Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Síða 34
Verð alltaf
villingur
34 | Viðtal 2.–4. september 2011 Helgarblað
É
g var frekar uppreisnar
gjörn og fór kannski ekki
alltaf þessar hefðbundnu
leiðir á unglingsárun
um,“ segir fatahönn
uðurinn og myndlistar konan
Harpa Einarsdóttir sem á dög
unum vann fatahönnunar
keppnina Reykjavík Runway.
„Ég var í slagtogi við
hljómsveitargæja og flosnaði
snemma upp úr námi. Þegar ég
var sautján ára byrjaði ég með
strák sem var mikill töffari og
þar að auki húðflúrari. Hann
kynnti mig fyrir miklum nost
algíuheimi og heillaði mig upp
úr skónum. Það tók mikið á mig
þegar því sambandi lauk og ég
var frekar týnd um tíma og ekki
alveg viss um hvert förinni væri
heitið og þá hófst hin mikla leit
mín að sjálfri mér. Ég fór að
þvælast um í eirðarleysi heims
horna á milli.“
Draumur hennar var að
læra myndlist erlendis en það
gekk ekki upp. „Ég fór til Lond
on og var þar í ár rétt fyrir tví
tugt og lét mig dreyma um að
komast inn í myndlistarnám
í St. Martins en hafði ekki fjár
ráð til að sækja þar um, í stað
inn fór ég að vinna í Top Shop
á Oxford Circus og sótti næt
urlífið grimmt, snoðaði af mér
síðu svörtu lokkana, aflitaði á
mér kollinn og fékk mér lokk í
vörina.“
Bölvað eirðarleysið
Leit hennar að því hver hún
væri hélt áfram. „Síðan hélt ég
áfram að þvælast og var á Ít
alíu í einhverja mánuði og elti
meðal annars rokkstjörnu til
Los Angeles. Það var nóg um
ævintýri á þessum tíma,“ segir
Harpa hlæjandi og bætir við að
það hafi tekið hana langan tíma
að komast að því hvað og hver
hún væri.
„Ég var mikill villingur en hjart
að var oftast á réttum stað. Það
var alltaf eitthvert bölvað eirðar
leysi í mér. Grasið alltaf grænna
hinum megin og ég gat aldrei
stoppað og notið augnabliksins
heldur djöflaðist ég áfram án
þess að vita að hverju ég væri að
leita. Ég veit ekki hvaðan þetta
eirðarleysi kom en það er sem
betur fer að hverfa,“ segir hún
og tekur fram að það hafi gert
hana að þeirri manneskju sem
hún er.
„Maður eldist og þroskast. Ég
hef gert alveg nóg af vitleysum
um ævina en þannig lærir mað
ur, með því að gera mistökin og
fara ótroðnu slóðirnar. Það gef
ur manni dýpt í sálina og hjálp
ar manni að skilja annað fólk
betur. Ég var alltaf villingur og
held að ég verði það eflaust allt
af. Það er bara það sem ég er og
mér finnst það gaman, maður á
að varðveita vitleysinginn í sjálf
um sér og það er mikilvægt að
geta hlegið að sjálfum sér. Það
hjálpar engum að taka sig of há
tíðlega því það er mikilvægt að
geta hlegið af sjálfum sér og al
gjör óþarfi að eyða heilu vikun
um í samviskubit eða ótta vegna
einhverra heimskupara úr for
tíðinni. Það er enginn fullkom
inn í þessum heimi.“
Hugsaði bara um bestu
vinkonuna
Harpa er eins og áður seg
ir ný krýndur sigurveg
ari Reykjavík Runway
Harpa Einarsdóttir er fatahönnuður og
myndlistarkona sem er margt til lista lagt.
Hún vann á dögunum fatahönnunarkeppn-
ina Reykjavík Runway og stefnir ótrauð
áfram í heimi tískunnar þó að myndlistin sé
aldrei langt undan. Harpa var rétt rúmlega
tvítug þegar hún eignaðist börnin sín tvö
sem hún segir vera sína bestu vini. Hún hef-
ur að mestu verið einstæð móðir og segist
nú kunna best við sig án karlmanns þar sem
hönnunin og listin eru í fyrirrúmi hjá henni.
Hún sagði Viktoríu Hermannsdóttur meðal
annars frá því hvernig hún stefnir að því að
geta sinnt listagyðjunni án þess að hafa
áhyggjur af peningum, geðhvarfasýkinni,
sem hún náði stjórn á, og hversu dýrmætt
það er að læra af mistökum fortíðarinnar.
„Þau eru einstök.
Við erum mjög náin
og þau hafa verið alveg
ótrúlega skilningsrík og
þolinmóð við mig.
„Hvað er þetta
líka með allar
þessar greiningar, er
ekki bara gaman að
hafa mannlífið fjöl-
breytt?
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Viðtal
Vill ekki flækja hlutina Harpa segist vera
best sett ein núna og vill ekki flækja lífið með
karlmönnum. „Það er best fyrir mig að vera bara
ein núna. Ég ætla að einbeita mér að listinni
minni og fjölskyldunni, það er mikil vinna fram-
undan og óþarfi að flækja hlutina of mikið núna.“