan um fasteignina í Glæsibæ, sit-
ur starfsmaður Arion banka. Leigu-
samningurinn sem gerður var við Ís-
lenska aðalverktaka í ríkisstjórnartíð
Sjálfstæðisflokksins er enn í gildi og
hefur ekki verið endurskoðaður eftir
því sem DV kemst næst. Hið opinbera
greiðir því enn leigu samkvæmt þess-
um samningi.
Forstjórinn Stefán Friðfinnsson, forstjóri
Íslenskra aðalverktaka, skrifaði undir
samninginn fyrir hönd fyrirtækisins.