Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Side 54
54 Lífsstíll 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
Brennt kjöt og grátt
S
teikhúsið við Tryggvagötu
stendur ekki undir nafni – því
miður. Um er að ræða eitt af
fáum steikhúsum borgarinnar;
staður sem gerir út á að grilla kjöt vel.
Hinir eru sjálfsagt bara Argentína og
Hereford. Kjötið á staðnum er hins
vegar langt í frá þess virði.
Ég fór á Steikhúsið á þriðjudaginn
við tvo aðra menn. Ég hafði heyrt mis-
jafna hluti um staðinn: þokkalega frá
sumum en verri frá öðrum. Staður-
inn auglýsir þriðjudagstilboð á kjöti:
Ribeye, franskar og bernaise-sósa á
3.300 krónur. Við sáum hins vegar
á matseðlinum að rétturinn kostar
að öllu jöfnu 3.500 krónur. Auglýs-
ingin snýst því um verðlækkun sem
telst vart þess verð að kallast tilboð.
En hún virkaði á okkur; við fórum
þangað vegna hennar. Tveir fengu sér
ribeye en sá þriðji lamb.
Þegar kjötið kom á borðið var það
því miður aðeins volgt en skaðbrennt,
kjötið grillað í hel. Þetta átti við um alla
þrjá kjötréttina. Við höfðum beðið um
kjötið hrátt, lítið grillað, rautt í gegn.
En við fengum það grátt og lambið var
eiginlega hvítt á litinn að innan, svart
að utan. Kjötið var því allt of mikið að
eldað að utan sem innan. Sessunautur
minn leifði meira en helmingnum af
kjötinu sínu. Sagði það bara sinar og
fitu. En ég þrælaði þessu í mig. Með
kjötinu komu franskar sem voru fín-
ar en ekkert meira. Bernaise-sósan
smakkaðist eins og hún væri úr pakka
– engin Laugaástilþrif þar.
Málsverðurinn var því mik-
il vonbrigði. Sessunautur minn var
beinlínis sár með matinn. Sagðist
aldrei ætla aftur á þennan stað. Ég
ætla mér það ekki heldur. Næst þegar
mig langar í góða steik á veitinga-
húsi fer ég á Sushi samba og fæ mér
ribeye-ið með chimuchurri-sósu.
Þar er alvöru kjöt, vel grillað, ekki
brennt, og rautt að innan ef um það
er beðið. n
Þ
að er misjafnt hvernig konur
bregðast við þegar þær sjá
támjóa skó með pinnahæl.
Sumar taka þeim fagnandi.
Þeim finnst þetta fersk og
skemmtileg tíska. Svo eru aðrar konur
sem fá hroll og geta ekki hugsað sér að
kaupa slíka skó. En það sýna þessu all-
ir mikinn áhuga og hafa skoðun á hvort
þetta sé flott eða ekki,“ segir Heiða Agn-
arsdóttir, verslunarstjóri í 38 þrepum.
Támjóir skór hafa ekki verið í tísku
í nokkur ár en eru að detta inn á ný.
Þeir voru áberandi á tískupöllunum í
vetur. Heiða segir að skótískan í sum-
ar verði fjölbreytt og allar konur ættu
að geta fundið skó sem þeim líkar. Það
verða támjóir skór í bland við skó með
breiðari tá. Gull- og silfurskór eru áber-
andi og bláir og gulir litir eru vinsælir.
Ef litið er aðeins lengra fram í
tímann þá segir Heiða að stígvél
verði vinsæl næsta vetur, plattform-
ið haldi áfram og svo verði það tá-
mjóu skórnir. Fjölbreytnin verður
áfram í fyrirrúmi. „Þeir koma svona
hægt og hægt og næsta haust verða
flestir skóframleiðendur komnir
með þá inn í línurnar hjá sér,“ segir
Heiða. n
n Gult, blátt og metal er það flottasta
Donna
Karan
Klikkar
ekki.
Toppurinn að
vera í támjóu
Malene
Birger Sól-
skinsskór.
Támjóir í tísku
Köflóttir hælaskór úr
smiðju Dries Van Noten.
Og támjóir skór með
kubbslegum hæl eftir
Louis Vuitton.
Unaðslegir Silfurskór frá
Christian Louboutin.
Tvílitir frá Miu
Miu Slíkir skór eru
mikið í tísku um þessar
mundir .
Fallegir Tvílitir frá Miu Miu og litríkir frá
Dolce & Gabbana.
Húðvörur frá
Marimekko
Hönnunarfyrirtækið Marimekko
hefur nú í fyrsta sinn sent frá sér
húðvörur. Um er að ræða líkams-
skrúbb og rakaríkt líkamskrem
sem fyrirtækið framleiðir undir
heitinu, The Sauna Duet.
Vörurnar eiga að vera tilvaldar
til þess að nota fyrir og eftir sána
og ilmurinn á að minna á finnsk-
an vetur, dimmgrænt greni og
furunálar.
Útlitið er heillandi; mynstraðar,
endurnýtanlegar skálar. Kremin
sjálf eru framleidd í samstarfi við
snyrtivöruframleiðandann Aesop.
Vörurnar eru fáanlegar á aesop.
com og us.marimekko.com.
Carey í gervi
Daisy Buchanan
Leikkonan fagra Carey Mulligan
prýðir forsíðu bandaríska Vogue
um þessar mundir. Carey er í gervi
Daisy Buchanan í stórmyndinni
væntanlegu, The Great Gatsby.
Útkoman er stórfengleg mynda-
röð og ljóst að kvikmyndin verður
mikið sjónarspil.
SodaStream
aftur í tísku
Matarbakkar á hjólum, Soda-
Stream-tæki, blandarar á fæti.
Glöggir hafa tekið eftir því að eld-
húsvörur og tæki í anda sjötta og
sjöunda áratugar síðustu aldar
eru í tísku. Söluaukning á þessum
tækjum segir söguna alla. Í Bret-
landi má líklega þakka Jamie Oli-
ver söluaukningu á SodaStream,
en hann sýndi áhorfendum hvern-
ig má laga kokkteila með hvítvíni
í græjunni góðu. Bretum finnst
ekki leiðinlegt að drekka kokkteila
og salan jókst um 85% á nokkrum
dögum.
Veitingahús
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Steikhúsið
við Tryggvagötu 4–6