Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Síða 9
Fréttir 9Helgarblað 26.–28. apríl 2013
Valitor er stuðningsaðili
Ferðafélags Íslands.
Með fróðleik í fararnesti
Kræklingaferð í Hvalfjörð, 27. apríl kl. 10.
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 131153
Allar nánari upplýsingar á hi.is
25. maí kl. 11 – Gönguferð um söguslóðir
Háskóla Íslands.
8. júní kl. 10 – Gönguferð um Þingvallaþjóðgarð
utan alfaraleiðar.
31. ágúst kl. 11 – Sveppaferð í Heiðmörk.
21. september kl. 11 – Gönguferð þar sem
matur, saga og menning verða meginefnið.
Næstu ferðir:
Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, og Halldór Pálmar
Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurnesjum, leiða
ferð á slóðir kræklingsins í Hvalfirði. Kræklingi verður safnað og fræðst um hann og
verkun hans. Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, kl. 10.
Gert er ráð fyrir að ferðin taki um það bil þrjár klukkustundir að akstrinum í Hvalfjörð
meðtöldum. Mælt er með því að þátttakendur taki með sér stígvél og ílát fyrir
krækling. Ferðin er farin í samvinnu við Ferðafélag barnanna og er öllum opin.
Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands
halda áfram samstarfi sínu um
fræðandi gönguferðir sem hófust
á aldarafmæli skólans 2011.
Reynsla og þekking fararstjóra
Ferðafélagsins og þekking kennara
og vísindamanna Háskóla Íslands
blandast saman í áhugaverðum
gönguferðum um höfuðborgarsvæðið
og næsta nágrenni þess.
Þátttaka er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Hermann stýrir
Rauða krossinum
Hermann Ottósson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Rauða
krossins á Íslandi. Hermann er
með BA-próf í mannfræði og fé-
lagsfræði frá Háskóla Íslands,
cand. mag í sömu fögum frá Há-
skólanum í Árósum, auk þess að
vera með MBA-gráðu frá Við-
skiptaháskólanum í Árósum.
Frá 2010 hefur Hermann
starfað sem forstöðumaður
Markaðsþróunar- og fyrirtækja-
þjónustu Íslandsstofu, en áður
sem sviðsstjóri og skrifstofu-
stjóri hjá Útflutningsráði Íslands
frá 2002. Í störfum sínum hefur
Hermann öðlast víðtæka reynslu
af íslensku atvinnulífi, markaðs-
málum og alþjóðlegum sam-
skiptum, að því er fram kemur á
heimasíðu Rauða krossins.
Hermann tekur við starfinu
af Kristjáni Sturlusyni. Kristján
hefur gegnt stöðu framkvæmda-
stjóra í átta ár, en hverfur nú til
starfa hjá Hafnarfjarðarbæ sem
sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Uppbygging
heildrænnar
þjónustu
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og
Guðbjartur Hannesson velferð-
arráðherra undirrituðu í vikunni
viljayfirlýsingu um uppbyggingu
heildrænnar þjónustu við aldr-
aða í Hafnarfirði. Í tilkynningu
frá Hafnarfjarðarbæ kemur fram
að með yfirlýsingunni staðfesti
aðilar vilja sinn til að fylgja eftir
sameiginlegri stefnumótun frá ár-
inu 2006 um þróun heildrænnar
þjónustu við aldraða í Hafnarfirði
á næstu árum.
„Í yfirlýsingunni er meðal
annars fjallað um fyrirhugaða
miðstöð öldrunarþjónustu á Sól-
vangi en nú þegar undirbúningur
að byggingu nýs hjúkrunarheim-
ilis er hafinn og fyrir liggja áætl-
anir um hvenær það mun taka
formlega til starfa er mikilvægt
að samhliða sé hugað að breyttu
hlutverki Sólvangs og þeirri þjón-
ustu sem þar hefur verið stefnt að.
Af hálfu velferðarráðuneytisins er
lýst yfir vilja til að skipa stýrihóp
sem falið verði að gera tillögur að
fyrirkomulagi þjónustunnar og
samþættingu hennar fyrir árslok
2013,“ segir í tilkynningu Hafnar-
fjarðarbæjar.
Þar kemur jafnframt fram að
bæjarstjórn hafi áður lýst yfir vilja
sínum til að endurskoða stærð nýs
hjúkrunarheimilis í Skarðshlíð
með mögulegri stækkun þess úr
60 hjúkrunarrýmum í 80 rými. Er
vilji ráðuneytisins staðfestur með
yfirlýsingunni til að veita bænum
slíka heimild. Ekki er þó búist við
því að heimilið taki til starfa fyrr
en í ársbyrjun 2015 en upphaf-
legar áætlanir gerðu ráð fyrir að
það yrði tekið í notkun á þessu ári.
n 14 til 25 prósent kjósenda geta fellt frambjóðendur af þingi
Svona strikar þú út af lista
E
ftir að lögum um alþingiskosn-
ingar var breytt árið 2000 er
orðið auðveldara fyrir kjósend-
ur að hafa áhrif á niðurstöður
kosninga með útstrikunum.
Útreikningarnir eru þó töluvert
flóknir og mismunandi er hve stór
hluti kjósenda þarf að strika út mann
af lista til að hann falli niður um sæti.
Fer það eftir fjölda þingsæta sem
flokkur fær í kjördæminu og sæti
frambjóðandans sem strikaður er
út. Til að hafna frambjóðanda með
þessum hætti er einfaldlega strikað
yfir nafn hans á kjörseðlinum.
Ætla má að um 14 til 25 prósenta
útstrikana á einum frambjóðanda
nægi til að fella hann niður um eitt
sæti, og jafnvel af þingi. Nái flokkur til
að mynda aðeins einum manni inn á
þing og fjórðungur kjósenda í kjör-
dæminu striki frambjóðandann út,
þá dugir það til að fella hann niður
í annað sæti á listanum og þar með
koma í veg fyrir að hann fái þingsæti.
Fái flokkur hins vegar fjóra menn
kjörna á þing þá þarf rúmlega 16 pró-
senta þátttöku í slíkri útstrikunar-
aðgerð til að frambjóðandinn falli
niður um sæti og nái ekki kjöri sem
aðalmaður inn á þing. Hann yrði þá
fyrsti varamaður í staðinn. Miðast
þetta við að ekki sé hróflað við öðr-
um frambjóðendum á listanum.
Stuðningsmenn þessa fjórða
manns gætu til dæmis beitt þeim
mótleik að strika út fimmta mann
listans og hafa þannig frekari áhrif á
uppröðunina. Þá geta frekari útstrik-
anir ofar á lista gert það erfiðara að
víxla röð frambjóðenda.
Það hefur enn ekki gerst í alþingis-
kosningum að menn hafi fallið út
af þingi vegna útstrikana en í kosn-
ingunum árið 2007 og 2009 færðust
nokkrir frambjóðendur niður um
sæti vegna slíkra aðgerða.
Árið 2007 féll Björn Bjarnason,
frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, úr
öðru sæti niður í það þriðja vegna út-
strikana og það sama gerði Árni John-
sen. Hann féll einnig niður um sæti
í kosningum árið 2009, sem og Guð-
laugur Þór Þórðarson. n solrun@dv.is
Færðir til Útstrikanir gerðu að verkum í
kosningum 2007 og 2009 að Björn Bjarna-
son, Árni Johnsen og Guðlaugur Þór féllu
niður um sæti.