Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Page 21
Snákarnir tóku völdin
Erlent 21Helgarblað 8.–10. febrúar 2013
Ótrúlega lík henni
n Nýsjálensk stúlka í DNA-próf
S
kólastelpa á Nýja-Sjálandi
var látin undirgang-
ast DNA-próf til að kanna
hvort að hún væri Madel-
eine McCann. Eins og margir vita,
hvarf Madeleine McCann árið
2007 og öll heimsbyggðin fylgd-
ist með leitinni að henni. Stúlk-
an þykir sláandi lík Madeleine, en
það var verslunareigandi á Nýja-
Sjálandi sem sá stúlkuna. Þá var
hún með föður sínum, en versl-
unareigandinn hringdi strax á lög-
reglu. Málið mun þó ekki vera lög-
reglurannsókn þar í landi heldur
óskaði lögreglan í London eftir
því að DNA-próf yrði framkvæmt.
Frekari ákvörðun verður tek-
in þegar niðurstaðan hefur verið
kunngjörð. n
astasigrun@dv.is
n Blómstrandi iðnaður í litlu kínversku þorpi n Ár snáksins gengur í garð um helgina
Í
litlu þorpi í austurhluta Kína,
skammt frá stórborginni Sjang-
haí, blómstrar iðnaður sem
gæti á Vesturlöndum talist harla
óvenjulegur. Um er að ræða
ræktun snáka og er talið að í þessu
litla þorpi séu um þrjár milljónir
snáka af ýmsum stærðum og gerð-
um. Þetta er býsna mikill fjöldi sé
litið til þess að íbúar þorpsins, sem
heitir Zisiqiao, eru ekki nema rétt
um þúsund og eru snákarnir því
þrjú þúsund sinnum fleiri. Fyrir
nokkrum áratugum var helsti at-
vinnuvegur íbúa landbúnaður og
fiskveiðar. En nú er öldin önnur
enda hefur eftirspurnin eftir snáka-
kjöti sjaldan verið jafn mikil og
einmitt nú þegar ár snáksins er að
ganga í garð í Kína.
Gott ár í vændum
„Við vonumst til þess að hagnaður
okkar muni tvöfaldast,“ segir Yang
Hongchang, 61 árs snákabóndi, í
viðtali við BBC. Hann bindur mikl-
ar vonir við ár snáksins sem gengur
í garð um helgina og býst við því að
næstu tólf mánuðir verði fjörugir og
ábatasamir.
Í Zisiqiao og í kringum þorpið
eru um hundrað býli sem rækta
snáka. Kjötið þykir eftirsóknar-
vert og selja bændurnir það meðal
annars til veitingastaða sem mat-
reiða það fyrir viðskiptavini sína.
Þá eru afurðir úr þeim einnig nýtt-
ar í lækningaskyni; snákasúpur
þykja gómsætar og eru sagðar bæta
ónæmiskerfið til muna.
Iðnaðurinn blómstrar sérstak-
lega yfir sumartímann og þá má
jafnan sjá steinsteyptar gryfjur
sem eru stútfullar af snákum, þar
á meðal kyrkislöngum (e. python),
höggormum (e. viper) og gler-
augnaslöngum (e. cobra). Ein
snákategund er álitin sérstaklega
hættuleg en það er hinn svokallaði
fimm skrefa snákur. Að sögn þorps-
búa er snákurinn svo banvænn að
ef þú ert bitinn kemstu í mesta lagi
fimm skref áfram áður en þú leggst
niður og bíður örlaga þinna – dauð-
ans.
Veiktist alvarlega
Yang hefur ræktað snáka um ára-
tugaskeið og var raunar sá fyrsti
í þorpinu sem hóf ræktun þeirra.
Hann segir í viðtali við BBC að þetta
hafi allt byrjað þegar hann veiktist
alvarlega fyrir margt löngu. Hann
vissi að lækningamáttur snáka væri
ótvíræður og ákvað að fanga einn
og freista gæfunnar. Yang náði góðri
heilsu í kjölfarið og ákvað hann því
að stofna fyrirtæki sem sérhæfði
sig í snákaræktun. Hann þénaði vel
á rekstrinum sem varð til þess að
þorpsbúar, einn af öðrum, ákváðu
að feta í fótspor hans.
Mikil velta
Eins og gefur að skilja er það ekki
með öllu hættulaust að rækta ban-
eitraða snáka. Hann þekkir dæmi
þess að fólk hafi ekki farið varlega
með alvarlegum afleiðingum. Einn
bóndi hafi til dæmis látið lífið eftir
að hafa verið bitinn. Ræktunin virð-
ist þó vera áhættunnar virði enda
bjuggu þorpsbúar áður fyrr við sára
fátækt, eða allt þar til snákarnir tóku
yfir. Nú eru þorpsbúar flestir þokka-
lega vel stæðir og eiga væntanlega
betri tíma í vændum á ári snáks-
ins. „Að temja og rækta snáka krefst
mikillar reynslu og góðrar tækni,“
segir Yang sem bætir við að fyrirtæki
hans velti sem samsvarar hundruð-
um milljóna króna á hverju ári. Það
eru ekki bara kínverskir neytendur
sem sækja í snákakjötið og afurðir
úr þeim heldur selur hann einnig
talsvert magn til Japans, Suður-
Kóreu, Þýskalands og Bandaríkj-
anna. n
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Að temja
og rækta
snáka krefst
mikillar reynslu
og góðrar tækni
Þurrkaðir Þessir snákar eru þurrkaðir og
síðan er þeirra neytt í lækningaskyni. Vin-
sælt er að búa til snákasúpur sem eiga að
vera góðar fyrir ónæmiskerfið. MyND ReuteRs
snákabóndi
Yang Hongchang
hefur mikla reynslu
af snákaræktun.
Fyrirtæki hans
veltir hundruðum
milljóna á ári
hverju. MyND ReuteRs
Breska stúlkan er ófundin
Leitin að McCann heldur áfram.