Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 32
4 Vetrarsport Helgarblað 7.–10. febrúar 2014
Þ
að er ferð núna um páskana
sem heitir Með blóðmör á
berum sér. Þá verður geng-
ið á skíðum upp í Tindfjöll
og dvalið þar í fjóra daga
í snjóhúsum. Það verður skíðað á
daginn og farið á alla helstu tinda
Tindfjalla,“ segir Hjalti Björnsson,
dagskrárstjóri á Vogi og fararstjóri, í
samtali við DV.
Hjalti segist vera í vetrarfjalla-
mennsku meira og minna allar helg-
ar. „Við förum oft á föstudagskvöld-
um eftir vinnu. Við förum ýmist
gangandi eða á skíðum þangað sem
við ætlum og gistum og komum ekki
í byggðir fyrr en á sunnudeginum,“
segir Hjalti.
Hann segir lítinn en vaxandi
hóp stunda að fara ferðir sem þess-
ar. „Þetta eru ekki neinar lúxusferð-
ir, þetta er alveg á hinum endanum.
Það er enginn íburður eða lúxus. Við
erum með jöklatjöld með okkur en
mest gaman er að komast í aðstæð-
ur þar sem hægt er að grafa snjóhús,“
segir hann.
Hlýtt í snjóhúsinu
Hjalti segir að engin hætta sé á að
manni verði kalt við að sofa í snjó-
húsi. „Ef maður byggir húsið rétt þá
lekur kalda loftið út um göngin þar
sem kalt loft er þyngra en heitt. Heita
loftið safnast því saman í húsinu.
Það er eiginlega meira vandamál að
það verður of heitt í snjóhúsinu. Þá
byrja þau að bráðna og vatn fer að
leka. Maður verður að finna jafn-
vægi þar á milli en það er alls ekki
kalt í snjóhúsi,“ segir Hjalti.
„Stórkostleg tegund af útivist“
Hann segir að það sem dragi hann
í fjallamennskuna sé einna helst
kyrrðin og friðurinn sem fylgir því
að vera á fjöllum. „Það er þessi
friður og að fara út úr þæginda-
mörkunum, að lifa við einhverjar
aðstæður þar sem maður hefur
ekki lífsins gæði, sem er svo gaman.
Það er erfitt að lýsa þessu í orð-
um þar sem þetta er meira eitt-
hvað sem maður upplifir. Þetta er
stórkostleg tegund af útivist,“ segir
fararstjórinn. n
Sefur í snjóhúsum
n „Ekki neinar lúxusferðir,“ segir Hjalti Björnsson n Hitinn meira vandamál en kuldinn
Mokstur Mikilvægt er að smíða snjóhúsið
rétt svo ekki verði of hlýtt í því. Ef hlutföll
eru ekki rétt getur snjóhúsið bráðnað.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is „Það er eigin-
lega meira
vandamál að það
verður of heitt
Matmálstími Göngugarparnir fá sér að
borða uppi á fjalli. Oft og tíðum dveljast þeir
heilu helgarnar á hálendinu.