Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Síða 28
28 Erlent 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
É
g batt aldrei neinar vonir við
Barack Obama og ég skrif-
aði um það fyrir forsetakosn-
ingarnar árið 2008. Það sem
kom mér hins vegar á óvart
eru árásir hans á borgaralegt frelsi.
Þar gengur hann lengra en mig hefði
nokkurn tímann órað fyrir og það er
erfitt að útskýra þetta,“ segir Noam
Chomsky, einn þekktasti málvís-
indamaður heims í viðtali við vef-
miðilinn Truth Out. Chomsky, sem
skrifað hefur tugi bóka um banda-
ríska utanríkisstefnu, gagnrýnir
Obama harðlega og segir hann hafa
beitt sér af meiri hörku gegn borg-
aralegum réttindum en flestir forver-
ar hans.
„Aðför að tjáningarfrelsinu“
Chomsky nefnir sérstaklega dóm
sem féll árið 2010 og snerist um ráð-
leggingar lögfræðistofunnar Human-
itarian Law Project til samtaka sem
eru á lista bandarískra stjórnvalda
yfir hryðjuverkasamtök. „Málið var
höfðað að frumkvæði Obama og er
mjög alvarleg aðför að frelsi banda-
rískra borgara. Hann hagnast ekkert
á þessu sjálfur pólitískt séð. Raunar
vita fæstir af þessu máli, en með því
er merking orðasambandsins „efn-
islegur stuðningur við hryðjuverk“
víkkuð út og heimfærð yfir á tján-
ingu.“ Chomsky óttast fordæmis-
gildið sem dómsúrskurðurinn setur.
„Þetta gæti í raun þýtt að ef einhver
hitti meðlim hryðjuverkasamtaka og
hvetji hann til að grípa til friðsam-
legra aðgerða þá gerist viðkomandi
sekur um stuðning við hryðjuverk.
Ég hef umgengist og rætt við með-
limi samtaka sem eru á hryðjuverka-
listanum og mun halda því áfram.
Obama vill að þetta sé flokkað sem
glæpur en það er einfaldlega að-
för að tjáningarfrelsinu. Ég skil ekki
hvað honum gengur til.“ Chomsky
segir listann yfir hryðjuverkamenn
hvorki eiga sér siðferðilegar né laga-
legar stoðir og bendir á að aðeins séu
örfá ár síðan nafn Nelsons Mandela
var fjarlægt þaðan.
Í hópi með Birgittu Jónsdóttur
Árið 2011 setti Bandaríkjaþing lög
sem heimila stjórnvöldum að beita
hernum gegn almennum borgur-
um ef grunur leikur á að þeir tengist
hryðjuverkahópum með einhverj-
um hætti. Ákvæðin gera yfirvöldum
kleift að handtaka hina grunuðu,
pynta þá og hafa í haldi eins lengi
og þurfa þykir án nokkurs dómsúr-
skurðar. Stjórnvöld eru ekki skyldug
til að leggja fram nein sönnunargögn
og grunaðir hryðjuverkamenn eiga
engan rétt á lögfræðiaðstoð. Hóp-
ur aðgerðasinna og blaðamanna
kærði lögin í fyrra. Þeirra á meðal
eru Noam Chomsky sjálfur og þing-
konan Birgitta Jónsdóttir og stendur
málið enn yfir.
Segir umræðuna einkennilega
Noam Chomsky víkur að umrædd-
um lagaákvæðum í viðtalinu og
segist óánægður með viðbrögð al-
mennings við þeim. „Einu mótmæl-
in snúast um varðhald yfir banda-
rískum ríkisborgurum, en ég skil
ekki hvers vegna við ættum að hafa
rétt á að halda neinum í varðhaldi án
dómsúrskurðar,“ segir hann og bæt-
ir því við að umræðan um dróna-
hernað Bandaríkjastjórnar hafi verið
á svipuðum nótum. „Fólk mótmælti
morðinu á Anwar Al-Awlaki vegna
þess að hann var bandarískur ríkis-
borgari. En hvað með þá sem hafa
ekki ríkisborgararétt? Höfum við rétt
á að taka viðkomandi af lífi ef sá gáll-
inn er á forsetanum?“
Í stjórnartíð Obama hafa sex upp-
ljóstrarar verið ákærðir og er gortað
af því á kosningavef hans. „Ég veit
ekki til hverra hann er að reyna að
höfða. Ef hann var að reyna að ginna
harða þjóðernissinna til fylgilags
við sig þá er það til lítils gagns. Þeir
kjósa hann hvort sem er ekki,“ seg-
ir Chomsky sem telur að borgaraleg
réttindi og grundvallarreglur réttar-
ríkisins séu á hröðu undanhaldi í
Bandaríkjunum. n
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
ÁrÁsir Obama Á
bOrgaralegt frelsi
n Noam Chomsky gagnrýnir forseta Bandaríkjanna harðlega
„Fólk mótmælti
morðinu á Anwar
Al-Awlaki vegna þess að
hann var bandarískur rík-
isborgari. En hvað með
þá sem hafa ekki ríkis-
borgararétt? Höfum við
rétt á að taka viðkom-
andi af lífi ef sá gállinn er
á forsetanum?
Barack Obama Forseti Bandaríkjanna er sagður hafa beitt sér gegn grunngildum banda-
ríska réttarríkisins með umdeildri löggjöf um hryðjuverkamenn.
Noam Chomsky Einn þekktasti fræði-
maður heims segir að aðför Obama að
borgaralegum réttindum komi sér á óvart.
Fundu
mannseyra
Lögregla hefur lokað kirkjugarði
í Aylesbury í Buckingshamskíri
á Englandi, eftir að maður sem
var á göngu þar með hund sinn
fann þar eyra. Það var hund-
ur mannsins sem veitti eyr-
anu athygli, byrjaði að þefa af
því og ætlaði svo að gæða sér
á því þegar maðurinn tók það
af honum. Maðurinn tók eyrað
með sér heim en var ekki viss
um hvort um mannseyra væri
að ræða, en lét lögreglu vita
um fundinn. „Mér er nú sagt að
þetta sé mannseyra, það hlýtur
að vera, annars myndi lögreglan
standa í öllu þessu veseni,“ sagði
maðurinn í samtali við Daily
Mail.
Náði syninum
til baka
Kallui Atteya frá Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum náði syni sínum
til baka frá Egyptalandi en fað-
ir hans hafði farið með hann frá
Bandaríkjunum og neitaði að
leyfa móður hans að hitta hann.
Móðirin klæddist hefðbund-
inni búrku, múslimaklæðnaði,
þannig að einungis sást í augu
hennar. Þegar sonur hennar
kom úr skólarútunni beið hún
þar og sonur hennar þekkti bláu
augun hennar um leið og fylgdi
móður sinni án þess að segja
orð. Mæðginin biðu í þrjár vik-
ur á öruggum stað áður en þau
fóru aftur til Bandaríkjanna en
faðir drengsins var eftirlýstur af
bandarískum yfirvöldum fyrir
að hafa neitað móðurinni um
að fá son sinn sendan aftur til
Bandaríkjanna.