Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Side 14
14 | Fréttir 2.–4. september 2011 Helgarblað Viðhaldsfríar ÞAKRENNUR Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is Varmaskiptasamstæður loftræstistokkar og tengistykki Hágæða HAGBLIKK ehf. Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur. Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar. A u g l. Þ ó rh ild ar 1 4 6 0 .2 4 F yrrverandi fjármálastjóri Hvals, Gunnlaugur Ragnars- son, hefur játað að hafa dreg- ið sér tugi milljóna króna úr fyrirtækinu. Málið er til rann- sóknar og er gert ráð fyrir að rann- sókninni ljúki á næstu vikum. Gunn- laugur hefur samkvæmt heimildum Ríkisútvarpsins játað brot sín fyrir lögreglunni en málið komst upp í mars síðastliðnum þegar stjórnend- ur Hvals ráku augun í misræmi í bók- haldi fyrirtækisins. Brotin eru talin ná allt að fimm ár aftur í tímann. Hvalur hf. er eitt stærsta hvalveiðifyrirtæki landsins. Málið enn til rannsóknar Rannsókn er enn í gangi á málefn- um Gunnlaugs og vill starfandi fjár- málastjóri fyrirtækisins, Guðmundur Steinbach, ekkert gefa upp um hve- nær rannsókninni lýkur. Hann segir þó að rannsóknin muni ljúka fljót- lega, innan nokkurra vikna. „Ég er ekki með neina dagsetningu á hreinu en rannsóknin er langt komin,“ segir hann aðspurður um hvenær von væri á skýrslunni. Guðmundur vildi ekki staðfesta að upphæðirnar sem Gunn- laugur er grunaður um að hafa dregið sér nemi tugum milljóna króna eins og heimildir Ríkisútvarpsins herma. Frá því að upp komst um málið hef- ur Guðmundur starfað sem fjármáls- tjóri Hvals en þeim sem grunaður er um fjárdráttinn var sagt upp störfum eftir að hann gaf sig fram við lögreglu. Fyrirtækið rekið í óvissu Rekstur fyrirtækisins Hvals hef- ur verið nokkuð erfiður að mörgu leyti á undanförnum árum en bannað var að veiða hval frá árinu 1986 þangað til Einar Kristinn Guðfinnsson, þáverandi sjávar- útvegsráðherra, heimilaði veiðar á hval að nýju árið 2009. Tap hef- ur verið á rekstri fyrirtækisins síð- ustu ár samkvæmt ársreikningi árið 2009. Eiginfjárstaða félagsins er þó góð en eigið fé félagsins er 13 millj- arðar á móti tæplega 2,6 milljarða króna skuld. Fyrirtækið varð fyr- ir áfalli þegar þegar harður jarð- skjálfti reið yfir Japan fyrr á þessu ári en Japan er einn stærsti kaup- andi hvalkjöts frá Íslandi. Afleið- ingar skjálftans voru gríðarlegar fyrir japönsku þjóðina og snarm- innkaði eftirspurn eftir hvalkjöti á sama tíma. Helstu útgjöld fyrirtækisins hafa verið hafnargjöld og við- haldskostnaður hvalveiðiskip- anna. Þegar hvalveiðar voru leyfðar að nýju á Íslandi fóru svo stjórnendur fyrirtækisins út í kostnaðarsamar endurbætur á skipaflotanum. n Gunnlaugur Ragnarsson hefur játað að hafa dregið sér fé frá Hval hf. n Brotin ná fimm ár aftur í tímann n Markaðurinn í Japan hrundi eftir skjálftann n Tap á rekstri félagsins undanfarin ár„Ég er ekki með neina dagsetningu á hreinu en rannsóknin er langt komin. Fjármálastjórinn játaði fjárdrátt Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Tap en góð eiginfjárstaða Hvalur hf. hefur skilað rekstrartapi að undanförnu en eigin- fjárstaða félagsins er góð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.