Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Side 4
4 Fréttir 26.–28. apríl 2013 Helgarblað Ísland vinsælt hjá Bretum Ísland verður sífellt vinsælli áfangastaður breskra ferðamanna samkvæmt frétt sem birtist á breska ferðavefnum Travelbite í vikunni. Upplýsingar Travelbite eru byggðar á tölum frá kortafyrir­ tækinu American Express og korta­ veltu Breta á erlendri grundu. Er Ís­ land í hópi þeirra áfangastaða sem vaxið hafa hvað mest í vinsældum hjá Bretum á undanförnum miss­ erum miðað við fyrrgreindar upp­ lýsingar. Á fyrsta ársfjórðungi 2012 var Ísland í 21. sæti yfir vinsælustu áfangastaði breskra ferðamanna. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var Ísland hins vegar í 18. sæti. Sam­ kvæmt frétt Travelbite eru norður­ ljósin eitt helsta aðdráttaraflið fyrir breska ferðamenn. Ölvun í VMA Dimmitteringu í Verkmennta­ skólanum á Akureyri var aflýst eftir hádegið á miðvikudag vegna óspekta. Þetta kemur fram á vef Vikudags. Þar segir að nokkrir nem­ endur hafi verið undir áhrifum áfengis í skólanum. Einn nem­ andi hafi kastað bjór í kennara, brotið rúðu og pissað í ruslafötu. Ölvun er ekki heimil innan veggja skólans. Hjalti Jón Sveins­ son skólameistari hefur staðfest að dagskránni eftir hádegið hafi verið aflýst vegna atburðanna. Á annað hundrað nemenda VMA tóku daginn snemma, eins og venja er, og vöktu athygli víða um bæinn. Þeim var ekið á milli hverfa þar sem þeir vöktu kennara sína. Að þeim rúnti loknum lá leiðin aftur í skólann þar sem einhverjir virðast hafa farið fram úr sér. „Að þessum hring akstri loknum lá leiðin aftur í skólann þar sem brugðið var á leik með ýmsum hætti – á göng­ um skólans og síðan í Gryfjunni,“ segir á heimasíðunni. Þ að er mjög jákvætt að það sé hægt að sjá þetta með réttum augum loksins,“ segir Bjarn­ þór Erlendsson sem vann fullnaðarsigur í málinu sem hann höfðaði gegn Lýsingu hf. Hann er að vonum glaður með niðurstöðu Hæstaréttar sem kveðinn var upp á miðvikudag. Dregin á asnaeyrum Málið er búið að taka langan tíma í dómskerfinu, en tæp tvö ár eru síð­ an Bjarnþór stefndi Lýsingu. „Ég trúði því ekki að þetta gæti tekið svona langan tíma og gæti verið svona flók­ ið. Það var svolítið verið að draga okk­ ur á asnaeyrunum, en þetta fór vel að lokum.“ Aðspurður hvort ekki hafi verið fagnað mikið þegar dómurinn loksins féll á miðvikudaginn, segist Bjarnþór hafa farið varlega í það. „Ég held ég fagni ekkert fyrr en eitthvað kemur inn á reikninginn minn,“ segir hann hlæjandi. Bjarnþór vonast til að dómurinn verði fordæmisgefandi og að hinir 3.999 lánþegarnir njóti góðs af niður­ stöðunni í málinu. Hafdís Una Bolladóttir, kona Bjarn­ þórs, er einnig mjög ánægð með niðurstöðuna og er fegin að málinu er loksins lokið. „Þetta tók langan tíma en borgaði sig algjörlega,“ segir hún glöð í bragði. Fordæmisgefandi „Málið er klárlega fordæmisgefandi að mínu viti, það er enginn efi í mínum huga um það,“ segir Björn Þorri Vikt­ orsson, lögmaður Bjarnþórs. Um er að ræða fyrsta dóminn sem byggir á lögum um neytendalán og gæti hann haft mikla fjárhagslega þýð­ ingu fyrir fjögur þúsund lánþega hjá Lýsingu með sambærilega samninga og tekist var á um í máli Bjarnþórs. Lýs­ ing hefur gefið það út að félagið ætli að taka sér tíma til að fara yfir niðurstöð­ ur Hæstaréttar og meta hvort dómur­ inn hafi fordæmisgildi líkt og Björn Þorri fullyrðir. Verðtryggingin fallin Einhverjir hafa gengið svo langt að segja að verðtryggingin sé fallin með dómnum en Björn Þorri segir það kannski talsvert gáskafulla skýringu sem ekki sé lögfræðileg innistæða fyrir. „En verðtryggingin er sannarlega fallin í þessari gerð samninga,“ segir Björn Þorri. Um er að ræða svokallaða bíla­ samninga, eða kaupleigusamninga, sem dæmdir voru sem lánssamningar í fyrsta prófmálinu sem vannst fyrir Hæstarétti 16. júní 2010. Þessir samn­ ingar voru sérstakir að því leytinu til að þeir voru 50 prósent gengistryggðir og 50 prósent í íslenskum krónum. Bjarn­ þór hafði gert samning um Toyota Avensis­bifreið árið 2006 og var samn­ ingsfjárhæðin við Lýsingu rétt rúmlega tvær milljónir. „Þegar farið var að skoða þetta bet­ ur þá töldu menn að verðtryggingar­ ákvæðin eins og þau voru sett upp í þessum samningi stæðust ekki skilyrði neytendalánalaga um skýrleika og þá voru heldur ekki skýr ákvæði um það í samningnum að Lýsingu væri heim­ ilt að breyta vöxtunum einhliða með þeim hætti sem félagið gerði,“ segir Björn Þorri. Bjarnþór stefndi Lýsingu í júní 2011. Í héraðsdómi var tekist á um þrjú atriði. Eftir að Lýsing greiddi sig frá einu þeirra, atriði sem snérist um tæpa hálfa milljón króna – án þess þó að viðurkenna að félaginu bæri skylda til þess – stóðu eftir tvö atriði. Það er, að Lýsingu hafi verið óheimilt að verð­ bæta þann hluta kröfunnar sem til­ greindur var í samningnum í íslensk­ um krónum auk þess sem óheimilt hafi verið að reikna breytilega vexti á þann hluta kröfunnar. Áfrýjun Lýsingar kom þeim í koll Í Héraðsdómi Reykjavíkur vann Bjarn­ þór verðtryggingarhluta málsins en héraðsdómur tók ekki undir að Lýs­ ingu hefði verið óheimilt að breyta vöxtunum. Lýsing ákvað þó að áfrýja málinu til Hæstaréttar þar sem um fjögur þús­ und sambærilegir samningar væru hjá félaginu og það varðaði því mikla fjár­ hagslega hagsmuni fyrir Lýsingu og neytendur að fá úr þessu skorið. „Við auðvitað gagnstefndum til að fá skorið úr um vextina líka og nú liggur dómur Hæstaréttar fyrir. Hæsti­ réttur féllst á bæði þessi atriði og Bjarn­ þór hafði þá fullnaðarsigur í málinu.“ Í dómi Hæstaréttar kemur fram að óumdeilt sé að lög um neytenda­ lán eigi við um samning Bjarnþórs og Lýsingar. Ljóst væri að lögin gerðu rík­ ar kröfur til skýrleika lánssamninga af þeim toga sem um ræddi. Hvergi kæmi fram í samningnum að hann væri verðtryggður að því er varðaði þann lánshluta sem var í íslenskum krónum. Þá væri þess hvergi getið í samningnum hver væri grunnvísitala hans. Samningurinn hafi, að mati Hæsta­ réttar, því ekki borið með sér að sá hluti hans sem tilgreindur var í íslenskum krónum hafi verið verðtryggður. Þá þótti ljóst að hvorki samningur aðila né greiðsluáætlun sem var hluti hans hafi með skýrum hætti borið með sér að vextir af umræddum lánshluta hafi átt að vera breytilegir. Var það niðurstaða Hæstaréttar að Lýsing gæti ekki byggt kröfur sínar á hendur Bjarnþóri á skilmálum sem ekki komu skýrt fram í samningi aðila. Var Lýsing hf. því dæmt til að greiða manninum þá fjárhæð sem hann hafði ofgreitt, ríflega 680 þúsund krónur, auk 2,5 milljóna króna í málskostnað í hér­ aði og fyrir Hæstarétti. Hvar eru allir hinir? En hvað með hina 3.999 lántakend­ urna sem eiga nú rétt á sömu endur­ greiðslu byggða á þessum dómi? Björn Þorri segir aðspurður að boltinn sé hjá Lýsingu núna en auglýsir í raun eftir öllum hinum. „Hvar eru þessir 3.999 lánþegar? Af hverju hafa þeir ekki farið með málin sín fyrir dóm? Kannski eru þeir bara sáttir, kannski vantar þá enga peninga eða eru fullkomlega sáttir með að aðstoða Lýsingu við að reisa sig úr rústunum. Ég veit það bara ekki,“ segir Björn Þorri. Í yfirlýsingu á heimasíðu Lýsingar sem birtist samdægurs og dómurinn var birtur segir að fyrirtækið ætli að gefa sér „skamman tíma til að fara yfir forsendur og niðurstöður Hæstaréttar til að meta hvort og þá að hvaða leyti dómurinn hefur fordæmisgildi fyrir aðra samninga hjá félaginu.“ Í yfirlýsingunni segir að gerðar hafi verið ýmsar ráðstafanir til að tryggja stöðu viðskiptamanna Lýsingar ef dómar falla þeim í vil og Lýsingu verði gert að endurreikna samninga og/ eða endurgreiða þeim og hefur Lýsing tryggt sér nægilegt laust fé til að mæta þeim niðurstöðum. Ljóst er að niður­ staðan, reynist hún fordæmisgefandi líkt og Björn Þorri vill meina, gæti reynst þungt fjárhagslegt högg fyrir Lýsingu. Ef það má gefa sér að allir hin­ ir lánþegarnir fengju sömu upphæð og Bjarnþór fékk endurgreidda þá gæti það þýtt að Lýsing væri við að endur­ greiða 2,7 milljarða króna eða meira. n Maðurinn seM lagði lýsingu n Bíður með að fagna n Verðtryggingin í bílasamningum er fallin Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is „Hvar eru þessir 3.999 lánþegar? Af hverju hafa þeir ekki farið með málin sín fyrir dóm? Kannski eru þeir bara sáttir, kannski vantar þá enga peninga. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Lagði Lýsingu Bjarnþór og Hafdís eru að vonum sátt við dóm Hæstaréttar, en þau unnu fullnaðarsigur í máli sem þau höfðuðu gegn Lýsingu hf. Milljarðahagsmunir Björn Þorri Viktorsson lagði Lýsingu í bílasamningsmáli sem hann fullyrðir að sé fordæmisgefandi og gæti þýtt að þúsundir lántakenda Lýsingar fái milljarða endurgreidda sem þeir hafi ofgreitt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.