Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Síða 36
36 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 2.–4. september 2011 Helgarblað
Ó
lafur Björn fæddist í Reykja-
vík og ólst upp í Ólafsvík hjá
móður sinni og stjúpföð-
ur. Hann gekk í grunnskóla
Ólafsvíkur og lauk þar skóla-
göngu sinni.
Þegar Ólafur Björn var fjórtán
ára fór hann á sjó og stundaði sjó-
mennsku á bátum og togurum til árs-
ins 1983. Þá flutti hann til Reykjavík-
ur og stundaði sjómennsku, lengst
af á Jóni Baldvinssyni RE til ársins
1997. Síðan hefur Ólafur Björn verið
bifreiðastjóri og er nú vagnstjóri hjá
Strætó bs.
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs Björns er Júlíana
Ósk Guðmundsdóttir, f. 4.12. 1966,
bókari. Foreldrar hennar eru Guð-
mundur Árni Bjarnason, f. 27.7.
1934, nú látinn, og Gyða Þorsteins-
dóttir, f. 2.4. 1942, d. 28.7. 2000.
Börn Ólafs Björns og Júlíönu Ósk-
ar eru Heimir Bergmann Ólafsson,
f. 5.2. 2002; Gyða Ósk Ólafsdóttir, f.
28.7. 2003.
Dætur Ólafs Björns með Hafdísi
Kjartansdóttur, búsett í Súðavík, eru
Salbjörg og Sólveig, f. 1.8. 1985, en
fyrir átti Hafdís Eðvarð Örn Kristins-
son, f. 29.8. 1980.
Fóstursynir Ólafs Björns og synir
Júlíönu eru Sindri Þór Hannesson, f.
16.3. 1995; Atli Freyr Hannesson, f.
8.9. 1997.
Hálfsystkini Ólafs Björns, sam-
mæðra, eru Rúnar Ívarsson, f. 25.12.
1967, sölufulltrúi, búsettur í Kópa-
vogi, giftur Sigrúnu Sóleyju Gísla-
dóttur, f. 11.4. 1967, og eiga þau tvær
dætur; Kolbrún Ívarsdóttir, f. 21.2.
1973, einkaþjálfari, búsett á Hellis-
sandi en maður hennar er Anton
Ragnarsson, f. 19.7. 1970, skipstjóri
og útgerðarmaður og eiga þau þrjá
syni.
Hálfbræður Ólafs Björn samfeðra
eru Gísli Kristján Heimisson, f. 25.3.
1970, sjómaður búsettur á Hellis-
sandi en kona hans Beata og eiga
þau eina dóttur; Gylfi Bergmann
Heimisson, f. 8.5. 1975, sölustjóri,
búsettur í Kópavogi en kona hans er
Guðmunda Gyða Guðmundsdóttir, f.
24.6. 1976, og eiga þau þrjú börn.
Faðir Ólafs Björns er Heimir Berg-
mann Gíslason, f. 31.10, 1939, skip-
stjóri og útgerðarmaður, búsettur í
Hafnarfirði. Kona hans er Svala Þyrí
Steingrímsdóttir, f. 4.9.1942, húsmóðir.
Móðir Ólafs Björns er Sólveig Jó-
hannsdóttir, f. 31.1. 1943, húsmóðir
í Reykjavík. Eiginmaður hennar var
Ívar Reynir Steindórsson, f. 5.2. 1942,
d. 16.10. 2008, sjómaður og sendibíl-
stjóri.
G
ylfi fæddist í Kópavogi en
ólst upp í Keflavík. Hann tók
stúdentspróf frá Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja 1983,
B.Ed-próf frá Kennarahá-
skóla Íslands 1986, BA-prófi með
sálfræði sem aðalgrein frá Háskóla
Íslands 1992 og meistarapróf í sálar-
fræði (cand. psych) frá Háskólanum í
Árósum 1997.
Gylfi vann ýmis sumarstörf á fjöl-
brautaskólaárum og var kennari við
Glerárskóla 1986–88, var meðferðar-
fulltrúi á unglingageðdeild Landspít-
alans 1988–92, var forstöðumaður á
sambýlinu við Holtaveg 1992–94, sál-
fræðingur við göngudeild barna- og
unglingageðdeildar í Viborg í Dan-
mörku 1997–99, deildarstjóri sér-
fræðiþjónustu á Fræðsluskrifstofu
Reykjanesbæjar 1999–2011 og er
fræðslustjóri Reykjanesbæjar frá því
í júní 2011.
Gylfi Jón hefur haldið fjölda fyr-
irlestra og námskeið fyrir kennara
og foreldra, m.a. um uppeldismál,
ADHD og börn með sérþarfir. Þá
hefur hann skrifað fjölda greina um
skóla, uppeldismál og stangaveiði í
dagblöð og tímarit.
Fjölskylda
Sambýliskona Gylfa Jóns er dr. Ingi-
björg Sveinsdóttir, sálfræðingur á
heilsugæslustöðinni Firði Hafn-
arfirði. Foreldrar Ingibjargar eru
Sveinn Þorgrímsson verkfræðingur
og Anna Þóra Árnadóttir, grafískur
hönnuður.
Dóttir Ingibjargar er Anna Ingi-
bjargardóttir, f. 20.1. 2008.
Gylfi Jón kvæntist 14.9. 1991 Gyðu
Hjartardóttur, f. 26.2. 1967, félagsráð-
gjafa. Þau skildu. Foreldrar hennar
eru Hjörtur Ingi Vilhelmsson, versl-
unarmaður í Reykjavík, og Ingibjörg
Guðmundsdóttir, skrifstofukona í
Reykjavík sem er látin.
Börn Gylfa og Gyðu eru Ingibjörg
Gylfadóttir, f. 24.5. 1992, mennta-
skólanemi; Adda Guðrún Gylfadótt-
ir, f. 9.12. 1995, menntaskólanemi;
Sveinn Ingi Gylfason, f. 19.1. 2002.
Systkini Gylfa eru Bára Kolbrún
Gylfadóttir, f. 23.3. 1979, sálfræðing-
ur; Sveinn Gunnar Gylfason, f. 9.4.
1966, d. 4.4. 1983.
Foreldrar Gylfa eru Gylfi Guð-
mundsson, f. 1.9. 1940, fyrrv. skóla-
stjóri Njarðvíkurskóla, og Guðrún
Jónsdóttir, f. 15.12. 1942, fyrrv. kenn-
ari við Njarðvíkurskóla.
Ætt
Gylfi, fyrrv. skólastjóri, er sonur Guð-
mundar, sóknarprests á Staðastað
á Snæfellsnesi og síðar í Neskaup-
stað Helgasonar, sjómanns í Ásbúð
í Hafnar firði Guðmundssonar, sjó-
manns á Hellu í Hafnarfirði Guð-
mundssonar. Móðir Guðmundar var
Guðrún Þórarinsdóttir, b. og smiðs í
Fornaseli á Mýrum vestra Þórarins-
sonar.
Móðir Gylfa, fyrrv. skólastjóra,
var Hulda, en foreldrar hennar voru
fósturforeldrar dóttursonar síns,
Gylfa skólastjóra. Hulda var dótt-
ir Sveins, skólastjóra í Bolungar-
vík Halldórssonar, hálfbróður, sam-
mæðra, Sigurðar, pr. á Vatnsenda og
síðar verslunarráðsritara í Reykjavík
Guðmundssonar. Sveinn, skólastjóri
í Bolungarvík, var sonur Halldórs, b.
á Skeggjastöðum í Garði Halldórs-
sonar, b. í Kjarnholtum í Biskups-
tungum Halldórssonar. Móðir Sveins
var Ingunn Árnadóttir, b. í Bartakoti
í Selvogi Gíslasonar. Móðir Huldu
var Guðrún, dóttir Pálma, b. á Meira-
Bakka í Skálavík Bjarnasonar og
Kristínar Friðbertsdóttur, b. í Vatna-
dal Guðmundssonar, b. í Görðum í
Önundarfirði Jónssonar.
Guðrún kennari er dóttir Jóns, vél-
stjóra, lengst af í Keflavík Sæmunds-
sonar, b. og kennara á Krakavöllum
í Fljótum Dúasonar Kristjáns, b. og
smiðs á Krakastöðum Grímssonar,
græðara yngri, í Reykhúsum og að
Minni-Reykjum í Flókadal Magnús-
sonar, græðara, spítala- og klaustur-
haldara á Möðruvöllum í Eyjafirði
Grímssonar, græðara eldri, b. á Espi-
hóli í Eyjafirði Magnússonar. Móðir
Magnúsar á Möðruvöllum var Sigur-
laug Jósefsdóttir, b. að Ytra-Tjarnar-
koti Tómassonar, b. að Hvassafelli,
ættföður Hvassafellsættar Tómas-
sonar, hreppstjóra í Kollugerði, ætt-
föður Kollugerðarættar Sveinssonar.
Jósef var langafi Kristjáns, afa Hriflu-
Jónasar; Jóhannesar, afa Jóhanns
Sigurjónssonar skálds; Ingiríðar,
langömmu Steins Steinars, og Finns
Jónssonar ráðherra, afa Hallgríms
Snorrasonar, fyrrv. hagstofustjóra.
Bróðir Jósefs var Jónas, afi Jónasar
Hallgrímssonar. Móðir Sigurlaugar
var Ingibjörg, systir Gunnars í Ufs-
um, föður Gunnars í Laufási, afa
Hannesar Hafstein. Móðir Gríms á
Minni-Reykjum var Margrét Bene-
diktsdóttir, vinnumanns á Höfða
Benediktssonar. Móðir Margrétar
var Halldóra Sigfúsdóttir, prófasts á
Höfða Jónssonar. Móðir Dúa Krist-
jáns var Ólöf Ólafsdóttir, b. á Rif-
kelsstöðum Jósefssonar, bróður
Sigurlaugar. Móðir Sæmundar var
Eugenía Jónsdóttir Norðmanns, pr.
á Barði í Fljótum Jónssonar, frá Forn-
haga í Hörgárdal Guðmundssonar,
bróður Vatnsenda-Rósu. Móðir Jóns
Norðmanns var Margrét Jónsdóttir,
pr. og skálds á Bægisá Þorlákssonar.
Móðir Jóns vélstjóra var Guðrún
Valdný, dóttir Þorláks, b. og skip-
stjóra á Lambanes-Reykjum í Fljót-
um Þorlákssonar, b. þar Þorláksson-
ar, b. á Illugastöðum Þorlákssonar, b.
þar Björnssonar, b. þar Þorlákssonar,
b. þar Ólafssonar, Þorlákssonar, pr. á
Miklabæ Ólafssonar. Móðir Þorláks
eldra á Lamba-Reykjum var Anna
Jónsdóttir, ríka á Brúnastöðum Jóns-
sonar, skólakennara í Noregi Jónsson-
ar, frá Löngumýri í Skagafirði Rafns-
sonar, á Skefilsstöðum í Laxárdal
Jónssonar, pr. í Hvammi í Laxárdal
Þórðarsonar. Móðir Þorláks skipstjóra
var Guðrún Jónsdóttir, b. á Lamba-
nes-Reykjum Jónssonar, b. á Lamba-
nesi Þorfinnssonar, b. á Lambanes-
Reykjum Magnússonar, b. á Kálfsá í
Ólafsfirði. Móðir Jóns á Lambanesi
var Ingibjörg Bjarnadóttir. Móðir
Guðrúnar var Sigurlaug Sæmunds-
dóttir frá Lambanesi. Móðir Guð-
rúnar Valdnýjar var Margrét Halldóra
ljósmóðir, systir Dúa Kristjáns.
Móðir Guðrúnar kennara og
amma afmælisbarnsins var Bára
Sveinbjörnsdóttir. Móðir Báru var
Jónína Jónsdóttir.
Gylfi Jón Gylfason
Fræðslustjóri Reykjanesbæjar
Ólafur B. Heimisson
Strætisvagnabílstjóri hjá Strætó bs
50 ára á föstudag
50 ára á föstudag
K
ristín fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Breiðholtinu.
Hún var í Hólabrekkuskóla
og Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti.
Kristín vann hjá Íslandspósti á ár-
unum 2001–2007, starfaði hjá Agli
Árnasyni ehf. 2007–2008, vann síðan
hjá Parka 2008–2009 og hefur starfað
við innkaupadeild hjá Innnesi ehf.
frá 2009.
Kristín æfði og keppti í fimleik-
um með Gerplu á unglingsárunum
og hefur nýlega hafið aftur æfingar
fyrir eldri iðkendur. Þá gengur hún á
fjöll og hefur hafið sjósund af kappi.
Fjölskylda
Sonur Kristínar er Daníel Finns
Matthíasson, f. 21.6. 2000.
Alsystir Krist-
ínar er Sigurrós
Ásta Jakobsdótt-
ir, f. 20.5. 1979,
verslunarstjóri
hjá Tiger, búsett
í Reykjavík.
Hálfsystkini
Kristínar, sam-
feðra, eru Hall-
dór Jakobsson, f. 13.11. 2000; Dag-
björt Hekla Jakobsdóttir, f. 12.11.
2005.
Hálfsystir Kristínar, sammæðra,
er Ágústa Klara Ágústsdóttir, f. 3.12.
1993.
Foreldrar Kristínar eru Unn-
ur Dagmar Kristjánsdóttir, f. 12.5.
1959, verslunarmaður hjá ÁTVR,
búsett í Reykjavík, og Jakob Ragn-
arsson, f. 25.6. 1958, starfsmaður hjá
Marel, búsettur í Mosfellsbæ.
Kristín Jakobsdóttir
Verslunarmaður í Reykjavík
30 ára á föstudag
A
lmar fæddist á Akranesi
og ólst þar upp. Hann var
í Grundaskóla og Fjöl-
brautaskóla Vesturlands.
Almar stafaði hjá Norð-
uráli í eitt sumar, vann við pípulagnir
hjá PK lögnum, síðan við húsamálun
í tvö ár en hefur starfað hjá BYKO á
Akranesi frá 2006.
Almar æfði og keppti í knatt-
spyrnu með ÍA frá fimm ára aldri,
lék með meistaraflokki ÍA um skeið,
með meistaraflokki Víkings í Reykja-
vík, með Kára og Bruna á Akranesi,
en leikur nú með Kára.
Fjölskylda
Unnusta Almars er Erla Jörunds-
dóttir, f. 12.4. 1986, nemi í félagsráð-
gjöf við Háskóla Íslands.
Sonur Almars og Erlu er Ari
Styrmir Almarsson, f. 8.12. 2009.
Albræður Almars eru Viðar Freyr
Viðarsson, f. 19.1. 1985, starfsmað-
ur við Járnblendiverksmiðjuna á
Grundartanga; Bjarki Valur Viðars-
son, f. 26.9. 1991, starfsmaður Norð-
uráls.
Hálfsystkini Almars eru Ása Birna
Viðarsdóttir, f. 9.5. 1969, skrifstofu-
maður hjá Norðuráli; Svavar Halldór
Viðarsson, f. 8.4. 1972, nemi í Dan-
mörku.
Foreldrar Almars eru Viðar
Bjarnason, f. 6.7. 1950, sjómaður
og kokkur á Akranesi, og Ingibjörg
Björnsdóttir, f. 25.6. 1961, starfsmað-
ur við Sjúkrahús Akraness.
Almar B. Viðarsson
Lagnastjóri BYKO á Akranesi
30 ára á laugardag
R
afn fæddist í Reykjavík
en ólst upp í Kópavogi
til átta ára aldurs en síð-
an í Reykjavík. Hann var
í Digranesskóla í Kópa-
vogi, Hamraskóla í Grafarvogi og
loks í Tjarnarskóla við Tjörnina í
Reykjavík. Þá stundaði hann nám
við Menntaskólann á Laugarvatni
um skeið, við Borgarholtsskóla og
Menntaskólann á Ísafirði. Hann
stundar nú nám hjá Hringsjá –
Náms- og starfsendurhæfingu.
Rafn hefur einkum sinnt versl-
unarstörfum og starfað við mat-
reiðslu á skyndibitafæði. Hann
starfaði m.a. á Pizza Hut á Sprengi-
sandi, við Staðarskóla í Hrútafirði
í tæp þrjú ár og starfaði hjá N1 á
Blönduósi á árunum 2005–2009.
Fjölskylda
Hálfsystkini Rafns, samfeðra, eru
Guðmundur Kristinn Vilbergsson,
f. 17.4. 1985, húsamálari, búsett-
ur í Garðabæ; Benjamín Jóhannes
Gunnlaugarson, f. 1.8. 1992, nemi á
Akureyri; Marta Karen Vilbergsdótt-
ir, f. 26.10. 1994, nemi á Akureyri;
Kolbrún Halla Vilbergsdóttir, f. 10.1.
2005.
Foreldrar Rafns: Alda Rafnsdótt-
ir, f. 26.7. 1963, d. 3.9. 1988, sjúkra-
ritari við Landspítalann, og Vilberg
Guðmundsson, f. 15.5. 1962, fram-
kvæmdastjóri á Blönduósi.
Afi og amma Rafns, foreldrar
Öldu, eru Rafn Vigfússon, f. 2.11.
1935, lengi verktaki hjá Orkuveitu
Reykjavíkur, og Karen María Pálína
Gestsdóttir, f. 8.9. 1939, lengi tal-
símavörður hjá Landssímanum.
Rafn ólst að miklu leyti upp hjá þeim
eftir að móðir hans féll frá.
Rafn Ölduson
Nemi hjá Hringsjá
30 ára á laugardag