Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2014, Qupperneq 64
Helgarblað 24.–27. janúar 2014
7. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is
Framsóknar
afneitun!
Akureyringur endurvekur snjóskauta
Ingi Freyr tekur upp kynningarmynd í Austurríki fyrir framleiðendur skautanna
Þ
etta heitir snjóskautar.
Þetta er eins og skíðaklossi
nema sólinn er í raun-
inni skíði,“ segir Ingi Freyr
Sveinbjörnsson í sam-
tali við DV. Hann var staddur úti í
Ungverjalandi í vikunni til að taka
upp kynningarmyndaband fyrir
fyrirtækið Sled Dogs sem framleið-
ir og selur snjóskautana. Hann seg-
ir að snjóskautar hafi verið seldir
á Akureyri um miðjan tíunda ára-
tuginn og hafi hann náð að næla
sér í eitt par. „Þetta fór svo á haus-
inn og var keypt af norskum manni
sem er með þetta í dag. Það er ver-
ið að koma þess af stað aftur,“ segir
Ingi Freyr. Hann segist nýlega hafa
verið í sambandi við fyrirtækið til
að sjá hvort að hann gæti keypt nýja
skauta þar sem þeir gömlu voru
heldur lúnir. Í kjölfar þeirra sam-
skipta sendi hann þeim myndir af
sér á snjóskautunum. „Markaðs-
stjóri fyrirtækisins vildi fá mig út til
Ungverjalands. Við erum búnir að
vera hérna úti í fjóra, fimm daga að
mynda og erum sem sagt að gera
kynningarmyndband fyrir næsta
vetur,“ segir Ingi Freyr.
Hann segist hafa stundað snjó-
skauta nú í þó nokkur ár og segir
hann töluverðan mun á þeim og
skíðum. „Það er mikill munur en
ef þú kannt á skíði þá kanntu á
þetta. Þetta er samt miklu líkara
því að vera á línuskautum eða ís-
skautum, þetta eru í rauninni sömu
hreyfingar. Maður er mikið frjálsari
á þessu,“ segir Ingi Freyr. Að mati
Sled Dogs er Ingi Freyr einn þeirra
bestu í heimi að stökkva á snjó-
skautum. „Þeir vildu fá mig til að
sjá um þann hluta í myndbandinu,“
segir hann. n hjalmar@dv.is
Sló dómarann
n Myndband af Kára Kristjáni
Kristjánssyni, leikmanni íslenska
landsliðsins í handbolta, þar sem
hann slær dómara leiks Íslands og
Danmerkur á Evrópumótinu fer
eins og eldur í sinu um samskipta-
miðla. Algjört óviljaverk var um
að ræða og greip Kári Kristján um
dómara leiksins og bað hann inni-
legrar afsökunar. Franskur dómari
leiksins virtist ekki meiða sig við
höggið og brosti breitt í örmum
Kára. „Það eru engin orð sem lýsa
þessum ágæta dreng,“ sagði Ein-
ar Örn, góður lýsandi leiksins, um
Kára í beinni útsendingu.
Það var
enginn leikur
n Flestir Íslendingar eru svekktir
vegna úrslitanna í leik Íslands og
Danmerkur á Evrópumeistara-
mótinu í handbolta karla í vik-
unni og vilja líklega gleyma þeim
sem fyrst. Sumir ganga hins vegar
lengra og viðurkenna hreinlega
ekki að leikurinn hafi átt sér stað.
Þar á meðal er aðstoðarmaður
forsætisráðherra, Jóhannes Þór
Skúlason. „Ég sá engan hand-
boltaleik í kvöld, og mun því
afneita því að slíkur hafi farið fram.
Góðar stundir,“ sagði hann á Face-
book-síðu sinni í kjölfar leiksins.
Danir burstuðu strákana okkar
með níu marka mun. Það breytti
þó engu um
stöðu mála
á mótinu;
Ísland
spilar um
fimmta
sæti og
Danmörk í
undan-
úrslitum.
Samstaða
Ólafs Ragnars
n Fjölmiðlamaðurinn Árni Snævarr
lagðist í rannsóknarvinnu á dögun-
um og skoðaði hversu oft orðið sam-
staða hefði komið fyrir í ræðum Ólafs
Ragnars Grímssonar forseta. Tilefni
samantektarinnar var orð góðkunn-
ingja Árna, Guðmundar Magnússon-
ar, um að gagnrýni á tal Ólafs um sam-
stöðu í síðasta áramótaávarpi eigi ekki
við rök að styðjast. Niðurstaða Árna
var þessi: Í síðasta
áramótaávarpi
kom orðið sjö
sinnum fyrir
og þrisvar árið
2013. Síðustu
þrjú árin þar á
undan not-
aði hann orðið
aldrei.
Nánari upplýsingar á rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Firmaskrá
hjá RSK
Athygli er vakin á því að 1. janúar 2014 tók fyrirtækja-
skrá ríkisskattstjóra við firmaskráningum sem áður
fóru fram hjá sýslumannsembættum landsins.
Einstaklingsfirmu, sameignarfélög og samlagsfélög
eru nú skráð hjá fyrirtækjaskrá RSK.
Ennfremur skal framvegis tilkynna allar breytingar
á þessum félagaformum til fyrirtækjaskrár RSK.
Frekari upplýsingar má nálgast á rsk.is og hjá
ríkisskattstjóra á Laugavegi 166.
Einn sá besti í stökki Hér má sjá mynd
af Inga Frey í Austurríki sem tekin var af
ljósmyndara Sled Dogs, framleiðanda
snjóskautanna.