Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Side 47
Lífsstíll | 47Helgarblað 2.–4. september 2011 M ikil saltneysla getur valdið of háum blóðþrýstingi en of hár blóðþrýstingur tengist hjarta- og nýrnasjúkdóm- um og heilablóðfalli. Dragðu úr salt- neyslu þinni með eftirfarandi ráð- um: Eldaðu sjálf/ur frá grunni svo þú vitir nákvæm- lega hversu mikið salt er í matnum. Lestu inni- haldslýsingar þegar þú gerir matarinnkaup- in og veldu þær vörur sem innihalda lítið af sodium. Breyttu kryddskápnum í tilrauna- skáp. Prófaðu þig áfram með því að skipta saltinu út fyrir gómsæt krydd. Forðastu tilbúinn mat eins og pasta, hrísgrjónarétti og morgun- korn sem oft innihalda mikið salt. Krukka af spaghettisósu getur inni- haldið allt upp í 770 mg af salti. Skolaðu matvæli sem eru geymd í niðursuðudósum til að ná hluta af saltinu í burtu. Borðaðu nóg af ferskum ávöxtum og grænmeti. Ferskar afurðir inni- halda ekki salt. Ekki salta vatnið þegar þú sýður grænmeti og lestu innihaldslýsingar þegar þú kaupir frosið grænmeti til að vera viss um að salti hafi ekki verið bætt við. L eikararnir Ryan Reynolds og Rosie Huntington- Whiteley hafa verið ráðin til að vera andlit auglýs- ingaherferðar The Autograph collection, haustlínu breska merkisins Marks & Spencer, en herferðin var mynduð af ljósmyndaranum Greg Willi- ams sem hefur meðal annars unnið til BAFTA-verðlauna. Nýjasta kvikmynd Reynolds er Green Lantern en hann er líklega þekktastur fyrir að hafa verið giftur gyðjunni Scarlett Johansson. Rosie er öllu van- ari í fyrirsætubransanum enda fyrrverandi Victoria’s Secret undirfatamódel og er með fleiri auglýsingasamninga, þar á meðal við tískurisann Bur- berry. Rosie er ein heitasta stjarnan vestanhafs í dag. Hún er arftaki Megan Fox í kvik- myndunum The Transformes svo líklega á frægðarsól hennar aðeins eftir að rísa enn hærra. Rosie og Ryan hafa bæði sagst stolt af samstarfinu við breska tískurisann. „Vinnan við herferðina vakti upp marg- ar skemmtilegar æskuminn- ingar frá Kanada þegar ég og vinir mínir kíktum reglulega í búðir M&S,“ sagði kanadíski leikarinn Ryan og bætti við að hausttískan væri honum að skapi. „Haustlínan er nútíma- legt svar við klassíkinni sem ég elska og líður best í. Fötin í þessari línu endast lengi og detta aldrei úr tísku.“ Steve Sharp hjá M&S segist himinlifandi með samvinnuna við Hollywood-stjörnurnar. „Rosie og Ryan eru fullkomin í haustlínuna – falleg, sérstök og afar nútímaleg.“ n Ryan Reynolds og Rosie Huntington landa samingi við Marks & Spencer Ryan og Rose andlit M&S Glæsileg Rosie og Ryan eru falleg, sér- stök og nútímaleg og því fullkomin fyrir haustlínuna að mati talsmanns M&S. Of mikið salt er hættulegt Komdu í hóp þeirra sem ná árangri. Þjálfun Dale Carnegie vísar þér leiðina til að njóta þín betur á meðal fólks, hafa góð áhrif á aðra og til að nýta hæfileika þína til fullnustu, hvort sem er í starfi eða í einkalífi. Á hverjum degi heyrir þú af fólki sem skarar fram úr í athafnalífinu, í stjórnsýslu, íþróttum, fjölmiðlum og á sviði menningar og lista. Margt af þessu fólki hefur sótt þjálfun Dale Carnegie. Ármúla 11, 108 Reykjavík Sími 555 7080 ı Fax 555 7081 www.dale.is SKRÁÐU ÞIG! Ný námskeið að hefjast 555 70 80 Hringdu núna KOMDU Í ÓKEYPIS KYNNINGARTÍMA MIÐVIKUDAGINN 7. SEPTEMBER. FULLORÐNIR KL. 20:00 UNGT FÓLK 16–25 ÁRA KL. 20:00 UNGT FÓLK 10–15 ÁRA KL. 19:00 Komdu í Ármúla 11 og upplifðu Dale Carnegie á 60 mínútum. FYRIR HVERJA ER DALE CARNEGIE? Fyrir alla sem vilja: • Ná fram því besta í fari sínu og verða sterkari leiðtogar • Takast á við flóknar áskoranir • Fleiri og betri hugmyndir • Byggja upp traust sambönd • Koma fyrir af fagmennsku • Vera virkir á fundum • Stjórna eigin lífi og taka ákvarðanir ,,Á námskeiði hjá Dale Carnegie haustið 2010 setti ég mér nokkur markmið sem miðuðu að því að koma knattspyrnufélaginu ÍA upp í efstu deild árið 2012. Ég lærði að skipuleggja mig betur, raunsæja markmiðasetningu, og að hlusta betur á skoðanir annarra. Ég er afslappaðri þegar ég tala á fundum. Námskeiðið ýtti við mér, eƒdi leiðtogahæfni mína og fékk mig til að hugsa út fyrir boxið við þjálfunina. Ég sé skýran árangur af Dale Carnegie námskeiðinu.“ ÍA í Úrvalsdeild 2012. Þórður Þórðarson Þjálfari knattspynufélags ÍA ÍS L E N S K A /S IA .I S /D A L 5 61 70 0 9/ 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.