Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 4
Helgarblað 7.–10. febrúar 20144 Fréttir
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
ÚTSALA
30-60%
AFSLÁTTUR
Kínversk
handgerð list
· Vasar
· Diskar
· Lampar
· Pottar
· Myndir
o.m.fl.
Alvarlegir áverkar Brotaþoli vill háar
miska- og skaðabætur, enda voru áverkar
hans umtalsverðir. Mynd úr safni
Mynd RóbeRt Reynisson
Stórfelldir áverkar
21 árs ákærður fyrir stórfellda árás fyrir utan Kaffi Zimsen
R
íkissaksóknari hefur ákært
21 árs karlmann fyrir stór
fellda líkamsárás. Mannin
um er gefið að sök að hafa
slegið annan mann, ellefu
árum eldri, í apríl 2013 og veitt hon
um alvarlega áverka.
Í ákæru kemur fram að mennirn
ir tveir hafi verið fyrir utan húsnæði
Kaffi Zimsen í Hafnarstræti í apríl
2013 um miðja nótt. Ungi maður
inn er sagður hafa slegið brotaþola
þar fyrir utan, með krepptum hnefa
í andlitið. Við það féll sá síðarnefndi
við, datt á gangstéttina og lá óvígur
eftir. Í ákæru segir að í kjölfarið hafi
ákærði sparkað í andlit mannsins af
miklu afli. Við það skall höfuð hans
utan í húsvegg.
Áverkarnir sem brotaþoli hlaut
eru umtalsverðir. Hann hlaut höfuð
kúpubeinsbrot, brot inn í heilabú,
loftbólu við heila, brot á vanga og
kinnkjálkabeinum og nefbeinabrot.
Þá var hann með langan skurð í hár
sverði sem náði í gegnum höfuðleð
ur. Í honum brotnuðu þrjár tennur
og bit hans skekktist og hann fékk
tannliðarhlaup. Hann var marinn
á brjóstkassa, marinn og bólginn
í andliti við hægra auga. Þá varð
vinstra auga hans útstætt og hann
fékk alvarlega áverka á augnatóft.
Málið var þingfest á þriðjudag
fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Mað
urinn er sem áður sagði ákærður
fyrir sérstaklega hættulega líkams
árás og vill brotaþoli fá tæpar þrjár
milljónir í miska og skaðabætur,
með vöxtum, vegna áverka sinna. n
astasigrun@dv.is
Rándýr markþjálfun
er auglýst ókeypis
n Sex mánaða fjarþjálfun kostar hátt í hálfa milljón
N
ei, ég er ekki að bjóða upp
á ókeypis heilsumarkþjálf
un. Ég býð hins vegar upp á
ókeypis viðtöl,“ segir heilsu
markþjálfinn Júlía Magn
úsdóttir, sem rekur fyrirtækið Lifðu
til fulls. Á heimasíðu fyrirtækisins
er boðið upp á ókeypis fjarnám
skeið, en þar segir að Júlía muni
sýna fólki hvernig það eigi að fara
að því að hætta að glíma við orku
leysi, aukakíló og sykurlöngun. „Í
viðtalstímunum komumst ég og
viðskiptavinurinn að því hvort að
þjálfunin mín sé eitthvað sem hent
ar viðkomandi eða ekki,“ segir Júlía.
Í kjölfarið býðst viðskiptavinum
að fara í viku hreinsun, þar sem lík
aminn er hreinsaður af óæskileg
um efnum og kostar slíkt tæpar tutt
ugu þúsund krónur. Ekkert kemur
fram um verð á heimasíðunni, og
þar eru einungis upplýsingar um 3–6
mánaða námskeið og einnig fjöru
tíu mínútna viðtalstíma. Þó kemur
margoft fram að hægt sé að fá ráðgjöf
ókeypis og þá notar Júlía frasa eins
og „algjörlega ókeypis“ og „þessu
einstaka ókeypis fjarnámskeiði“.
Rándýr þjálfun
„Það er rétt, það eru ekki allar upp
lýsingarnar á heimasíðunni,“ segir
Júlía sem vildi þó ekki gefa upp verð
á sex mánaða þjálfun. Samkvæmt
samningi sem Júlía gerir við við
skiptavini sína og blaðamaður komst
yfir, kostar slíkt námskeið tæplega
fjögur hundruð þúsund krónur.
Innifalið í því er meðal annars átta
klukkutíma kennsluupptökur á 3
vikna fresti, átta klukkutíma símtöl
í gegnum Skype þar sem hægt er að
spyrja Júlíu spjörunum úr, stuðn
ingur í formi tölvupósts, skilgrein
ing á „persónulegri ofurfæðu“ sem
er sérsniðin af þjálfaranum, tuttugu
og eins dags hreinsunaráætlun auk
afsláttar hjá samstarfsaðilum Lifðu
til fulls.
Sérstaklega er tekið fram að inn
ifalinn sé ókeypis „VIP“passi á við
burði í þjálfuninni, þar sem allir þeir
sem eru í henni hittast og Júlía deilir
sínum bestu hollráðum, veitir sýni
kennslu og fleira. Fyrir þetta þarf að
greiða, sem fyrr segir, fjögur hundruð
þúsund krónur, eða rúmlega sextíu
og sex þúsund krónur fyrir hvern
mánuð. Til samanburðar er hægt
að fá sex mánaða kort í líkamsrækt
sem kostar um fimm
tíu þúsund krónur í heild
og fjareinkaþjálfun með
því kostar mun minna á
mánuði.
Konur hafa
hætt á lyfjum
Í tölvupósti sem Júlía
sendir þeim sem skrá
sig á ókeypis fjarnám
skeið, kemur fram að til
þess að taka að taka þátt
í námskeiði hjá henni
þurfi viðkomandi að hafa mikla
löngun til þess að ná þyngd niður,
losna við líkamlega kvilla og fyll
ast af orku. Í tölvupósti sem DV hef
ur undir höndum og var sendur til
væntanlegs viðskiptavinar segir Júlía
að hún geti hjálpað viðkomandi að
léttast, auka þol, og jafnvel hætta að
nota lyf.
„Konur sem hafa verið hjá mér
hafa getað hætt á blóðþrýstings
lyfjum og jafnvel þunglyndislyfjum.
Á heimasíðu minni sérðu
reynslusögur kvenna sem hafa
verið í þjálfun hjá mér og þar
kemur þetta fram. Ég er ekki
læknir, viðskiptavinir hætta á
lyfjum í samráði við lækni og bera
sjálfir ábyrgð á því,“ segir Júlía en í
samningnum skrifar viðskiptavinur
undir að hann sé meðvitaður um að
Júlía stundi ekki lækningar eða nær
ingarlegar meðferðir. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Nei, ég
er ekki
að bjóða upp á
ókeypis heilsu-
markþjálfun
Ekkert eftirlit
„Embætti landlæknis hefur eftirlits-
skyldu með heilbrigðisstarfsfólki og
heilsumarkþjálfar eru ekki löggildir.
Til eru starfsreglur fyrir heilbrigðis-
starfsfólk, siðareglur og annað en
þegar kemur að starfsstéttum sem eru
ekki löggildar þá ná engin eftirlitslög
yfir þau. Þetta er stórt vandamál,“
segir Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,
sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis hjá
embætti landlæknis. „Ég geri ráð fyrir
því að ráðgjöf til fólks um að hætta á
lyfjum og breyting á mataræði sé ekki
í samræmi við ráðleggingar landlækn-
is. Þær byggja á mjög ígrunduðum
rannsóknum til langs tíma, en ekki
tískubólum eða öðru,“ segir Guðrún. Í
bígerð er heimasíða á vegum embætt-
isins með upplýsingum um ráðgjöf fyrir
fólk sem vill breyta mataræði og auka
hreyfingu.
dýrt Sex mánaða
þjálfun kostar
fjögur hundruð
þúsund krónur, en
Júlía vildi ekki gefa
það upp í samtali
við blaðamann.
skjáskot af heimasíðu Júlía býður
fólki upp á ókeypis fjarnámskeið en á
heimasíðunni kemur ekkert fram um
verð á heilsumarkþjálfun.
Konur hætta
í bæjarstjórn
Allar þær konur sem eru bæjar
fulltrúar á Akureyri hafa til
kynnt að þær ætli ekki að sækj
ast eftir endurkjöri. Þetta kom
fram á vef Vikudags á fimmtu
dag. Fjórir af ellefu bæjar
fulltrúum nú eru konur, þrjár
fyrir hönd Llistans og ein
fyrir Vinstri græn. Þetta eru
þær Halla Björk Reynisdóttir,
Hlín Bolladóttir og Inda Björk
Gunnarsdóttir sem eru fulltrú
ar Llistans og Andrea Hjálms
dóttir, fulltrúi Vinstri grænna.
Engin þeirra ætlar að halda
áfram í stjórnmálum og því
líklegt að konum muni fækka
í bæjarstjórn eftir komandi
kosningar.
Transfólk neytt
í skurðaðgerðir
Í fréttatilkynningu frá Íslands
deild Amnesty er meðferð á
transfólki í Evrópu harðlega
gagnrýnd og það sagt standa
frammi fyrir mismunun,
ómannúðlegri og niðurlægj
andi meðferð. „Víða brjóta
Evrópulönd á mannréttindum
fólks sem reynir að breyta um
lagalegt kyn sitt samkvæmt
skýrslu Amnesty International.
Þar kemur fram hvernig trans
fólk er neytt til að fara í inn
gripsmiklar skurðaðgerðir,
ófrjósemisaðgerðir, hormóna
meðferðir og gangast undir
sálfræði og geðpróf,“ segir í
tilkynningunni. Talið er að um
ein og hálf milljón transfólks sé
í Evrópu.