Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 21
Fréttir Erlent 21Helgarblað 7.–10. febrúar 2014
A
llt frá því Indlandi var
skipti upp í tvö sjálfstæð
ríki – Pakistan og Ind-
land – árið 1947 hefur
héraðið Kasmír verið bit-
bein þessara landa. Stærstur hluti
landsvæðisins tilheyrir Indlandi
en Pakistan hefur frá upphafi vé-
fengt tilkall Indlands til héraðsins
þar sem langmestur meirihluti
íbúanna er múslimar. Uppskipt-
ing landsins byggði einmitt á því
að múslimahéruð skyldu tilheyra
Pakistan en hindúahéruð Ind-
landi.
Kjarnorkuríkin tvö hafa háð
þrjú stríð vegna Kasmír-deilunn-
ar en fá landamæri í heiminum
eru jafn víggirt og þau sem skera
Kasmír í tvennt sitthvorum megin
einskismannslands.
Spígspora með alvæpni
Þrátt fyrir að lítið hafi farið fyrir
fréttaflutningi af ástandinu í
Kasmír á síðustu árum geisa þar
enn blóðug átök. Indverski herinn
hefur algjört tangarhald á svæðinu
og benda skýrslur mannréttinda-
samtaka til þess herinn beri ábyrgð
á grófum mannréttindabrotum
gagnvart íbúum héraðsins. Blaða-
maður heimsótti Srinagar, höfuð-
borg Kasmír, í fyrrasumar og kynnt-
ist fólkinu á bak við myndirnar. Þar
má sjá sandpokavirki á hverju götu-
horni og indverska hermenn sem
spígspora með alvæpni um götur,
börn og unglinga sem kasta stein-
um í lögreglu- og hermenn þegar
þeir marsera inn í gamla hluta
borgarinnar, en líka mikla nátt-
úrufegurð, fagurt mannlíf og bak-
pokaferðalanga sem heimsækja nú
svæðið í auknum mæli.
Málstofa um Kasmír
Blaðamaður mun í komandi viku
fjalla enn frekar um ástandið
í Kasmír í tilefni af heimsókn
kasmírska blaðamannsins Fahad
Shah til Íslands. Fahad er ritstjóri
vefmiðilsins The Kashmir Walla
sem hefur meðal annars verið lof-
aður af BBC og Al Jazeera fyrir um-
fjöllun sína um málefni héraðsins.
Fahad mun taka þátt í málstofunni
í Háskóla Íslands föstudaginn 14.
febrúar. DV er á meðal þeirra að-
ila sem standa að málstofunni en
þar munu þeir Jasmin Rexhepi frá
Kósóvó og Mazen Maaroof frá Lí-
banon einnig fjalla þær áskor-
anir sem þeir hafa þurft að horf-
ast í augu við sem blaðamenn á
ófriðarsvæðum. n
n Túristaparadís á átakasvæði n Blaðamaður DV heimsótti Kasmír og kynntist fólkinu þar
andlit Kasmír
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Rúpíur? Þessi skondni maður stillti sér upp fyrir myndavélina og
veifaði rúpíum, gjaldmiðli Indverja.
Unaðslegur kebab Það getur verið gott að taka sér
hvíld frá amstri dagsins og gæða sér á kebab.
Túristaparadís Indverskum ferðamönnum í Kasmír
fjölgar ört en bátsferð um Dal-vatnið er eitthvað sem allir verða að upplifa.
Maður
og her Fólk
kippir sér lítið
upp við vígbúna
hermenn sem
fylgjast með
friðsamlegum
mótmælum.
Framtíð Kasmír Stúlkan var ekki lengi að taka forystu og
stilla sér upp fyrir framan vini sína. Myndin er tekin í gamla hluta Srinagar.
Stilltu sér upp Þessir drengir í gamla hluta Srinagar kepptu um athygli myndavélarinnar.
Fjöldi hermanna kemur saman hvar sem mótmæla-
fundur hefur verið skipulagður en lítil mótmæli geta valdið mikilli spennu.
Reiði barnanna Börn í þorpinu Pattan Palhallan tóku
þátt í mótmælum eftir að einn þorpsbúa, uppreisnarmaður og klerkur, hafði
verið drepinn af indverskum hermönnum.
Indverskir hermenn eru ekkert allt of ánægðir með
athygli fjölmiðla. Fjölmiðlamenn hafa verið handteknir fyrir störf sín.
Myndir Jón BJarKi
Krikket
Rétt eins og annars
staðar í Pakistan
eða Indlandi er
vinsælasta íþróttin
í Kasmír krikket.
Þessir drengir nýttu
eftirmiðdaginn í
að spila krikket og
leyfðu útlendingn-
um meira að segja
að prófa.