Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Page 2
Helgarblað 7.–10. febrúar 20142 Fréttir „Betlehem er víða“ n Davíð Þór var beittur í mannréttindamessu n Sagði flóttafólk beitt órétti Þ að gerir engan að kristinni manneskju að tala um mikil­ vægi kristnifræðikennslu í skólum út um annað munn­ vikið og dreifa óhróðri út um hitt,“ sagði guðfræðingurinn Davíð Þór Jónsson í beinskeyttri predikun í mannréttindamessu sem haldin var í Laugarneskirkju síðastliðinn sunnu­ dag. Í predikuninni snerti hann á máli Tony Omos, nígerísks flótta­ manns, sem sendur var úr landi í desember, eftir að minnisblaði inn­ anríkisráðuneytisins um persónuleg málefni hafði verið lekið til fjölmiðla. „Hýstum við Tony Omos? Hýstum við Edward Snowden? Hýstum við … Hér gæti nafnalistinn verið svo lang­ ur að það er skömm að því. Og við köllum okkur kristna þjóð.“ Davíð sagði mikilvægt að gjalda varhug við því þegar „hinir innmúr­ uðu“ stíga út úr „musteri valdsins“ til að segja okkur hinum hvar Krist sé að finna. Í þessu samhengi beindi hann spjótum að innanríkisráðherra sem hefur legið undir ámæli vegna leka persónuupplýsinga um hælisleit­ endur: „Það þarf til dæmis ekkert að fletta blöðunum lengi eða fylgjast mjög vel með fréttum til að það liggi nokkuð ljóst fyrir hvort meiri þörf sé á fræðslu um grundvallaratriði kristilegs hugarfars og kristins sið­ ferðis í skólakerfinu eða í innanríkis­ ráðuneytinu, jafnvel þótt ráðherrann sjái ástæðu til að nýta ávarp á kirkju­ þingi til að leggja áherslu á hvað aðr­ ir en hún sjálf þurfi mikið á kristilegri innrætingu að halda.“ Davíð sagði að Betlehem væri víða: „Við höfum okkar eigið Betlehem hér á Íslandi. Það er í Keflavík. Við köllum það Gisti­ heimilið Fit. Þar geymum við þá sem ekki er pláss fyrir þangað til við getum losað okkur við þá.“ Dagblaðið í gegnum Biblíuna Í samtali við DV segir Davíð litlu við predikunina að bæta: „Annað en það að ég veit ekki betur en að henni hafi verið ágætlega tekið þó að einhverjum hafi fundist erfitt að sitja undir henni. Ég var einfaldlega að benda á að við – hér heima – get­ um lagt okkar af mörkum til mann­ réttinda, og að íslensk stjórnvöld eru kannski ekki frekar en önnur með tandurhreinan skjöld þegar kemur að mannréttindum.“ Spurningin sé þá hvort við ætlum að skreyta okkur með afstöðu sem hljómar vel á tylli­ dögum en vera stikkfrí á virkum dög­ um. „Eða er okkur alvara með því sem við segjum?“ Davíð segist hafa viljað heim­ færa kjarna kristins boðskapar – boð­ skapinn um kærleika og frið – upp á mannréttindi á Íslandi í nútím­ anum og opna þannig augu fólks. „Mannréttindabrot eru ekki bara eitthvað sem herforingja­ og komm­ únistastjórnir í útlöndum hafa á sam­ viskunni.“ Góður predikari sé með Biblíuna í annarri hendinni og dag­ blaðið í hinni, segir Davíð og vitnar í guðfræðinginn Karl Barth sem sagði: „Taktu Biblíuna þína og taktu dag­ blaðið þitt og lestu hvort tveggja, en lestu dagblaðið í gegnum Biblíuna.“ Merkingarlaust leikrit? „Gestur var ég og þér hýstuð mig,“ segir Jesús í guðspjallinu. En hér bjagar þýðingin hina raunveru­ legu merkingu. Orðið sem hér er þýtt „gestur“ er á grísku „xenos“. Það merkir eiginlega „ útlendingur“,“ sagði Davíð í predikun sinni og spurði: „[H]vaða útlendingar skyldu nú hafa verið að beiðast hýsingar fyrir botni Miðjarðarhafsins fyrir tvö þúsund árum? Puttaferðalangar? Bakpokalýður að skoða heiminn? Túristar með fulla vasa af gjaldeyri? Nei.“ Þarna hafi verið fátækt, alls­ laust og hrjáð fólk sem hrakist hafði frá heimalöndum sínum vegna styrj­ alda, hungursneyðar eða pólitískra ofsókna; fólk sem flúið hafði óbæri­ legt ástand heima fyrir út í óvissuna til að bjarga lífi sínu og barna sinna. Þetta fólk sé á meðal okkar, það sé enn á flótta og beiðist hýsingar. Það sé ekki kallað gestir heldur hælis­ leitendur „[og] við höfum ekki pláss fyrir það núna frekar en fyrir tvö þúsund árum, jafnvel þótt við játum Jesú Krist með vörunum, þann sama Jesú Krist og sagði: „Hælisleitandi var ég og þið veittuð mér hæli“ svo ég nú­ tímavæði þýðinguna aðeins og geri merkinguna skýrari.“ Davíð spurði jafnframt hvort trúarsamkundur okkar væru merkingarlaus leikrit þar sem guð væri lofaður með vörunum á meðan hinir hungruðu og þyrstu væru sniðgengnir og hælisleitendur reknir úr landi. „Og ef okkur líður illa með svarið, þá er eðlilegt að næsta spurning sé: Hvað ætla ég að gera í því?“ n Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is „Það gerir engan að kristinni mann- eskju að tala um mikil- vægi kristnifræðikennslu í skólum út um ann- að munnvikið og dreifa óhróðri út um hitt. Krítísk predikun Guðfræðingurinn Davíð Þór Jónsson var afar gagnrýn- inn á framkoma yfirvalda við flóttafólk í predikun sinni á mannréttindamessu. MynD Sigtryggur Ari Lögðu vegi Talið er að fjármunir félagsins sem Bolli stjórnar komi frá SK Most sem er verktakafyrirtæki í Rússlandi. Það félag lagði vegi og járnbrautir í Sochi. Græða milljarða í Sochi Leggja vegi og járnbrautir í tengslum við ólympíuleikana B olli Héðinsson, aðjunkt við viðskiptafræðideild Há­ skóla Íslands, stýrir sænsku eignarhaldsfélagi sem hefur grætt milljarða króna á framkvæmd­ um í Sochi í Rússlandi. Vetrar­ ólympíuleikarnir sem fram fara í borginni eru taldir einir spilltustu í sögunni en stjórnarandstæðingar í Rússlandi halda því fram að allt að önnur hver króna sem eytt sé í leik­ ana endi hjá hinum og þessum fram­ kvæmdaaðilum. Greint er frá því í sænska þættin­ um Uppdrag granskning að verktakar hagnist gífurlega á því að einfaldlega framselja verkefnin til annarra verk­ taka, sem sjálfir framselja verkefnin. Það sé jafnan gert fjórum til fimm sinnum. Einhvers staðar á leiðinni hverfi peningarnir einfaldlega og að ríflega helmingurinn af kostnaði rík­ isins við ólympíuleikana hverfi með þessum hætti. Það eru um 2.750 millj­ arðar króna. Félagið sem Bolli stjórnar hefur greitt eigendum sínum milljarða í arð í Svíþjóð þrátt fyrir að vera lítið ann­ að en pósthólf og með starfsemi sína í skattaskjólum. Í samtali við fréttastofu RÚV kveðst Bolli ekki eiga hlut í því, heldur komi hann að því sem fjár­ hagslegur ráðgjafi. Félagið er sagt í eigu Rússa og Bandaríkjamanna en starfsemi þess er í Bandaríkjunum og á Kýpur, sem er þekkt skattaskjól. Talið er að megnið af fjármunum félagsins, sem heitir SKMG Holding, komi frá rússneska verktakafyrirtæk­ inu SK Most. Það félag sá um lagn­ ingu járnbrauta og vegar í fjöllunum yfir Sochi í umboði rússneska lestar­ félagsins RZD sem fékk verkinu upp­ runalega úthlutað frá stjórnvöldum. Stjórnandi RZD er náinn vinur og samstarfsmaður Vladimírs Pútin for­ seta. n Engin viðbrögð við rennibraut Akureyri vikublað greinir frá því að engin viðbrögð hafi fengist hjá Akureyrarbæ vegna áfellis­ dóms sem bærinn fékk eftir að ákveðið var að ganga til samn­ inga við fyrirtæki vegna upp­ setningar hundrað milljóna króna rennibrautar við Sundlaug Akureyrar. Fyrirtækið Spennandi kærði Akureyrarbæ vegna út­ boðsmála og hefur kærunefnd tekið undir sjónarmið fyrirtækis­ ins. Kærunefnd útboðsmála úr­ skurðaði 24. janúar síðastliðinn og stöðvaði rennibrautarferlið. Í úrskurði nefndarinnar kem­ ur fram að innkaupin hafi ekki verið í samræmi við það inn­ kaupaferli sem tilgreint sé í lög­ um um opinber innkaup. Siggi hakkari á leið í fangelsi Dæmdur fyrir að misnota sautján ára pilt kynferðislega Hæstiréttur staðfesti á fimmtudag átta mánaða fangelsisdóm sem Sigurður Ingi Þórðarson, einnig þekktur sem Siggi hakkari, hlaut í Héraðsdómi Reykjaness í október síðastliðnum fyrir að misnota sautján ára pilt. Mun Sigurður Ingi hafa með blekkingum tælt fórnarlamb sitt til að annarra kynferðismaka en samræðis í geymslu á heimili sínu. Sigurður mun hafa talið piltinum trú um að hann myndi greiða honum háar fjárhæðir, opna bankareikning í erlendum banka í nafni piltsins og leggja fjármuni inn á þann reikning, gefa honum bifreið og sjá til þess að pilturinn myndi ekki missa ökuréttindi þrátt fyrir ölvunarakstur ef pilturinn hefði við hann kynferðismök. Hæstiréttur taldi sannað að Sigurður Ingi hefði haft fulla vit­ neskju um aldur piltsins þegar at­ vikin áttu sér stað í maí og byrjun júlí 2012. Var átta mánaða óskil­ orðsbundið fangelsi yfir Sigurði Inga því staðfest og honum gert að greiða brotaþola hálfa milljón í miskabætur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.