Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Síða 49
Lífsstíll 37Helgarblað 3.–5. maí 2013
Samfélagslega ábyrgt og vistvænt fyrirtæki
n Indiska verslun á Íslandi N Hluti hagnaðar rennur til góðgerðamála
I
nnan skamms opnar sænska
verslunarkeðjan Indiska verslun á
Íslandi, í Kringlunni.
Verslunarkeðjan er merkileg
fyrir margra hluta sakir. Hún er stofn-
uð í Svíþjóð og er vistvænt og samfé-
lagslega ábyrgt fyrirtæki.
Fyrirtækið ræktar gildi sem
margir huga að eftir að uppvíst varð
um ömurlegan aðbúnað verkafólks
í Bangladess. Fyrirtækið starfar eftir
ströngum siðareglum, er um aldar-
gamalt fjölskyldufyrirtæki og stjórn-
að af Sofie Gunolf sem er af þriðju
kynslóð eigenda. Hluti hagnað-
ar allra verslana í Indiska-keðjunni
rennur til góðgerðamála.
Í dag eru reknar 90 verslanir
Indiska í þremur löndum; Svíþjóð,
Noregi og Finnlandi. Ísland verður
fjórða landið sem hýsir verslun fyrir-
tækisins.
Það eru þær Sigríður Ragna Jóns-
dóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir,
Sigrún Andersen og Guðrún Schev-
ing Thorsteinsson sem standa að
opnun verslunarinnar.
Í versluninni verður seld
skandi navísk hönnun innblásin
af indversku handverki. Blanda af
tískufatnaði, húsbúnaði og margvís-
legum fylgihlutum.
Meðal hönnuða Indiska eru Jade
Jagger og Manish Arora. n
E
kki ganga í flíspeysu ef þú vilt
vera smart í sumar, það er
komin tími til að brjóta þær
saman og setja upp í skáp,“
segir Jóhanna Björg Christen-
sen, ritstjóri Nudemagazine.is.
Jóhanna, sem er svo sannarlega
með puttann á púlsinum þegar kem-
ur að tísku, segir að fleiri flíkur séu á
útleið þegar sumarið gengur í garð.
Hún nefnir Jeffrey Campell-skó og
jelly-skó. Þeirra í stað eigi konur að
velja sér fínlegri skó, skótískan sé að
breytast þessa dagana. Þá nefnir Jó-
hanna diskóbuxur – þeirra tími sé
liðinn og sömuleiðis sé leggings á
útleið. „Ég býst samt við því að við
sjáum marga í leggings og diskó-
buxum i sumar því mörgum konum
finnst þetta svo þægilegur klæðnað-
ur að þær eiga erfitt með að hætta að
ganga í honum. Allt of stuttar stutt-
buxur og pils verða heldur ekki í
tísku í sumar. Ekki láta rasskinnarnar
hanga niður úr pilsinu það er ekki
smekklegt að sýna allt. Í sumar eiga
konur að leggja áherslu á klassafatn-
að og klæða sig í samræmi við vaxtar-
lagið. Besta ráðið sem ég get gefið
konum er að velja föt sem draga fram
það besta í vexti hverrar og einnar,“
segir Jóhanna Björg. n
n Nokkur tískuráð fyrir sumarið
Inn í skáp með
dIskóbuxurnar
Jeffrey Campbell skór eru úti
Klunnalegir skór Cambell voru
mikið í tísku á síðasta ári. Nú eru
áherslur mun fínlegri.
Diskóbuxur eru úti
Æðið sem rann á unglings-
stúlkur eru á enda.
Brjótið saman flíspeysurnar
Og geymið vandlega inni í skáp.
Of stutt
Farið ekki að
dæmi fyrirsæt-
unnar Lily Cole
sem mætti djörf
til leiks fyrir
ári síðan. Nú er
síddin meiri.
Samfélagslega ábyrgt fyrirtæki
Það eru þær Sigríður Ragna Jónsdóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir, Sigrún Andersen og Guð-
rún Scheving Thorsteinsson sem standa að opnun nýrrar verslunar sem tekur samfélagslega
ábyrgð.
Úr herferð Indiska
fyrir sumarið
Fallegar silkiflíkur má
finna í versluninni í
bland við húsmuni og
handverk.
Kvenlegar línur
Klæðið ykkur eftir
vexti. Þessi kjóll er
úr haustlínu Dolce
& Gabbana sem
eru þekktir fyrir að
leggja áherslu á
línurnar.