Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Page 33
33Helgarblað 8.–10. febrúar 2013
ára fangelsi voru múslímar sem árið 2000 rændu og raðnauðguðu sex unglings-
stúlkum í Ástralíu dæmdir í. Þeir fóru um í hópum á fáförnum stöðum og gripu bæði konur og
unglingstúlkur, fóru með þær á afvikinn stað þar sem þeim var nauðgað og þær neyddar til að fram-
kvæma munnmök á öllum hópnum. Málið vakti gríðarlega athygli á sínum tíma en mennirnir náðust.243
L
ennie var 49 ára smákrimmi
og bjó hjá bróður sínum
í Buttershaw í Bradford á
Englandi þegar hann hvarf
af yfirborði jarðar 11. ágúst
1996. Líkamsleifar hans fundust sjö
mánuðum síðar en það var ekki fyrr
en árið 2003 sem kennsl voru borin
á þær fyrir tilstilli DNA-sýna og lög-
reglan stóð frammi fyrir því verk-
efni að finna þann eða þá sem fyrir-
komu Lennie. En svo það yrði unnt
þurfti að grafast fyrir um margt, með-
al annars í einkalífi Lennie, en hann
var mikill kvennamaður, eins og sagt
var í denn, hafði átt fjórar eiginkon-
ur og segir sagan að hann hafi jafnvel
átt 50 börn.
Stefnumót á McDonald‘s
Að kvöldi 11. ágúst, 1996, fór Lennie á
McDonald‘s-stað til að hitta kærustu
sína, sagði hann bróður sínum. Það
olli bróður hans engum áhyggjum
að Lennie skilaði sér ekki heim síðar
sama kvöld, enda var lífsstíll Lennies
ekki háður klukkunni og vinnutími
smáglæpamanna einskorðast ekki
við dagsbirtu.
Að sögn bróður Lennie var ekki
óvanalegt að Lennie sæist ekki í tvo
daga eða svo sem hann eyddi hjá
þessum kvenmanni eða hinum.
Engu að síður leist bróður Lennie
ekki á blikuna þegar hann hafði ekki
heyrt frá Lennie í tvo heila sólar-
hringa, og hafði samband við lög-
regluna.
Sambýliskona bróður Lennie
sagði lögreglunni að hann hefði
fengið skilaboð frá kærustunni um
að hittast á McDonald‘s. „Hann
var himinlifandi því þau höfðu náð
saman aftur eftir að snurða hljóp á
þráðinn, og allt virtist í lukkunnar
velstandi,“ sagði sambýliskonan.
Sjö mánuðir liðu án þess að nokk-
uð spyrðist til Lennie, en í mars 1997
fundust líkamsleifar – efri hluti lík-
ama – í mýrlendi í Vestur-Jórvíkur-
skíri.
Dregur til tíðinda
Réttarmeinafræðingum þess tíma
var ómögulegt að bera kennsl á lík-
amsleifarnar og það varð ekki fyrr
en árið 2003 sem tókst með lífsýni
að sýna fram á að þar væri kominn
Leonard „Lennie“ Fulbirg, tja … eða
hluti af honum.
Lögreglan hóf frekari rannsókn
og skoðaði meðal annars hjúskap-
arstöðu Lennie og komst að því að
hann átti fjögur hjónabönd að baki,
auk fjölda sambanda, og hafði eign-
ast fjölda barna – sumir sögðu um 50.
En 23. júní, 2004, hljóp á snærið
hjá lögreglunni sem hafði fundið eina
af ástkonum Lennie, Tracey Camer-
on, 38 ára móður eins barna hans.
Grunur hafði fallið á hana og ástmann
hennar, Graham Haylett, og voru þau
bæði handtekin þann sama dag. Síðar
voru þau ákærð fyrir morðið á Lennie,
en lýstu sig bæði saklaus. Réttarhöld
hófust yfir þeim í janúar 2006 og
fullyrti sækjandi að þau hefðu myrt
Lennie því þau hefðu orðið ástfangin í
febrúar 1996, þegar Lennie var í varð-
haldi vegna máls sem varðaði barn-
aníð en var fellt niður. Lennie hafði
verið dæmdur fyrir slíkar sakir. Sagði
sækjandi að Tracey og Graham hefðu
litið á Lennie sem hindrun í vegi ást-
arsambands þeirra þegar honum var
sleppt í febrúar það ár.
Sakfellandi bréfaskrif
Tracey þvertók fyrir að hafa kom-
ið nálægt dauða Lennie; hún hefði
hætt við stefnumótið á McDonald‘s
kvöldið sem hann hvarf. Hún sagð-
ist hafa hitt hann nokkrum dögum
fyrr til að ræða við hann og slíta sam-
bandinu á vinalegum nótum.
Þegar leið á réttarhöldin kom ým-
islegt í ljós – Tracey hafði montað
sig af því að hafa fyrirkomið Lennie,
sundurlimað lík hans og gefið svín-
um. Lögreglan komst yfir bréf sem
hún hafði skrifað bæði Lennie og
Graham sem sýndu þá tvöfeldni sem
hún bjó yfir. Í bréfi til Lennie lýsti hún
yfir „óendanlegri“ ást til hans og í
bréfi til Grahams sagði hún: „Við verð-
um að fara varlega. Ég er gagntekin af
þér. Þú losnar ekki við mig, ég er þín.“
Fjórum dögum fyrir hvarf Lennie
skrifaði Tracey í bréfi til Grahams:
„Þetta er að verða búið“.
Þegar þar var komið sögu dvaldi
Tracey í kvennaathvarfi og fullyrti að
hún þorði ekki að vera heima þegar
Lennie losnaði úr varðhaldi. Reynd-
ar kom í ljós að hún hafði eytt kvöldi
þess dags með Lennie og meira að
segja haft við hann mök.
Dópaður og drepinn
Þremur dögum síðar, var kviðdóm-
ur upplýstur um, hitti Tracey Lennie
aftur, setti ólyfjan í drykk hans, fór
með hann heim þar sem Graham
gekk frá honum. Vistkona úr kvenna-
athvarfinu bar fyrir dómi að Tracey
hefði haft á orði að hún hefði „los-
að sig við Leonard“ eins og hún ætl-
aði sér. „Ég heyrði að hún hefði fyllt
hann með áfengi og lyfjum, höggvið
hann í spað og gefið svínunum,“
sagði vitnið.
Tracey var ekki ein um að gaspra
því Graham, greinilega ekki við eina
fjölina felldur, átti vingott við 25 ára
konukind og hafði verið helst til
lausmáll við hana. Að hennar sögn
hafði Graham gumað af því að hafa
hitt Lennie á McDonald‘s-staðnum
og tekið hann rækilega í karphúsið.
Kærastan hafi þá spurt hann: „hefur
þú einhvern tímann orðið manni að
bana?“ og Graham svarað að bragði:
„Já.“
Sektardómur
Þegar upp var staðið, 3. mars, 2006,
að loknum sex vikna réttarhöldum,
varð niðurstaða kviðdóms einróma;
Tracey Cameron og Graham Haylett
voru sek um morðið á Lennie. Að auki
var Graham sakfelldur fyrir að hafa
reynt að fá kærustu sína til að breyta
vitnisburði sínum.
Skötuhjúin voru dæmd til lífs-
tíðarfangelsis og gert að afplána að
minnsta kosti 20 ár.
Smá snúningur
Þess má til gamans geta að snurða
hljóp á þráðinn við rannsókn lög-
reglunnar níu mánuðum eftir að lík-
amsleifar Lennie fundust.
Þá hafði ættingi Grahams haft
samband við lögregluna og þóttist
vera eigandi áningar og árbíts-gisti-
húss í Blackpool. Sagðist hann heita
Williamson og fullyrti að Lennie hefði
dvalið á gistihúsinu í september - um
mánuði eftir að Lennie hvarf.
Williamson sagði enn fremur að
Lennie hefði verið alblóður og í fylgd
tveggja manna sem hótuðu að drepa
hann. Sex dögum eftir að Graham
var sakfelldur var Williamson þessi
dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar.
„Við verðum að
fara varlega. Ég er
gagntekin af þér. Þú losn-
ar ekki við mig, ég er þín.
n Mögulega varð smáglæpamaðurinn Lennie, að hluta til, svínafóður
SAÐNING
FYRIR
SVÍN Lennie Fulbirg Ekkert var vitað um afdrif smá-krimmans í rúmlega hálft ár.
Hilltop viðrinið
Lögreglumenn í Ohio í Banda-
ríkjunum prísa sig sæla eftir hafa
nappað svokallað Hilltop-viðrini
sem braust inn til kvenna, rændi
og ruplaði og starði svo á konurnar
meðan þær sváfu og káfaði jafnvel
á þeim. Innbrotaalda í Columbus í
Hilltop-hverfinu síðastliðið sumar
leiddi til handtöku Deneen Black.
Hann viðurkenndi innbrotin en
hann á að baki langan afbrotaferil
þar sem hann hefur meðal annars
verið dæmdur fyrir kynferðisbrot.
Lögregla hafði fylgst með hon-
um í nokkurn tíma áður en hann
var handsamaður, en hann hafði
þá meðal annars staðið fyrir utan
svefnherbergisglugga kvenna og
fylgst með þeim. Í einu tilviki vakn-
aði táningsstúlka við að hann stóð í
herberginu hennar og starði á hana.
Sturlaðist
Margir telja að ástæða þess að
Wade Frankum réðst á vegfarend-
ur á kaffihúsi í Sydney árið 1992,
hafi verið val hans á ofbeldis-
fullu sjónvarpsefni og bókmennt-
um og kvenhatur. Það er þó ekki
hægt að sanna eitt eða neitt í þeim
efnum enda framdi hann sjálfs-
víg eftir að hann hafði myrt sjö og
sært sex í nokkuð vel undirbúinni
árás á kaffihúsi í verslunarmið-
stöð. Eftir árásina hljóp hann út
úr verslunarmiðstöðinni og inn í
bílageymslu hennar. Þar tók hann
gísl og reyndi að neyða hann til að
aðstoða við flóttann. Það gekk ekki
eftir og þegar hann var skyndi-
lega umkringdur lögreglumönn-
um baðst hann afsökunar, gekk út,
kraup á kné og framdi sjálfsvíg.
Hinn franski
Kobbi kviðrista
Hinn frægi Kobbi kviðrista,
Jack the Ripper, sem vakti óhug
og hræðslu um langt skeið í
London átti sér kollega í Par-
ís í Frakklandi sem kallað-
ur var um tíma hinn franski
Kobbi kviðrista. Þar var vísað
til fjöldamorðingjans Joseph
Vacher sem frá 1892 til 1897
framdi að minnsta kosti ellefu
hrollvekjandi morð og ekki er
loku fyrir það skotið að fórn-
arlömb hans hafi verið mun
fleiri. Vacher þessi var bláfátæk-
ur og vansæll mjög og reyndi
tvívegis að stytta sér aldur. Þær
tilraunir urðu til þess að hann
var bæði skorinn og afskræmd-
ur á hálsi og andliti að hluta og
ófrýnilegur mjög. Vacher myrti
að minnsta kosti ellefu manns
á skömmum tíma. Eina konu,
fimm unglingsstúlkur og fimm
unglingsstráka. Lét hann ekki
nægja að stinga fórnarlömb
sín ítrekað með hníf heldur og
hirti úr þeim innyflin. Flestum
nauðgaði hann líka.