Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Side 18
18 | Fréttir 2.–4. september 2011 Helgarblað Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun S kiptum er lokið í þrota­ búi einkahlutafélags­ ins DAB, sem var í eigu Bjarka Hjálmarsson­ ar Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóra útlána hjá Kaupþingi. Félagið hélt utan um eignarhlut Bjarka í hluta­ bréfum hans í Kaupþingi og í verðbréfasjóðnum Kaupthing Capital Partners. Var félagið stofnað í ágúst árið 2007. Félagið skuldaði Kaup­ þingi 550 milljónir króna í lok árs 2009. Þrátt fyrir það kemur fram að Arion banki hafi ein­ ungis átt 84 milljóna kröfu á félagið. Upp í þá kröfu fengust um fimm milljónir króna eða sem nemur sex prósentum af kröfum. Svo virðist sem Bjarki hafi samið um skuldir sínar vegna hlutabréfanna í Kaup­ þingi, en fyrir þeim fékk hann lán í evrum. Krafa Arion banka virðist því einungis byggð á láni til kaupa Bjarka í Kaup­ thing Capital Partners, en það lán var í breskum pundum. Samkvæmt Rannsóknar­ skýrslu Alþingis námu skuldir Bjarka við Kaupþing hins veg­ ar 1.145 milljónum króna í lok árs 2008. Virðist því sem hluti af lánum hans hafi verið skráð á hann persónulega. Hann hefur áður upplýst fréttastofu Stöðvar 2 um að hann hafi samið við slitastjórn Kaup­ þings um skuldina og hafi greitt það sem honum bar að fullu. Ekki náðist í Bjarka við vinnslu þessarar fréttar þar sem hann er í sumarfríi. Því liggur ekki fyllilega ljóst fyrir hvernig uppgjör hans við slit­ astjórn Kaupþings og Arion banka fór fram. Malar gull í lögmennsku Þess skal getið að Bjarki var með 275 milljónir króna í laun hjá Kaupþingi fyrir árin 2006, 2007 og 2008. Hann á 250 fer­ metra hús í Lálandi í Reykja­ vík sem enn er skráð á hann og eigin konu hans. Svo virðist sem hann hafi gefið út trygg­ ingabréf á fasteign sína í gær upp á 21 milljón króna. Ekki liggur ljóst fyrir hvort trygg­ ingabréfið sé hluti af sam­ komulagi hans við skila­ nefndina. Áður hafði Bjarki fengið lán hjá Kaupþingi upp á 25 milljónir króna árið 2005 út á fasteignina. Í dag starfar hann á lög­ mannsstofunni BBA/Legal og er einn af eigendum hennar. Viðskiptablaðið greindi nýlega frá því að af þeim lögfræði­ stofum sem blaðið kannaði af­ komuna hjá skilaði BBA/ Legal mestum hagnaði allra á árinu 2009. BBA/Legal hagnaðist um rúmlega 300 milljónir króna á árinu 2009 eftir skatta. Bjarki virðist því hafa það gott þrátt fyrir gjaldþrot einkahluta­ félagsins DAB. Hann komst í fréttir fyrr á þessu ári þegar Hæstiréttur hnekkti dómi hér­ aðsdóms um að skattleggja ætti kaupréttarsamninga sem hann fékk hjá Kaupþingi sem launatekjur en ekki fjármagns­ tekjur. Höfðu skattayfirvöld úrskurðað að um launatekjur væri að ræða en því var Hæsti­ réttur ekki sammála. Ármann skuldar nærri sex milljarða Bjarki Diego var ekki eini kúlu­ lánþeginn hjá Kaupþingi sem náði að setja hlutabréf sín inn í einkahlutafélag. Það gerðu átta aðrir starfsmenn. Þeirra þekkastur er líklega Hreiðar Már Sigurðsson en einkahluta­ félag með hans nafni skuldaði skilanefnd Kaupþings um sjö milljarða króna í lok árs 2009. Aðrir sem áttu einkahlutafélög um hlutabréf sín voru meðal annars Ármann Þorvaldsson, Magnús Guðmundsson, Krist­ ján Arason, Ingvar Vilhjálms­ son og Guðni Níels Aðalsteins­ son, sem allir voru stjórnendur hjá Kaupþingi fyrir hrun. Ármann Þorvaldsson ehf. skuldaði um 5,5 milljarða króna í lok árs 2009. Var eigið fé félags­ ins neikvætt um 5.350 milljónir króna. Er félagið skráð til heimil­ is hjá foreldrum hans sem bæði eru skráð í stjórn þess. DV sagði frá því fyrir stuttu að Ármann hefði gert kaupmála við eigin­ konu sína. „Ég er ekki að flýja neinar skuldir eða eitthvað svo­ leiðis. Er ekki að fara frá nein­ um persónulegum skuldum. Ég held ég tjái mig þó ekki að öðru leyti um þetta,“ sagði Ármann aðspurður um umræddan kaupmála í samtali við DV. Lít­ ið hefur hins vegar verið fjallað um umrætt einkahlutafélag Ár­ manns. Þegar nafni hans er flett upp í fyrirtækjaskrá kemur fram að hann tengist engum félögum. Það virðist hins vegar ekki vera rétt. Sama dag og Ármann og Þórdís Edwald, eiginkona hans, gerðu með sér kaupmála var glæsihýsi þeirra að Dyngjuvegi 2 fært yfir á Þórdísi. Magnús kom ekki hluta- bréfum í félag Magnús Guðmundsson ehf. var stofnað í júní árið 2008. Kemur fram í skýrslu Rann­ sóknarnefndar Alþingis að skuldir hans hjá Kaupþingi hafi numið 3,1 milljörðum króna á þeim tíma. Félag Magnúsar átti hins vegar ekki í neinni starf­ semi árið 2008 og er skuld­ laust samkvæmt ársreikningi 2008. Þannig virðist Magnús ekki hafa náð að koma skuld­ um sínum yfir í einkahlutafélag líkt og margir aðrir stjórnendur Kaupþings gerðu. Þeir Ármann, Hreiðar Már og Magnús virðast hins vegar hafa það gott erlend­ is. Ármann í London og hinir tveir í Lúxemborg. Á mynd með frétt má sjá heimili Magnúsar í Lúxemborg en ekki er vitað við hvað hann starfar í dag eft­ ir að hann var rekinn sem for­ stjóri Havilland­bankans síð­ asta sumar eftir að hafa setið í gæsluvarðhaldi á Íslandi vegna rannsóknar sérstaks saksókn­ ara á málefnum Kaupþings. Bjarki Diego sloppinn undan kröfum Arion n DAB ehf. sem var í eigu Bjarka Diego, lögmanns Kaupþings, er komið í þrot n Ármann Þorvaldsson ehf. ekki gjaldþrota þrátt fyrir nærri sex milljarða skuldir Annas Sigmundsson as@dv.is Viðskipti Samdi við skilanefnd Svo virðist sem lögmaðurinn Bjarki H. Diego hafi náð að semja við skilanefnd Kaupþings og Arion banka vegna lána sem hann fékk til hlutabréfakaupa í Kaupþingi fyrir hrun. Skuldar nærri sex milljarða Félagið Ármann Þorvaldsson ehf. skuldaði nærri sex milljarða króna í lok árs 2009. Átti félagið hlutabréf í Kaupþingi sem nú eru verðlaus. Kom ekki hlutabréfum í einka- hlutafélag Magnús Guðmundsson náði ekki að koma hlutabréfum sínum í Kaupþingi yfir í einkahluta- félag sem hann stofnaði sumarið 2008.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.