Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Síða 56
V egfarendur við Smiðjuveg í Kópavogi segja að það hafi verið eins og að fylgj- ast með olíuleit þegar dísil- tankur fylltist á bensínstöð og strokkurinn stóð upp úr tankin- um. Atvikið átti sér stað á bensín- stöð Orkunnar við Smiðjuveg á mið- vikudag. Eins og sést á meðfylgjandi mynd, sem vökull lesandi DV sendi blaðinu, sprautaðist olían duglega upp úr tankinum. Forsvarsmenn Skeljungs segja við DV að strax hafi verið hafist handa við að þrífa upp olíuna – og það hafi gengið mjög vel. „Þetta er alveg rosaleg sjón,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skelj- ungs í samtali við blaðið. „Eins og sést á myndinni er þarna olíubíll og það er verið að setja dísil á tankana. Það sem bílstjóranum lá- ist að gera, er að koma fyrir svokall- aðri „yfir-áfyllingarvörn“ sem stopp- ar dælinguna þegar tankurinn er að verða fullur. Úr því að hann kemur því ekki fyrir, þá sprautast olían út um loftgöt,“ segir Einar Örn. „Það er það sem er að gerast þarna.“ Einar Örn segist aldrei hafa heyrt um eða séð svona gerast áður. „Ég fór og ræddi við yfirmann bílstjór- anna til þess að komast að því hvern- ig þetta gæti gerst. Ég þekki ekki önn- ur dæmi þess. Þetta er mjög kómísk mynd, en sem betur fer var þetta ekki stórkostlega alvarlegt,“ segir hann. Skeljungur sá sjálfur um að hreinsa upp olíuna, þó að slökkvi- liðið hafi verið kallað til að sögn Einars. „Þetta voru ekki nema þrjá- tíu, fjörutíu lítrar sem þarna fóru. Við hreinsuðum þetta með til þess gerð- um klútum og það tók engan óskapa tíma,“ segir hann. n astasigrun@dv.is Svarta gullið! Dorrit gleymdi lykilorðinu n Forsetafrúin Dorrit Moussai- eff sló í gegn á samkomu sem haldin var á Listasafni Reykja- víkur á fimmtudag. Þar hófst listagjörningur Ingvars Björns Þorsteinssonar sem ber nafnið Largest Artwork in the World en þar ætlar listamaðurinn að búa til vettvang þar hann tengir saman fólk alls staðar að úr heiminum. Mark- miðið er að búa til stærsta listaverk í heimi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, tók fyrstu strok- una en eigin- kona hans, Dor- rit, hafði gleymt lykilorði sínu að Facebook þegar hún reyndi að skrá sig inn til þess að gera sína stroku í listaverkinu. Ekkert mál að hætta n Fjölmiðla- og veitingamað- urinn Sigmar Vilhjálmsson hefur losað sig við þann slæma ávana að nota munntóbak. Hann til- kynnti um lífsstílsbreytinguna á Facebook-síðu sinni. „Þetta byrj- aði allt saman af því að ég hélt að þetta væri töff. Mikið rosalega misskildi ég hugtakið töff,“ sagði hann. Munntóbaksleysið virð- ist reynast Simma auðveldara en hann hafði búist við. „Ég er gríðar- lega svekktur yfir því hvað það er í raun lítið mál að hætta að nota munn- tóbak. Hefði ég bara vitað það, þá hefði ég hætt fyrir svona 18 árum síð- an,“ segir Sigmar á fjórða degi munn- tóbaks- leysis- ins. Hendrik skilinn n Veitingamaðurinn Hendrik Her- mannsson og Halldóra Guðbjörg eru skilin eftir aðeins þriggja mánaða hjónaband. Þetta kom fram í Séð og heyrt. Það vakti mikla athygli þegar Hendrik, sem er sonur fjölmiðlamanns- ins Hermanns Gunnarssonar, Hemma Gunn, og Halldóra gengu í það heilaga eftir aðeins nokkurra mánaða samband en ástarneistinn virðast hafa kuln- að hratt því nú eru þau skilin eftir aðeins þrjá mánuði. Brúðkaupið var hið glæsi- legasta hjá þeim hjónum og fjölmargir listamenn tróðu upp. „Þetta er alveg rosaleg sjón“ n Dísilolía streymdi upp á bensínstöð í Kópavogi Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 8.–10. feBRúaR 2013 16. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr. Í stríðum straumum Vegfarandi tók þessa mynd við Orkuna á Skemmuvegi og hér sést vel hvernig olían streymdi upp úr tankinum. MynD BalDVIn GuðMunDSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.