Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Side 6
6 Fréttir 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
Pólitískar ofsóknir
n Ármann og Gunnar í hár saman
Á
rmann Kr. Ólafsson, bæjar
stjóri Kópavogsbæjar, sakaði
Gunnar I. Birgisson, bæjar
fulltrúa Kópavogsbæjar, um
pólitískar ofsóknir gagnvart íþrótta
félaginu HK á bæjarstjórnarfundi
Kópavogsbæjar á þriðjudag.
Þar bókaði Gunnar að hann teldi
ljóst að nýting nokkurra íþrótta
mannvirkja væri ekki ásættanleg eftir
að hafa skoðað tölur þar að lútandi.
„Sérstaklega á þetta við um knatt
húsið og tvöfaldan íþróttasal í Kórn
um,“ bókaði Gunnar meðal annars.
Þetta sætti flokksbróðir hans Ár
mann sig ekki við og sakaði Gunnar
I. og Aðalstein Jónsson, bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, um pólitískar
ofsóknir. „Þær ályktanir sem bæjar
fulltrúarnir Gunnar Ingi Birgisson
og Aðalsteinn Jónsson draga af taln
ingum í íþróttahúsum eru beinlínis
rangar og einkennast af pólitískum
ofsóknum gagnvart einu íþrótta
félagi,“ segir í bókun Ármanns. n
Laus við
saurgerla
Saurgerlamengun er ekki leng
ur yfir viðmiðunarmörkum í
Nauthólsvík, samkvæmt niður
stöðum mælinga úr sýnatöku
Heilbrigðiseftirlits Reykjavík
ur þann 22. apríl síðastliðinn.
Það er því nú í lagi að synda þar.
Heilbrigðiseftirlitið hafði varað
við sjósundi þar dagana 15.–22.
apríl vegna viðgerða í fráveitu
dælustöðinni við Hafnarbraut
í Kópavogi sem skapaði hættu
á saurgerlamengun. Það var
Kópavogsbær sem stóð fyr
ir framkvæmdinni og markmið
hennar var meðal annars að
auka rekstraröryggi dælustöðv
arinnar til þess að minnka líkur
á mengun.
Dvalarheimilið
sýknað
Dvalarheimili aldraðra á
Húsavík var sýknað á miðviku
dag í Hæstarétti af kröfu fyrrver
andi framkvæmdastjóra heimil
isins um greiðslur fyrir bakvaktir
frá því í september 2007 til febr
úar 2011. Framkvæmdastjórinn
krafðist fyrir dómi að fá greiddar
24 milljónir með dráttarvöxt
um. Segir í dómnum að upphaf
lega hafi verið samið við fram
kvæmdastjórann um að sinna
einnig verkefnum hjúkrunar
fræðings. 2004 var nýr ráðn
ingarsamningur gerður og þá
var vinnutími ekki sérstaklega
skilgreindur. Hæstiréttur taldi
að framkvæmdastjórinn ætti
ekki rétt á sérstökum launa
greiðslum vegna bakvakta.
Arður 70 prósent
af veiðigjaldinu
A
rðgreiðsla hluthafa HB
Granda í fyrra nam tæp
lega 70 prósentum af
veiðigjaldinu sem út
gerðin greiddi til ríkis
ins á árinu. Þetta kemur fram í
ársreikningi félagsins fyrir árið
2012 sem nýlega var skilað til
ársreikningaskrár. Sú arðgreiðsla
var vegna ársins 2011 en arður
tiltekinna ára hjá fyrirtækjum er
greiddur út árið eftir.
Útgreiddur arður til hluthafa
HB Granda nam ríflega fjórum
milljónum evra, um 680 milljón
um króna, í fyrra, á meðan veiði
gjaldið sem útgerðin greiddi nam
rúmlega 5,9 milljónum evra eða
rúmum milljarði króna. Hagnaður
útgerðarfélagsins í fyrra nam rúm
lega 2.500 milljónum króna.
Stærstu einstöku eigendur HB
Granda eru Arion banki, sem
tók yfir um þriðjungshlut Ólafs
Ólafssonar í útgerðinni, fjöl
skylda Árna heitins Vilhjálms
sonar og Kristján Loftsson.
1.700 milljónir í arð
Fjallað hefur verið um málefni HB
Granda í fjölmiðlum síðustu daga
en í þeirri umfjöllun hefur kom
ið fram að félagið hyggist greiða
hluthöfum sínum 1.700 milljónir
króna í arð árið 2013 vegna hagn
aðar ársins í fyrra. Þessi arður
nemur því miklum meirihluta af
hagnaði HB Granda í fyrra.
Um þetta segir í skýrslu stjórn
ar HB Granda í ársreikningnum:
„Stjórn félagsins leggur til að á ár
inu 2013 verði vegna rekstrarársins
2012 greiddur 1 kr. arður af hverj
um hlut útistandandi hlutafjár til
hluthafa, eða 1.698 millj. kr. (um 10
millj. evra á lokagengi ársins 2012).
Arðgreiðslan samsvarar 6,0% af
eigin fé eða 6,7% af markaðsvirði
hlutafjár í lok árs 2012.“
Á sama tíma og hluthafar HB
Granda ætla að taka sér þessar
tæpu 1.700 milljónir króna í arð
er gert ráð fyrir að útgerðin greiði
veiðigjöld vegna yfirstandandi
fiskveiðiárs upp á um 1.800 millj
ónir króna.
Grynnka á skuldum sínum
Athygli vekur í ársreikningi HB
Granda að þrátt fyrir útgreiðslu
arðsins og greiddra veiðigjalda, og
þrátt fyrir að fyrir liggi að félagið
þurfi að greiða tvöfalt hærra veiði
gjald í ár en í fyrra, grynnkaði út
gerðin verulega á skuldum sínum
í fyrra.
HB Grandi greiddi niður lang
tímaskuldir fyrir rúmlega 35 millj
ónir evra, tæplega sex milljarða
króna í fyrra. Heildarskuldir fé
lagsins lækkuðu þá úr rúmlega
165 milljónum evra og niður í
rúmlega 135 milljónir evra. Þess
ar afborganir eru í takti við skulda
niðurgreiðslur félagsins síðastliðin
ár en grynnkað hefur verið hratt
á skuldunum frá hruninu 2008.
Árið 2011 greiddi HB Grandi sem
nam 23 milljónum evra af skuld
um sínum. Eigið fé félagsins jókst
sömuleiðis um nærri tólf milljónir
evra á milli ára, fór úr 157 milljón
um evra og í 169 milljónir.
HB Grandi er því jafnt og þétt að
greiða niður skuldir sínar á sama
tíma og hagnaður útgerðarinnar
helst góður ár frá ári og hluthaf
ar félagsins geta greitt sér út veg
legan arð. Staða útgerðarfélagsins
er ógnarsterk um þessar mundir
enda kvótahæsta útgerð landsins
þegar litið er til íslenskra aflaheim
ilda. n
n Staða HB Granda er ógnarsterk n Grynnkað verulega á skuldum
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Arður til jafns við
veiðigjald Arðurinn sem
hluthafar HB Granda ætla
að taka út úr félaginu í
ár nemur nærri jafn hárri
upphæð og veiðigjald
félagsins. Kristján Lofts-
son er einn af stærstu
hluthöfum HB Granda.„Arðgreiðslan
samsvarar
6,0% af eigin fé eða
6,7% af markaðsvirði
hlutafjár í lok árs 2012
Fiskimjölsverksmiðja Á Akranesi rekur HB Grandi meðal annars fiskimjölsverksmiðju.
Staða félagsins er mjög sterk um þessar mundir.