Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Síða 51
ið féll niður að lokum þar sem mað
urinn var andlega vanheill. Helga
Vala kveðst enn þann dag í dag bera
vissan ótta í brjósti til þessa manns er
hún mætir honum á götu þó að langt
sé um liðið og hann orðinn gamall.
Þannig skilji hún betur þann gríðar
lega ótta sem þolendur ofbeldis þurfi
að þola í kjölfar árása.
Vilt þú tala útlensku við börnin?
Málefni útlendinga og hælisleitenda
hafa mikið verið í umræðunni síð
astliðin ár. Þetta er málaflokkur sem
skiptir Helgu Völu verulegu máli og
hún er í fámennum hópi lögmanna
hérlendis sem hefur sérþekkingu á
þessu sviði.
„Við fáumst við ýmis mál tengd
útlendingum. Bæði er varðar dvalar
leyfi fyrir fólk sem kemur í nám, til
starfa eða vegna fjölskyldusamein
ingar. Nú eða vegna ótta um líf sitt
og velferð,“ útskýrir hún og er þá
spurð út í fordómana sem ríkja gagn
vart innflytjendum á Íslandi. „Ras
isminn er mikill hérna og hefur bara
aukist. Hins vegar skil ég alveg ótt
ann líka og mér finnst asnalegt að láta
eins og það sé sjálfsagt mál að opna
landið fyrir öllum,“ segir hún og held
ur áfram: „Við eigum ekkert að opna
landið okkar fyrir öllum, enda erum
við svo langt frá því að það hálfa væri
yfirdrifið.“
Hún segir að æskilegt væri að
skoða reynslu hinna Norðurland
anna og mögulega láta af þeim stjarn
fræðilegu kröfum sem gerðar eru til
útlendinga hérlendis. „Fólk heldur
því oft fram að útlendingar eigi að tala
íslensku við börnin sín til að verða
meiri Íslendingar. Myndum við vilja
tala útlensku við börnin okkar værum
við búsett erlendis? Varla,“ segir hún
og bætir við að henni finnist verra,
svo hún taki dæmi úr fjölmiðlum, að
hafa þar Íslendinga sem tali vitlaust
mál en útlendinga sem augljóslega
tali bjagaða íslensku.
Flóttamenn koma víðsvegar að
úr heiminum. Langoftast úr menn
ingarheimi okkur framandi og nefnir
Helga Vala sem dæmi mann sem gat
ekki hugsað sér að fá hennar þjón
ustu.
„Þessi maður vildi alls ekki fá kven
kyns lögmann. Hann mátti ekki einu
sinni vera einn í herbergi með konu
samkvæmt sinni trú. Þetta þarf bara
að virða og vinna með. Hins vegar
sprettur þessi sýn á konur frá sömu
rót og það sem hrakti þennan mann
frá heimalandinu, vegna ofsókna,
pyndinga og líflátshótana,“ segir hún
og bætir við: „Þarna er alls ekki um
að ræða mann sem hatar konur held
ur ólíka menningu sem hann þarf að
aðlagast í nýju landi. Ég hins vegar
er alla daga vikunnar að taka á móti
konum sem hafa orðið fyrir ofbeldi
af ýmsu tagi hér á Íslandi. Mér finnst
vert að benda á þess háttar menningu
til samanburðar og dæma svo.“
Brynjar er ágætis kall
Í framhaldi er varla hægt að komast
hjá því að minnast á orðaskipti Helgu
Völu og Brynjars Níelssonar, hæsta
réttarlögmanns og fyrrverandi for
manns Lögmannafélagsins, í Kast
ljósinu á dögunum. Rætt var um
nýfallinn hæstaréttardóm þar sem
meirihluti Hæstaréttar komst að því
að ákveðinn verknaður, að stinga
fingri í leggöng og endaþarm konu,
væri ekki kynferðisbrot. Þessu voru
lögmennirnir beðnir um að segja
álit sitt á og voru algjörlega á önd
verðu máli. „Góðar rökræður er eitt
hvað sem ég hef virkilega gaman af.
Þær fæða af sér nýjar hugmyndir
og þjálfa okkur í að hugsa rökrétt og
gagnrýna það sem betur má fara. Auk
þess á ég tiltölulega auðvelt með að
aðskilja menn og málefni. Viðkom
andi getur verið ágætis manneskja
þótt ég sé brjálæðislega ósammála.
Álit mitt á persónunni mótast frekar
af því hvernig hún hagar sér og kemur
fram en hvaða skoðanir hún kann að
hafa á einstaka málum. Ég verð ekkert
persónulega brjáluð eins og margir
kannski halda. Brynjar er ágætur kall
og vonandi fæ ég sem flest tækifæri
til að taka slaginn við hann. Verst að
hann er á leið á þing.“
Sannleikurinn leitar alltaf
upp á yfirborðið
Hagsmunir skjólstæðinga vekja
oft stærri mál úr dvala. Þar hefur
Helga Vala sem dæmi verið ötul í að
hrista þingið af þyrnirósarsvefni er
varðar aðild feðra að faðernis og vé
fengingarmálum. Ástæðan fyrir því
að þeim er meinaður aðgangur ef
móðir rangfeðrar barn sitt er sú að
ekki megi raska ró fjölskyldunnar. Það
megi draga af meginreglu barnalaga
hvað sé barninu fyrir bestu. Helga
Vala spyr á móti: „Hver raskaði ró fjöl
skyldunnar upphaflega? Kona sem
ákveður að raska ró fjölskyldunn
ar með því að halda framhjá mann
inum sínum, verður bara að taka af
leiðingunum af því. Það er hennar
val að eignast barn, sem er hennar
og annars manns en eiginmannsins
og ef hún velur það þarf hún að taka
það alla leið. Það er grundvallarréttur
barns; að þekkja báða foreldra sína.“
Ekki er bara um að ræða tilvik
kvenna í sambúð eða hjúskap sem
eignast barn með öðrum en maka
sínum heldur getur kona hreinlega
beðið annan mann að gangast við
barni og þá kemst líffræðilegur faðir
ekki að. „Við vitum að hafi maður
yfir höfuð einhvern áhuga á að hitta
barnið sitt, þá mun hann gera það,
fyrr eða síðar. Sannleikurinn leitar
alltaf upp á yfirborðið hvort sem þér
líkar það betur eða verr og þá held
ég að það sé ekki gott að hafa það á
samviskunni að hafa meinað barninu
árum saman að kynnast blóðföður
sínum.“
Andstaða var hins vegar í þinginu
og málið sofnaði í nefnd. Helga Vala
hefur verið með mál manna sem hafa
sjálfir verið bæði feður og synir. Sam
kvæmt lögum komast börn og mæður
að í svona málum en ekki hinir réttu
blóðfeður. Þeir eiga ekki aðild að mál
um fyrir dómi eins og lögin eru í dag
og þessu vildi þingið ekki breyta þrátt
fyrir góðan vilja einstakra þingmanna
sem lögðu frumvarpið fram. Hún seg
ir að málin séu þessum mönnum
gríðarlega þungbær og hún skilji
ekki hvernig standi á því að árið 2013
sé Alþingi enn að streitast á móti er
þetta varðar. „Þetta er fornaldar hugs
unarháttur og seint held ég að það
komi streymandi menn til að raska ró
fjölskyldna um allt land ef lögunum
verður breytt. Með breytingum á lög
unum væri einfaldlega verið að koma
í veg fyrir að það sé sjálfsákvörðunar
réttur kvenna að velja börnum sínum
annan föður en blóðföður.“
Lögfræðin snýst um fólk í
ýktum aðstæðum
Rétt eins og leikhúsið snýst lögfræðin
svo mikið um fólk í ýktum aðstæðum.
Helga Vala segist sjálf aldrei hafa
trúað hve absúrd raunveruleikinn er.
Segir hún að það leikskáld sem myndi
byggja verk sitt á raunverulegum at
burðum úr hjónaskilnaði yrði líkast
til afskrifaður sem ótrúverðugur. Svo
ótrúlegur er raunveruleikinn.
En hvað með leikhúsið? Helga
Vala útilokar alls ekki verkefni á sviði
leiklistarinnar, enda útiloki eitt ekki
annað. „Dómsalurinn er líka svo
lítið eins og leikhúsið. Ef maður er
vel undirbúinn þá líður manni vel
í skikkjunni. Svo myndi ég segja
að það væri annað sem sviðin eiga
sameiginlegt. Þann dag sem maður
hættir að fá sviðsskrekk á maður að
fara og fá sér eitthvað annað að gera.
Þá er manni farið að verða svolítið
sama gæti ég trúað. Ég er alltaf með
smá sviðsskrekk þegar ég flyt mál og
það er bara gott. Það heldur mér á
tánum.“ n
Viðtal 51Helgarblað 26.–28. apríl 2013„Við vorum
svo óheppin
að lenda með þessi
ósköp á forsíðu Séð
og heyrt
Á forsíðu Séð og heyrt „Við
vorum svo óheppin að lenda með
þessi ósköp á forsíðu Séð og heyrt
og þótt aðskilnaðurinn hafi bara
varað í nokkrar vikur er enn fólk
sem heldur að við séum bara skilin,“
segir Helga Vala brosandi um sig og
eiginmanninn, Grím Atlason.
Laugavegi 178 • Sími: 568 9955 • Opið, virka daga 12 -18 & laugardaga 12 -16
www.tk.is
VERÐ FRÁ kr. 9.975.-
NÝTT
VERÐ FRÁ
kr. 24.990.-
SKÁLAR, GLÖS & DISKAR
NÝTT
STELL 20 teg.
GLÖS 18 teg.
Tilvonandi brúðhjón verið velkomin
að skrá óskalistann hjá okkur.
Öll brúðhjón fá gjöf og lenda í
brúðhjónapotti.
Persónuleg og góð þjónusta
NÝTT
Heldur heitu í 4 tíma
HITAFÖT
Fyrir 12 manns
14. tegundir