Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Side 2
2 Fréttir 8.–10. febrúar 2013 Helgarblað
H
verfisverslunin Melabúðin
á Hagamel skilaði tæplega
80 milljóna króna hagn
aði árið 2011. Þetta kemur
fram í nýjasta ársreikningi
búðarinnar, fyrir árið 2011, sem
skilað var til ársreikningaskrár ríkis
skattstjóra þann 10. janúar síðast
liðinn. Rekstrarfélag búðarinnar,
Melabúðin ehf., átti í lok árs 2011
eignir upp á tæplega 200 milljón
ir króna. Ekkert í ársreikningnum
bendir til að arður hafi verið tekinn
út úr félaginu árið 2011.
Eigendur Melabúðarinnar eru
Katrín Stella Briem, Guðmundur
Júlíusson, Pétur Guðmundsson og
Friðrik Guðmundsson.
Fáar hverfisverslanir eftir
Melabúðin er ein af örfáum hverfis
verslunum sem eftir eru í Reykja
vík. Önnur dæmi um slíkar hverfis
verslanir sem eftir standa eru Rangá
í Langholtshverfinu, Sunnubúð í
Hlíðunum og Pétursbúð á Ránar
götu. Fæstar hverfisverslanir borg
arinnar hafa náð að standa af sér
tilkomu verslunarrisa eins og Hag
kaupa, Bónuss, Nóatúns og Krón
unnar. Melabúðin virðist hins vegar
dafna mjög vel þrátt fyrir styrk stóru
matvöruverslananna enda á búðin
sér traustan kúnnahóp sem verslar
þar reglulega.
Hagnaðurinn jókst um rúman
helming
Þessi hagnaður Melabúðarinnar
árið 2011 er tæplega 30 milljónum
krónum meiri en hagnaður verslun
arinnar árið 2010. Þá skilaði félagið
rúmlega 50 milljóna króna hagn
aði og var hrein peningaleg eign fé
lagsins 127 milljónir króna. Þá hafði
hrein eign félagsins hækkað úr 93
milljónum króna frá árinu 2009.
Hrein peningaleg eign móðurfélags
Melabúðarinnar hefur því nærri tvö
faldast á tveggja ára tímabili.
Á móti þessum eignum eru skuldir
upp á einungis 75 milljónir króna
og lækkuðu skuldirnar um nærri 25
milljónir króna á milli ára en þær voru
tæplega 100 milljónir króna í lok árs
2009. Staða Melabúðarinnar vænkast
því með hverju árinu sem líður og
samhliða því lækka skuldir félagsins.
Tekjurnar nálgast milljarð
Árstekjur Melabúðarinnar nálgast
nú milljarð króna, námu rúmlega
978 milljónum króna árið 2010. Þetta
er tekjuaukning frá árinu áður þegar
þær námu 919 milljónum króna.
48 starfsmenn unnu hjá Mela
búðinni árið 2010, bæði í fullu starfi
eða hlutastarfi, og námu launa
greiðslur fyrirtækisins þá nærri
94 milljónum króna. Ekki er tekið
fram í ársreikningi félagsins hversu
margir starfsmenn unnu hjá versl
uninni árið 2011 en launagreiðslur
fyrirtækisins námu rúmlega 105
milljónum króna. n
Melabúðin græddi
80 milljónir 2011
n Litla hverfisverslunin á Hagamelnum heldur áfram að mala gull
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Hrein peningaleg
eign móður félags
Melabúðarinnar hef-
ur því nærri tvöfaldast á
tveggja ára tímabili.
Tæplega 200 milljóna eignir
Melabúðin átti eignir upp á tæplega
200 milljónir króna í lok árs 2011.
Hagnaður félagsins jókst um rúmlega
helming á milli áranna 2010 og 2011.
Árni Páll á
Beinni línu
Árni Páll Árnason, nýkjörinn for
maður Samfylkingarinnar, verð
ur á Beinni línu á DV.is, þriðju
daginn 12. febrúar. Árni Páll
mætir á sjálfan sprengidaginn,
sem er viðeigandi því hann hefur
stimplað sig inn sem nýr formað
ur með talsverðum látum. Árni
Páll hefur gefið það út að hann
ætli sér að taka talsvert aðra
stefnu en Jóhanna Sigurðardóttir,
fráfarandi formaður og forsætis
ráðherra. Það ætti því að vera
fjörug Bein lína á þriðjudaginn
og eru lesendur hvattir til að
fylgjast með klukkan 13.00.
Ísfélagið
prófar líka
Ísfélagið í Vestmannaeyjum
mun fara sömu leið og Vinnslu
stöðin og láta starfsmenn sína
taka lyfjapróf. Elliði Vignisson,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
sagði í samtali við Eyjafréttir
í gær að íbúar bæjarins væru
komnir með nóg af vímu
efnaneyslu í bænum og þess
vegna hefði Vinnslustöðin riðið
á vaðið í baráttunni gegn vímu
efnum og árangurinn hefði strax
skilað sér, en ellefu manns var
sagt upp störfum í kjölfarið hjá
fyrirtækinu. Í viðtalinu við Eyja
fréttir sagði Elliði einnig að allar
líkur væru á því að fleiri fyrir
tæki í bænum, ásamt íþrótta
félögum, myndu fara þessa
sömu leið og biðja starfsmenn
sína að undirgangast lyfjapróf.
„Auðvitað er
þetta áfall“
3 „Ég er ekki með vinnu
og ég fæ ekki
borgaðan neinn
uppsagnarfrest.
Auðvitað er þetta
áfall,“ segir einn af
þeim ellefu skip
verjum sem sagt
var upp störfum hjá Vinnslustöð
inni í Vestmannaeyjum um helgina.
Lyfja próf voru tekin af áhöfnum
þriggja skuttogara fyrirtækisins og
þeim sem stóðust ekki prófin var
sagt upp störfum fyrirvaralaust.
Maðurinn var einn þeirra. Maðurinn
segist aðeins hafa tekið tvo smóka
af kannabis á gamlárskvöld, en lítið
magn af kannabis mældist í þvagi
hans í lyfjaprófunum.
Harmleikur á
Skagaströnd
2 Aðfaranótt síðastliðins
sunnudags brutu
st tveir piltar, átján
og nítján ára, inn á
heimili karlmanns
á áttræðisaldri á
Skagaströnd og
veittu honum alvar
lega höfuðáverka. Maðurinn hringdi
sjálfur í lögregluna klukkan hálf sex
að morgni og óskaði eftir aðstoð.
Hann var í kjölfarið fluttur á Fjórð
ungssjúkrahúsið á Akureyri. Annar
piltanna er dóttursonur mannsins en
samkvæmt lögreglunni á Akureyri er
talið að ástæðuna fyrir árásinni megi
rekja til kynferðisbrota. Það mun
skýrast á næstu dögum hvort meint
kynferðisbrot verði kærð til lögreglu.
Flýja frá Garði
1 Alda Karen er 23 ára
fjölfötluð stúlka.
Hún er einhverf
með Downs
heilkenni, floga
veiki og geð
ræna röskun,
meðal annars
geðhvarfasýki.
Hún var dregin
gegn vilja sínum inn á bað þegar
hún dvaldi í skammtímavistun í
Heiðarholti fyrr í vetur. Síðan það
gerðist hefur hún ekki farið þangað
og hefur ekki fengið önnur úrræði.
Móðir hennar, Kolfinna Magnús
dóttir, er að verða úrkula vonar og
er staðráðin í að fara frá Garði yfir
í Reykjanesbæ þar sem þeim hefur
verið boðin betri þjónusta.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni