Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Blaðsíða 33
Engar töfralausnirÞú færð það bara á
fjögurra ára fresti
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar. – DVVala Grand í kosningamyndbandi ungra framsóknarmanna. – DV.is
Bræður í raun
Spurningin
„Ef marka má nýjustu kannanir þá
verður það Bjarni Benediktsson.“
Kristján Hrafn Bergsveinsson
25 ára verkfræðingur
„Ég vil að það verði Katrín
Jakobsdóttir.“
Valgerður H. Bjarnadóttir
59 ára draumakona
„Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.“
Aron Ingi Kristinson
23 ára starfsmaður hjá Össuri
„Það verður Bjarni Benediktsson,
myndi ég halda. Þá í samstarfi
við Framsóknarflokkinn.“
Hafsteinn Guðmundsson
42 ára sölumaður
„Metúsalem í Húmanista-
flokknum.“
Áróra Árnadóttir
23 ára nemi í arkitektúr
Hver verður
næsti forsætis-
ráðherra?
1 Fangi barnaði fjóra fanga-verði Tavon White var leiðtogi
glæpaklíku sem hafði tögl og hagldir
í fangelsinu.
2 Verðtryggingin fallin í þessari gerð samninga Björn Þorri segir
dóm Hæstaréttar á miðvikudag vera
fordæmisgefandi.
3 Fluttu inn hundrað milljónir Fyrrverandi eigandi Milestone og
eiginkona hans eru búsett í Bretlandi.
4 „Það hefur engum verið úthýst af Kaffi París“ Fram-
kvæmdastjóri Kaffi Parísar segir Bubba
ávallt velkominn á staðinn.
5 Frosti í frost Frosti Sigurjónsson, frambjóðandi Framsóknar, á ekki sjö
dagana sæla í kosningabaráttunni.
6 Þessi hamborgari er 14 ára gamall Gleymdi McDonald‘s-borg-
aranum í jakka og fann hann heillegan
löngu síðar.
7 Ný nálgun á símakynlíf Undirföt með innbyggðum titrara tengd
smáforriti frá Durex.
Mest lesið á DV.is Kosningaloforð Svarthöfða
Þ
að er verið að drepa fólk. Með því
að koma ekki atvinnulífinu í gang
aftur er verið að minnka þjóðar
framleiðslu, og þar með hagsæld
og skatttekjur ríkisins, sem leiðir til
niðurskurðar, meðal annars í heilbrigðis
kerfinu, sem veldur því að fólk deyr!
Nú er orðið lífsspursmál að losna
undan helferðarstjórninni!
Svarthöfði er eini maðurinn sem ætl
ar að láta hjól atvinnulífsins snúast í gang
aftur – láta hagkerfið spóla af stað. Hér er
smjörþefurinn af aðgerðaáætlun hans,
sem nefnist „Íslandi allt“.
Minni sóun
Of mikil sóun er í gangi dags daglega, til
dæmis í umferðinni, þar sem fólk þarf að
bíða löngum stundum. Ljóst er að ekki
ekki er til fjármagn til að breikka götur
og byggja mislæg gatnamót. Og ekki geta
allir farið yfir á rauðu ljósi. Það vinnur
gegn tilganginum, sem er straumlínu
löguð umferð til að stytta ferðatíma. Það
er hins vegar staðreynd að ferðatími
tekjuhárra er verðmætari en ferðatími
hinna tekjulægri, enda reiknast kostn
aður ferðatíma eftir væntu tímakaupi
ferðalangsins. Þess vegna er þjóðhags
lega hagkvæmt að þeir tekjuhæstu hafi
frelsi til að fara yfir á rauðu ljósi. En auð
vitað aðeins þegar þeir sjá sér það fært,
því frelsi fylgir ábyrgð.
Meiri sátt
Hátekju, auðlegðar og eignaskattur
verði afnuminn – veiðigjaldi verði aflétt.
Engin sátt er um þessa skattlagningu.
Þetta klýfur þjóðina í tvennt, á sama
tíma og Íslendingar þyrftu að standa
þétt saman. Þess fyrir utan er ástæða
fyrir því að hátekjufólk fær háar tekjur og
ríkir eru auðugir. Það er vegna þess að
þeir kunna að skapa peninga. Það á ekki
að refsa slíku fólki. Við þurfum á því að
halda. Þegar þetta fólk skapar meiri pen
inga græðum við öll sem samfélag. Við
erum saman í þessu!
Minna vesen
Ímyndum okkur samfélag þar sem þeir
hæfileikaríkustu fengju að njóta sín til
fulls, en væru ekki neyddir til að sitja að
gerðarlausir með alls konar hindrunum
og skattlagningu ríkisins. Eitt af lykilat
riðunum í því að færa „Íslandi allt“, er að
flugvallargjöld af einkaþotum verði afn
umin á Reykjavíkurflugvelli.
Við megum ekki við því að láta
hæfileikaríkasta fólkið sitja aðgerðar
laust í bíl á rauðu ljósi. Nei, stöndum
frekar saman. Gefum hagvexti grænt ljós
og spólum hjólum atvinnulífsins af stað!
Fólk er að deyja …
A
ldrei hefur nokkur saga batn
að við það eitt að vera sönn.
Og þegar það er skoðað, að við
lærum af mistökum annarra,
lærum meira af mistökum okkar
og svo væntanlega enn meira af því
þegar aðrir læra af okkar mistökum,
þá er í lagi að við segjum sögur af
mistökum – jafnvel þótt þau hafi
aldrei átt sér stað.
Eitt sinn bjuggu bræður tveir að
fjallabaki. Báðir voru þeir illa inn
rættir og báðir afar illa gefnir. En
vegna þess að þeir bræður höfðu
komið sér saman um að vera jafn
an ósáttir hvor við annan, höfðu þeir
skipt á milli sín stórri og mikilli jörð
sem þeir höfðu erft. Sameiginlegur
var bústofn þeirra engu að síður og
taldi hann eina kú.
Þannig háttaði því til, að annar
bróðirinn ræktaði land sitt, á meðan
hinn leyfði öllu að drabbast og hirti
hvorki um tún né engi. Hann virkjaði
bæjarlækinn og seldi mönnum veiði
leyfi.
Kýrin hafði þann háttinn á að hún
var að jafnaði í óræktinni en teygði
hausinn yfir grindverkið og át þar
sem grösin voru betri og safaríkari.
En síðan var það sá bróðirinn sem í
óræktinni lifði sem fékk alla nyt, þ.e.
sá hluti kýrinnar sem eitthvað gaf af
sér, var á hans helmingi. Það fór vel
um kúna og undi hún vel sínum hag.
Hið sama er að segja um þann bróð
urinn sem nytina fékk. En hinn bróð
irinn vildi réttlæti og krafðist þess að
fá eitthvað af afurðunum í sinn hlut.
Þessu tók óræktarbóndinn illa og
vildi ekki semja um neitt. Hann vissi
sem var, að hans hlutur var tryggður.
Hann gat áhyggjulaus stundað sína
órækt, hann hlaut tekjur af öllu og
öllum án hinnar minnstu fyrirhafn
ar. Hann sagði bróðurnum að hon
um bæri að skilja alla þróun mála og
hann orðaði það á þessa leið: Kýrin
er vissulega sameign okkar; þú átt
fremripartinn og ég þann aftari. Hún
étur með þínum parti og mjólkar með
mínum … ef svo má að orði komast.
Og við þetta verður þú að una, bróðir
sæll.
Þeir bræður áttu að vita það báðir
tveir, að neyðin kennir nískum manni
að spara. Þeir áttu einnig að vita, að
óréttur gefur engan hag. En þar eð
þeir voru báðir vitgrannir og voðaleg
dusilmenni, gátu þeir með engu móti
nálgast það sem kallað er sanngirni
í daglegu tali. Enda fór það svo að sá
sem átti fremri partinn, gekk út á tún
sitt einn góðan veðurdag, vopnaður
riffli, gerði sér lítið fyrir og skaut kúna
í hausinn. Og þegar óræktarbóndinn
hafði bölvað bróður sínum í sand og
ösku, sagði byssumaðurinn: Ja, ég
skaut nú bara minn helming.
Það er ekki víst að þessi saga nái
að segja okkur öllum þann sann
leika sem við blasir. En ef við skoðum
grandgæfilega þá stöðu sem samfélag
vort er í, ætti sagan sú arna að geta
dregið fram hugrenningatengsl og
e.t.v. vakið upp nokkrar spurningar.
Sannleikurinn er nefnilega sá, að
við eigum val; getum sætt okkur við
sanngjörn skipti eða gefið sálir okkar
græðgi á vald. Við getum farið vel
með það sem okkur er treyst fyrir, eða
kastað öllu á glæ. Við getum treyst
þeim bróðurnum sem ræktar land
sitt í ró og næði, treystir á sanngirni
og lifir í von. Svo eigum við þann
kost, að við getum stólað á þann sem
einungis hugsar um eigin hag; selur
allt sem hægt er að selja, kemur öll
um viðskiptum þannig fyrir að hann
einn hafi hagnað og hirðir aldrei um
hag þeirra sem ganga með honum
veginn langa.
Með blíða lund hér búum við
sem börn hjá lífsins vegi,
göngum áfram, hlið við hlið
og heilsum nýjum degi.
Svarthöfði
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
Umræða 33Helgarblað 26.–28. apríl 2013
Ég verð aldrei
sjóveik
Dorrit Moussaieff er verndari leiðangurs róðrarkappa yfir Atlantshaf. – DV
„Við getum farið
vel með það sem
okkur er treyst fyrir, eða
kastað öllu á glæ.
„Gefum hagvexti
grænt ljós og
spólum hjólum
atvinnulífsins af stað!
T
ólf eða þrettán frambjóðendur
eru í hverjum sjónvarpsþætti
eða málefnafundi í kosninga
baráttunni og tala hver upp í
annan – svörin oftast þoku
kennd og óskýr eða þá passa ekki við
spurningarnar sem brenna á. Tveir
flokkar að koma úr ríkisstjórn sem ekki
kláraði sitt prógramm og skilur eftir sig
fullt af vandamálum , og svo allir hinir,
gömlu og nýju, sem hrópa og kalla: Sjá
iði mig, mig, nei mig!
Já, þetta finnst frambjóðendunum
sjálfum stundum líka, og ég get vel skil
ið þá sem yppta öxlum.
Einfalt
Og samt er staðan einföld. Jafnaðar
menn eru að skila af sér kjörtímabili
þar sem allir kraftar stjórnar og al
mennings fóru í að ná efnahagslífinu
upp úr hruni án þess að samfélags
gerðin rifnaði í sundur. Það tókst, og nú
eru allar vísbendingar upp á við. Það
tókst ekki allt á þessum fjórum árum,
og var engin von til – en flokkarnir
tveir sem höfuðábyrgð bera á hrun
inu nýta sér hinsvegar óþol og óánægju
eftir langt erfiðleikatímabil. Lofa gulli
og grænum skógum, skattalækkun og
skuldaniðurfellingu langt umfram það
svigrúm sem nú er búið að skapa og án
tillits til þess að við þurfum jafnframt að
létta á bókhaldi heimilanna hvers fyr
ir sig og allra saman með því að lækka
himinháar vaxtagreiðslur úr ríkissjóði
og bæta velferðarþjónustuna, ekki síst
heilbrigðiskerfið.
Fyrir utan töfrabrögð benda flokk
arnir tveir aðeins á eina leið til að fjár
magna dæmið. Hún heitir „atvinnu
uppbygging“ sem í þeirra orðabók þýðir
virkjanir og stóriðja. Vegna þess að
fjárfestar veraldarinnar bíða ekki í röð
með peningana sína eftir fjárfestingar
færum á Íslandi frekar en annars staðar
á kreppuslóðum okkar tíma – en BD
flokknum liggur á – er eina aðferðin að
nú renni upp gamlir tíma undirboða, í
orkuverði, sköttum og umhverfistilliti.
Stóriðjustjórn framundan – með hefð
bundnum helmingaskiptum á forsend
um sérhagsmunanna.
Ekki eyðileggja atkvæðið
Til að koma í veg fyrir nýja ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
verður að tryggja að öll atkvæði nýtist. Í
síðustu könnun voru þessir flokkar tve
ir með góðan meirihluta þingmanna
– en minnihluta atkvæða! Því olli veru
leg dreifing atkvæða á framboð sem
mældust með kringum 2 prósent hvert
um sig. Þau atkvæði falla niður dauð.
Tvö framboð í viðbót eru samkvæmt
könnunum rétt yfir mörkunum, og eru
í verulegri hættu. Það yrðu líka ónýt at
kvæði.
Svarið: S
Til að koma í veg fyrir nýja ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
verður líka að tryggja að til mótvægis sé
jafnaðarflokkur með skýra og samstæða
stefnu í þeim málum sem mestu varða
næstu ár – um hagstjórn, skuldir, vinnu
og velferð, umhverfi og náttúruvernd,
menntun og menningu. Flokkur sem
er ókvíðinn hjörs í þrá – en tilbúinn að
leita samkomulags og málamiðlunar á
forsendum almannahagsmuna. Sterk
Samfylking getur komið í veg fyrir póli
tískt stórslys um næstu helgi.
Kjósum gegn stóriðjustjórn
Kjallari
Mörður
Árnason
„Til að koma í veg
fyrir nýja ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks verður að
tryggja að öll atkvæði nýtist.