Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Síða 33
Viðtal | 33Helgarblað 2.–4. september 2011 „Ég er harður við sjálfan mig“ sem hann er aðal laga- og textahöfundur og eina sóló- plötu. Síðasta verk hans með Naglbítunum var hið risa- vaxna samstarf þeirra og Lúðrasveitar verkalýðsins, sú plata kom út ásamt heimildar- mynd um verkefnið árið 2008. Villa þykir vænt um Nagl- bítana og segir að þótt það hafi liðið langur tími á milli platna hjá þeim þá hafi það einmitt verið þess vegna sem þeir hafi getað gefið jafnmikla orku í tónlistina og raun ber vitni. „Það er auðvitað mjög gott að láta líða svona langan tíma á milli platna. Við vorum aldrei dugleg hljómsveit. Við völdum okkur að gera þetta ekki að okkar lifibrauði. Við vildum ekki taka leiðinleg gigg bara til að lifa af. Við völdum hinn möguleikann sem er að njóta þess að búa til og spila tónlist.“ Naglbítarnir koma aftur saman á næsta ári og halda stórtónleika þann 4. febrúar í Hofi á Akureyri. „Við erum að koma saman aftur, það er gaman að segja frá því. Við erum að semja nýtt efni og ætlum að gera þetta með stæl. Ég er kominn með fiðringinn og við erum stórhuga. Síðast vorum við 60 á sviðinu, það er aldrei að vita hvað við gerum næst. Við erum alla vega ekki að gera þetta til að fá einhvern fimm þúsund kall í vasann.“ Villi segist stoltur af tón- listinni sem Naglbítarnir hafa gefið út. „Ég skammast mín ekki fyrir tónlistina, finnst hún tímalaus og held að það sé vegna þess að við vorum lítið að eltast við tískuna.“ Afi helsta fyrirmyndin Villi segist ekki eiga sér neinar sérstakar fyrirmyndir þeg- ar kemur að því að skapa. Frekar að hann eigi sér fyrir- myndir í lífinu almennt og þá er fremstur afi hans heitinn, Steingrímur Þorsteinsson frá Dalvík, fyrrverandi kennari og hamskeri. „Hann afi kenndi mér það að stundum þarf að berja í borðið. Standa með sjálf- um sér. Það er lexía sem fleiri mættu tileinka sér því hún eflir sjálfsvirðinguna. Hann kenndi mér líka að veiða og ef það væri ekki fyrir afa þá hefði ég örugglega ekki menntað mig. Hann brýndi það fyrir mér að menntun er lyklar. Lyklar að möguleikum sem eru annars læstir. Ég tók fullt mark á þessu og kláraði menntaskólann og fór seinna í heimspekinám í Háskól- anum. Mér finnst það sjálf- um merkilegt því ég á mjög bágt með að lesa bækur. Ég hef örugglega bara lesið sex bækur á ævinni, segir hann í fyllstu alvöru. Ég sofna eftir þrjár síður.“ Heimspekin er móðir allra vísinda Villi fór í heimspeki í Háskóla Íslands og þar fékk hann að spyrja eins og hann lysti eins og hann var óþreytandi við að gera þegar hann var lítill. „Ef við viljum skilja hlut- ina þá verðum við bara að spyrja. Margir halda að heim- speki snúist um einhverja gamla karla í lökum sem éta vínber og þræta. Svo er ekki. Heimspekin er móðir allra vísinda og það er nauðsyn- legt að spyrja til að búa til samræðu sem hefur eitthvert innihald. Ég er fær í því að spyrja og hlusta og nýtti mér það óspart í náminu. Ég geri það líka í daglegu lífi.“ Kýs að hlusta Það kemur líka í ljós að hon- um líkar það betur að hlusta en að ræða málin. Hann seg- ist ekki vera maður sem ber tilfinningar sínar á torg og hann segist vera þögull. „Ég ræði ekki um tilfinn- ingar mínar. Ég á fáa vini og hef komist upp með það alla tíð að ræða ekki við þá um persónuleg málefni. Ef þeir reyna, þá sting ég af. Hætti að svara símanum og svona,“ segir hann og brosir. „Líklega er ég afar lokaður að eðlisfari, það kemur oft þeim sem þekkja mig ekki á óvart. En ég kýs að hafa þetta svona og finnst þetta þægi- legt.“ Eirðarleysið flækist fyrir Hann er enda þögull sem gröfin um einkalíf sitt og vill sem minnst um það segja annað en að síðasta ár hafi verið honum erfitt. Eirðar- leysið hefur komið mér í koll í ár. Það flækir líf mitt oft að óþörfu,“ segir hann alvöru- gefinn. „Ég hef alltaf verið svona eirðarlaus, eiginlega frið- laus,“ bætir hann við. „Ég veit ekki hvað þetta er og er auð- vitað alltaf að eltast við far- sæld eins og allir aðrir. Ég held stundum að ég sé far- sæll. Stundum ekki. Stund- um get ég litið til baka og sagt. Já þarna var ég farsæll. Og öfugt. Stundum lít ég til baka til tíma þar sem ég taldi mig far- sælan en svo hefur eitthvað breyst sem setur allt í annað samhengi. Það er líklega erf- itt að telja sig farsælan nema í núinu. Það getur enginn sagt að hann sé farsæll til framtíðar.“ Maturinn vex ekki í Bónus Það eru samt til stundir sem Villi finnur ekki vitund fyrir eirðarleysi. Hann er mikill áhugamaður um veiði og þegar hann er á veiðum segist hann vera í fullkominni sátt við sjálf- an sig. Veiðiáhugann erfði hann eins og áður sagði frá afa sínum Steingrími. Nokkrir vina Villa deila með honum skotveiðiástríðunni og á haustin er oft farið í lengri eða skemmri ferðir. Hann er spenntur fyrir því að fara í veiði, gæsaveiðitímabilið er að byrja. Villa þykja löngu veiðiferðirnar einna skemmtilegastar þegar gengið er á fjöll og legið úti. „Það er eitthvað sérstakt við það að elda og borða það sem maður hefur veitt sjálfur, að færa björg í bú, maturinn vex ekki í Bónus,“ segir hann. „En það er ekki bara það að veiða sem ég hef ástríðu fyrir. Mér finnst gaman að vera úti og finna fyrir náttúrunni. Að verða kalt, vera blautur í fæturna og drekka kaffi með félögunum úti í skurði. Þar sem við stöndum í skurðinum þá sjáum við líka daginn byrja og það er upplifun sem er nærandi. Fyrst fara flugurnar að suða, svo sérðu hægt og rólega lífið kvikna. Þú sérð jörðina hitna þegar sólin fer að skína og hvernig móðan stígur af land- inu. Auðvitað skýt ég svo gæs og borða hana svo,“ segir hann og hlær. „Í fyrra fór ég í rjúpnaveiði í Mývatnssveit. Allt var hrímhvítt og trén eins og í Narníu. Þótt við hefðum sleppt því að skjóta rjúpur þá hefði þetta verið yndislegt og félagsskapurinn er líka alltaf góður.“ Vildi að ég væri maðurinn með planið Það er aldrei að vita hverju Villi tekur upp á næst. Hann er tón- listamaður, hugmyndasmiður, myndlistarmaður, leikari (þótt hann vilji ekki gangast við því) og ótal margt fleira. Hann á enda mjög erfitt með að sjá fyrir sér framtíð sína. „Það fer eftir því hvernig skapi ég er í hvernig ég sé framtíðina. Stundum hugsa ég: Ætli þetta verði ekki svona? Stundum hugsa ég: Vildi ég að þetta yrði svona? Og þegar verst lætur þá hugsa ég: Æi djöfull. Ætli þetta verði svona? Annars vildi ég að ég væri maðurinn með planið. Stund- um vildi ég óska þess að ég væri bara með læknisgráðu og ætti Volvo. En kannski yrði ég versti læknir í heimi. Ef ég gat ekki keyrt út pítsur þá er kannski ólíklegt að ég finni ósæðina með skurðhnífinn í annarri,“ segir hann og hlær. „Ég hef örugglega bara lesið sex bækur á ævinni, ég sofna eftir þrjár síður. „Það er eitt- hvað sérstakt við það að elda og borða það sem maður hefur veitt sjálfur, að færa björg í bú, maturinn vex ekki í Bónus. Ræðir ekki um tilfinningar sínar Villa líkar það betur að hlusta en að ræða málin. Hann segist ekki vera maður sem ber tilfinningar sínar á torg og hann segist vera þögull. „Ég ræði ekki um tilfinningar mínar. Ég á fáa vini og hef komist upp með það alla tíð að ræða ekki við þá um persónuleg málefni. Ef þeir reyna, þá sting ég af. Hætti að svara símanum og svona,“ segir hann og brosir. Mynd gunnAR gunnARsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.