Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 17
Helgarblað 7.–10. febrúar 2014 Fréttir 17 ford.is Ford Transit Custom 2,2TDCi dísil, 100 hö, beinskiptur 6 gíra. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 6,9 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 183 g/km. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. Kíktu í kaffi og spjall. Í sameiningu finnum við hagstæða fyrirtækjalausn fyrir þig. VERÐ ÁN VSK FRÁ VERÐ MEÐ VSK FRÁ CUSTOM 3.498.008 KR.. 4.390.000 KR. FORD TRANSIT FORD TRANSIT CUSTOM SENDIBÍLL ÁRSINS 2013 KOMDU OG PRÓFAÐU SENDIBÍL ÁRSINS Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16 Ford_Transit_Custom_180x255_07.10.2013.indd 1 16.1.2014 10:12:42 Barnið komið í heiminn É g eignaðist lítinn strák og hann er við góða heilsu,“ segir Evelyn Glory Joseph, hælis­ leitandi frá Nígeríu, í samtali við DV. Hún eignaðist son á fæðingardeild Landspítalans þann 3. febrúar síðastliðinn. Í viðtali við DV þann 18. nóvember í fyrra sagði Evelyn að hælisleitandinn Tony Omos væri faðir barnsins. Tæplega mánuði síðar var honum vísað úr landi á grundvelli Dyflinnarreglu­ gerðarinnar, en hún kveður á um heimild til þess að vísa hælisleit­ anda aftur til þess lands í Evrópu sem hann kom fyrst til, séu ekki meira en sex mánuðir liðnir frá því hann sótti um hæli. Hælisumsókn Tonys var til umfjöllunar hér á landi í næstum tvö ár. Á það hefur verið bent, meðal annars af lögmanni Tonys, að Ísland hafi skrifað undir barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem tryggi börnum samvistir við báða foreldra, og með þessu séu yfirvöld að brjóta gegn barnasáttmálanum. „Mér líður ekkert allt of vel að geta ekki verið með þeim,“ segir Tony í símaviðtali við DV, en bætir því við að hann hafi séð son sinn í gegnum Skype daginn sem hann fæddist. Systir Tonys til staðar Tony segist hugsa daglega til Evelyn og barnsins: „Ég vildi óska þess að ég gæti verið með syni mínum og Evelyn núna, ég bið til guðs að sú ósk rætist.“ Erfitt sé að hugsa til þess að Evelyn sé ein með barnið en gott að vinir hennar hafi verið henni innan handar. Evelyn segir systur Tonys og aðra vini sína hafa aðstoð­ að sig mikið síðustu daga: „Já, þau eru hjá mér daglega og hjálpa mér, ég er mjög þakklát fyrir það, enda svolítið þreytt eftir fæðinguna.“ Þá segist hún eiga þá ósk heitasta að Tony geti á endanum komið aftur til Íslands til að hitta hana og barnið. Eins og DV hefur greint frá síð­ ustu mánuði var persónuupplýs­ ingum um þau Tony og Evelyn, sem sagðar voru eiga uppruna sinn í innanríkisráðuneytinu, lekið til fjöl­ miðla í nóvember. Lögmenn þeirra hafa kært málið, annars vegar til lögreglu og hins vegar til ríkis­ saksóknara sem er með málið til skoðunar. Hanna Birna Kristjáns­ dóttir innanríkisráðherra hefur átt í erfiðleikum með að svara fyrir málið en þingmenn, sem og óbreyttir starfsmenn ráðuneytisins, hafa farið fram á að gerð verði óháð rannsókn á lekanum. Ráðherra vísar til þess að rekstrarfélag stjórnarráðsins hafi rannsakað lekann, en fjölmargir hafa bent á að félagið hafi engu lög­ bundnu eftirlitshlutverki að gegna. „Ég er ringluð“ Evelyn er eins og gefur að skilja í töluverðu áfalli eftir að viðkvæm­ ar persónulegar upplýsingar um hana birtust í víðlesnum fjölmiðl­ um. Upplýsingarnar fengu yfirvöld í krafti þess að hún hafði sótt um hæli hér á landi. „Ég er ringluð yfir þessu öllu saman, ég vil bara fá smá frið,“ segir hún í samtali við blaðamann. Tony heldur ennþá til hjá vini sínum í Basel í Sviss, en hann er tæknilega ólöglegur í landinu þar sem meira en tvö ár eru síðan hælisumsókn hans var til umfjöllunar þar. Hefur hann fengið þau skilaboð að hann sé á ábyrgð „íslenskra yfirvalda“. „Ég er ennþá á sama stað,“ segir Tony og heldur áfram: „Þetta er erfitt, ég veiktist fyrir stuttu en ég er ekki með neina sjúkratryggingu, þannig að ég get ekki farið til læknis hér.“ Hann segist ekkert vita hvert framhaldið verði, eða hvort fæðing barnsins muni breyta stöðu hans: „Ég er bara svo ringlaður, ég er svo þreyttur núna …“ Evelyn seg­ ir fæðinguna hafa gengið vel en að hún hafi tekið á eins og gefur að skilja. „Ég er mjög þreytt, meira að segja núna á meðan ég er að tala við þig. Það finnst auðvitað öllum konum magnað að upplifa það að eignast barn en það er auðvitað líka mjög erfitt,“ segir hún. n n Drengnum heilsast vel n Tony biður til guðs að hann fái að sjá son sinn Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Barnið fætt Tony og Evelyn eignuðust strák þann 3. febrúar. Mynd SigTryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.