Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Page 17
Fréttir | 17Helgarblað 2.–4. september 2011
// FRAMAKORTIÐ ER NÝR VALKOSTUR
FYRIR ÞÁ SEM VILJA AUKA ÞEKKINGU SÍNA OG HÆFNI.
Ármúla 11, 108 Reykjavík, Sími 555 7080 ı Fax 555 7081, www.dale.is
3 EINFÖLD SKREF
TIL MEIRI FRAMA FRAMAK
ORT
// 20
LEIÐ
IR TI
L ME
IRI F
RAM
A
// Inni á framakort.is er að finna nánari upplýsingar um Framakortið
FRAMAKORT.IS // 19.900 kr.
// VELDU 3 AF 20 VINNUSTOFUM:
Samningatækni
Frá þjónustu til sölu
Þjónustuviðhorf
Kross- og viðbótarsala
Jákvæð áhrif við fyrstu kynni
Hvatning
Leiðtogastíll
Sannfærandi kynningar
Áhrifarík notkun sýnigagna
Árangursríkir fundir
Tækifærisræður
Listin að hefja samræður
Markmiðasetning
Mundu nöfn
Tímastjórnun
Fagleg framkoma
Víkkum tengslanetið
Jafnvægi vinnu og einkalífs
Hafðu hemil á áhyggjum og streitu
Samskiptahæfni – myndun tengsla
// HVAÐ ER VINNUSTOFA?
Vinnustofa eða ,,workshop“ er
blanda af fyrirlestri og þjálfun.
Vertu betri í því
sem þú ert góður í.
AÐEINS 19.900 kr.
Kári reisir höll
við Elliðavatn
á tuttugustu og fyrstu öldinni og leysa
Eimskip af hólmi. Fyrirtækið átti að
skila miklum peningum í þjóðarbúið
og vera framúrskarandi líftæknifyrir-
tæki með alþjóðlegu starfsfólki, sem
ynni að göfugum vísindarannsóknum.
Útlitið var því bjart fyrstu árin og von-
irnar og peningarnir gerðu að verkum
að Kári Stefánsson og aðrir háttsettir
stjórnendur Decode efnuðust vel. Kári
hafði til dæmis 140 milljónir króna í
laun árið 2008 auk alls kyns fríðinda
eins og Porsche-jeppa sem fyrirtækið
keypti fyrir hann. Hann fékk auk þess
himinháa árlega bónusa frá fyrirtæk-
inu.
Með hæstu skattgreiðendum
2010
Þó kom að því að undan tók að
halla og árið 2009 sótti Decode um
greiðslustöðvun fyrir gjaldþrota-
dómstóli. Um 6.000 Íslendingar
höfðu keypt bréf í fyrirtækinu en
féð var glatað. Við þessi tímamót
vék Kári sem forstjóri Decode og
haft var eftir honum að hann hugð-
ist einbeita sér að rannsóknum eftir
að nýir eigendur keyptu félagið. Kári
hélt þó áfram að vera í efstu sætum
yfir hæstu skattgreiðendur landsins
og var í 12. sæti yfir þá sem greiddu
hæstu skattana árið 2010.
Botnlaust tap fyrirtækis Kára Stef-
ánssonar virðist ekki koma í veg fyrir
að hann hafi efnast nokkuð, eins og
glæsihýsið sem hann byggir nú við
Elliðavatn ber með sér.
„Alltaf sárt að tapa“
n Bónus dýrari en Krónan, en forsendur rangar segir framkvæmdastjórinn
Þ
að er alltaf sárt að tapa og
enn sárara þegar maður tap-
ar á röngum forsendum,“ seg-
ir Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónuss, en sam-
kvæmt könnun verðlagseftirlits ASÍ er
matarkarfan ódýrust í Krónunni en
ekki Bónus, eins og oftast áður.
Guðmundur segir að vissulega
megi segja að niðurstaðan sé söguleg
en fyrirtækið hafi sent frá sér athuga-
semd vegna málsins. „Við bendum á
að í könnuninni voru ekki teknir ódýr-
ustu valkostirnir í Bónus en það er svo
sannarlega gert í hinum verslununum.
Aðspurður hvort forsvarsmenn
Bónuss hafi verið ánægðir með
könnun ASÍ hingað til segir hann að
verslunin hafi oft gert athugasemd-
ir við hana áður. Þetta sé flókin fram-
kvæmd og þeir sem framkvæmi hana
þurfi að hafa gífurlega vöruþekkingu.
„Auðvitað verða mistök og maður er
ekkert alltaf ánægður. ASÍ gerir þetta
eftir sínu höfði og það er ekkert við því
að segja.“
Eins og fyrr segir þá var ódýrasta
matarkarfan í Krónunni en þar kostar
hún 10.103 krónur en dýrust er hún í
Nóatúni á 12.912 krónur.
Matarkarfan samanstendur af 33
tegundum af almennri neysluvöru
til heimilisins, til dæmis mjólkur-
vöru, morgunkorni, grænmeti, kjöti,
drykkjavörum, ásamt ýmsum pakka-
vörum, dósamat og fleiru og var hún
framkvæmd á sama tíma í átta mat-
vöruverslunum:
gunnhildur@dv.is
Krónan 10.103 krónur
Bónus 10.129 krónur
Víðir 10, 282 krónur
Fjarðarkaup 10.916 krónur
Nettó 11.118 krónur
Samkaup Úrval 12.136 krónur
Hagkaup 12.268 krónur
Nóatún 12.912 krónur
Bónus tapar Matarkarfan er ekki ódýrust í Bónus að þessu sinni, samkvæmt könnun ASÍ.